Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1983, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1983, Page 7
DV. LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1983. 7 Hver hefði trúað því fyrir nokkrum áratugum að Hverfisgatan, sem þá var agnarlítill götustúfur, œtti eftir að verða einhver mesta umferðargata Reykjavíkur? Sjálfsagt hefðu afar okkar og ömmur brosað í kampinn, hefði einhver framsýnn maður látið þau orð falla! Og sá hinn sami eflaust verið álitinn meira en lítið skrýtinn í kollinum! En framfarirnar láta víst ekki að sér hœða. Við litumst um á Hverfisgötu skömmu eftir aldamót í máli og myndum. Gasstöðin. Þar stendur nú lögreg/ustöðin nýja. Neðartega fyrír miðri mynd sést i trébrú, en þar undir rann Rauðaré. Myndina tók Egiii Kristbjörnsson érið 1930. íþessu húsi bjó Pjetur Pjetursson bœjargjaldkeri, faðir dr. Helga Pjeturss. / litla húsinu til vinstri voru bœjarskrifstofurnar. Fremst liggur Smiðjustigur, en upp til hægri Hverfisgata. / fjarska sést i Thomsens Magasin. Takið eftir hestvagninum ihorninu til vinstri. Gasstöðvarstarfsmenn. Fremst á myndinni er brú, sem lé yfir Rauðará heim að ibúð gas- stöðvarstjórans, Brynjólfs Sigurðs- sonar og skrifstofu Gasstöðvarinn- ar. Hús Sturlubræðra. Það er nú farið, en á þessum sama stað er danska sendiráðið til húsa nú. i baksýn til vinstrisjásthús við Lindargötu. Hverfisgata 18, gegnt Landsbóka- safni. í fjarska sést i þak Stjórnar- ráðsins og enn fjær sóst i Landa- kotskirkju og spítalann. Likfylgd á Hverfisgötu. Húsið til vinstri á myndinni byggði Jón Magnússon, skrifstofustjóri og siðar for- sætisráðherra, i kringum 1910. Þar er nú til húsa Prentarafólagið og er það númer 21 við Hverfisgötu. Myndin er tekin i kringum 1912. Þessi mynd er tekin skömmu eftir aldamót, og það er Arnarhóll sem blasir við. Það er engin höfn komin til sögunnar og takið eftir skútunni, sem dólar úti fyrir. Vinstra megin við staurinn sem sóst á myndinni er Nordalsíshús ogþar rétt við Siemsen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.