Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 24
I DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. Gíeðileg jól, farsælt komandi ár. Varmi Bilasprautun Auóbrekku 53. Sími 44250.! Box180. Kópavogi. Allur akstur krefst varkárni fS Ytum ekki barnavagni á undan okkur við aðstæður sem þessar tfXF /IFEROAR SMÁAUGLÝSINGADEILD Þverho/ti 11. Sími27022. VERÐUR OPIN UM JÖLAHÁTÍDINA SEM HÉR SEGIR: Fimmtudag 23. des. opiðtilk/. 18. Lokað aðfangadag, jó/adag og annan íjó/um. Opið mánudag 27. des. k/. 9—22. Menning Menning Menning Gamalt vín á nýjum belgjum — eða háborgarinn eilífi Kristján Albertsson: MEÐAN LÍFIÐ YNGIST. Almenna bókafélagið. Þaö er misjafnt hvaö menn iöja sér til afþreyingar á níræöis- eöa tíræðis- aldrinum þegar svo vel vill til aö lífs- ljósið er ekki brunniö niöur í stjakann. Halldór Kr. Júlíusson sýslumaður dundaöi viö aö læra rússnesku. Kristján Albertsson heldur sig viö leistinn sinn og skrifar skáldsögu all- væna. Hann gefur henni nafn sem skilja má á ýmsa vegu — Meðan lífið yngist. Þaö á ef til vill að vísa til þess lífslögmáls sem ræöur langri manns- ævi, sem sé að maðurinn eldist aðeins svo sem fram að sextugu eöa sjötugu en tekur þá aö yngjast aftur — lifa í æsku sinni, jafnvel veröa barn aö nýju rétt áöur en hann fæðist í nýjan heim. En líka mætti leggja í þetta nafn víö- tækari skilning. Látum þaö eiga sig. En Kristján yngir sig í þessari bók á þann veg að hann leitar aftur í sjálfan sig á góöum manndómsárum, gerir til- raun á þann hátt að setja sjálfan sig og fólk þeirra ára inn á svið nútíðar og skemmtir sér viö aö horfa á, hvemig þaö tekur sig út á þessum nýja og skrítilega lífsvangi. Arangurinn veröur auðvitað stórfenglegur og maöur hrekkur ósjálfrátt viö að horfa í það breiða regindjúp sem staöfest er rnilli ártalanna 1930 og 1980 í íslensku mannlífi og þar með skáldsögunni sem jafnan er spegill síns tíma, nema hún sébúsettísögunni. Knstján Albertsson var, og er enn á níræðisaldrinum, háborgaralegasti rit- höfundur Islands. Hvert einasta skáld- verk' hans hefur veriö reist af þessum borgaralegu inn- og útviðum og bók- menntagagnrýni hans, oft frábær aö máli, stíl og skarpri athugun, var ætíö jámslegin þessu borgaralega mati. Meöan Laxness eiröi borgaralegum viðhorfum (t.d. í Vefaranum) var Kristján Albertsson: Hvað sem segja má um þessa skáidsögu og timaskekkju hennar þá er hún fagurt ritverk. Kristján fögnuöurinn uppmálaður en þegar hann fór að skrifa um Bjart og Sölku og tefla þeim og fleira fólki gegn borgurum þá var svipa Kristjáns á 1 lofti (þó aö Laxness heföi greinilega fariö mjög fram í ritlistinni). Kannski er þetta hjágata, en þetta kemur í hugann viö lestur skáldsögu Kristjáns. Þar er hann enn sami háborgari liðinna ára. Ég held aö brennt sé fyrir þaö aö sögunni sjáist nokkur almúga- manneskja. Og þó er sögusviöið allvítt og breitt — jæja, bæði Akureyri og Reykjavík — og svo heimurinn utan Islandssteina. Sagan hefst á stór- draumi íslensks heimsborgara sem kemur heim og hyggur á mannaforráð á Alþingi og í viðskiptalífi. Lýst er „prófkjörsbaráttu” hans og fyrstu sigurgöngu. En í þann mund sem hann er aö ná markinu, fellur hann á nýtískulegri freistingu íslensks viðskiptalíf síðustu ára og lendir á Litla-Hrauni. Þaöan kemur hann betrumbættur og líkari mennskum manni og þá kemur ástin — hin óbreytanlega — og fullkomnar sköpunarverkið. I sögulokin eygir maöur hamskiptin úr borgara í marin. En spumingunni um þaö hvemig ummyndunin tekst er ósvarað. Þetta er og á að vera nútímasaga. En persónur og leikendur er aftur- gengiö fólk í öllu æöi. En þetta eru einkar viökunnanlegir borgarar og fagursnyrtir. Þeir eru heimspekilegir í tali, háfleygir í samræðum, gáfaðir og orðfagrir, sumir hreinsorfnir til ágæt- is — aðrir seyrnir eins og gengur. Þaö er afar gaman aö samtali þessa háborgarafólks úr liðnum tíma, þaö minnir mann á hinar bestu sögur frá tíö Einars Kvaran og Guömundar Kambans. Þaö yljar manni hve mál Kristjáns er fagurt og heillandi. Honum bregöast ekki enn hin gömlu snillitök, þótt hann sé farinn aö. yngjast, og drjúgur spölur virðist enn í bamdóminn. Og hann er ekki lengur dómskár um of. Hvaö sem segja má um þessa skáldsögu og tímaskekkju hennar er hún fagurt ritverk, gamalt vín og guðaveigar á glasi sem dreypt er á af hófsemi efri ára. En borgarinn er samt ekki aUur af guUi ger því aö víöa þramir iUra hóta norn undir niðri í stiklunum. Eg haföi hina mestu ánægju af lestri sögunnar. Hún var mér sem gamalt minni og víst er um það hún á sér fáar eöa engar systur á þessum jólabókamarkaöi — og er ekki um aö sakast. Aö lesa hana — þaö er Bókmenntir Andrés Kristjánsson kannski eins og að s já Hannes Hafstein og nokkra samborgara hans birtast aUt í einu í Austurstræti eöa Kaupangs- stræti. Ætli hann lífgaði ekki svolítiö upp á einn sunnudag á aöventu 1982? Það gerir saga Kristjáns líka. Andrés Kristjánsson. Að yrkja með elskunni sinni Einkamál. Höfundur: Hans Hansen. Þýðandi: Vernharður Linnet. Lystrœninginn, Reykjavík 1982. Hans Hansen, sem hér var á ferð- inni í haust, er einn af hinum fram- taksömu dönsku kennurum sem drífa sig í aö fara að skrifa bækur fyrir unglinga vegna vöntunar á þannig bókmenntum. Hansen hefur skrifaö mikinn fjölda bóka (25) auk kvikmyndahandrita og efni hans hefur hlotiö miklar vinsældir. Hér á landi er hann þekktastur fyrir bæk- umar Sjáöu sæta naflann minn og tvær aörár sem Lystræninginn hefur allar gefið út, einnig hefur veriö sýnd hér kvikmynd meö sama nafni og sú fyrsta. Eins og allir vita sem hafa lesið þessar bækur einbeitir höfundurinn sér fyrst og fremst aö ásta- og til- finningalífi unglinga á gelgjuskeiði. Hann er óragur í lýsingum sínum á fyrstu reynslu af ástinni og því til- finningaróti sem henni fylgir. Mark- miö hans er að veita unglingum innsýn í þetta svið mannlífsins og draga úr ótta við það en þetta telur hann hafa verið mjög vanrækt í unglingabókum. öragglega hefur hann líka svarað spurningum margra unglinga: — Er ég öðruvísi en hinir? — Bregst ég öðravísi viö? Hansen er ekki þekktur fyrir stór- kostlegan skáldskap i bókum sínum heldúr hispursleysi og mannlega hlýju. Þaö besta viö hann sem höfund er líklega það að hann man greinilega mjög vel hvernig þaö var aðveraunglingur. Að auglýsa í einkamálum I bókinni Einkamál færir Hansen sig þrepi upp fyrir gelgjuskeiöiö. Aöalpersónan er tvítugur strákur en umfjöllunarefniö er þaö sama — fyrsta ástar- og kynlífsreynslan. I þessari nýju bók finnst mér höf- undurinn sýna meira hugmyndaflug og tækni en í þeim bókum sem ég hef áöur lesiö eftir hann, persónusköpun er betri og sögufléttan slungnari. Bankastarfsmaöurinn Eiríkur (20 ára) er aðalpersóna sögunnar. Hann lifir afar tilbreytingalausu lífi, í bankanum er þaö starfið og sam- starfsfólkið sem þjakar hann, utan bankans móöir hans sem fylgist meö öllum hans geröum þó hún búi í margra mílna fjarlægö. Eiríkur hefur augsýnilega alltaf beygt sig undir vilja hennar og af gömlum vana gerir hann það enn á milli þess sem hann heimsækir hana um helgar og tal^r viö hana í síma. Hvort sem þaö er undirgefni Eiríks aö kenna eingöngu eöa líka einhverju fleiru þá hefur hann aldrei haft uppburöi í sér til aö nálgast kvenmann. Loks gerist þetta svo í gegnum einkamála- Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir Hans Hansen: ritar vinsmiar bækur fyrir unglinga. auglýsingu sem hann svarar. Hann kynnist Helenu sem er 12 áram eldri en hann og gift. Hjá henni kynnist hann leyndardómum ástarinnar á dáh'tið sérstakan hátt og eins og ætíö hjá höfundinum eru tilfinningar og sálarlíf mikilsveröur þáttur. Eiríkur og Helena nálgast ekki umsvifalaust í líkamlegri girnd heldur verða sálir þeirra aö sameinast fyrst. Þau eru bæöi ljóðelsk og leika sér aö því að yrkja en meö skáldskap og hugar- flugi gerir Helena Eiríki fyrstu kyn- lifsreynsluna auövelda og yndislega. En kynnum þeirra skötuhjúa fylgir ekki bara ást og unaður heldur taka máhn fljótlega undarlega stefnu og höfundi tekst aö koma verulega á óvart í lok bókar. Eiríkur og Helena era töluvert sannfærandi persónur. Eiríkur í aulaskap sínum og undirgefni og Helena er skemmtilega dularfull, næstum eins og góð dís sem kemur úr öðrum heimi til aö frelsa Eirík úr ánauö. Lýsingarnar á sambandi þeirra era opinskáar og eöhlegar, þarna ná saman manneskjur sem eiga ýmislegt sameiginlegt og grundvaUa á því náin kynni. — Það er kannski ekki vitlausari leiö en hver önnur aö auglýsa í einka- málum? Hans Hansen er höfundur sem skrifar fyrst og fremst með markaö- inn í huga og það hvar helst er þörf fyrir skáldskap hans. Einkamál er í flokki bóka sem gefinn er út í Kaup- mannahöfn meö þaö aö markmiði aö fá eldri unglinga (16—17 ára) til aö Iesa meira af bókmenntum. Þetta er sem sagt bók skrifuð sérstaklega fyrir þann aldur sem veigrar sér viö aö lesa þungar fuUoröinsbækur og bara býsna góð sem slík. Hún er létt og auölesin en þó spennandi og vekur tU umhugsunar um sálfræöUeg efni. Máliö á bókinni er létt og Upurt í þýðingu Vernharðs Linnet. -HH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.