Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Side 22
30
DV. MÁNUDAGUR13. SEPTEMBER1982.
^Dale .
Larnegie
námskeiðið
Námskeiðið
getur hjálpað
þér að:
★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staöreyndir.
* Láta í Ijós skoðanlr þínar af meiri sannfæringar-
krafti í samræðum og á fundum.
* Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og við-
urkenningu.
* Talið er aö 85% af velgengni þinni sé komiö undir
því hvernig þér tekst aö umgangast aðra.
★ Starfa af meiri lífskrafti - heima og á vinnustað.
* Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
★ Veröa hæfari aö taka viö meiri ábyrgð án óþarfa
sþennu og kvíða.
Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie--
námskeiöinu.
í dag er þitt tækifæri.
Hringið í síma:
Unnið að fræsingu
á Reykjanesbrautinni
Myndin hér aö ofan var tekin á
Reykjanesbrautinni viö afleggjarann í
Innri-Njarðvík þegar veriö var aö
undirbúa f ræsingu á veginum.
Eitthvaö mun verkið hafa gengið
treglega í fyrstu og virtist sem vélin
væri ekki alveg sátt við steypuna. Auk
þess kvörtuðu starfsmenn viö
fræsinguna undan lítilli tillitssemi öku-
manna, sem virtu ekki hámarks-
hraöann sem fyrirskipaður hafði veriö
35 kílómetrar.
Eftir þessa meðferð verður Reykja-
nesbrautin hrufótt og kemur það sér ef
til vill vel í isingu. Viröist sem steypu-
broddamir sem standa upp úr vegin-
um eftir fræsinguna ættu að geta orðið
þess valdandi aö naglar i hjólböröum
yrðu óþarfir.
DV-mynd emm.
œ 82411
nr Emkaleyfi á Islandi
wtfHLi'ST J ÓRNUNARSKÓLINN
y.!MSKF.Hi 1 y Konráð Adolphsson.
ÚRVALS NOTAÐIR BILAR:
Opel Kadett Berlina 5 d. '81 Dodge Aspen '79
Verðkr. 180.000. Verðkr. 150.000.
Ch. Citation 3 d. 6 cyl. Oldsmobile Cutlas Supreme '79
Verðkr. 175.000. Verökr. 190.000.
Ford Bronco sjálfsk., vökvast. '79 Ch. Capri Classic '78
Verðkr. 250.000. Verðkr. 170.000.
Ford Cortina 1600 4 D '76 Buick Skylark LTD '81
Verð kr. 50.000. Verð kr. 250.000.
Volvo 244 DL beinsk. '76. Mercedes Benz 280 S 72.
Verðkr. 90.000. Verðkr. 150.000.
Scout Traveler sjálfsk., vökvast. '78 Volvo 144 sjálfsk. '74.
Verðkr. 220.000. Verðkr. 75.000.
Toyota Cressida sjálfsk. 4 d. '78 Honda Accord EX sjálfsk. '80.
Verðkr. 100.000. Verðkr. 125.000.
Dodge Ramcharger mefl öllu '79 Ford Cortina 4 dyra '79.
Verðkr. 295.000. Verðkr. 90.000.
Volvo 244 DL vökvast. '75. M. Benz 307 lengri gerð
Verðkr. 85.000. m/gluggum 79.
Toyota Cressida station Verðkr. 220.000.
5 gíra, '78. Ch. Malibu Classic
Verðkr. 110.000. 6 cyl. '80.
Malibu Classic 6 cyl. ! Verðkr. 220.000.
sjálfsk. '77. Ch. Blazer Cheyenne,
Verðkr. 110.000. beinsk., 6 cyl. '76.
Isuzu Gemini '81 Verðkr. 160.000.
Verðkr. 135.000. Opel Ascona sjálfsk. '77.
Bedford sendif. 5 tn. m/kassa '78 Verðkr. 90.000.
Verðkr. 195.000. Ford Econoline sendif.
Oldsmobile Delta disil '79. 6cyl., beinsk. '78.
Verðkr. 160.000. Verðkr. 120.000.
Ch. Nova Custom, 2 dyra '78 Peugeot505 SRD beinsk..
Verð kr. 145.000. vökvast. '80
Toyota Hi-Lux yfirbyggður '81. Verðkr. 180.000.
Verðkr. 250.000. Honda Accord EX, sjálfsk. i
Ch. Chevette '80. vökvast. '82. )
Verökr. 115.000. Verðkr. 200.000.
Scout II 78 Mazda 323 saloon 4 d. '81
4 cyl. Verð kr. 140.000. Verð 115.000.
Ch. Malibu Classic '79 Fiat 1500 Polonez '81.
Verðkr. 170.000. Verð kr. 95.000.
Volvo 245 DL, beinsk., '77 Toyota Corolia station 5 d. 78.
Verðkr. 120.000. Verðkr. 80.000.
Vauxhall Chevette hatchback '77 Saab 96 '73.
Verðkr. 55.000. Verðkr. 26.000.
Vauxhall Viva 4 dyra '77. Verðkr. 50.000. Beinn sími 39810
VEIADEILDSAMBANDSINS
Armúla 3 Reykjavik, Hallarrr.úlamegin
i Simi 38900
Athugasemd frá Rannsóknadeild Háskólans í veirufræði og Húð- og
kynsjúkdómadeild Heilsuverndarstöðvarinnar:
OF MIKIÐ GERT ÚR
ÞJÁNINGUM SJÚKL-
INGA MEÐ HERPES
1 sumar höfum viö undirrituð
orðið vör við þaö í störfum okkar, aö
mikils misskilnings gætir um
sjúkdóma af völdum herpesveira,
sérstaklega eftir að villandi blaöa-
skrif birtust um sýkinguna í Morgun-
blaöinu i júli og ágúst sl. Talsverðrar
hræðslu gætir vegna þeirrar um-
fjöllunar og því viljum viö koma á
f ramfæri nokkrum atriðum varðandi
herpessýkingar eða áblástur, eins og
sú sýking er kölluð á islensku máli.
Herpes Simplex er veira, sem
fylgt hefur mannkyninu um aldir. Af
henni eru tvær undirtegundir. önnur
veldur áblæstri eöa frunsum á
vörum en hin veldur oftast sams
konar kvillum á kynfærum. Þó eru
þama engan veginn skörp mörk á
milli, og tegundin, sem veldur vara-
frunsum sýkir einnig oft kynfæri.
Upp á síökastiö hefur beinst vaxandi
athygli að áblæstri á kynfærum, en
það er mikill misskilningur, að fyrir-
bærið sé nýtt af nálinni. Það er þó
rétt, að tíðnin hefur veríð að aukast í
nágrannalöndum okkar. Þannig
voru t.d. skráðir 10.800 sjúklingar í
Bretlandi árið 1980 og var þaö 60%
aukning á f jölda skráöra sjúklinga á
5 árum. Náskyld herpes simplex er
veiran, sem veldur hlaupabólu og
stundum svokölluðum rístUútbrotum
(herpeszoster).
Veiran hverfur ekki
Herpesveirum öllum er það
sameiginlegt, að þegar einstakUngur
hefur einu sinni smitast hverfur veir-
an aldri úr líkamanum aftur, heldur
tekur sér bólfestu í taugarótum við
miðtaugakerfið. Þar liggur hún í
dvala að mestu leyti, en getur vakn-
aö til aögeröa undir ákveðnum kríng-
umstæðum, t.d. þegar vamir líkam-
ans slævast af einhverjum ástæöum.
Þetta kannast mjög margir við, sem
fááblástur á varir t.d. þegar þeir
kvefast, sólbrenna eða verða fyrir
andlegu eöa likamlegu álagi.
Herpessýking á kynfæram hegðar
sér nákvæmlega eins. Þannig þarf
áblástur á kynfæram aUs ekki að
merkja nýlega smitun og því tómt
mál aö tala um, að makar þurfi að
kenna hvor öðrum um smitun eða
hafa uppi ásakanir um nýlegt
framhjáhald. Meðan áblásturssárin
eru virk og vessi í blööranum era
þau smitandi og ætti fólk þvi ekki að
hafa samfarir meðan svo er.
Of mikiö hefur verið gert úr
þjáningum sjúkUnga meö áblástur á
kynfærum. Vissulega era óþægindin
meirí á þessum slóöum líkamans en
verða af áblæstri í andliti, og vita-
skuld er hvimleitt, ef áblásturínn
endurtekur sig mjög oft. Hver á-
blástur grær þó á nokkram dögum.
Ekki hættulegar
í sjálfu sér
Hinar algengu herpessýkingar era
ekki hættulegar í sjálfu sér, og því
oftast engin ástæða til sérstakrar
meðferðar. A þessu era þó nokkrar
undantekningar. Ef ófrísk kona
hefur virkan áblástur á kynfæram,
þegar kemur að fæöingu, er taUð
ráðlegt að taka bamið með keisara-
skurði þar eö þaö mundi smitast á
leið sinni um fæðingarveginn.
Viðkvæmur nýburmn fær útbreidd
áblásturssár um aUan Ukamann og
verður alvarlega veikur. Sýking á
þessu æviskeiöi getur leitt til dauða
eða varanlegra örkumla. Til er lyf,
sem nota má staðbundið á áblástur
(Idoxuridin) og flýtir veralega fyrir
því, að sárin grói. Þetta lyf er ástæða
til að nota, ef áblástur kemur á viö-
kvæman stað, svo sem hornhimnu
augans, en þar getur afleiðingin
annars orðið ör, sem skeröir sjónina.
Lítið hefur hingaö til verið um lyf,
sem verka á veirur, og þau lyf, sem
til hafa verið, hafa flest veraleg
eituráhrif á Ukamann, ef þau eru
notuð öðra vísi en staöbundið.
Nýlega er þó farið að nota lyfið
Acyclovir, sem hefur Utlar alvarleg-
ar aukaverkanir og hefur reynst
mjög áhrifamikið í alvarlegum
herpessýkingum, t.d. þeim sára-
sjaldgæfu tilvikum, þegar herpes
simplex veldur heilabólgu. Þetta lyf
hefur breytt mjög horfum þeirra
fáu sjúkUnga, sem herpesveirar
leggjast þungt á, en þetta era fyrst
og fremst sjúkUngar með bilaðar
ónæmisvarnir t.d. eftir líffæra-
flutninga. Þegar hefur því miður orð-
ið vart við, að veiran geti orðið ónæm
fyrir lyfinu, og er því afar mikilvægt,
aö það sé ekki notað í óhófi, ef það á
aö halda gUdi sínu, þegar
raunverulega er nauðsyn að nota
það. Nýlega hafa einnig verið gerðar
tUraunir i Bretlandi meö bóluefni,
sem er ætlað þeim takmarkaða hópi
sjúklinga, sem er veralega þjáður af
síendurteknum áblæstri á
kynfærum. Þessar tUraunir lofa
sumpart góðu, en hafa ekki gefiö
endanlega niöurstööu.
Að lokum er vert að nefna, að á-
blástur i andUti er jafn algengur hér
og annars staðar, eins og flestir
þekkja af sjálfum sér eða öðram, og
því fer mjög fjarri, að áblástur á
kynfæram sé óþekktur hérlendis.
Veiran hefur margoft ræktast hér úr
áblásturssáram síðustu 20 árin.
Margrét Guðnadóttlr, prófessor og
Helga M. ögmundsdóttir, læknir,
Rannsóknastofu Háskólans i
veirufræði,
Hannes Þórarinsson, yfirlæknir,
Húð- og kynsjúkdómadeUd
HeUsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Grein þessi er send til birtingar í samráði
við Landlæknisembættið.