Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Síða 3
DV. MÁNUDAGUR 13.SEPTEMBER 1982.
3
Slit meiríhlutasamstarfsins á Akranesi:
Umsækjendum um
bæjarstjórastarf
sýndur dónaskapur
— er ráðinn var maður með málamyndaumsókn
segir í ályktun Alþýðubandalagsins
NOTAÐIR
CZ>
BÍLAR
Seíjum
í dag
Alþýöubandalagiö á Akranesi sleit
meirihlutasamstarfi í bæjarstjórninni
í síöustu viku, eins og fram hefur
komið í DV. Alþýðubandalagiö var í
meirihlutasamstarfi viö Sjálfstæðis-
flokk og Alþýöuflokk, en Framsóknar-
flokkur var einn í minnihluta.
Þrátt fyrir þetta hafa Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýöuflokkur enn meiri-
hluta í bæjarstjórn Akraness.
Ágreiningurinn snýst um ráöningu
bæjarstjóra. Ingimundur Sigurpálsson
var ráöinn bæjarstjóri, er ljóst var aö
Magnús Oddsson fyrrverandi bæjar-
stjóri gaf ekki kost á sér. Alþýðu-
bandalagiö studdi umsókn Rúnars B.
Jóhannssonar rekstrarhagfræðings og
endurskoðanda.
Almennur félagsfundur í
Alþýðubandalaginu á Akranesi
ályktaöi um slit meirihlutasamstarfs-
insog þarsegir m.a.:
„Vinnubrögö þessara flokka (þ.e.
Sjálfstæðis- og Alþýöuflokks) viö ráön-
ingu bæjarstjóra fyrr í sumar voru
með þeim hætti, að engan veginn
veröur við unað. Þar var óvenju
hæfum umsækjanda, Rúnari B.
Jóhannssyni, rekstrarhagfræöingi og
endurskoðanda, hafnaö sakir stjórn-
málaskoöana hans. Sérmenntun hans
á sviöi opinbers rekstrar ekki metin
neins, né heldur þekking hans á bók-
haldi og fjármálastjóm. Stóru oröin
um nauösyn traustrar f jármálastjóm-
ar og föst tök á bókhaldi bæjarins náðu
ekki lengra en svo, að þegar hæfasti
fjármálastjórinn reyndist vera vinstri
maður var honum hafnaö án nokkurs
rökstuönings.
Viöhorf sem þessi ættu að heyra sög-
unni til og em meö öllu óverjandi að
mati Alþýöubandalagsins, enda hlýtur
þaö aö vera vandséö hvernig
Alþýðubandalagið getur veriö í sam-
starfi viö aðila, sem telja þá menn
óhæfa til starfa h já Akranesbæ, er hafa
vinstri skoöanir á þjóðmálum.
Jafnframt er ástæöa til að gagnrýna
harðlega þann dónaskap, sem umsækj-
endum í heild var sýndur meö því að
virða aö vettugi umsóknir þeirra, og til
starfans ráðinn maöur, sem ekki var í
þeirra hópi, en málamyndaumsókn
fleygt inn á bæjarstjórnarfund um leið
og ráðning fór f ram.
Það skal tekið fram aö gagnrýni
Alþýðubandalagsins á málsmeðferö
við ráöningu bæjarstjóra er á engan
hátt beint gegn Ingimundi Sigurpáls-
syni, bæjarstjóra.
Alþýöubandalagiö hlaut fulltrúa í
ýmis ráð og nefndir bæjarins vegna
þátttöku í meirihlutasamstarfi. Nú
þegar þessu samstarfi er lokiö leggur
Alþýðubandalagið til, aö kosiö verði að
nýju í ráö og nefndir bæjarins, ef þess
erkostur.
Störf Alþýðubandalagsins í minni-
hluta munu byggjast á bæjarmála-
stefnuskrá flokksins. Jafnframt mun
Alþýöubandalagiö viröa þaö málefna-
samkomulag, sem það stóð aö þegar
núverandi meirihluti var myndaöur í
bæjarstjóm og stuöla aö framgangi
þeirra mála, sem þar eru tilgreind.
Mun Alþýðubandalagið m.a. leitast viö
aö ná samkomulagi um gerð fjárhags-
áætlunar í anda málefnasamningsins.
-JH
SAAB TURBO '82,4-dyra,
silver, beinsk., ek. 15.000 km.
SAAB 900 GL '82,4-dyra,
ljósblár, beinsk., ek. 17.000 km.
SAAB 99 GLI '81,4-DYRA,
ljósblár, beinsk., ek. 10.000 km.
SAAB 99 GL '80,4-DYRA,
brúnn, beinsk., ek. 30.000 km.
SAAB 99 GL '79,2-DYRA,
gulur, beinsk., ek. 58.000 km.
SAAB 99 ÉMS '78,2-DYRA,
rauöur, bjeinsk., ek. 88.000 km.
SAAB 99 GLS '77,4-DYRA,
blár, sjálfsk., ek. 65.000 km.
SAAB 900 GLE '81,4-dyra,
ljósblár, sjálfsk., m/vökvast., ek.
19.000 km.
SAAB 900 GLE '80, 5-DYRA,
ljósgrænn, sjálfsk., m/vökvast., ek.
19.000 km.
SAAB 900 GL'80,5-DYRA,
ljósgrænn, beinsk., ek. 31.000 km.
SAAB 99 GL '82,4-DYRA,
hvítur, 5 gíra, ek. 8.000 km.
TÖGGUR HF.
SAABUMBOOÐ
BÍLDSHÖFÐA 16.
SÍMI 81530
SUMARAUKI
í MALLORKA
SÓL
LÚXUSVILLUR ISÓLSKINSPARADÍS
OG ÓKEYPIS BÍLALEIGUBÍLL
Beint leiguflug til Mallorka
28. september.
Fjögurra vikna dvöl i lúxusvillum
Ibungalows) eða ibúðum á einum
fegursta og eftirsóttasta ferða-
mannastaðnum á Mallorka, Puerto
de Andrtaitx.
Óviðjafnanleg náttúrufegurð. Mini-Folies býður upp á allt það sem hugur
ferðamannsins girnist. Þrjár sundlaugar og barnalaug, frábær útivistar- og
sólbaðsaðstaða, veitingastaðir, skemmtistaðir og diskótek, íþrótta-
miðstöð, fjórir tennisvellir og tennisskóli, sauna-böð leikfimisalir með
æfingatækjum og verslunarmiðstöð.
í boði er gisting í glæsilegum
villum og íbúðum af mis-
munandi stærðum.
TAKIÐ EFTIR - TAKMARKAÐUR
ÞESSUM VILDARKJÖRUM.
SÆTAFJÖLDI Á
AMSTERDAM,
FÖGUR OG HEILLANDI BORG
Innifalið: Flugferðirnar, ferðir milli flugvallar og gististaðar,
gisting, bílaleigubíll í eina viku með ótakmörkuðum kiló-
metrafjölda og skyldutryggingu, íslenskur fararstjóri.
Verð frá
kr. 8.900,-.
Miðstöð menningar og lista. Fjöibreyttar
skemmti- og skoðunarferðir. Ein hagstæð-
asta verslunarborg Evrópu. Draumaborg
sælkerans með fjölbreytilegum veitinga-
stöðum. Glaðvært skemmtanalíf. Amster-
dam er sérkennileg og fögur borg. Feneyjar
Norður-Evrópu með ótal borgarskurðum
með líflegri umferð þar sem sérkennilegur
Nánari
upplýsingar
á skrifstofu
okkar.
og fagur, fíæmskur byggingarstíllinn spegl-
ast á Ijúfum síðsumardögum. Kynnið ykkur
fjölbreytta haust- og vetraráætlun.
ÞAÐ KOSTAR ÓTRÚLEGA LÍTIÐ AÐ
SKREPPA í VIKU TIL AMSTERDAM.
VERÐ FRÁ:
4dagar 4.900.00
Sdagar 5.300.00
vika 6.200.00
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66,
101 Reykjavík. Sími: 28633