Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Qupperneq 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982.
Verður Bæ jarútgerð Haf narf jarðar lokað?
„Getum ekki staöið
v«ð skuldbindingar"
— segir Björn Ólafsson framkvæmdast jóri
Uppsagnir vofa nú yfir 150 starfs-
mönnum í frystihúsi Bæjarútgerðar
Hafnarf jarðar. Undirmönnum á tog-
urum BUH, 35 manns, hefur þegar
verið sagt uppstörfum frá 28. desem-
ber og starfsfólki í frystihúsi hefur
veriö greint frá að svo kunni að fara
að kauptryggingu þess verði sagt
upp 27. desember og komi uppsagn-
irnar til framkvæmda 4. janúar.
Björn Olafsson framkvæmdastjóri
BUH sagði í samtali viö DV að út-
gerðarráö hefði komiö saman 17.
desember og orðið ásátt um aö ekki
væri grundvöllur fyrir útgerö togar-
anna, Apríl, Maí og Júní, viö óbreytt-
ar aöstæður. Fram til þessa heföi
togurunum verið haldið úti í trausti
þess að skuldbreytingin myndi bæta
fjárhagsstööu fyrirtækisins en nú sé
ljóst að þærráðstafanir komi fyrir-
tækinu að takmörkuðu gagni. Því
hafi verið ákveðið aö leggja togurun-
um.
Lausaskuldir BUH nema nú um 20
milljónum króna og skuldbreytingin
hafði ekki áhrif á þær nema aö tak-
mörkuðu leyti. En það sem réöi úr-
slitum væri að oliukostnaðurinn væri
orðinn um 50% af aflaverömæti. Þeg-
ar svo væri komið væri ekki hægt að
halda áfram, sagði Bjöm. Nefndi
hann sem dæmi aö togarinn Apríl
heföi komið inn í fyrradag með 85
tonna afla þar sem uppistaðan var
þorskur. Aflaverðmætið væri um
500þúsund en olíukostnaður í túmum
hefði verið um 260 þúsund. Þegar svo
launakostnaöur upp á 200 þúsund.
hefði verið greiddur væri lítið eftir til
skiptanna.
Hans Einarsson trúnaöarmaður í
frystihúsi Bæjarútgeröarinnar sagöi
að starfsfólk byggist við því aö fyrir-
tækinu yröi lokað í janúar, þótt það
væri oröið vant uppsögnum. Ef upp-
sagnarbréf bærust því þann 27.
desember, eins og boðað hafði verið,
væri það í sjötta sinn á þessu ári.
Um síðustu mánaðamót var 30
manns sagt upp vinnu hjá Bæjarút-
gerðinni. Sagði Hans Einarsson að
ástandið væri orðið þannig að starfs-
fólk vissi ekki hvort þaö héldi vinn-
unni vikunni lengur eöa skemur.
Sagði hann að ef fyrirtækinu
yröi lokað í janúar þá myndu fæstir
starfsmanna snúa aftur ef rekstur-
inn hæfist á ný.
„Það er auðvitaö sárt að taka
svona ákvörðun, það gera allir sér
ljóst hvaða afleiðingar það getur
haft,” sagði Bjöm Ölafsson fram-
kvæmdastjóri. ,,En þaö er takmark-
aö hvað hægt er að hálda áfram
svona rekstri. Hingað til höfum við
getað greitt laun, en við sjáum fram
á að við getum ekki lengur staöið við
okkarskuldbindingar.” öEF
Björn Glafsson framkvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Hafnarf jarðar. DV-myndir EÓ.
Hans Einarsson trúnaðarmaður í f rystihúsi BUH.
Fró blaöamannaf undi iðnaðarróðherra í gær.
DV-mynd EÓ.
Hjörleifur býður Miiller á jólaball:
1/7// ná álsamning-
ifin fyrír kosningar
Eftir ríkisstjómarfund á þriöjudag
sendi Hjörleifur Guttormsson ráð-
herra enn nýja tillögu til Alusuisse um
samninga í álmálinu. Jafnframt
boðaöi ráðherrann til fundar um málið
í Reykjavík 28. og 29. desember, vænt-
anlega meö dr. Paul Miiller, formanni
framkvæmdastjórnar Alusuisse.
Tillagan sem Alusuisse-menn hafa
nú í höndum er sem næst samhljóöa
sáttaboði ráöherrans frá 7. desember.
Um gerðardóm þriggja íslenskra lög-
fræðinga til þess að skera úr um
ágreining í skattamálum Isal frá fyrri
árum. Um hækkun orkuverðs 1. janúar
úr 6,45 mill í 10 mill og 1. apríl í 12,5
mill hafi ekki þá þegar náðst fram-
búðarsamningar um orkuverðið.
Þá leggur ráðherrann til að þegar
verði hafnir samningar um endurskoð-
un orkuverðs og í fylgigögnum er vísað
tU hæfilegs verðs 15—20 mill á kíló-
wattstund. Einnig verði samið um önn-
ur atriði, skattgreiðslureglur, endur-
skoðunarákvæði, íslenska lögsögu, að-
gang að bókhaldi Isal, rétt ríkisins til
þess að eignast meirihluta í fyrir-
tækinu, byggingu rafskautaverk-
smiöju, óskir Alusuisse um stækkun ál-
versins og heimild til að selja 50%
hlutabréfa í Isal.
I tillögunni er undirstrikað að aöilar
stefni að samningslokum fy rir 1. apríl.
Svo sem kunnugt er hefur aprílmán-
uður oftast veriö til nefndur sem kosn-
ingamánuður. HERB
Þvfmiður!
Við verðum að framlengja
skílafrestinn í samkeppni Víðis h/f
Vegna veðráttunnar, ófærðar og ítrekaðra. til-
mæla utan af landsbyggðinni höfum við ákveðið
að veita öllum, sem vilja taka þátt í samkeppninni
um „besta nafnið" á nýju húsgögnin frá Víði, frest
til að skila tillögum sínum fram til áramóta.
Dómnefnd mun því skila áliti sínu á þrettándanum
Skoðið húsgögnin hjá:
Verslun Siguröar Pálmasonar Hvammstanga
Bjarg Akranesi
Húsprýöi Borgarnesi
Húsiö Stykkishólmi
Sería ísafiröi
Ósabær Blönduósi
Bólsturgerðin Siglufiröi
Duus Keflavík
Trésmiöjan Víöir Síöumúli 23
Augsýn Akureyri
Bílar og búslóö Húsavík
Versl.f. Austurlands Egilsstööum
Kjörhúsgögn Selfossi
Húsgagnaversl. Reynisstaöir Vestmannaeyjum
J.L. Húsiö Reykjavík
Hátún Sauðárkrókur
Valhúsgögn Reykjavík
Húsgagnaverslun Cuðmundar Smiöjuvegur 2
Sendið síðan tillögur um nafn til Trésmiðjunnar
Víðis h/f, Pósthólf 209,200 kópavogi fyrir 31. des-
ember n.k.
Trésmiójan VÍÐIR
Lögreglan verður með hertar aðgerðir
ó Þorláksmessu gagnvart þeim bil-
stjórum sem leggja ólöglega og eru
stórhættulegir i mörgum tilvikum. Auk
þess tefja þeir alla umferð. Mun lög-
reglan ekki hika við að flytja bilana í
burtu með kranabilum.
DV-mynd GVA
Lögreglan
með tvo
kranabíla
— hertar aögerdir gegn
ólöglegum bílstjórum
„Það hefur mikið borið á því í jóla-
umferðinni, aö ökumenn leggi bif-
reiðum ólöglega og í mörgum tilvikum
stórhættulega. Til dæmis þannig að
afturendi bifreiðanna skagar langt út í
akbrautina. Oft er þessum bifreiðum
lagt á þennan hátt þar sem snjóhrygg-
ir eru á akbrautum sem gera það að
verkum að ökumenn komast ekki yfir
þá og hefur þetta leitt til árekstra,”
sagði Oskar Olason yfirlögregluþjónn
er DV innti hann frétta af jólaumferð-
inni.
Oskar sagði ennfremur að lögreglan
hefði verið síðastliðinn laugardag meö
kranabifreið í sinni þjónustu og hefðu
nokkrar bifreiöir verið fluttar að lög-
reglustööinni við Hverfisgötu. Flutn-
ingurinn kostaöi 350 krónur og sektin
sjálf væri ekki undir 150 krónum þann-
ig að ökumenn yrðu að greiða aö
minnsta kosti 500 krónur þegar þeir
næðu í bifreiðir sínar.
„Nú á Þorláksmessu nær jólaum-
ferðin hámarki að venju,” sagði Osk-
ar. „Lögregian verður þá með tvær
kranabifreiðir í sinni þjónustu sem
flytja burtu bifreiðir sem er ólöglega
lagt.
Lögreglan vill vekja athygli öku-
manna á þessum aðgerðum og um leið
láta í ljós þá ósk að kranabifreiðirnar
verði verkefnalausar. Ef svo fer að
fjarlægja þarf bifreiðir geta ökumenn
vitjaö þeirra á lögreglustöðina við
Hverfisgötu,” sagði Oskar aö lokum.
-JGH