Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Side 18
18
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda.
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir ágústmánuð er 15. sept-
ember. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þrí-
riti. Fjármálaráðuneytið
9. september 1982.
• PRJÚNAGARN •
Ný sending afSMYRNA. Jólaútsaumurinn byrjaður að koma Gjörið svo vel að líta inn. Sjón er sögu ríkari. Sendum í póstkröfu daglega.
• Hof Ingólfsstræti 1 (gegnt Gamla bíói). Sími 16764. •
if
í
P
i
|
Í
i
i
8
i
ii
i
i
Verzlunarskóli
íslands
STARFSNÁM V.í.
Innritun í starfsnám Verslunarskóla
íslands stendur nú yfir.
Umsóknarfrestur rennur út 17.
september.
Kennt verður:
Ensk verslunarbréf Þýsk verslunarbréf
Bókfærsla I Reksturshagfræði I
Verslunarréttur Tölvufræði I
Vélritun I
Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á
skrifstofu skólans og í síma 13550.
Verslunarskóli íslands.
: riAMC laiCTH
Concord, drappl.. 1979 145.000
Cherokee 1974 100.000
Fiat 131 Panorama 1982 185.000
Cherokee Chief, i sérfl. 1978 215.000
Fiat X 1 /9 blásans., sportbíll 1980 165.000
Fiat 128, góður bíll 1978 50.000
Fiat 125 P 1978 38.000
Concord, sjálfsk., 6 cyl. 1980 170.000
Fiat Ritmo 60 GL 1980 95.000
Polones, rauður 1981 85.000
Mazda 929 station 1979 110.000
Fiat 132 2000 beinsk. 1979 110.000
Fiat 1311600 beinsk. 1978 65.000
Fiat 132 2000 beinsk. 1980 140.000
AMC Spirit 1979 130.000
Citroén GS Pallas 1979 80.000
Mazda 929 station, sjálfsk. 1978 85.000
Fiat Polonez, grænn 1980 75.000
Fiat 125 P 1979 50.000
Austin Allegro 1977 43.000
ATH. VANTAR FIAT 127 ÁRG. 1978,1979 OG 1980 Á SKRÁ.
BÍLASALAN
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
SMIÐJUVEGI4, KÓPAVOGI
SÍMAR 77720 - 77200.
DV. MÁNUDAGUR 13.SEPTEMBER 1982.
BÍLARÉTTIIUGAR - BÍLAMÁLUN
BÍLARÖST SF.
DALSHRAUNI 26 HAFNARFIRÐI SÍMI 53080
Bílamálarar - réttingamenn
.Vegna aukinna verkefna vantar okkur nú þegar starfsmenn
við málningu og réttingu.
Mikil vinna, mjög góð vinnuaöstaða.
Upplýsingar á staðnum og í síma 85040.
Bílasmiðjan Kyndill hf.
Stórhöfða 18.
Sjúkraþjálfari
óskast til starfa að Reykjalundi sem fyrst.
Kennsla í MANUELterapi fyrir starfandi sjúkra-
þjálfara fer fram einu sinni í viku.
Uppl. hjá sjúkraþjálfurum í síma 66200.
Vinnuheimilið að Reykjalundi.
%yULL BÚÐ^
tJÝJUM VÖR
• Hundaólar og taumar, nýjar gerðir.
• Rúm fyrir hunda og ketti.
• Choc drops verðlaunafóðrið fræga.
• Katlit kattasandurinn.
• Shampoo.
• Leikföng og margt fleira
EINNIG SKRAUTFISKAR
í URVALI!
Opið laugardaga kl. 10—12.
Gekk ber-
serksgang
ííbúð
fyrr
verandi
konu sinnar
Maður um fertugt gekk berserks-
gang i íbúö fyrrverandi eiginkonu
sinnar á finuntudagskvöld. Lagðihann
íbúð hennar að mestu í rúst. Hún býr í
Hliöunum og er nokkuð siðan þau hjón
slitu samvistum. Maðurinn hefur
ógnað konunni lengi og þorði hún ekki
lengur að sofa í íbúð sinni eöa vera þar
mikið á ferli.
Maðurinn braust inn í íbúðina um
hálfsjöleytið. Sást til hans fara inn en
ekkert var gert frekar í því. Eftir að
inn var komið, réðst hann á innbúið og
lagði það í rúst. Hann yfirgaf íbúðina
stuttu síðar.
Fyrrverandi kona hans hefur ekki
þorað að vera í húsinu að undanförnu
af ótta við að maðurinn kæmi og mis-
þyrmdi henni. Hefur hún því sofið um
tíma annars staðar úti í bæ. Um há-
degisbilið á föstudag, þegar hún
skrapp úr vinnu til að ná í föt af sér,
kom hún að íbúðinni í fyrrgreindu á-
standi, Konan hefur oft skipt um skrár
í íbúðinni af ótta við að hann kæmi og
misþyrmdi henni. En það hefur ekki
dugað því hann hefur ætíð komist yfir
lykla með einhverjum hætti.
Konan hefur búiö við hótanir
mannsins nokkuð lengi og verður að
teljast mikil mildi að hún var ekki
heima þegar hann kom.
Ekki er vitað til að maðurinn hafi
komið mikið við sögu lögreglunnar en
hann hefur átt við áfengisvandamál að
stríðalengi.
-JGH.
Fyrirlestur um
hagfræði
BÚ€>IN
AðalstraBtí 4.(Físchersundí) Talsími:11757
— Bandaríski
hagfræðingurinn
James Buchanan
flyturfyrirlestur um
almannavalsfræði
íLögbergi ídag
LÉTTAR HANDHÆGAR
—------ — —"^^XEELXViRI
Verð aðeins kr. 4.930.-
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar81722 og 38125
Bandaríski hagfræðingurinn James
M. Buchanan heldur fyrirlestur í Lög-
bergi stofu 101 klukkan 17 í dag, í boði
viðskiptadeildar Háskóla Islands.
Buchanan hefur getið sér orð fyrir
rannsóknir sínar á stjómmálum. Þar
beitir hann aðferðum sem hagfræðing-
arhafagjamannotaðtilþess aðskilja
atvinnulífið. Skoðun Buchanans er sú
að ríkið hafi vaxið fram úr hófi og
markaðurinn geti tekið að sér mörg
þau verkefni sem ríkið leysir nú með
litlum árangri. Hann má því telja
frjálshyggjumann og háfa sum rök
hans fyrir því að draga úr ríkisaf-
skiptum þótt nýstárleg.
Fyrirlestur hans nefnist „Almanna-
valsfræðin — ný grein hagfræðinnar”.
I honum lýsir Buchanan því sem nefnt
er á ensku „Public choice theory”.
Það er sú grein hagfræðinnar sem leit-
ast við að skilja stjómmálin, þ.e. þeg-
ar einstaklingamir velja ekki hver um
sig, heldur allir í hóp eftir einhverjum
tilteknum leikreglum. Buchanan er á-
samt þeim Anthony Downs og Gordon
Tullock sá sem lagt hefur homsteininn
að þessari nýju fræðigrein.
Buchanan lauk doktorsprófi frá
Chicago-háskóla og hefur lengi verið
prófessor við Virginia Polytechnic
Institute. Þar er hann yfirmaður sér-
stakrar stofnunar sem fæst við rann-
sóknir á sviði almannavalsfræðinnar.
Hann hefur skrifaö fjölda bóka um
fræðigrein sína og er mjög kunnur
meðal hagfræðinga. Hann hefur oftar
en einu sinni verið tilnefndur til
nóbelsverðlauna í hagfræði.
-GSG.