Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 22
22 DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir KR-inear á stórmót í Vestur-Þvskalandi — keppa þar við Kiel, Dankersen og lið frá Aust ur-Evrópu Meistaraflokkur KR í hand- knattlcik karla hefur fengið boð Andres með gegn Dönum? Það getur farið svo aö Andrés Kristjánsson sem leikur með sænska liðinu GUIF leiki með íslenska lands- liðinu gegn Dönum. Hilmar Björnsson landsiiðsþjálfari hafði ekki náð sam- bandi við Andrés í gær. Ef Andrés verður hér í jólafríi þá er líklegt að Hilmar noti tækifærið og gefi honum tækifæri til að spreyt: sig. Andréshefur leikið mjög vel með GUIF í vetur — er einn markhæsti leikmaður liðsins í „Allsvenskan”. -SOS. BjömogKarl dæma íDanmörku íslensku milliríkjadómararnir í handknattleik, Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson, dæma leik Helsingör frá Danmörku og Drott frá Svíþjóð í Evrópukeppni bikarmeistara í Dan- mörkuí janúar. -SOS um að taka þátt í mjög sterku handknattleiksmóti sem fram fer í Aelfeld í Vestur-Þýskalandi í byrj- un janúar. Þar munu keppa fimm sterk handknattleikslið. Eru það fyrir utan KR Sarajevo frá Júgóslavíu, Elekroms frá Búlgaríu og vestur- þýsku Bundesliguliðin Dankersen og Kiel. KR-ingar tóku þátt í þessu móti í fyrra og stóðu sig þá það vel að þeim var boðið aftur núna. Þá hafa KR-ingar fengið boð um að koma til Færeyja í apríl nk. og Bogdan Kowalczyk. Bogdan hættir hiá Ármanni — og ætlar að einbeita sér að Víkingunum í vetur Pólski handknattleiksþjálfarinn Bogdan Kowalczyk, sem verið hefur þjálfari Víkings og Ármanns í vetur, hefur nú látið af starfi sem þjálfari Ármenninga í 2. deildinni. Fer það allt fram í mesta bróðemi, að sögn Ármenninga. Telja þeir rétt að hann einbeiti sér að einu liði og Vík- ingur gangi fyrir hjá honum. Þeim mun þó einnig hafa fundist Bogdan vera oröinn þeim nokkuð dýr, þótt hann hafi ekki verið það þegar þeir gerðu samninginn við' hann á sínum tíma. Miðast launagreiðslur hans við Bandaríkjadollara, og þar sem dollarinn hefur hækkað mun meira en almenn laun í landinu er hann kominn með hátt mánaöarkaup. -klp- Jóhanna og Hrönn til liðs við ÍR Hin unga og bráðefnilega hlaupa- drottning úr Breiðabliki, Hrönn Guðmundsdóttir, hefur tilkynnt félagaskipti úr Breiðabliki í ÍR. Hrönn sem m.a. jafnaöi tslands- metiö í 800 metra hlaupi kvenna í sumar er ekki sú eina sem gengið hefur til liðs við ÍR að undanförnu. Jóhanna Konráðsdóttir, kúluvarpari úr UMSB, er einnig komin í ÍR og eiga þær stöllur örugglega eftir að styrkja Iiðsheildina hjá ÍR í frjálsum íþróttum mikiö á komandi keppnis- timabili. -klp- leika þar þrjá leiki við færeyska landsliðið. -klp Channon til Norwich Mike Channon, fyrrum landsliðsmið- vörður Englands, gerðist leikmaður með Norwich í gær. Channon fór frá Southampton fyrr í vetur — til New- castle, þar sem hann lék þar til félagið keypti Terry McDermott frá Liver- pool. Þá lá leið hans til Bristol Rovers. Channon, sem er 34 ára, leikur sinn fyrsta.leik með Norwich gegn Ipswich á mánudaginn í 1. dcildarkeppninni. — „Allir knattspymumenn eiga sér þá ósk að leika í 1. deild og því er ég ánægður, ” sagði Channon. -SOS Steindór Gunnarsson sést hér skora mark í landsleik gegn Dönum. STEINDORI „100 LANDSLEIKJA KLÚBBINN” — þegar íslendingar mæta Dönum 28. desember Steindór Gunnarsson, línu- maðurinn snjalli úr Val, leikur Ali hefur slegið þá marga niður. Muhammad Ali enn á ný í hringinn! Gamla kempan Muhammad AIi sem nú er kominn á fimmtugs aldur og vegur orðið nálægt 120 kíló hefur ákveðið að setja upp boxhanskana aftur á annan í jólum. Þaö ætlar hann að gera í Seoul í Suður Kóreu og aldrei þessu vant ætlar hann ekki að reyna að ná heims- meistaratitlinum í þungavigt aftur. Hann hefur boðist til að mæta þar og taka þátt í þriggja lotu „léttum leik” ásamt einhverjum öðrum þekktum hnefaleikara. Margir slíkir mæta þarna þetta kvöld en það sem inn kemur í peningum á að renna til bama og ekkju Kim Duk-Koo frá Suður- Kóreu sem lést í hnefaleikakeppni í síðasta mánuöi. -klp- sinn 100. landsleik í handknattleik þegar íslendingar leika tvo lands- leiki gegn Dönum 28. og 29. desem- ber. Steindór er þar með sjöundi handknattleiksmaðurinn, sem kemst í „100 landsleikjaklúbb- inn”. Þeir Icikmenn sem hafa leikið yfir lOOlandsIeikieru: Ólafur H. Jónsson, Þrótti 138 Geir Hallsteinsson, FH 118 Bjami Guðmundsson, Nettelstedt 118 Björgvin Björgvinsson, Fram 113 Viðar Símonarson, FH 103 Ólafur Benediktsson, Þrótti 102 ^SOS. Ólafur H. Jónsson — hefur leikið flesta landsleiki fyrir íslands hönd eða 138. „Ef þið standið ykkur ekki vel á íslandi” — verðið þið settir út úr landsliðinu,” segirLeif Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana, við sína menn Leif Mikkelsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, hefur tilkynnt sínum leikmönnum að keppnisferðin ti) íslands verði engin „jólafrísferð”. Hann hefur sagt lei' mönnum, sín- um, að ef þeir standi sig ekki vel i landsleikjunum gegn tslcndingum, verði þeir hiklaust settir út úr danska liðinu — hvað sem leik- mennlrairhefti. Danir muna vel eftir síðustu jóla- ferö sinni til Islands — þegar þeir töpuðu með 11 marka mun á Akra- nesi 29. desember 1981. Islendingar unnu þá sætan sigur 32—21 og vill danski landsliösþjáifarinn að leik- menn sínir hefni ófaranna. Tveir leikmenn Danmerkur leika sinn 100. landsleik hér á Islandi. Það eru þeir Morten Stig Christensen hjá Gladsaxe/HG og Carsten Haurum hjá Dankersen. -SOS. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.