Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Blaðsíða 41
DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982. I 45 DÆGRADVÖL DÆGRADVOL •.... Itllim mHstníti !tum| """"'"■kriaaH <■■ >' •■ 'jth rt !;,t''!!!!! Í HtHt Jf' ÍíM? *M*fl I4*MH ll miMmi tiutín *%■ hí* MMl* límn\u HKP* **< MMlM. WmmmfrW hmmm PRtiðHk’MitMt dylntMtix, tÍÍÍMÍMM aHKi.tiuu iMlsiHin JHBímiom 'MMm Mimi HIIII miM ..... <•, !>}t M'ri** mmn H: iltHflr MMMI IMM«1 :*ÍMM****f»í 'mmmnm PMmm* mmm í4«ír. mkl Laufey Gissurardóttir og Kristinn Ólafsson. Svainninn, Andri Már, var i fasta svefni og gat ekki verið með á myndinni. MyndBH „Við eram reiðubúnir” Kristinn Ólafsson er einn þeirra ungu manna sem foringi Hjálparsveita skáta í Reykjavík hringir í þegar hætturnar steðja að. Það gildir einu hvort það er nótt eða dagur — félagi í hjálp- arsveit verður ævinlega að vera til reiðu en hvernig skyldi það ganga fyrir sig þegar bæði hjón- in eru í sveitinni? Nógu fróðlegt væri að vita það og það hittist einmitt svo skemmtilega á að kona Kristins, Laufey Gissurar- dóttir, er einnig félagi í sveit- inni. Kristinn á þrjú ár að baki í Hjálparsveit skáta en Laufey er ennþá nýliði. „Eg hef verið skáti frá því að ég var strákur,” segir Kristinn, „svo að ég er búinn að ganga undir alla eld- skírnina. Ég man ekki svo gjörla hvað það var sem dró mig til þessar- ar hreyfingar. Ætli það hafi ekki mest verið eins konar leit að ævintýr- um og góðum félagsskap. En þetta var dásamlegur tími og ég er þakk- látur fyrir hann. Þetta var alltaf svo spennandi, alltaf eitthvað að gerast. Viö iærðum að lúta heilbrigöum aga, starfa saman í hópi, við lærðum marga nytsama hluti og kynntumst góðu fólki. Þetta var reynsla sem maður býr aö alla sina ævi. Seinna kom að því að ég varð aö taka aö mér ýmis stjómunarverkefni. Ég varð flokksforingi þá kom líka ábyrgðin og alvaran og maöur varð að kapp- kosta að gefa öðrum gott fordæmi. Seinna gekk ég svo í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og það var í raun- inni ósköp eðlilegt framhald. Enn var þaö útilífið sem heillaði og ég fékk tækifæri til að læra áfram af mér reyndari mönnum. Ég hélt að ég kynni öll reiðinnar ósköp en það reyndist nú öðru nær! ’ ’ — En nú hefur starf í hjálparsveit ýmislegt annaö í för með sér en heill- andi útilegur og góðan félagsskap. „Já, það fylgir þessu óneitanlega viss áhætta. Maður verður að gera sér grein fyrir því. Við getum lent í hrikalegum aöstæðum, jafnvel mannhættu, og til þess að geta mætt þeim af sæmilegu öryggi verðum viö alltaf að vera vel á okkur komnir andlega og líkamlega. V iö verðum aö rækja æfingamar af samviskusemi af því að tnarkmiö okkar er einmitt það að vera reiöubúinn til mikilla átaka. Enginn veit hvenær kalliö kemur. Þaö er ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu sem grípur mann þegar síminn hringir að nóttu til. Maöur vaknar með hjartslátt og veit ekki hvað í vændum er. Kannski er það flugslys, kannski snjóflóö eöa neyðarástand af völdum stórviðris. En við förum út með því hugarfari aö gera okkar besta. Við emm tilbúnir þegar hinn almenni borgari þarf á hjálp okkar að halda. Auðvitað fylgir þessu viss spenna sem ekki sakar að hafa með en alltaf blundar í dulvit- undinni sú vitneskja að kallið getur komiö hvenær sem er og þá verður maðuraðvera reiðubúinn.” „ÞAÐ ER UKA ÞÖRF FYRIR STÚLKUR” — segir Laufey Gissurardóttir, nýliði í HSSR „Ég missti nú eiginlega af þessum heillandi ævintýmm skátaæskunnar sem hann Kristinn var að nefna því aö ég gekk ekki í hreyfinguna fyrr en ég var orðin 15ára,” sagðiLaufey og hló viö. — En varla hefurðu nú farið á mis við öll ævintýrin? „Nei, auðvitað ekki. Ég naut góðs af útilífinu og öllu því en það leiddi af sjálfu sér aö mér voru falin margs- konar stjórnunarverkefni og um- sýsla. Við sem eldri vorum þurftum að skipuleggja ferðir, annast kvöld- vökur og fleira. En þetta var mjög góður félagsskapur og það var gam- anaðfástviðþetta.” — En hvað kom til að þú gekkst í hjálparsveitina? „Ég hugsa að það hafi ráðið mestu hvað mér fannst oft dapurlegt að sitja eftir heima þegar Kristinn var aö leggja í spennandi æfingaferðir. Við vorum vön að ferðast saman um landið og liggja í tjöldum en nú var þaö hann einn sem fór. Ég átti vini og kunningja í sveitinni og einn daginn ákvað ég að drífa mig í hana sjálf. Við vomm sjö stúlkur sem gerðumst nýliðar í haust en um það bil tíu -stúlkureru nú fullgildir félagar.” — Þegar hjálparsveitir ber á góma er maður vanur að sjá fyrir sér vel útbúna garpa stökkva yfir gín- andi jökulsprangur, klifra upp þver- Hjálparsveitir Baldur Hermansson hnípta hamra og brjótast í gegnum ægileg veður — er í rauninni þörf fyr- ir ykkur stelpurnar í svona félags- skap? „Já, það held ég. Starfið í hjálpar- sveit er svo margþætt og víðtækt. Þetta em ekki eintómar þrekraunir. Þær em í rauninni minnsti þátturinn. Þaö er allt skipulagið, undirbúnings- vinnan, æfingamar og margt af þessu hentar stúlkum ekkert síður en strákum. Ég gæti til dæmis nefnt hjálp í viðlögum. Við stelpurnar er- um ákveðnar í því að reyna hvað við getum og ná eins langt og okkur er fært.” — Hvað gerist ef kallið kemur nú eina óveðursnóttina? Hvort ykkar fer af stað og hvort veröur eftir til aö gæta bús og bama? „Ég er nú ennþá nýliði svo það er ekki komin nein regla á það. Vinir og ættingjar hafa verið okkur hjálplegir að passa Andra Má, þegar við höfum farið bæði á æfingar, en það segir sig sjálft að fjölskyldan og heimiliö verður að hafa forgang. Það er ekki bara hægt að fleygja snáðanum til annarra þegar kallið kemur en þaö er samt ekki víst að þetta verði neitt vandamál. Kannski tekst okkur að koma á einhverju fyrirkomulagi svo að það verða engir árekstrar.” — Hvemig leið þér þegar síminn hringdi að nóttu til og Kristinn hvarf frá þér út í óvissuna, kannski dögum saman? „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því. Ég get ekki beinlínis sagt aö ég hafi verið kvíöin því að ég veit mjög vel hvað þeir eru vel þjálfaðir strákamir og rækilega undir það búnir að sigrast á hvers kyns erfið- leikum. En ef ég vissi ekki sjálf hve ítarlegar æfingamar eru og skipu- lagið nákvæmt þá hugsa ég að ég yrði hrædd um hann.” Óskurn viðskiptavinum okkar og öðrum landsmönnum gleðilegrajóla og farsœls komandi árs. SÍLD OG FISKUR Dalshrauni 9 b, sími 54488 og 54489. Bókabúð Fossvogs GRIMSBÆ SÍMI 86145 A/iar nýju bækurnar og tugir eldri bóka. Leikföng og jóiavörur Sendum í póstkröfu. Óskum öllum vinum okkar á Islandi gleðilegra jóla og farscels komandi árs. Þökkum anægjulegar samverustundir d liðnum drum. Sue og Jim Cusack Veritas Villa. LONDON — dömudeild Austurstrœti 14, sími 14260. Femiieo Ndttkjólar 100% bómull

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.