Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1982. Minni fram- leiðsla — segir VSÍ um afleið- ingar orlofslengingar „Reynsla nágrannaþjóðanna sýnir að þar sem það hefur veriö reynt fjölgar störfum ekki að neinu marki með lengingu orlofs.” Þetta sagöi Þórarinn V. Þórarinsson, hjá Vinnu- veitendasambandi Islands, í viðtali viö DV. „Fyrirtækin hafa ekki haft tækifæri til þess aö bæta sér upp minnkun á framleiöslu með því að bæta viðsigfólki.” Eins og greint hefur verið frá í DV mun lenging orlofs, samkvæmt hinum nýju lögum frá Alþingi, leiða til fjölgunar um 200 til 250 starfa hjá hinu opinbera. En Þórarinn sagöi að slíkt gerðist ekki aö neinu svipuöu marki hjá einkafyrirtækjum. „Undanfarin ár hefur veriö meiri eftirspurn eftir vinnuafli en framboðið er,” sagði hann. ,,Og við sjáum ekki að á næsta ári allavega breytist það ástand. Þeg- ar af þeirri ástæðu getur ekki oröið um fjölgun starfa aö ræða. Þannig að lenging orlofs mun koma fram í skertri framleiöslu.” -óbg. AgnarKofoed■ Hansen látinn Agnar Kofoed-Hansen flugmála- stjórierlátinn. Agnar var einn helsti brautryðjandi íslenskra flugmála. Hann lauk flugliðs- foringjaprófi frá danska sjóflugliðs- foringjaskólanum árið 1935 og starfaði sem flugmálaráðunautur ríkis- stjórnarinnar 1936 til 1945. Hann varö flugvallarstjóri ríkisins 1947 og gegndi því embætti til 1. janúar 1951 er hann tók við embætti flugmálastjóra, sem hanngegndisíðan. Agnar Kofoed-Hansen var einn af stofnendum Flugmálafélags Islands árið 1936 og Svifflugfélags Islands sama ár. Jafnframt var hann einn aöalhvatamaöur að stofnun Flugfélags Islands 1937, fyrsti flugmaður þess og framkvæmdastjóri til ársins 1939. Eftirlifandi kona hans er Björg Axelsdóttir. Smáauglýsingadeild DV er opin til kl. 18 í dag, Þorláksmessu, en verður síðan lokuö fram til mánudags- morguns. Þá veröur opið til kl. 22 eins ogvenjulega. DV kemur síðan aftur út á mánu- daginn. Auglýsingadeild DV óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla. LOKI Einkafram taksmaðurinn vili ioka, ríkisvaldið lætur opnun afskiptalausa. Hvernig snýr þetta eigin- lega? Um 50 áhafnir úti um jól og áramót Allmargar íslenskar áhafnir verða að störfum erlendis um jól og ára- mót, um 360 tslendingar, alls 37 áhafnir, um jólin og um 380 manns um áramót eða 36 áhafnir. 125 tilvik- um er þar um sömu áhafnir að ræða sem eru f jarri heimilum sínum bæði jól og áramót, samtals 200 Islend- ingar. Hjá Nesskip eru það öll skipin sem verða f jarri um jól og áramót, alls 44 starfsmenn. Hjá Eimskipafélagi Islands verða 173 af þeirra starfs- mönnum við skyldustörf erlendis um jól en 146 um áramót. Starfsmenn SlS verða erlendis 55 um jól en 77 um áramót. Frá Hafskip verða 24 erlendis um jól en 40 um áramót. Flugleiðir verða með um 12 áhafnir í störfum á erlendri grund um jól og 13 um áramót. Frá Arnarflugi verða 14 starfsmenn úti um jól og áramót, alls þrjár áhafnir. Tölur þessar kunna að breytast, óvíst er með skip og flugvélar hvort áætlanir standist. Er þvi uppgefinn fjöldi einungis til viðmiðunar en standist allar áætlanir þá verða um 540 Islendingar starfandi í flugi eða á sjóumjólogáramót. -RR. Videoson hefur fengið fimm nýja framhaldsþætti tii sýningar á næstunni og giœnýjan jólaþátt sem sýndur verður annan ijóium. Myndin er afnokkrum þeirra sem fram koma ijólaþættinum, Dick Van Patt- en, Andy Williams, James Gaiway íirski flautusnillingurinn sem ekki komst á Listahátiðina), Dorothy Hamiii skautadrottning og Aileen Quinn, barnastjarnan sem sló i gegn i „Annie". Sjá nánar i frótt á biaðsiðu 4. HEILLIBRENNU EKIÐ A BROTT Borgaryfirvöld fjarlægðu í gær brennu viö Kleppsveg 155 rétt ofan við Holtagaröa, hús Sambandsins. Fyrir um viku byrjuöu nokkrir krakkar að safna í brennuna og töldu sig hafa fengið vilyrði hjá borgar- yfirvöldum fyrir henni. Ágætlega gekk aö safna í brennuna og var hún orðin hin myndarlegasta, þegar hún var fjarlægð í gær. Að sögn borgar- yfirvalda þurfti aö fara fjórar til fimm feröir á stórum vörubíl til að fjarlægja draslið úr brennunni. Valdimar Sigurðsson, lögreglu- þjónn í Reykjavík, sem hefur með brenríúr í Reykjavík að gera, sagði í samtali við DV að margvísleg rök væru fyrir því aö ekki væri hægt að veita leyfi fyrir brennu á þessum stað. Nýjar byggingar væru komnar í grenndina og það væri augljóst að hundruð bama þyrftu aö fara yfir Kleppsveginn, sem væri ein aðal- umferöargata borgarinnar. Þetta skapaöi mikið umferðaröngþveiti. Sveinn Ingibergsson, sem er ábyrgðarmaður brennunnar, sagði við DV að hann hefði sett inn umsókn fyrir um þaö bil viku. Hann hefði ekki verið búinn að fá formlegt svar fyrir brennunni en menn sem komu og skoðuðu brennustæðið heföu sagt við krakkana að þetta hlyti að vera allt í lagi. Það var því farið af stað þar sem undirtektir hefðu verið góðar. Krakkamir heföu unnið vel en síðan heföu lögregluyfirvöld haft samband við hann og tjáö honum að útilokað væri að leyfa brennu á þessum stáö. „Ég verö þó aö segja að mér finnst óeðlilegt að leyfa krökkunum ekki að vera með brennu á þessum stað,” sagöi Valdimar. Þess má geta að oft hafa verið brennur á þessum stað en í fyrra kom upp svipað ástand og nú og brennan var fjarlægð. Fékkst ekki leyfifyrirhenni. -JGH. HEIMABINGO: Umboðs- maður DV fékk vinninginn ,jEg var himinlifandi þegar mér var tilkynnt um vinninginn. Sem umboös- maður DV hér í Búðardal fékk ég send bingóspjöld til að selja. Sjálf keypti ég nokkur spjöld, svona meira til að styrk ja gott málefni, enda hef ég aldrei unniö neitt í bingóum eða happdrætti áður. Og í rauninni finnst mér þetta allt hálf ótrúlegt og er varla búin að átta mig á þessu enn,” sagði Sólveig Ingvadóttir, umboösmaður DV í Búöardal. En hún hlaut aukavinning- inn í Heimabingói Sjálfsbjargar, Iþróttasambands fatlaðra og DV, sem dreginn var út í gær, forkunnarfagurt Sharp hljómflutningstæki. Ákveðiö hefur verið að spila áfram á næsta ári en þá með breyttu fyrir- komulagi, sem mun gera bingóið enn meira spennandi. Heimabingóið er stærsta bingó landsins og í einni úmferö skipta þátt- takendur þúsundum um allt land. -JGH. Fleiri bíða en fá inni Nú eru 442 börn á dagvistum í Kópavogi. Enn fleiri bíöa hins vegar eftir að komast í vistun og eru 482 böm á biðlistanum. Áf þeim sem bíöa er ætlunin að koma 97 á dagheimili, 368 á leikskóla og 17 á skóladagheimili. HERB. Mikið versl- að í gær- — þrátt fyrir veður og Dallas Opið var í velflestum verslunum í miðbænum í gærkvöldi til klukkan tíi þrátt fyrir mótmæli Verslunarmanna- félags Réykjavíkur. DV ræddi við nokkra kaupmenn og voru þeir almennt nokkuö ánægðir meí verslunina í gærkvöldi og sögðu að ekki virtist veðriö hafa komið í veg fyrir verslunarleiðangra, hvað þá Dallas.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.