Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 9
DV. MANUDAGUR13. SEPTEMBER1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd ORÐSENDING TIL LANDSBYGGÐARMANNA: Heföum viljað geta heimsótt ykkur og sýnt ykkur hinar glæsilegu Ballingslöv innréttingar. En sýningarsalur okkar er þungur í fíutningum og því gerum viö ykkur þetta tilboð: Komið þið til okkar og við tökum fargjaidið aðra leiðina sem greiðslu upp í kaupverð innréttingar. TILBOÐ ÞETTA STENDUR TIL 17. SEPTEMBER 1982. KOMIÐ í SÝNINGARSAL OKKARí SUNDABORG. m ínnrcttingaval hf. SUNDABORG - SIMI 84333. Við sömdum í skyndi við Ballingslöv um 15% afslátt á e/dhús- og baðinnréttingum auk fataskápa til 17. september. Þannig snúum við vörn í sókn í baráttu við afíeiðingar gengisfellingar. Stórfellt fíkniefna- smygl á Norðuriöndum Sænskir fíkniefnasalar hafa notað Osló sem viðkomuhöfn fyrir stórar sendingar af marijuana frá Kólumbíu. Er hér um glæpahring aö ræða sem hefur smyglað fíkniefninu með kaffi- bátum er hafa viðkomu í Osló. 30 manns hafa nú verið handteknir á Skáni og á Stokkhólmssvæðinu í sam- bandi við málið. Samkvæmt norska Dagblaöinu var stærsta marijuana- sendingin sem komst til Svíþjóðar á þennan hátt 40 kg. Sendingin kom til Osló í desemberlok og var hún um borð í skipi sem kom meö kaffi frá Kólumbíu. hafa a.m.k. 30 manns verið handtekn- ir. Sænska lögreglan álitur að rúmlega 100 manns hafi i allt staðið að smygli þessu. Glæpahringur þessi var stofnaður fyrir u.þ.b. tveimur árum og var honum skipt í ýmsar deildir. Þeir sem áttu að sjá um marijuana-smygliö vorualls 10—12. ’ Sænsku lögreglunni hefur ekki tekist að komast yfir nema fimm kíló af marijuana og tvö kíló af hassi en hefur ástæöu til að halda að hér sé um aö ræða mörg hundruð kíló af fíkniefn- um. Glæpahringurinn hafði bækistöö sína í Nárstad, rétt utan við Stokk- hólm, og á Skáni. Hann lagði líka stund á hass-smygl og er talið aö hann hafi einnig smyglað inn þó nokkru af amfetamíni. Ekki er enn vitað hve miklu magni glæpahringnum tókst að smygla gegnum Osló en sænska lög- reglan telur allar líkur á því að úr því fái skorist á næstunni. Lestarslys í Sviss Sendiboðinn sem sótti fíkniefnið til Osló smyglaði því til Svíþjóðar í bíl. Hann hefur nú verið handtekinn en er ekki álitinn einn af höfuðpaurunum í málinu. Þetta er talið eitthvert mesta fíkniefnasmygl í sögu Svíþjóðar og 38 V-Þjóðverjar fórust í jámbrautar- slysi í Sviss í gær, en það var annaö jámbrautarslysið þar í landi á tveim mánuðum. — Þjóðverjamir voru ferðamenn á leið í langferðabíl þegar lestin rakst á bílinn í sömu mund og hann ók y fir teinana. Það er talið aö hlið sem lokast á sjálfkrafa þegar lest nálgast hafi bilað en slíkar bilanir hafa áöur leitt til járn- brautarslysa. Við áreksturinn brotnaði langferða- billinn í nokkra hluta og fólkið kastaðist út á nærliggjandi kornakur. Lestin fór út af teinunum en valt þó ekki. Fyrir þá mildi lét enginn lífið í henni en sex slösuðust í henni, auk lestarstjórans, konu úr langferða- bílnum og brautarvaröar. 18. júlí rakst flutningalest á hrað- lestina milli Dortmund og Rimini og fómst þá sex manns, en 59 slösuöust. Skeði það um 25 km vestur af Ziirich og var taliö aö mannleg mistök hefðu valdiðslysinuþá. FellibyluríJapan Ottast er um líf 30 manna eftir að fellibylurinn Júdí æddi yfir stóran hluta Japans og skildi eftir sig slóð eyðileggingar í gær. Fellibylurinn skall á miðeyjum japans í gær og hélt áfram til norðausturs. Fylgdu í kjölfarið flóö og skriöuföll. Flæddi um 65 þúsund hús, að sögn lögregl- unnar, og 170 þeirra eyöilögðust alveg. Frést hefur af 1.100 skriðum og á tuttugu stöðum flæddu ár yfir bakka sína. Víða rofnaöi vega- samband þar sem vegarköflum skolaöi burt eða skriður tepptu umferð. Jámbrautarkerfið lamaðist og um 17 þúsund manns urðu strandaglópar og urðu að láta fyrirberast í lestarvögnum eða smábrautarstöðvum. Eldurírisa- vöruskemmu Stærsta baömullarvöm- skemma Evrópu eyðilagðist í eldi í gær í Le Havre í Fraklandi og bmnnu þar um leiö baömullar- birgðir fyrir 250 milljónir franka. Allt slökkvilið Le Havre var kvatt til slökkvistarfsins en þrír fjórðu hlutar þessa 800 metra langa vörahúss bmnnu til ösku áður en niðurlögum eldsins var ráöið. — Tveir slökkviliðsmenn slösuðust. Baðmullin var í eigu margra fyrirtækja. — Lögreglan veit ekki hver eldsupptök voru. Hinckley: Skrifaði bréf til News- week með boði sem var hafnað. Hinckley bauðst tilaðjáta John Hinckley, sem sýndi Reagan forseta tilræði, var sýkn- aður af kviðdómi sem taldi hann ósakhæfan vegna geðveilu. Hann upplýsti í gær að hann hefði boðist til þess að játa sök sína gegn því að fá mildari refsi- dóm en dómsmálaráðuneytið heföi ekkiþegiðþað. I bréfi til tímaritsins Newsweek segir Hinckley að hann og lögfræðingar hans hefðu boðið ákæruvaldinu að hann játaöi á sig fjórar morðtilraunir (fjórir særöust í tilræðinu), ef ákæruvaldið léti nægja að krefjast fjórfalds lifstíðar- fangelsisdóms með vilyrði um að stytting refsivistar gæti komið til álita eftir 15 ára afplánun. Þessu hafnaði dómsmálaráöu- neytið, en slíkir ámóta samn- ingan um mildari dóma eöa hugsanlega styttingu refsivistar em algengir í Bandarikjunum til þess að flýta afgreiðslu saka- mála fyrir dómstólum. . Hinckley segist þá hafa boðist til þess aö játa skilmálalaust til þess að losna við opinber réttar- höld og málaþras en því hafi einnig verið hafnað. Þá leyfði hann verjendum sínum að halda fram að hann væru geöveill og var sýknaður. „Almenningur getur því beint gremju sinni vegna dómsniður- stööunnar gegn yfirvaldinu, sem spilaöi málinu út úr höndum sér,” segir Hinkley í bréfi sínu til tímaritsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.