Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 20
20 DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. Kerksni Jú, sjáðu til, þetta er besti staöurinn fyrir gjafirnar! Fiórar svartar periur Fjórar hljómplötur mefl einleik Manuelu Wieslor. Upptaka: Bjarni Rúnar Bjarnason. Vinnsla: Polygram, Wien. Útgáfa: Manuela Wiesler, MW 1,2, 3 og 4. Enn einu sinni kemur Manuela Wiesler okkur á óvart. Sjaldan veröur manni orða vant, en er nokkur furöa þótt svo fari þegar manni berast í hendur fjórar hljóm- plötur með leik Manuelu. Og einhver kynni aö spyrja — er þaö nú ekki einum of stór biti til aö kyngja í einu? En því er til aö svara, aö fy rst kemur einn biti og áöur en maður veit af, sá næsti, uns allt er uppetið einu sinni og svo aftur og aftur. Nú skyldu menn halda aö leiðigjamt sé aö hlýða á eina flautu heilar átta plötu- síöur og þaö má vera rétt, sé viö aörar plötur átt. Plötur Manuelu er maður hins vegar knúinn til aö hlusta á, allar fjórar í einni lotu. (Sá sem getur skammtaö sér þær einaog eina með hléum á milli er gæddur ótrúlegum vilj asty rk). Og hvaö er þaö, sem gerir þessar plötur svo heillandi? Eru þetta bara ekki venjulegar klassískar plötur af vandaðri sortinni? En slíkar koma út í hundraöa og þúsunda tali nærri daglega um heim allan. Jú, þaö er nú mergurinn málsins. Hér er um aö ræöa plötur, sem standa jafnfætis því besta sem út er gefiö meö stór- þjóöum. Bjami Rúnar Bjamason skilar hér einstöku verki, sem sýnir að kunnátta og smekkur geti unnið upp tækni og aðstöðumun þann sem upptökumenn stórfyrirtækja hafa fram yfir okkar einfalda útbúnaö. Og um aðra vinnu er ekki aö spyrja. Þeir kunna sitt fag, piltamir hjá Polygram. Og svo er þaö leikur Manuelu. Það þætti víst saga til næsta bæjar að upptaka á átta plötusíðum væri ekki nema tveggja nátta vinna. Umfærni Manuelu vita allir. En hér sýnir hún á einum staö sína ótrúlegu fjölhæfni. Magnús Eiríksson—Smámyndir FÁTTNÝTT —EN IMARGT GOn Þaö er engum vafa bundið aö Magnús Eiríksson er eitthvert allra besta dægurlagatónskáld sem viö eigum. Er hann eitt af fáum tón- skáldum sem hefur getaö sameinað skemmtileg og grípandi lög með góöum textum. Þaö hafa margir söngvarar leitað í smiöju Magnúsar og oftast meö góöum árangri. Sjálfur hefur hann leikiö eigin lög á plötur meö hljómsveitinni Mannakom og eru plötur Mannakorns meö því besta sem ég hef heyrt af íslenskum dægurlagaplötum, gripandi lög og góöir textar og Pálmi Gunnarsson gaf lögunum sterkan svip, en hann hefur sungiö langflest lög Manna- korns. Þaö kom því engum á óvart þegar þaö spuröist að Magnús Eiríksson ætlaöi aö koma meö plötu undir eigin nafni. Fannst flestum kominn tími til. Ber platan nafniö Smámyndir og inniheldur tíu lög og eru lög og textar aö sjálfsögöu öll eftir Magnús, en auk þess leikur hann á gítar, syngur eitt lag og stjórnar upptöku og útsetur ásamt Baldri Má Amgríms- syni. Til aö syngja lögin hefur Magnús fengið Pálma Gunnarsson, Ragn- hildi Gísladóttur og Magnús Þór Sigmundsson og standa þau sig öll vel eins og þeirra er von og vísa. Það er í rauninni ekkert sem kemur á óvart við hlustun á Smá- myndum. Þetta er tónlistin sem maöur bjóst viö, skemmtileg lög og ágætir textar. Magnús notar ekki mörg hljóðfæri í lögum sínum, en notar því meira synthesizer meö ágætum árangri. Platan byrjar á rólegu lagi, Sigling, sem Magnús Þór syngur, Pálmi syngur síöan eldhresst lag, Þorpar- inn. Ragnhildur tekur viö í einu besta lagi plötunnar, Hvað um mig og þig, síðan kemur blús, en hugur Magnúsar er alltaf nálægt blússveifl- unni og syngur hann Reykjavíkur- blúsinn sjáifur, verö ég nú aö segja eins og er aö Pálmi heföi sungið þennan ágæta blús betur, en Magnús gefur laginu sérstakan svip. Síöasta lag á fyrri helmingi plötunnar er fallegt lag, Einn dag í senn, sem Magnús Þór f er vel meö. Magnús Þór byrjar einnig seinni hliðina, er þaö titillag plötunnar, rólegt eins og önnur lög sem hann syngur á plötunni. Gummi og ég er fjörugt lag sem Pálmi fer létt meö. Ragnhildur syngur Engan til að eiska, rómantísk ballaða^ ekki er ég alveg sáttur viö þaö lag. Vals númer eitt er eina lagiö á plötunni sem eingöngu -er leikiö og gæti þaö vel veriö þema viö franska kvikmynd, svo mjög minnir þaö mig á kvik- myndatónlist, enda hefur Magnús verið með í aö semja lög fyrir tvær íslenskar kvikmyndir undanfarin ár meö góðum árangri. Platan endar á eldhressum rokkara, Gúmmítarzan, sem Pálmi syngur af miklum móð. Þaö verður enginn fyrir von- brigöum af aö hlusta á Smámyndir, þeir sem þekkja tónlist Magnúsar Eiríkssonar finna á plötunni allt það besta sem einkennir þennan ágæta listamann og bótt fátt sé um nýjungar er allt sem þama er pott- þétt. -HK. Þaö gildir einu hvort hún leikur barok músík eins og á fyrstu plötunni. Þar má benda á einstakan flutning a-moll partítu Johann Sebastians Bach; eöa nútímamúsík skandinaviska. Á þeirri plötu er meöal annars Kalais. Bæði verkin eru til á öðrum plötum meö Manuelu og fróölegt aö bera saman; eöa franska flautumúsík eða þá á síöustu plötunni íhugunarmúsík fyrir Kont, de Leeuw og Jolivet. Allt er á plötum þessum frábært. Yfir okkur dynur slagoröið — „Geföu tónlistargjöf”. Enginn hefur tekið þaö jafn bókstaf- lega og Manuela, sem gefur fjórar svartarperlur. -EM. Magnús Eiríksson — góður laga- og textahöfundur. Þú og ég — Helga Möller og Jóhann Helgason. Þúogég— Aðeinseittlíf: Æ, æ... Þú og ég eöa Jóhann Helgason og Helga Mölier hafa sent frá sér plötu númer tvö. Þaö er afskaplega auövelt aö snúa út úr plötuheitinu — platan heitir Aöeins eitt líf — meö því aö segja aö betra ef sattværi. Fyrri plata þeirra skötuhjúanna haföi aö geyma púra diskó — sem eng- inn nema ölvaður (ekki endilega af víni) dansunnandi getur nýtt sér á ljósagólfi. En lögin voru sum satt aö segja nokkuð gripandi þótt fljótt yröu þau leiðigjöm. En afuröin virtist ganga vel í Japani í þaö minnsta og er ekkert nema gott eitt um það aö seg ja. En að ætla sér aö endurtaka sama leikinn án nokkurra breytinga. Þaö finnst mér einum of mikið af því góða. Meira aö segja Japanimir hljóta að sjá í gegnum slíkan leik. Aðeins eitt líf er eins og ljósrit af fyrri plötunni — nema hvaö lögin standa þeim á plötu nr. eitt langtaðbaki. Líklega veröur aö skrifa sökina að miklu leyti á Gunnar Þóröarson — og er illt til þess að vita. Hann sér um út- setningar að mestu og stjómar upptök- unni ásamt Geoff Calver . AÖrir hljóö- færaleikarar eru erlendir enda er platan nær alveg unnin í Bretlandi. Á aðeins eitt líf eru tíu lög. Fimm eru eftir Gunnar Þóröarson, þrjú eftir Jóhann Helgason og sitthvort eiga þeir Jóhann G. og Magnús Þór. Textarnir eru þessir venjubundnu og þrír á ensku. Eg get ómögulega tekiö eitt lag fram yfir önnur. Mig langar þó aðeins aö nefna þá útreiö sem hiö ágæta lag Jóhanns G. Don’t Try To Fool Me fær. Það er agalegt. Söngur þeirra Jóhanns og Helgu er svo sem hnökralaus en alls ekki er hann góöur eöa athyglisveröur og þeim fer illa aö syngja á ensku — sérstak- lega þó Helgu. Heildareinkunnin er því slæm. Eg efast um aö platan standi undir nafni — hún nær nefnilega í þaö minnsta aldrei að vekja hlustendur sína til lífsins. Eg held aö jafn ágætir tón- listarmenn og aöstandendur þessarar plötu eru, ættu aö snúa sér aö öðrum hlutum. -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.