Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Blaðsíða 14
14 weí w'i'FM'íp/ijn rí wim*n«AniTA,i w DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982. Oröiö óratoría er notaö um aðeins þrjú af verkum Bachs og eru þau sam- in meö stuttu millibili. Jólaóratorían 1734/35, Páskaóratorían 1735 og Upp- risuóratorían 1735". Oratorían er ítalskt form. A seinni hluta 17. aldar var hún oröin viöur- kennd, aðallega vegna vinsælda verka eftir tónskáldiö Carissimi. Oratorían var trúarlegt mótvægi viö óperu hvaö snerti leikræna tjáningu í tónlist en án sviðsetningar. Þó óratoríur væru eftirsóttar á síðari helmingi 17. aldar í höfuöbæjum kaþólskra smáríkja í Suöur-Þýskalandi, komst þessi tegund tónlistar ekki inn í lönd mótmælenda fyrr en eftir 1700. Líklega varö „Der blutige und sterbende Jesus. Oratori- um” eftir Christia Friedrich Hunoid (Menantes) þar fyrst áriö 1704. Mikil- vægasta sérkenni slíks er leikræn bygging textans. Líkingin kemur fram í aö textanum er deilt milli nokkurra persóna eöa hópa af fólki en sjaldnast er um leikræna fléttu aö ræöa í þrengstu merkingu þess orðs. Skipting óratoríunnar Jólaóratoría Bachs er aö því leyti einstök meöal stærri kórverka, og þó sérstaklega sem óratoría, aö henni var ekki ætlað aö vera flutt í eitt skipti heldur á 6 hátíðisdögum á hálfs mánaöartímabili og reyndar í tveim kirkjum. A hinni fyrstu prentuðu út- gáfu 1734 stóö: „Oratoría, sem var flutt á helgum jólatíöum í báöum aöal- kirkjunum í Leipzig”. Bach tengdi hér hugtakiö óratoría í nokkrum köflum viö kirkjukantötur sem voru fluttar á ákveönum tímum árs. Ekki er vitaö hvort Bach ætlaöi sér aö halda áfram á svipaöri braut. Hann hætti aö því er virðist viö aö skrifa röö óratoría fyrir allar helstu hátíöir kirkjuársins en sú staðreynd aö óra- toríurnar sem til eru voru allar geröar á árunum 1734 og 1735 bendir til að hann hafi haft þaö í hyggju um þaö leyti. Þessi þrjú verk eiga það sam- eiginlegt aö í þeim eru aö verulegu leyti eftirlíkingar Bachs á eigin tíða- kantötum. Þaö gefur til kynna aö hann hafi ætlaö aö yfirfæra hin mörgu tæki- færisverk sín í óratoríuform til kirkju- flutnings. Mörg þeirra voru of viða- mikil til aö hægt væri aö gera úr þeim venjulegar sunnudagskantötur. Þeirri hugmynd átti eftir aö skjóta upp síöar þegar hann tók tónlist úr veraldlegum kantötum sínum inn í B-moll messuna. Textinn Ekki er vitað hver skrifaði textann að Jólaóratoríunni. Ymislegt bendir þó til þess aö þar hafi Christian Friedrich Henrici („Picander”) átt nokkurn þátt. Bach hlýtur líka sjálfur aö hafa ráöiö miklu. Þaö á einkanlega viö val á köflum úr kantötum til aö nota og draga fram sérkenni hverrar persónu. Jólaáratorian var frumflutt i tveim kirkjum íLeipzig. Önnur þeirra var Tómasarkirkjan. Jó l aóra tor ía — eftir Johann Sebastian Bach — verkid verdur f lutt í Langholtskirkju milli jóla og nýárs Ekki þurfti aöeins aö samræma brag- fræðina og ljóðform erindanna til aö falla aö tónlistinni. Merkingarlega séö urðu erindin líka aö vera trú tónlist- inni. Áhirf Bachs á heildarmótun óratorí- unnar hljóta aö vera eins mikilvæg og framlag hans tii samsetningar á texta- brotum. Aö líkindum valdi Bach og tók saman Biblíutexta og kórala aö svo miklu leyti sem honum þótti nauösyn- legt. Án þessarar samvinnu heföi ein- ing tónlistar og texta aldrei getað oröið svona fullkomin. Á hinum fyrsta prentaða texta sést hvar hún var fyrst flutt. Fyrsti hlutinn, Jólaóratoría Johanns Sebastian Bach verður flutt í Lang- holtskirkju í Reykjavík um jólin. Það er kór Langholtskirkju, undir stjórn Jóns Stefánssonar, sem ræðst í þetta stórvirki. í fyrra flutti kórinn 4 hluta óratoríunnar af 6, nú verður verkið flutt í heild sinni. Vegna þess hversu langan tíma það tekur í flutningi verður því skipt í tvennt. Fyrri hlutinn verður fluttur þriðjudaginn 28. desember, seinni hlutinn 29. desember. Tónleikarnir hefjast kiukkan 20.30. Einsöngvarar í Jólaóratoríunni verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sólveig Björling, Michael Goldthorpe og Hall- dór Vilhelmsson. í sumum löndum er flutningur ákveðinna tónverka mjög tíðabundinn. Sem dæmi má nefna að í Dyflinni á írlandi er Messías eftir Hándel fluttur á jólaföstu ■ flestum meiriháttar tónleikasölum. Ástæðan er sú að haldið er upp á að verkið var frumflutt í þeirri borg. Nú er siðurinn orðinn svo fastur að ekki þarf lengur að æfa þetta mikla tónverk, fólk kemur bara saman með hljóðfæri sín og byrjar að spila og þeir sem eiga nótur syngja. Ætlun kórs Langholtskirkju er að gera flutning Jóla- óratoríurnar að föstum lið í jólahaldi í höfuðborginni. Kannski verður hún innan fárra ára orðin jafnþekkt meðal borgarbúa og Messías er í Dyflinni. Nógu er tónverkið stór- fenglegt til að verðskulda það. snemma morguns í kirkju heilags Nikulásar í Leipzig og síödegis í kirkju heilags Tómasar. Annar hlutinn öfugt, hann var fluttur aö morgni í Tómasar- kirkju en síðdegis í Nikulásarkirkju. Þriöji jóladagur var eins og venjulegur sunnudagur. Hlutar þrjú og sex voru Jón Baldvin Halldórsson tók saman þess vegna fluttir aöeins einu sinni, snemma morguns í Nikulásarkirkju en hátíöarkaflarnir fjögur og sex hins vegar tvisvar, árdegis í Tómasar- kirkju og síödegis í Nikulásarkirkju. Aö fullnægja kröfum tímans Ariö 1734 var annar í jólum sunnu- dagur og þess vegna er enginn sérstak- ur kafli í óratoríunni fyrir þennan sunnudag. Markmiö tónskáldsins var því ljóslega ekki að semja tónverk sem mundi standa sem meistaraverk aö ei- lífu heldur aö fullnægja kröfum tímans. Oratoríukafli fyrir þennan sunnudag er ekki fyrir hendi til aö nota seinna, né væri hægt aö sleppa fimmta kafla árin sem 2. janúar er ekki sunnu- dagur. Innihaldsins vegna er hann ómissandi. I fyrra flutti Kór Langholtskirkju bróðurpart Jólaóratoríunnar. Jón Stefánsson söngstjóri ritaði þá hug- vekjuna sem hér fer á eftir í söng- skrána: „Fæöing Jesú og dauði — jól og fasta — hafa frá upphafi kristindóms verið óþrjótandi efniviöur iistamanna. I máli, myndum og tónum hafa þessi tvö sviðveriðtúlkuð. Krossinn á Golgata og hin grýtta leið þangað og svo hin algjöra andstæða, jólin. Stjaman yfir Betlehem, nótt fjár- hiröanna meö þeim undrum sem fyrir þá bar og ekkert listaverk nær aö sýna nema daufan bjarma af. Fjárhúsin í Betlehem, Jósef og María og hinn ný- fæddi Gyðingakonungur í jötunni. Fagnaðarlofgjörð Hver jum sem les þessar línur er boð- ið á þessar slóðir. Hver hluti Jólaóra- toríu Bachs segir sinn þátt af fæöingu Jesú. Fyrsti þátturinn er fagnaðarlof- gjörö. Hann kemur! Sá sem spá- mennirnir sögðu frá er aö koma! „Lof- iö hann meö lúðurhljómi, lofiö hann meö hljómandi skálabumbu. Bach tek- ur undir meö Davíö konungi og hin konunglegu hijóöfæri, trompetar og pákur, fá svo sannarlega að hljóma og hinn kristni heimur tekur undir í upp- hafskórnum. Guðspjallamaðurinn stígur fram. Hann segir þér söguna meö orðum Lúkasar: „En það bar til um þessar mundir. ..”. Orð Biblíunnar hljóma hrein og ómenguð og Bach telur aö þau standi fyrir sínu. Aöeins fáir hljómar orgels og sellós styðja söngvarann. En erum viö tilbúin aö taka á móti Frelsaranum? Bach vill gefa okkur tíma til undirbúnings. Resitatív og aría. Þú tekur ekki á móti konungi í hversdagskiæðum. Og kórinn fer í hlut- verk safnaöarins og syngur sálm: Hvemig tek ég á móti þér? Var þaö tilviljun að Bach valdi lagiö „Ö höfuö dreyra drifið” sem óneitan- lega minnir okkur á þau örlög sem barnið í jötunni var fætt tii að mæta, eða er þaö ef til vill þörf áminning enn í dag? En hann kom! Guðspjallamaðurinn heldur áfram frásögn sinni: „Fæddi hún þá son sinn frumgetinn”. Samtal bassa og kórsóprans í resitatívi og við erum minnt á að Jesús fæddist fátækur á jörðu til að við getum eignast fjár- sjóði frá honum. Hin foma gríska kveðja sem notuð var til að tjá nýjum konungi fullkomiö trúnaðartraust gleymist ekki. „Kyrieleis!” „Drottinn miskunna þú oss.” Arían sem alla bassa dreymir um hijómar með glæsilegum samleik trompetsins. Og boðskapurinn gleym- ist heldur ekki. Sá sem gaf okkur dýr- ustu gjafimar, konungur konunganna, varð aö h vílast í höröum stalli. Fyrsta þættinum lýkur svo á vöggu- vísu þar sem kórinn túlkar ósk safnaðarins um það aö Jesúbamiö fái bólstað í h jarta sérhvers manns. í Betlehem Þannig spinnur Bach þetta listaverk sitt áfram. Hver þáttur fær sitt svið. I öömm þætti emm viö færð út á Betle- hemsvöll. Bach kallar á fjórraddaðan óbókór, hijóöfæri fjárhiröanna. Him- inn og jörö mætast í symfóníunni. Obó- kórinn og strengjasveitin með flautun- um talast viö. Guðspjallamaðurinn segir söguna. „Og sjá í þeirri byggö vom fjárhirðar úti í haga”. Engillinn flytur sínn boöskap: „Ottist ekki”. Strengjasveitin hljómar með honum og lyftir boðskap hans hærra upp en frásögn Biblíunnar. Aríur, resitatív og sálmar skiptast á. Hver þáttur undirstrikar þann næsta á undan og leiðir til umhugsunar. Hinar himnesku hersveitir flytja hinn fyrsta jólasálm: ,J3ýrö sé Guði í upp- hæðum”. Bach sparar ekkert til að færa þennan söng i hinn dýrasta bún- ing. Höfuðstefin þrjú „Ehre sei Gott”, „und Friede auf Erden” og „und den Menschen ein Wohlgefallen” em spunnin saman í svo stórkostlegan tónavef sem meistara Bach einum var lagið. Oft heyrist þessi kór fluttur á þann hátt að maður heldur að englun- um hafi orðið svo kalt aö þeir vildu komast sem fyrst til himins. Jesúbarninu veitt lotning Þriöji hluti óratoríunnar segir þér frá því er fjárhirðamir fóru og fundu Jesúbarniö og veittu því lotningu. Lof- söngur hljómar, trompetar og pákur hljóma á ný. Bach túlkar á meistara- legan hátt hvernig fjárhiröarnir tygja sig í skyndi til að skoða það sem Drott- inn hafði kunngjört þeim. Þú getur heyrt hvernig þeir snúast hver um annan í mikiili undrun og þó ekki lausir viö ugg. „Lasset uns nun gehen”. „Vér skulum fara rakleitt tU Betlehem og sjá þennan atburð sem orðinn er og Drottinn hef ur kunngjört oss”. Þú átt stund meö Maríu Guðsmóöur er hún hugleiðir vitnisburð hirðanna. Upphafskór þriöja hluta er endurtek- inn. Sú mynd sem þér var sýnd er stað- fest styrkt. Jesús „Hann var látinn heita Jesús”. Fjórði hlutinn er helgaður na&ii Frels- arans. Bach skiptir á hornum og trompetum. Þau hafa mýkri hljóm og viö þann hljóm föllum við fram í auð- múkri lotning. „Immanúel”. Guð er með oss. Hann, sem bar þetta nafn boðaði okkur nýjan sáttmála milli Guðs og manna. Þú átt ekki að vera hræddur viö Guð þinn! Sópranarían sem er samtal guö- hræddrar sálar við skapara sinn, hljómar ef til vill bamalega í eyrum okkar nútímamanna. Við erum alin upp við það að brosa í laumi yfir spurningum lítiila bama. Spurningum sem bomar eru fram af opnum huga þess sakleysis sem hefur ekki ennþá lært þá list að fela sínar innstu hugsan- ir fyrir miskunnarleysi svokallaðrar þekkingar. Svið „bergmáls-aríunnar”, er máiað í litum þessa einfaldleika. Rödd Guðs þíns sem er í senn ósýnileg- ur og í órafjarlægð en þó ávallt nálæg- ur svarar spumingunum tveim. Og músíkin hjá honumBach: Já, músíkin hjáhonumBach!!! Vitringarnir þrír Fimmti hiutinn hefst á stórkost- legum lofsöng Guði til dýrðar. Fögnuðurinn í tónlistinni er algjör. Guðspjallamaðurinn segir frá vitring- unum þremur. Kórinn ber fram spuminguna sem menn enn í dag eru að leita svars við. „Hvar er hinn ný- fæddi Gy ðingakonungur? ” Bach bendir okkur á svariö sem á jafnt við í dag og þá og eins á morgun. Leitaðu hans í brjósti þér. Þar býr hann. Og hannerhérídag. Viðureign Heródesar og vitringanna Sjötti og síðasti þáttur Jólaóratorí- unnar f jallar um Heródes og viðureign hans viö vitringana. „Og er þér hafið fundið bamið, látið mig vita til þess að ég geti einnig komið og veitt því lotn- ingu.” Enn færir Bach sögusviðið tU samtímans. Þeir eru margir Heródesamir á meðal vor. En Guð vakir yfir þeim sem njóta náðar hans: ,JEn þar sem þeir fengu bendingu í draumi að snúa ekki aftur til Heródes- ar, fóru þeir aðra leið heim í land sitt.” I lokakómum hljóma trompetar á ný í fagnaðarfuUum sigursöng. Sigur er fenginn mót fjendaher. Þessi saga er eittþúsundníuhundruð- áttatíuogtveggja ára gömul en þó ber okkur að hafa i huga að hún er jafn ný í dag og þá hún gerðist. Og ekki spiUa fötin hans Baehs þar neinu. Já, músík- in hjá honum Bach!!! ”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.