Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
207. TBL. — 72. og 8. ARG. — MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1982.
ELDSNEYTIFYRIR MILLI-
ÓNATUGIHENT í HAFID?
— sjá baksíðu
Forseti íslands, Vigdís Hnnbogadóttir, heilsar Birgit Nilsson söngkonu. Á milli þeirra eru gamanleikarinn
Victor Borge og Lilian Svíaprinsessa, eiginkona Bertils prins. DV-mvnd: GTk.
VIGDÍS VAKTIGÍFURLEGA
A THYGU í SKAUTBÚNINGI
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, dvaldi í Minnesota um helg-
ina ásamt fulltrúum hinna Noröur-
landanna og fylgdarliöi. Flutti Vig-
dís aöalræöuna viö opnun Scandi-
navia Today í Minnesota en í því
fylki eru fjölmennustu byggöir
manna af norrænum ættum í Banda-
ríkjunum.
Ekki þurfti minna en Metrodom-
leikvanginn, sem er yfirbyggöur og
rúmar 62 þúsund manns, undir nor-
ræna hátíðarsamkomu í Minneapol-
is, höfuöborg fylkisins. Þar fluttu
fulltrúar allra Noröurlandanna
ávörp. I ávarpi sínu lagöi Vigdís út
frá orðinu „metrodom” sem þýöir
hús sem rúmar alla.
Margt var til skemmtunar á sam-
komunni sem um 55 þúsund manns
sóttu. Meðal annars flutti átta þús-
und manna blandaöur kór tónverkiö
Finlandiu eftir Sibelius. Er kór þessi
talinn sá stærsti sem nokkru sinni
hefursungið.
Vigdís vakti gífurlega athygli er
hún mætti í skautbúningi á hátíðar-
tónleika í Orchestra Hall á laugar-
dagskvöld. Tónleikunum var sjón-
varpaö beint um öll Bandaríkin.
Heimsfrægir listamenn af norrænu
bergi brotnir skemn.tu, meðal ann-
ars söngkonan Birgit Nilson. Einnig
komu Fóstbræöur fram og gaman-
leikarinn Victor Borge skemmti í
hléinu. Vigdís vakti svo mikla at-
hygli í skautbúningnum aö gestir
fóru ekki úr tónleikahöllinni aö tón-
leikunum loknum heldur biöu í and-
dyrinu eftir aö Vigdís birtist. Fólkiö
þurfti aö bíöa nokkra stund þar sem
forseti Islands hitti listamennina aö
máli eftirtónleikana.
Vigdís og hinir norrænu þjóö-
höföingjar héldu í gær til New York-
borgar. Mun Vigdís í dag flytja
aöalræöuna við opnun norrænu
menningarkynningarinnar í
borginni. -KMU/GTK.
Víkingar
íslands-
meistarar
— sjá allt um
íþróttaviðburði
helgarinnar
íblaðauka
Ómar Torfason, fyrirliði íslands-
meistaranna, hampar hinum eftir-
sótta bikar.
D V-mynd Friðþjófur.
Sinfónían, Kristján
og Doriet Kavanna
hrif u Akureyringa
Sinfóníuhljómsveit Islands undir
stjóm Páls P. Pálssonar og Kristján
Jóhannsson óperusöngvari komu, sáu
og sigruðu í íþróttaskemmunni á Akur-
eyri á laugardagskvöldiö. Húsfyllir
var en skemman tekur um 900 manns í
sæti. Auk þess stóöu margir þannig aö
um l.OOOmannssóttuhljómleikana.
Hljómsveitin stóö fyrir sínu og
Kristján var á heimavelli, enda hreif
hann samborgara sína sem fyrri dag-
inn. Risu áheyrendur úr sætum í lok
tónleikanna og klöppuöu listafólkinu
lof í lófa og allir vildu fá meira aö
heyra. Enginn átti þó von á því að
Kristján lumaði á þeirri rúsínu í pylsu-
endaimrn sem raun varö á. Hann kall-
aðisem sé Doriet Kavanna ásviöiö
og sungu þau saman síöasta verkið á
tónleikunum, sem aö margra dómi var
hápunktur þeirra. Ogleymanlegir
tónleikar fyrir þá sem heyrðu, enda
þökkuöu áheyrendur fyrir sig meö
lófataki. GS/Akureyri.
Krístján Jóhannsson, Doriet Kavsnna og Páii P. Pálsson, stjórnandi
hijómsveitarinnar. DV-mynd GS Akureyri