Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. Spurningin Hlustarðu á jólakveðjur í út- varpi? Þorgeir Vigfússon, starfar við forfalla- þjónustu bænda: Það er ekki nema lít- ið. Nei, ég sendi ekki. Ef ég sendi eitt- hvað þá eru það þessar nýárskveðjur. Elma Jónatansdóttir: Já, ég geri það. Yfirleitt er þó ekki mikill tími. Nei, ég hef ekki sent kveðjur sjálf. Agatha Þorleifsdóttir matráðskona: Já, það geri ég. Mér finnst þetta svolít- ið notalegt og heimilislegt þegar verið er að senda kveðjur til vina og ætt- ingja. Hafsteinn Sörensen mjólkurfræðing- ur: Jú, yfirleitt jeri ég það ef ég hef1 ekki mikið að gera. Nei, ég sendi ekki kveðjur sjálfur. Lilja Markúsdóttir, vinnur á Hótel Hoiti: Jú, yfirleitt geri ég það ef ég hef ekki mikiö að gera en ég sendi ekki sjálf. Ásta Magnea óladóttir í skóla: Já, allt- af. Mér finnst svo stutt til jóla þegar kveðjumar byrja í útvarpinu. | Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur HVERS VEGNA ER VERD Á VÖRUM EKKIBIRT? — mætti „blikka” í einu homi í sjónvarpsauglýsingum 3885—1012 skrifar: Elsku hjartans lesendadálkur! Eg á ekki mjög mikla peninga. Þess vegna skiptir mig talsverðu' máli, þegar ég lít yfir auglýsingar um hina og þessa gripi til jólagjafa, hvaö þeir kosta. Mér þykir afskaplega gaman að gefa gjafir og hjarta mitt kætist þegar ég sé hluti sem myndu „örugglega henta henni Siggu, nú eöa þá sem gjöf til Gvendar.” Svo les ég auglýsinguna aftur, sannfærist ennú betur, og þá er komiö að því: ég finn ekkert verö í ca 90% tilfella. Ekki fer ég að aka um bæ- inn þveran og endiiangan til aö reka nefið inn í verslanir og spyrja um verð á einum og einum hlut. Auk þess er hreint ekki víst að afgreiðslufólkiö hafi einmitt þá tíma til að svara mér, því mér hefur sýnst, fljótt á litið, að fólk haldi almennt að afgreiðslufólk sé kolkrabbar sem geti teygt sig í allar áttir í einu. Þá sest ég viö símann og reyni, oft án árangurs og stundum með ærnum tilkostnaði, að fá upplýsingar um verð- ið. Svo fæ ég upplýst og hef ekki efni á. En það er önnur saga og ekki algild. Mig langar sem sé óskaplega að fá svar frá kaupmönnum við því, hvers vegna vöruverð er ekki birt í auglýs- ingum. Til dæmis mætti gefa upp hæsta og lægsta verð. I sjónvarps- auglýsingum mætti láta verðið „blikka” í einu horni meðan filman rennur í gegn eöa hafa þaö fast í einu horni í kyrrstæðum auglýsingum. Auk þess finnst mér alltaf aö kaupmenn sem greina frá verði vöru, séu á ein- hvem hátt betri þjónustuaðilar. Líka er rétt aö ég segi frá því að þegar ekki er auglýst verð, þá dettur mér stundum í hug: „Kannski heldur sá sem vöruna selur, aðég komi í búöina, sjái vöruna og kaupi hana þó hún sé langt yfir getumörkum mínum og buddunnar minnar.” — Dónaleg hugsun, ekki satt? Vill nú ekki einhver segja mér hvers vegna verð á vömm erekki birt? Eitt að lokum: oft finnst mér kaup- menn eiga þakkir skildar fyrir að hafa jafn fjölbreytt vömúrval á boöstólum og raun ber vitni. Það er svo milli mín og buddunnarhvort égkaupi. Brófrítari þakkar kaupmönnum fyrir fjölbreytt vöruúrval, en spyr jafnframt hvers vegna verð á vörum sé nær aldrei birt? Hvimleitt að borga tollaaf gjöfum erlendisfrá Sólmundur Einarsson hringdi: Mig langar að vekja athygli á því, að gjafapakkar frá útlöndum eru toll- aðir. Rikisstjómin virðist ætla aö gera sér þetta aö féþúfu, eins og svo margt annað. Það em í gildi ákvæði frá 1978, þar sem stendur að gjafir undir 10.000 gömlum krónum séu tollfrjálsar. Nú er þessi upphæð orðin 100 krónur sem er nú harla lítiö, og er rétt fyrir frí- merkjunum. Það er mjög hvimleitt að þurfa að borga toll af öllu því sem maður fær að utan og það þyrfti að breyta þessum lagaákvæðum meö til- liti til núverandi verðlags. Jólagjafir að utan sæta allt of hörðum tollákvæðum, að dómi Sólmundar Einarssonar. Nwttum, tS»*e' i m jjk Wm: w i; Mé: jjf ji|: H1 ■ ■i Æ jGSf K ■ zjmfc fjtf b'lnj .. K giHr VBC 1 P mf r IL-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.