Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ & VlSlR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
Tónlistarskólinn Ólafsvík !
KENNARA VAIMTAR
aðTónlistarskólaÓlafsvíkurfrá 1. september 1982.
Upplýsingar gefa sveitarstjóri i síma 93-6153 og formaður skólanefndar í
síma 93-6181.
ORGANISTI
Organisti óskast við Ólafsvíkurkirkju.
Upplýsingar veitir formaður sóknamefndar í sima 93-6233.,
Sóknarnefnd.
Skólanefnd.l
Fóstrur — Fóstrur
Á Akureyri vantar fóstrur til starfa. Einnig forstöðumenn
fyrir leikskólana, Lundarsel frá 1. maí og Iðavelli frá 1.
ágúst. Upplýsingar um störfin gefnar í Félagsmálastofnun
Akureyrar. Sími 25880 þriðjudaga og miðvikudaga kl.
10—12, fimmtudaga kl. 1—2. Umsóknarfrestur til 1. maí
1982.
Dag vistarf ulltrúi. i
Athugið, miðar eru seldir á skrifstofu S.Á.Á.,
Síðumúla 3—5, og einnig sendir ef óskað er.
Símar 33370 og 82399.
Opið virka daga kl. 9—5. Opjft bugardag
Tökum á með S.ÁÁ |g_ jg
Björk Guðmundsöóttír, söngvarí hjjómsvaitarinnar Tappa tikamua, áaamt \Maigant0 kvtirmyntiaUHtuvaaan
vM upptökuró myndfnni i HótaiBorg.
Kvikmyndin Rokk í Reykjavík framsýnd um næstu helgi:
FYRSTA HEIMILDARMYNDIN
UM ÍSLENZKT ROKKLÍF
—og fyrsta kvikmyndin sem f ramleidd er í dolby stereo
á öllum Noröurlöndunum
Sjaldan hafa íslenzkir poppáhuga-
menn beðið einnar kvikmyndar með
eins mikilli eftirvæntingu og ræmu
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokks í
Reykjavík. Kvikmyndin verður frum-
sýnd næstkomandi iaugardag, tiunda
april, í Tónabíói. Sýningar úti á landi
hefjast fáeinum dðgum siðar.
Rokk í Reykjavík telst vera fyrsta
islenzka popptónlistarmyndin i fullri
iengd. Óhætt mun að fullyrða að hún
sé fyrsta tilraunin til þess að varpa Ijósi
á flutning rokktónlistar í landinu eins
og hann gerðist á árunum áður og
gerist um þessar mundir. Kvikmyndin
er heimildarmynd i þess orðs fyllstu
merkingu — og heimildin er sá þáttur
tónlistarinnar sem einu nafni nefnist
rokk og timabilið spannar árin frá 1979
til okkar dags.
Þverskuróur afrokk-
fífí þfóöarinnar
Ljóst er að kvikmyndin gefur góðan
þverskurð af rokklifl þjóðarinnar.
Fjöldi hljómsveita sem fram kemur í
myndinni bendir aliavega í þá átt. Fjöl-
breytni þeirra er enda mikil, allt frá
gömlum skallapoppurum til örgustu
pönkara.
Þær hljómsveitir sem fram koma í
myndinni teljast vera átján og eru Bara
flokkurinn, Bodies, Bruni B.B., EGÓ,
Fræbbblamir, Grýlurnar, Jonee Jonee,
Purrkur Pillnikk, Q4U, Sjálfsfróun,
Tappi tikarrass, Vonbrigði, Start, auk
Sveinbjöms Beinteinssonar allsherjar-
goða sem kveður nokkrar stemmur 1
myndinni.
Rokk i Reykjavík ætti ekki sizt að
varpa skýru Ijósi á þann vaxtarbrodd er
hljóp i flutning rokktónlistar i upphafi
þessa áratugar og áhrif hans á þá tón-
list sem fyrir var í landinu. Til að
mynda er nokkrum stuttum viðtölum
við valinkunna poppara fléttað inn á
milli laga. Kappar eins og Bubbi
Morthens, Pálmi Gunnarsson, Ragn-
hildur Gísladóttir, Pétur Kristjánsson
og Tryggvi Htibner, svo einhverjir séu
nefndir, láta móðan mása um álit sitt á
rokklifinu eins og það var, er og kemur
til með að verða; f jalla um sexið, dópið
og liflð í kringum rokkið frá degi til
dags — og yfirleitt þann móral sem um-
lykur flutning þessarar tónlistar og
gerði fyrr á tímum.
Kvikmyndin ætti að gera fólki góða
grein fyrir því umróti sem rokkið hefur
valdið í þróun lifandi tónlistar i land-
inu, einnig þeirri byltingu sem angar
þess hafa valdið, til að mynda í tizk-
unni og raunar allri hugsun unga fólks-
ins. Og fyrst og síðast ætti hún að
skýra þær hugsjónir og þann boðskap
sem hvílir í huga þess fólks sem var og
er heilinn á bak við allt rokk i Reykja-
vík — og raunar víðar.
Tekur níutíu
mkiúftur faýningu
Gifurlega rnikið efni var tekið upp
við gerð myndarinnar, eða allt að tutt-
ugu og fjórir klukkutimar sem nú hafa
verið styttir niður i einungis niutiu min-
útur, sem verður kvikmyndarinnar i
sýningu. Það er þvi ljóst að erfitt hefur
veriB að velja og hafna í úrvinnslunni.
AkaharjargoOinn Svaktb/Om Bajntaktaaon kvaður nokkrar atammur i mynti-
inniogmi maO aanniaagfa aOþar tangihann aaman gamlan og nýjan tima.
En það er önnur saga.
Upptökur myndarinnar hófust í lok
október á siðasta ári og stóðu fram i
miðjan febrúar þessa árs. Fóru upp-
tökur fram á eftirfarandi stöðum:
Hótel Borg, Hafnarbiói, Fellahelli,
Menntaskólanum við Hamrahlið,
Árseli, Félagsstofnun stúdenta, Þursa-
biti (hljóðupptökusal Þursaflokksins),
Top of the Rock (skemmtistað á Vell-
inum), Broadway, Óðali, Lækjartorgi,
Nýlistaaafninu og hinum ýmsu
æfingarstöðum hijómsveitanna.
Rokk i Reykjavik er fyrsta fslenzka
kvikmyndin sem tekin er upp i hinu svo
nefnda dolby stereo og raunar fyrsta
myndin sem tekin er upp i sliku kerfi á
öllum Norðurlöndunum. Það að kvik-
myndin er tekin upp í slíku kerfi gerir
það að verkum að tóngæðin verða allt
önnur og betri þegar myndin er í sýn-
ingu en ef um venjulegar upptökur
hefði verið að ræða. Eins og einn að-
standenda myndarinnar komst að orði
við blaðamann þá eru tóngæði kvik-
mynda næst þvi vera „life sound”
þegar dolby stereo kerflsins nýtur við.
Hljóðið berst á fjórum rásum um
salinn í stað einnar rásar eins og tíðkazt
hefur hingað til við sýningar kvik-
mynda í islenzkum kvikmyndahúsum.
Ætti hver að geta gert sér í hugarlund
hversu mikil breytingin er til góðs frá
hinu gamla og hefðbundna kerfi kvik-
myndahúsanna sem, miðað við alla
tækniþróun, hlýtur að teljast orðið
löngu úrelt.
Eins og kunnugt er verður tveggja
platna albúm gefiö út með lögunum
úr myndinni sama dag og frumsýning
kvikmyndarinnar verður. Um er að
ræða upprunalega tónlist úr myndinni.
Sérlegar stúdíóupptökur koma þar
hvergi nærri. Á plötunni er að finna
nokkru fleiri lög en spiluö verða í kvik-
myndinni, eins og eðlilegt má raunar
teljast þegar tillit er tekið til þess
ógrynnis efnis er upp var tekið og ekki
komst að i sjálfri myndinni. Verða
lögin á plötunni alls þrjátíu og þrjú.
Útgefandi hennar er Hugrenningur sf.
Sömu aðflar og stóðu
að gerö Efdsmfðsíns
Loks er aö geta aðstandenda Rokks i
Reykjavik. Friðrik Þór Friðriksson er
eins og kunnugt er stjómandi hennar
og helzti frumkvöðull að gerð hennar
ásamt Jóni Karli Helgasyni, 'Ara
Kristinssonar og Þorgeiri Gunnarssyni
en þeir fjórmenningar hafa staðið að
gerð einnar kvikmyndar áður. Það var
Eldsmiðurinn sem nýlega var sýndur 1
sjónvarpi og hlaut góöa dóma.
Kvikmyndun Rokksins annaðist svo
Ari Kristinsson auk þess sem hann
hafði yfirumsjón með lýsingu. Tón-
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRlL 1982.
. Punkur Ptiktikk ar maðai Manxkrm nýgrmOinga /' rokklnu. A myntikml ajtat
filagamlr viO mtingar i mfktgahúanaaOi sinu þar sam upptaka myntiarinnar
fór maOai annara fram.
hstarupptaka, sem fram fór á átta
rásum, var i höndum þeirra Júliusar
Agnarssonar, Tómasar Tómassonar og
Þórðar Ámasonar. Hljóðvinnsla fór
fram í Lundúnum, en hljóðblöndun
var i höndum Alan Snelling og Þórðar
Ámasonar en sá fyrrnefndi starfar hjá
fyrirtæki sem sá um hljóðið fyrir
myndirnar Star Wars, The Empire
Strikes Back og Flash Gordon, svo ljóst
er að hér er enginn aukvisi á ferð.
Filmuvinnsla myndarinnar fór svo loks
fram í Kaupmannahöfn. Fram-
kvæmdastjóri Rokks 1 Reykjavik er
Þorgeir Gunnarsson.
Heildarkostnaðurinn við gerð kvik-
myndarinnar mun nema um tveimur og
hálfri milljón króna. Að mati aðstand-
enda hennar þarf liðlega flmmtiu þús-
und manns tU að sjá myndina svo hún
beri sig. Þá er miðað við að verð miða
verði sjötiu krónur.
Kvikmyndin Rokk i Reykjavik
verður sem fyrr segir frumsýnd i
Tónabiói næstkomandi laugardag.
Óhætt mun að fullyrða að menn biði
spenntir eftir þessari fyrstu hljómleika-
mynd sem framleidd hefur verið hér-
lendis.
-SER
17
Landsleikir
/ körfuknattieik
ÍSLAND - ENGLAND
/ dag — iaugardag — ki. 14.00 / íþróttahúsinu Borg-
arnesi
Á morgun — sunnudag — kl. 14.00 / íþróttahúsinu
Keflavík.
Mætum og hvetjum ísienzku strákana tilsigurs.
i KKÍ.