Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Síða 16
16
DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982.
Stórmyndin „Með allt á hreinu” f rumsýnd í dag:
• •
„Orlagaróman við
ytri adstædur”
— þar sem ástarsamband Stinna stud og Hörpu Sjafnar f er út
um þilf ur meö óf yrirsjáanlegum af leiöingum
Nokkrir af helstu aðstandendum
kvikmyndarinnar, „Með allt á
hreinu", saman komnir i æfingar-
húsnæði Stuðmanna og Gæra.
Talið frá vinstri i efri röð: Inga Rún
Páimadóttir, Herdis Hallvarðsdótt-.
ir, Jakob Magnússon, Tómas Tóm-
asson, Ágúst Guðmundsson, leik-
stjóri myndarinnar, Valgeir Guð-
jónsson, Egill Ólafsson. Og i neðri
röð: Ragnhildur Gisladóttir, Ásgeir
Óskarsson og Linda Björk Hreiðars-
dóttir.
DV-mynd Gunnar V. Andrésson.
— Og finnst hamingjan í þessari
mynd?
„Nei, vissulega ekki, enda veröur sú
eina sanna hamingja sem allir óska
sér seint fundin, ef þá nokkurntíma. I
þessu sambandi veröur aö geta þess aö
kvikmynd okkar „Meö allt á hreinu”
er nokkuö pólitísk. Handrit hennar tek-
ur afstöðu aö því leyti að allir aöstand-
endur hennar voru framsóknarmenn á
meöan á gerð myndarinnar stóö. Og
þess má geta í framhaldi aö góöur og
gildur framari hefur skoöað eintak af
kvikmyndinni og lofaði hann hana
mjög, sérstaklega efnismeöferðina og
skírskotunina. Myndin er því pólitísk
og verður aö skoöa hana og dæma eftir
því.”
Mynd fyrir
næstum alla
— En til hverra höfðarhún?
„Þetta er mynd fyrir næstum alla
fjölskylduna, enda á efniviður hennar
að snerta flest fólk, jafnt hvítvoðunga
og ellihruma og svo til alla þar á
milli.”
— Þegar Stuömenn og Grýlur eru
spurö út í kostnaöarhlið þessa kvik-
myndaævintýris þeirra svara þau til
aö það hafi verið nokkuð dýrt spaug.
Hver fimmaurabrandari í myndinni
hafi kostaö tugþúsundir. Og þar eö
fyndnin sé ofsaleg í öllum söguþræð-
inum, megi álíta að heildarkostnaöur
við gerö myndarinnar skipti mörgum
hundruöum þúsunda: „Þetta er alls
ekki ódýr mynd, hvernig sem á hana er
litiö,” segja þau ennfremur.
Aldrei kynnst öðrum
eins ofleikurum
i '<■- jg
Atriði úr „Með allt á hreinu". Frimann Flygenring hljómborðsmaður
(Jakob Magnússon I fiytur hugvekju.
Söngva- og gleðimyndin „Meö allt á
hreinu” verður frumsýnd í Háskóla-
bíói í dag. Það er fyrirtækiö Bjarma-
land sf. sem stendur að gerð kvik-
myndarinnar, en leikstjóri hennar er
Ágúst Guðmundsson og er þetta jafn-
framt þriöja stórmyndin sem hann
stýrir.
Hugrnyndin tók
heljarstökk
Hugmyndin aö þessari mynd er Stuö-
mannanna gömlu, en hún kviknaði er
þeir unnu aö plötunni Tívolí sem út
kom um miðjan siðasta áratug. Síöan
þá mun mikiö vatn hafa runniö til
sjávar eins og þar stendur og hug-
myndin tekiö mörg heljarstökk í hug-
um Stuðara. Meöal annars hvarf
Tívolíþáttur hennar fljótt og aðrir
komu til sögunnar. Þaö var svo ekki
fyrr en gamla Stuðmannagildiö fékk til
liðs viö sig Agúst Guðmundsson á
síðasta ári, aö fariö var að krota hand-
ritniöuráblað.
,JVIeð allt á hreinu” var svo loks fest
á filmu í sumar sem leiö, víöa á vestur-
hveli jarðar. Meðal upptökustaða voru
Stokkseyri, Osló, Vestmannaeyjar,
Eyrarsund, Reykjavík, Möðrudals-
öræfi, Kaupmannahöfn og Akureyri.
Alls tóku um sextíu menn þátt í gerö
kvikmyndarinnar.
Eins og fram hefur komið leika Stuö-
menn og Grýlumar lög í myndinni og
eiga meðlimir þeirra hljómsveita
raunar einna stærstu hlutverk hennar.
Þetta er þó ekki hljómleikamynd í eig-
inlegum skilningi, því aö töluveröur
söguþráður bætist ofan á tónlistina.
Stinni Stuð
+ Harpa Sjöfn
I örstuttu máli er „Meö allt á
hreinu” örlagaróman tveggja einstakl-
inga sem ekki fá notist vegna ytri aö-
stæðna. Þar eru fyrir, annarsvegar
Kristinn Proppé Styrkársson söngvari
Stuömanna (kallaöur Stinni Stuö) og
hinsvegar söngkona hljómsveitarinn-
ar, Gæra, Harpa Sjöfn Hermundar-
dóttir. Þau eiga meö sér ljúft ástar-
samband í upphafi myndarinnar og af
þeim sökum hafa hljómsveitir þeirra
leikið og æft mikið saman um nokkurt
skeið. Það er að koma sumar og er
ákveðiö aö grúppumar slái saman í
dansleikaferöalag um landiö og spili í
ýmsum ballhúsum Islandsbyggðar. En
svo kemur babb í bátinn. Allt lendir
upp í loft í ástarsambandi Stinna Stuö
og Hörpu Sjafnar. Þau gefa skít í hvort
annað og þar með er samstarfsgrund-
völlur Stuðmanna og Gæra brostinn.
Og þar eð búiö er aö panta þessar tvær
grúppur á sömu staði á sama tíma í
ballhús sumarsins kemur til rimmu
milli þeirra hvor eigi að fá hvern staö á
hverjum tíma og hvor eigi að víkja.
Eftir mikið þras og læti er fallist á það
ráð aö sú hljómsveit sem nái fyrr að
komast á hvert ballhús, hreppi þaö
hnoss aö leika þar um kveldið, en hin
veröi að horfa á. Hefst þar með hinn
æsilegasti kappleikur og skal honum
ekkilýst hér frekar.
Vissulega f innst
hamingjan ekki
Þetta var örstuttur útdráttur úr
söguþræði myndarinnar. En ber hann
með sér einhvern boöskap? Stuömenn
og Grýlur (Gærur) svara því:
„Efnisþráðurinn lýsir fyrst og
fremst leit mannsins aö hamingjunni,”
segja þær. „Þessar tvær hljómsveitir
og meðlimir þeirra eru aöeins gervi
þeirra leitenda. Persónur myndarinn-
ar gætu allt eins veriö úrsmiöir eöa
hagfræðingar. Hvað þær starfa á ekki
að skipta máli, heldur leitin sem leiðir
hugsanir þeirra eftir lífsbrautinni.”
— Aö lokum er Ágúst Guömundsson
leikstjóri „Meö allt á hreinu” spuröur
um reynslu sína af stjóm þessarar
þriöju stórmyndar sem hann hefur
unnið.
„Eg varö ungur í annað sinn,” segir
hann kankvís. „Það var ákaflega
skemmtilegt aö horfa á viöbrögð leik-
endanna í myndinni viö skipunum mín-
um. Þau voru þess eölis að annað var
ekki hægt en að brosa. Ég hef aldrei
kynnst öörum eins f jölda ofleikara og
þeim er fylltu hlutverk þessarar mynd-
ar. En þeir voru meövitaðir af þessum
hæfileikum sínum allan upptökutím-
ann, og því vil ég segja aö útkoman sé
góö og ég ánægöur með gerö „Með allt
áhreinu”.
Gærur taka iagið i sjávarmálinu. Tónlist er fyrirferðarmikil i myndinni, þó
að þetta só ekki hljómleikamynd i eiginlegum skilningi. Upprunaleg hljóð-
rás m yndarinnar hefur verið þrykkt á breiðskífu og er hún föi sem slík.
-SER.
Nokkrar tækni-
upplýsingar...
„Með allt á hreinu” er sýnd í
fjögurra rása dolby-stereotæki á
breiðtjaldi Háskólabíós og tónlist
hennar ætti því að njóta sín vel í
þessum stærsta kvikmyndasal
landsins. Fyrir þá sem ekki þekkja,
gerir dolby-kerfið víöari og hreinni
hljóm í tónlistarflutningi. Helstu
aöstandendur og leikendur mynd-
arinnar verða taldir hér á eftir:
Leikstjóri: ÁgústGuömundsson.
Handrit: Agúst Guðmundsson,
Eggert Þorleifsson, Stuömenn.
Kvikmyndun: David Bridges, Ari
Kristinsson.
Hljóöupptaka: Júlíus Agnarsson,
GunnarSmári.
Tónlist: Stuðmenn, Grýlurnar
(Gærur).
Hlutverk og nöfn persóna: Eggert
Þorleifsson (Guömundur „Dúddi”
Pálmason hljóöfæraflutninga-
maður), Anna Björns (Hekla
umboösmaöur), Stuðmenn: Egill
Olafssœi (Kristinn Proppé Styrkárs-
son söngvari), Jakob Magnússon
(Frímann Flygering hljómborðs-
maöur), Tómas Tómasson (Baldvin
Roy Pálmason bassi), Valgeir
Guðjónsson (Lars Himmelbjerg
gítar), Þóröur Árnason (Skapti
Sævarsson gítar), Ásgeir Oskarsson
(Hafþór Ægisson trymbilherra),
Gærur: Ragnhildur Gísladóttir
(Harpa Sjöfn Hermundardóttir
söngkona), Herdís Hallvarðsdóttir
(Gefjun Iöunn bassi), Inga Rún
Pálmadóttir (Dýrleif gítarmær),
Linda Björk Hreiðarsdóttir
(Guðfinna trymbilfrú). Einnig koma
fram í myndinni Flosi Olafsson,
Sæmundur Pálsson tvistari, óperu-
söngvaramir Kristinn Sigmundsson
og Hjálmtýr Hjálmtýsson og Konni
(án Baldurs). Og fleiri og fleiri sem
nafngreindir veröa síöar.
Sýningar á „Með allt á hreinu”
utan Reykjavíkur hefjast sem hér
segir: I Keflavík og Vestmanna-
eyjum á annan í jólum. A Akureyri
skömmu eftir áramót. Annars hefur
sýningarferö myndarinnar um
landsbyggðina ekki enn veriö tíma-
sett.
-SER.