Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Raddir neytenda Launin duga ekki fyrír útgjöldunum 5 manna fjölskylda af Stér-Reykja- víkursvæðinu sendi okkur þessar línur: Um daginn voruö þiö aö birta sýnishorn af tölum yfir önnur útgjöld en matarkostnað og satt að segja leiö mér ögn betur að sjá að þaö eru fleiri en ég með ógnvekjandi háar tölur í þeim lið. Mér datt hins vegar í hug að ykkur þætti forvitnilegt að sjá heildarsundurliðun á slíkum tölum svo ég læt þær fylgja hér með fyrir mánuöina septemberog október. Þessar niöurstöðutölur eru ekkert einsdæmi. Eg reiknaði að gamni út meöaltal annars kostnaðar en matarkostnaðar það sem af er árinu og var útkoman yfir 27.000 krónur á mánuöi aö meöaltali. Launatekjur hafa ekki staðið undir þessum út- gjöldum eingöngu, heldur hafa einnig komið til aðrar tekjur. Eg vil taka það fram aö við erum ekki að byggja eða í öðrum fjár- festingarframkvæmdum en þeim að við greiöum mánaðarlega afborgun af bíl (rúmlega 4.000 kr.) sem viö keyptum í fyrravetur. Aörar afborg- anir eru flestar af eldri lánum og teljast víst lítilræði miöað viö marga aöra en engu aö síður lítur dæmið svona út og endar ná ekki saman. Viö lifum kannski ekki sultarlífi (búum í rúmgóðu eigin húsnæði, skuldlitlu og rekum 2 bíla sem við teljum hagkvæmara en einn vegna atvinnu beggja aðila) en engu að síður veitum við okkur sáralítmn munað (ég læt ykkur um aö meta hann skv. sundurliðuninni). Það virðist hreinlega aldrei verða hlé á alls konar greiðslum eöa hverjir þurfa ekki að greiða rafmagn, síma, hita, fasteignagjöld og viðhald á húsnæði og/eöa húsaleigu, trygg- ingariögjöld, afborganir af lánum, bensín o.s.frv. auk þess að fæða sig og klæða og greiöa skatta og skyldur. Eftir að heimilisdagbókin kom fyrst út fór ég að skrifa niöur öll útgjöld og útkoman er oft allhrikaleg þegar Iagt er saman en sýnir skil- merkilega í hvað peningarnir hafa farið. Það er af sem áður var að maður botnaði hreinlega ekki í hve peningarnir voru fljótir aö fara þótt greiðsluáætlun væri gerð reglulega fram i tímann. Einhvem veginn kemur ekki nærri allt fram í slíkri áætlun, a.m.k. ekki hjá mér. Svar: Eg má til með að birta þessa sunduriiðun í heild. A henni sést nefnilega hversu mjög er að fólki kreppt þessa dagana. Núna um mánaöamótin tapar meðalf jölskylda þetta 1—3 þúsund krónum í skertum vísitölubótum á meðan allt hækkar. Það er ekki furða þó stundum sé erfitt að láta enda ná saman eins og þessari 5 manna fjölskyldu reynist. -DS. Raddir neytenda Raddir neytenda Heimilisbókhald, september 1982 Matur og hreinlætisvörur kr. 5.800,85 Afnotagjald útvarp/sjónvarp - 672,00 Rafmagn - 771,00 Fatnaður, skótau, vefnaðarvara - 937,25 Tóbak - 1.444,50 Bensin - 5.681,00 Varahlutir - 21,40 Afborganir af bil og lánum - 7.056,00 Skattar - 3.135,00 Happdrætti - 455,00 Sæigæti 414,00 Lífeyrissjóður og starfsm.fél. - 585,70 Áskrift dagblaða og bækur (m.a. f. skóla) 467,00 Klipping - 100,00 Lyf, læknishjálp - 162,95 Sjúkrabifreið - 193,00 Frimerki og giróseðlar - 114,50 Skemmtanir - 310,00 Veðbókarvottorð og auglýsing - 156,00 Gjafir - 134,50 Batteri 142,80 Viðhald á húsnæði - 113,55 Framköllun - 174,25 Strætisvagnafargjöld - 280,00 Leiga á bankahólfi - 120,00 Gisting (i skála) - 120,00 Ljós - 118,00 Fótsnyrting 80,00 V/gleraugna > - 21,00 Sendurpakki - 12,00 Samtals kr. 29.793,25 Þessi mánður er alveg dæmigerður yfir öll mögu- leg útgjöld, sem til falla á venjulegu heimili. Heimilisbókhald, október1982 i Matur og hreinlætisvörur kr. 10.001,00 Simi — 1.186,00 Hiti — 787,00 Fatnaður, skótau, vefnaðarvara — 445,80 Tóbak — 1.658,50 Bensin — 5.620,00 Varahlutir og viðgerðir — 2.763,50 Afborgun af bil og láni — 8.363,35 Skattar — 6.362,00 Happdrætti — 930,00 Sælgæti — 383,40 Lifeyrissjóður og starfsm.fél. — 979,40 Áskrift dagblaða og bækur — 356,00 Klipping — 129,00 Lyf, læknishjálp — 325,20 Frimerki og giróseðlar — 61,00 Skemmtanir — 1.074,00 Gjafir — 1.797,00 Batteri — 121,20 Fasteignagjöld - 170,00 Verkfæri — 164,20 Viðgerðir á tækjum - 428,00 Eyrnapinnar — 17,50 Myndataka — 75,00 Strætisvagnafargjöld — 50,00 Áfengi — 208,00 Leigubill — 115,00 Krabbameinssöfnun — 200,00 Samtais kr. 44.771,05 Óvenjulegur mánuður. Áfengi er keypt á 1—2 ára fresti. Leigubíl hef ég ekki notað árum saman. Skemmtanir eru óvenju hár liður. en aldrei þessu vant fórum við hjónin út að borða (þetta telst vist ekki mikið með það í huga). Við hefðum sem sagt getað sparað 1300—1400 kr. með því að sleppa þessu. Einnig vorum við þátttakendur i dýrum gjöfum i þessum mánuQi. Eflum verðskynið Gott neytendablað nýkomið út 2. tbl. Karl Eiríksson hringdi: Fólk er alltaf að tala um að efla verð- skyn sitt. Mig langar að koma fram með einfalt ráð til þess. Það er að hafa með sér í búöarferðir vasatölvu og deila vísitölu (t.d. lánskjara) í verð vörunnar. Þá geta menn fylgst með því hvort hún hækkar í verði umfram vísi- tölu. Lánskjaravísitala er gefin út mánaöarlega þannig aö innan handar ætti að vera fyrir fólk að ná sér í hana. Neytendablaöið, 2. tölublaö þessa árs, er nýkomið út. Ritið er rúmlega þrjátíu síður að stærð og góður frá- gangur á því. Margar fróðlegar greinar eru í blaöinu, sem dæmi eru greinar um hobbýlím og gaskveikjara, en báðir hlutir geta verið hættulegir fyrir neytendur. Fróðlegt viðtal er við Tómas Árnason viðskiptaráðherra, og annað um umferðamál þar sem rætt er við Ola H. Þórðarson, framkvæmda- stjóra Umferðarráðs. Vörumerkingar og neytandinn, verðsamanburður, kartöflumálin og fleiri mál eru reifuð í ritinu. I leiðara Neytendablaðsins segir Jóhannes Gunnarsson einn rit- nefndarmanna og ábyrgðarmaöur blaðsins meðal annars: ,,A fyrstu formannaráöstefnu Neytendasamtakanna sem haldin var á sl. hausti og sagt er frá á öðrum stað í blaðinu, var fjallað um skort á upplýsingastreymi til neytenda. Voru fundarmenn sammála um að stórauka þyrfti útgáfu og fræðslustarf samtak- anna. A undanfömum árum hefur Neytendablaðið aðeins komið út 1—2 á ári. Hér þarf að verða breyting á. Einnig þarf í auknum mæli aö birta í blaðinu verð- og gæöasamanburð á hinum ýmsu tegundum vöru og þjónustu. Stjóm Neytendasam- takanna, sem og einstök aðildarfélög samtakanna, hafa aukinn hug á að láta þetta verða aö veruleika og með því að stuöla að auknu jafnræði milli kaup- enda og seljenda. Neytendafræðsla er svo til engin hérlendis. Víðast hvar í nágrannalöndunum er hún hins vegar skyldufag í skólum. Formannaráð- stefnan kaus sérstaka nefnd til að ýta þessu máli úr vör og er það von okkar, sem að neytendamálum vinna, að afraksturinn veröi öflug neytenda- fræðsla í skólakerfinu.” Jafnframt getur Jóhannes 2. TOUiBlAP OcSitMÐER 1W2 . VtfiO Kfi. JO NEYTENDABLAÐl Gunnarsson þess aö ákveðið hefur verið aö dagana 15. janúar til 15. febrúar verði skipulega reynt að f jölga félagsmönnum í Neytendasamtök- unum. Minnumst þess að stóraukin ’þátttaka almennings eflir Neytenda- samtökin og bætir hag neytenda. Neytendablaðið kostar þrjátiu krónur. -ÞG. Neytendasíðan óskar lesendum sínum gleðilegra jóla ISLANDSFERÐ, VERÐLAUN í UPP- SKRIFTASAMKEPPNI 1 byrjun desembermánaðar kom hingað til lands hópur Norömanna á vegum norsku bændasamtakanna. I hópnum voru forsvarsmenn samtak- anna, blaðamenn og sex verðlauna- ( hafar, sem unnu Islandsferð í upp- skriftasamkeppni sem fram fór í Noregi í nóvember. I samvinnu við sex héraðsblöö efndu bændasamtökin til samkeppni um uppskriftiraf lambakjötsréttum. Alls bárust dagblöðunum sex, 630 uppskriftir. Var þá skipuð dómnefnd á hverju blaöi, sem valdi úr5—6 upp- skriftir á hverjum stað og voru 32 uppskriftir í undanúrslitum. Lesend- ur blaöanna voru hinir endanlegu dómarar, þeir völdu bestu uppskrift- ina fyrir hvert blað og bárust alls at- kvæðaseðlarfrá 1200 lesendum. Til úrslita komst ein lambakjöts- uppskrift frá hverju blaði og var vinningshöfunum fyrst boðið til Osló og þar slegið upp veislu með vinn- ingsréttunum. Á veitingahúsinu „3 Kokker” var soöið og steikt eftir upp- Verðlaunahafarnir sex ásamt Agnari Guðnasyni, biaðafuiitrúa bændasamtakanna, og Jónasi Jónssyni búnaðarmálastjóra. Myndin er tekin kvöidið áður en Norðmennirnir háldu utan eftir vel heppnaða Íslandsdvöl. DV-mynd GVA. í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.