Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Blaðsíða 36
36 DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983. Viðistaða-Fordinn áríð 1978. Maðurínn sem við hann stendur heitir Pétur G. Jónsson og á heiðurinn af endursköpuninni. ELSTIBÍLL LANDSINS Bifreiðin er ekki aðeins snilldarvél til þess smíöuð að flytja fólk á milli staða — eins og hver annar smíðisgrip- ur ber hún svipmót síns tima og er því öðrum þræði heimild um þróun stíls og smekkvísi. Bifreiðin hefur gegnt æðsta hlutverki í þeim hinum miklu svipting- um aldarinnar, sem bera allar pólitísk- ar byltingar ofurliði, og það er viss menningarleg kvöð að varðveita menj- ar þessarar framvindu. Til er sérstakur klúbbur á Islandi, stofnaöur í þessa veru og heitir Forn- bílaklúbburinn. Fjölmargir einstaki- ingar vinna málinu af alhug, Þjóð- minjasafnið og ýmis byggðasöfn annast einnig varðveislu gamalla bif- reiða. Myndirnar með þessari grein sýna elsta bíl landsins, Ford TT frá árinu 1917, fyrir og eftir viðgerð Þjóðminja- safnsins. Þór Magnússon þjóðminja- vörður lét Dægradvöl í hendur smá- vegis spjall um þennan ágæta safn- grip, og fylgir hún hér á eftir. 15 milljón eintök „Fyrri myndin sýnir bíl Bjarna Erlendssonar á Víðistöðum við Hafnarfjörð, Ford TT frá árinu 1917. Hún er tekin 1969 um það bil er Þjóð- minjasafnið eignaðist bífinn, en þá var hann orðinn mjög af sér genginn; hafði lengi verið notaður sem einskonar traktor heima á Víðistöðum. Jeppahjól eru undir honum að framan, luktir nýrri, frambretti og vélarhlif var gegnryðgað og nánast hismi eitt en sýndi þó gerla gamla lagiö, og allur var bíllinn mjög illa farinn af ryði. Þessir bílar komu óyfirbyggðir til landsins, báru 750 kíló, og smiðuðu menn síðan pall og hús á þá hver með sínulagi. Það sem einkum var sérstætt við T- Fordana var gírskiptingin. Engin gír- stöng var í þeim, heldur þrír pedalar í gólfinu. Einn var bremsa, annar afturábakgír, en hinn þriðji fyrsti og annar gír. Var hann stiginn í botn í fyrsta gír en sleppt síðan með hand- bremsunni í ákveðinni stöðu, til að setja í annan gír („high and low”, eða „hæ og ló” eins og hér var kallað). T- Fordinn var einfaldur, sterkbyggður og ódýr í framleiðslu, enda afar út- breiddur. Þeir voru framleiddir í yfir 15 milljónum eintaka frá 1907—1927, iítt breyttir, og var það fyrst Volks- wagen-bjallan, sem sló þetta fram- leiðslumet T-Fordanna.” Endurfæðingin „Seinni myndin sýnir sama bil að lokinni viðgerð árið 1978. Pétur G. Jónsson, sem smíðaði bílinn upp, stendur við hann og má glöggt sjá stærðina á vörubíl ársins 1917 og bera saman við vörubíla nú. Pétur smíðaöi bretti og vélarhlífar að nýju og fjölmargt annað í bílinn, en nákvæmlega eins og verið hafði. Allt járn var sandblásið og bætt, framhjól Gamii Viðistaða-Fordinn fyrir viðgerðina. Myndin er tekin 1969. eru hér komin af réttri gerð, með trépílárum, en afturhjólin eru úr tré með stálhring og massífri gúmmígjörð umhverfis. — Afturhjólin voru í upp- hafi með hjólbarða og slöngu, en á stríðsárunum var erfitt að fá hjólbarða og þá fluttust slík massíf hjól til lands- ins. v Hús og pallur er að mestu nýsmíði eftir hinu gamla. Paliurinn er með sturtum og læst með sveif. Settu menn síðan öxlina undir pallhornið og sturt- uðu hlassinu þannig af. Bensíntankur- inn er undir sætinu með sjálfrcnnsli til vélarinnar. Því gat það komið fyrir í brekkum ef lítið var á tankinum, að vélin fékk ekki bensín og þá tóku menn það ráö aö bakka upp brekkuna. Einnig kom fyrir ef bremsurnar voru lélegar, að menn stigu á afturábakgír- inn tfl að nema staðar. T-Fordunum mátti bjóða nærri því allt og þeir ent- ust von úr viti.” Fombílar Baldur Hermannsson Við þökkum þjóðminjaverði fyrir spjallið og áréttum það sem fram kem- ur í máii Kristins Snælands, annars staðar í opnunni, að viti menn af forn- bilum liggjandi í vanhirðu einhvers staðar, þá komi þeir upplýsingum varðandi þá áleiöis til Kristins, minja- safna eða Fornbílaklúbbsins — for- maður hans er Jóhann Björnsson, for- stjóri í Ábyrgð hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.