Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Blaðsíða 28
28 DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982. IIÁTÍHAlt NATSE9ILL Rjúpur med eplasalati i Fyrir 6 Það sem tilþarf: 9stk. rjúpur 3 sneiðar beikon 1 dl rjómi rifsberjahlaup Krydd: salt, pipar, þriðja kryddið og einiberef fást. Matreiðist: Rjúpur, innmat- ur og beikon brúnað vel á pönnu og kryddað með salti og pipar. Færið fuglinn yfir í pott, hellið 1 bolla af vatni á pönnuna og látið sjóða í 1 mín. og hellið síðan yfir í pottinn. Soðið við vægan hita í 1 klukkustund. Soðið stað og bakað upp. Bragðbætið sósuna með salti, pipar, 3ja kryddinu, rifsberjahlaupi og hálfþeyttum rjóma. Ef nota á einiber, sjóðið þau þá með rjúpunni, ca 8 ber. Eplasalat 3 græn epli 100 g majónes 1 dós sýrður rjómi 50g saxaðferskt sellerí 50 g saxaðar valhnetur Grand Mamier eftir smekk Afhýðið eplin og takið kjam- ann úr, skerið niður í sneiðar. Hrærið majónes og sýrðan rjóma saman og blandið sellerí- inu út í. Bragðbætið með Grand Mamier og sykri. Borið fram kalt og skreytt með val- hnetum. Brúnadar kartöflur Bræðið smjör ápönnu og setjið sykur saman við og látið brún- ast. Afhýddar kartöflur eru vættar í vatni, settar ápönnuna og brúnaðar fallega. Súkkulaðihjúpud vínber með vanilluís 600 g blá vínber 300 g Ijöst hjúpsúkkulaði vanilluts Súkkulaðið sett ípott og brætt í vatnsbaði. Skiptið vínberja- klasanum í 6 mátulega hluta og dýfið ofan í súkkulaðið, tekið upp úr og látið storkna. Borið fram með vanilluís. Gljáð önd með appelsínusósu Uppskrift fyrir 6. Það sem tilþarf: 2 endur ca 4 kg 4 appelstnur (2 til steikingar með öndinni og safinn úr 2 í sðsuna) 1 dl rjómi 100 gsmjör 1 /2 bolli sykur Krydd: salt, pipar og þriðja kryddið. Matreiðist: Ofninn hitaður áður í 200 gr. lnnvolsið tekið innan úr öndinni og fulginn kryddaður með salti og pipar og settur í ofnskúffuna og steiktur í 60 mín. miðað við að búið sé að þíða kjötið vel. Þegar ca 25 mín. eru liðnar af steikingartíma, hellið þá 1/2 l af vatni og skerið 2 appelsínur í smáhluta og setjið í ofnskúff- una. Þegar ca 10 mín. eru eftir af steikingartímanum er sykr- inum stráð yfir fuglinn og hit- inn hækkaður í 220 gr. Setjið innvolsið í pott með smjöri og kryddið með salti og pipar og brúnið vel. 1/2 l af vatni hellt út t og látið sjóða við vægan hitaíca30mín. Sósa: Allt soð og skóf hreinsað vel úr ofnskúffunni og hellt út í pottinn með innvolsinu, blandað vel saman og síað, fit- an fleytt ofan af. Sósan bökuð upp. Bragðbætt með salti, pip- ar, þriðja kryddinu og safa úr 2 appelsínum og Grand Mamier ef vill og að síðustu er þeyttum rjóma bætt út í. Borið fram með smjörsteiktum Parísar- kartöflum og grænmeti. Sérrí-ís med rifnu súkkuladi Það sem tilþarf: 6 eggjarauður 3 eggjahvítur l/2l rjómi 6 msk. sykur 100 g rifið súkkulaði sérrí eftir smekk 3 heil egg og 3 eggjarauður sett í hrærívélaskál og stífþeytt. Rjóminn stífþeyttur í annarri skál og öllu blandað saman. Rifið súkkulaði og Bristol cream hrœrt saman við. Sett t ílát og fryst. Tilvalið að laga daginn áður. Kaffiveitingar fyrir viðskiptavini allan opnunardaginn BUNAÐARBANKINN HÁALEITISÚTIBIJ flytur í nýja verslunar- og þjónustumiðstöð í austurenda HÓTEL ES JU mánudaginn 20. desember. Verið velkomin BIJNAÐARBANKI ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.