Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Síða 4
4
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Prófkjör
Alþýðuflokksinsí
Suðurlandskjördæmi:
Þnr menn keppa
um annað sætið
Um næstu helgi fer fram prófkjör
alþýöuflokksmanna á Suöurlandi.
Þar veröur kjöriö um annaö sæti á
lista flokksins í næstu alþingis-
kosningum en Magnús H. Magnús-
son alþingismaður er sjálfkjörinn í
fyrsta sætiö.
Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa
allir þeir sem náö hafa átján ára
aldri og eru ekki flokksbundnir í öör-
um stjómmálaf lokkum.
Kjörstaðir veröa opnir sem hér
segir: I Vestmannaeyjum, Tryggva-
skála. Selfossi, Hverageröi, Þorláks-
höfn, Staö Eyrarbakka, Gimli
Stokkseyri, Verkalýösfélagshúsinu
Hellu og símstöövarhúsinu Hvols-
velli, laugardag milli 10 og 16 og
sunnudag milli 13 og 18.
Á laugardag veröur opiö í hrepps-
húsinu á Laugarvatni milli 10 og 12, í
félagsheimilinu Aratungu milli 13 og
15, í Asparlundi í Laugarási milli 16
og 18 og í Leikskálum Vík milli 13 og
16.
Á sunnudag veröur opiö í Búrfelli
milli 10 og 12, í félagsheimilinu aö
Flúöum milli 13 og 15, í Brautarholti
milli 16 og 18 og í Brúarlundi Lands-
sveitmilli 13 ogl5.
Hér á eftir fer stutt kynning á þeim
þremur frambjóöendum sem eru í
kjöriumhelgina. SÞS
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson:
„Aróður
gegn
Sunnlendingum”
EHendsson:
„Suðurland
dregist
afturúr”
Steingrímur
Ingvarsson:
„Auðlindir
landsins
ofnýttar”
„Mín stefnumál eru aöallega
tvenns konar,” segir Guðlaugur
Tryggvi Karlsson hagfræöingur.
„Annars vegar er þaö almenn stjóm
efnahagsmála en stjórn þeirra er í
algerum ólestri núna. Hins vegar eru
þaö atvinnumál á Suðurlandi og önn-
ur hagsmunamál fjórðungsins. Þar
má sérstaklega benda á aö mikið at-
vinnuleysi er nú á Suðurlandi og er
ekki aö furöa því jafnan hefur andaö
köldu frá núverandi stjóm í garö
Sunnlendinga. Haldiö var uppi áróöri
gegn þeim í virkjunarmálunum og
steinullarverksmiöja var ákveöin
annars staöar þrátt fyrir aö frjáls
samtök Sunnlendinga vildu fjár-
magna hana sjálf í Þorlákshöfn. Þá
kemur slæm stjórn sjávarútvegs-
mála sérstaklega illa niður á Vest-
mannaeyjum og Þorlákshöfn. Einnig
vil ég geta þess aö ríkisstjómin hefur
ekki staðið viö þátttöku í útgerö
Her jólfs en skuldir eru aö ríöa útgerð
skipsins aö fullu. Aö lokum vil ég
benda á þá brýnu nauösyn aö brú
veröi gerö yfir Ölfusárósa.”
Guölaugur Tryggvi Karlsson er
fæddur í Reykjavík 1943 og er hag-
fræöingur aö mennt. Hann er kvænt-
ur Vigdísi Bjamadóttur og eiga þau
þrjá syni.
SÞS
„Þau mál sem brenna heitast á
Suöurlandi em atvinnu- og sam-
göngumálin,” segir Hreinn Erlends-
son, formaöur Alþýðusambands
Suðurlands. „Atvinnuleysi hefur ver-
iö viöloöandi og er töluvert eins og
er. Suðurland hefur dregist mjög aft-
ur úr í kapphlaupinu milli kjördæm-
anna, til dæmis hefur fólksfjölgun
ekki veriö með eðlilegum hætti,
meðal annars vegna atvinnuleysis.
Þá er Suöurland þaö skattaumdæmi
þar sem tekjur hafa veriö lægstar. I
samgöngumálunum er nauösyn á
samtengingu strandþorpanna meö
brú y fir Ölf usárósa viö Osf jaröarnes.
Þá vil ég beita mér fyrir því aö
Herjólfur veröi viöurkenndur sem
framlenging þjóövegakerfisins, svo
ekki þurfi aö kosta meira aö fara
meö Herjólfi en sambærUega vega-
lengd á landi. Aö lokum vil ég geta
þess aö Suðurland er bæði gjöfult og
ríkt aö náttúruauðlindum og nægir
aö nefna þar orkuna sem því miður
hefur ekki verið notuö tU atvinnuupp-
byggingar í héraöinu,” segir Hreinn.
Hreinn Erlendsson er fæddur í
Grindavík 4. desember 1935. Hann
hefur veriö formaöur Alþýöusam-
bands Suöurlands síöan 1979.
SÞS
„Eg vil leggja áherslu á aö nú
þegar eru ofnýttar auölindir landsins
bæöi í sjávarútvegi og landbúnaöi,”
segir Steingrímur Ingvarsson um-
dæmisverkfræöingur. „Þetta þarf aö
taka tU gagngerrar endurskoöunar
tU aö nýta það fjármagn sem þegar
hefur verið lagt í þessar atvinnu-
greinar. Þá vU ég benda á aö
iönaðurinn einn er fær um aö taka
viö þeim aukna fólksfjölda sem kem-
ur inn á atvinnumarkaöinn á næstu
árum. Þaö þarf því aö efla iðnaðinn,
sérstaklega þann sem byggir á orku-
lindum landsins.
I byggingarmálum tel ég aö
Byggöasjóður ætti aö styöja meira
við grundvaUaratriöi byggöar í land-
inu, svo sem hitaveitu, vegi, hafnir,
flugveUi og jafnvel heUbrigöis- og
skólamál, í staö þeirrar
skömmtunarpólitíkur sem þar hefur
veriörekin.”
Steingrímur Ingvarsson er fæddur
á Blönduósi 1938. Hann er verk-
fræöingur aö mennt og hefur starfaö
sem forstööumaöur umdæmisskrif-
stofu Vegageröar ríkisins á Selfossi
síöan 1974. Steingrímur er kvæntur
Jóhönnu M. Þóröardóttur og eiga
þaufjögurbörn.
SÞS
Frá Ung Nordisk
Musik-samtökunum
Eins og marga rekur minni tU héldu
samtökin Ung Nordisk Musik hina ár-
vissu tónlistarhátíð sína í Reykjavík
síöastliöiö haust. Nú stendur yfir und-
irbúningur þeirrar næstu sem halda á í
Osló í ágúst. Ung íslensk tónskáld hafa
jafnan skipaö verðugan sess innan
Ung Nordisk Musik og standa vonir til
aösvo veröiáfram.
AUir sem fengist hafa viö tónsmíðar
og eru undir þrítugu eiga kost á aö
senda UNMnefndinni á Islandi nýtt
tónverk tU flutnings á næstu tónlistar-
hátíö. Um miðjan febrúar verður dag-
skrá hátíðarinnar endanlega ákveöin;
því þurfa íslensk verk aö hafa borist
nefndinni hérlendis fyrir þann 10.
febrúar.
Þeir sem áhuga hafa eru hvattir til
aö senda verk sín formanni
UNMnefndarinnar á Islandi, HUmari
Þóröarsyni, Skúlagötu 32, 101 Reykja-
vík, fyrir 10. febrúar.
-PÁ.
Ný hljómplata:
Konungar spaghetti-
frumskógarins
„I dag, týsdag, fjórða dag vaxandi
tungls í steingeitarmerki sem veröur
fullt í vatnsbera undir áhrifum ljóns
(18. janúar 1983 fyrir þá sem notast viö
kristiö tímatal) gefur útgáfan Org út
fyrstu plötu hljómsveitarinnar Org-
hesta. Platan er fjögra laga 45 snún-
inga og ber nafniö Konungar spaghetti-
frumskógarins. Þrjú laganna, „flogiö í
fjórvídd”, „lafir þaö litla” og
„kannski”, eru eftir Benóný Ægisson
en hiö fjóröa, „þemaþsem”, er eftir
Gest Guðnason. AUir textar eru eftir
Benóný Ægisson. Aðrir meölimir
sveitarinnar eru Brynjólfur Stefáns-
son og Sigurður Hannesson. Upptökur
fóru fram í stúdíó Stemmu, upptöku-
maöur var Tony Cook og annaðist hann
hljóðblöndun ásamt Orghestunum.
Hestamir önnuöust hönnun umslags en
yfirumsjón með því verki haföi Bryn-
jólfur Stefánsson. Bakraddir annast
Gaui Andrea Bára Löddi og Megas.”
Stofnun lóns
Þorlákssonar
hyggst ef la rannsóknir á
at vinnumálum og st jórnmálum
Um síöustu áramót hóf starf sitt
Stofnun Jóns Þorlákssonar. Tilgangur
hennar er aö efla rannsóknir á atvinnu-
málum og stjómmálum á Islandi meö
útgáfu rita, styrkjum til fræöimanna,
söfnun og dreifingu upplýsinga og ööm
starfi. I fréttatilkynningu frá stofnun-
inni er tekið fram aö hún sé óháö öllum
stjórnmálaflokkum og hagsmunasam-
tökum.
Stofnun er kennd viö Jón Þorláksson,
fyrrum forsætisráöherra og formann
Ihaldsflokks og Sjálfstæöisflokks, sem
var mikill talsmaöur einstaklingsfrels-
is.
í framkvæmdaráði stofnunarinnar
eru Ásdís Þórðardóttir viöskipta-
fræöingur, Brynjólfur Bjarnason
framkvæmdastjóri, Friörik Kristjáns-
son forstjóri, Hjörtur Hjartarson kaup-
maöur, Ingimundur Sigfússon kaup-
maður, Siguröur G. Pálmason versl-
unarmaöur, Pétur Björnsson forstjóri,
Oddur C.S. Thorarensen lyfsali og
Ragnar Halldórsson forstjóri. Fram-
kvæmdastjóri er Hannes H. Gissurar-
son.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Lögbann gegn bættum rekstri
Þá hefur veriö sett lögbann viö til-
raunum Davíös borgarstjóra til að
koma nokkru lagi á rekstur Strætis-
vagna Reykjavíkur. Ragnar Arnalds
skrifar tékk upp á 10 milljónir króna
svo unnt veröi að tryggja áframhald-
andi óðatap á strætó. Þessu er
eflaust ákaft fagnaö af kvennafram-
boðskonum sem tóku að sér að reka
götuáróður gegn bættum rekstri
borgarfyrirtækis. Hinn almenni far-
þegi hefur hins vegar greitt hækkað
fargjald án þess aðmögla, nú sem
endranær, og bendir það til þess að
almenningur sé andvígur kröfum um
aukna samneyslu. En auövitaö
fagnar Alþýðukvennaframboðs-
bandalagið þessum áfanga í barátt-
unni gegn bættum rekstri borgar-
innar og mun eflaust herða barátt-
una gegn lækkun fasteignaskatta.
Nú skiptir þaö auðvitað engu máli í
sjálfu sér lyrir Ragnar Arnalds
hvort strætófargjald sé nokkrum
krónum hærra eða lægra í Reykja-
vik. Maður sem sviptir láglaunafólk
umsömdum verðbótum og sendir
ofnaforstjórum þá peninga gerir sér
enga rellu út af farmiðaveröi al-
meimingsvagna, nema þegar máliö
snýst um það hvort unnt verði að
halda áfram að falsa vísitöluna eða
ekki. Vísitölufalsiö er orðið eitt
meginfölsunarmál ríkisstjórnar-
innar og er þó af nógu að taka. Þótt
Hitaveita Akureyrar hækki og hækki
sinn taxta nær mánaðarlega þá
kemur mönnum í Arnarhváli það
ekki við. Vísitalan er nefnilega ekki
mæld á Akureyri né í Varmahlíð. Úti
um land mega bæjarfélög taka sann-
virði fyrir sína þjónustu. í Reykjavík
skal hún rekin á erlendum lánum.
Hitt er svo annar handleggur að
alls konar niðurgreiðslur hafa
gjörsamlega ruglað fólk í ríminu.
Ríkið borgar stórfé með hverjum
farþega sem Herjólfur flytur, það
borgar líka stórfé með hverjum
kassa sem fluttur er með Skipaút-
gerð ríkisins og þannig mætti lengi
telja, svo ekki sé nú minnst á Þjóð-
leikhúsið og Sinfóníuna. Hvernig
væri að frjálshyggjumenn tækju sig
til og gerðu aimenningi grein fyrir
þessum niðurgreiöslum. Á farmiða
strætó mætti til dæmis prenta eftir-
farandi: Þessi farmiði kostar 20
krónur. Þeir sem ekki nota strætó
borga 12 krónur af verðinu. Þú
borgar átta krónur.
Síðan mætti auðvitaö bæta við hve
stór hluti fargjaldsins rennur í ríkis-
kassann í formi gjalda af olíunni sem
vagnarir brenna, tolla af vara-
hlutum og dekkjum og svo fram-
vegis. Farmiðinn yrði þar með
orðinn að bærilegu spjaldi og far-
þegar hefðu eitthvað að lesa á milli
stöðva.
Það er hins vegar athyglisvert að
velta því fyrir sér hvers vegna menn
og aðrar konur eru farin að beita sér
af öllum mætti gegn afleiöingum
verðbólgunnar en láta sig engu
varða um orsakir hennar. Nú er víða
farið að harðna á dalnum og kemur
engum á óvart sem fylgst hcfur með
hinni geigvænlegu verðbólguþróun.
En þegar áhrif verðbólgunnar koma
fram í samdrætti á ýmsum sviðum
hrína menn eins og stungnir grísir og
hrópa: Ekki ég, ekki ég! Á meðan
þingmenn kjamsa á stjórnarskrár-
málum vikum og mánuöum saman
þykir ekki við hæfi að ræða niður-
talningu verðbólgu. Bandálag
jafnaðarmanna kemur fram í sjón-
varpinu og telur liggja meira á að
krukka í stjómarskrána en að gera
ráðstafanir gegn verðbólgu. Að vísu
sagðist Bandalagið vera á móti fisk-
verðsákvörðunum og ýmsu fleiru
sem frá ríkisstjórninni kæmi en það
væri nú bara tittlingaskítur á móti
stjómarskrármálinu.
Almenningur ætti að krefjast lög-
banns við frekari setu ríkisstjómar-
innar og reyna þannig að koma í veg
fyrir að atvinnuvegirnir verði lagðir
í rúst á páskum. En það er víst lítil
von um árangur fyrst búið er að setja
lögbann við heilbrigðri skynsemi.
Svarthöfði.