Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Blaðsíða 22
22
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Óska eftir aö taka 2ja til 3ja herbergja íbúð
á leigu. Há greiðsla í boði.
Upplýsingar í síma 11555.
VEITINGA HÚSIÐ BORG
.. ^
Styrkir tilnáms við lýðháskóla
eða menntaskóla í Noregi
Norsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum ungmennum til náms-
dvalar við norska lýðháskóla eða menntaskóla skólaárið 1983—84. Ekki er vitað fyrir-
fram hvort nokkur styrkjanna kemur í hlut fslendinga. Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir
fæði, húsnæði, bókakaupum og einhverjum vasapeningum. — llmsækjendur skulu eigi
vera yngri en 18 ára og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir sem geta lagt fram gögn um
starfsreynslu á sviði félags- og menningarmála. — Umsóknum um styrki þessa skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 20. febrúar nk.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
12. janúar 1983.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
r
EINBÝLISHÚS - GARÐABÆR
Nýlegt 140 fermetra einbýlishús til leigu í Garöabæ.
Verð kr. 8.000,- á mánuði.
Leigist til 6 mánaöa í senn.
Vinsamlegast leggið nafn og símanúmer inn á auglýsingadeild
DV, Þverholti 11,
merkt: „Einbýlishús338”.
V
SKILTI
Falleg, útskorin skilti á húsið,
sumarbústaðinn eða bátinn. Úrval trjá-
tegunda. Sendið „nafnið” og við gerum
tilboð
Siðumúla 33, sími 82201, Box 117,101 Reykjavik.
FRAMBOÐSFRESTUR
Framboðsfrestur
Ákveöið hefur veriö að viöhafa allsherjar
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar trúnaðar-
mannaráðs og endurskoðanda í Starfsmanna-
félaginu Sókn fyrir árið 1983.
Framboðslistum eða tillögum skal skilaö á skrif-
stofu félagsins, Freyjugötu 27, eigi síðar en kl. 12
á hádegi fimmtudaginn 27. jan. 1983.
Starfsmannafélagið Sókn.
REGNHLÍFA-
SAMTÖK
Ágreiningur í
Alþýðufiokknum
— Hugmyndin um Bandalag
jafnaöarmanna. Kviknaöi hún fyrst
eftir flokksþing Alþýöuflokksins í
haust þar sem þú tapaðir í varafor-
mannskjöri?
„Nú veröa menn aö skilja þaö að
svona hugmyndir hafa auövitaö veriö
til Ekki bara hjá mér eöa Helga Má
Arthúrssyni eöa öörum sem meö mér
hafa unnið náiö. Ég bið aðeins um aö
menn horfi á þau málefni sem um er aö
ræöa en láti persónur liggja á milli
hluta.
Þaö er alveg ljóst aö innan míns
gamla flokks vorum viö mörg aö reyna
að gera róttækar breytingar, annars
vegar á félagskerfinu og hins vegar á
málefnasviðinu.
Regnhlífarsamtökin
Félagslega má segja að þetta sé mjög
einfalt. Allt er þetta gamla kerfi feiki-
lega miöstýrt. Þaö rekur sig alla leiö
aftur til heimsstyrjaldarinnar fyrri
eins og í verkalýðshreyfingunni þegar
menn töldu, með réttu, að styrjöldin
viö atvinnurekendur væri svo hörö aö
ekkert dygöi nema mjög forhert
miöstýring á móti þeim.
Þetta var eflaust rétt á sínum tíma.
En nú hafa menn fariö út á þær brautir
aö telja allt annars konar samfélags-
gerö henta, og þá valddreifðari.
Arum saman hafði verið ágreiningur
um hvort hægt væri að snarbreyta til,
sem viö töldum eölilegt framhald próf-
kjaranna; skipta frá þessu miðstýröa
appírati til þess sem menn eru nú farn-
ir aö kalla regnhlifarsamtök.
Þessi umræöa var í rauninni drepin
fyrir réttu ári síðan innan Alþýðu-
flokksins, lagabreyting var aö vísu
gerö en framkvæmdin varð engin enda
mikil völd og miklir hagsmunir í húfi.
Ég vek athygli á að sams konar um-
ræða er nú uppi innan Alþýðubanda-
lagsins, eins og lesendur Þjóðviljans
hafa oröið varir viö, þegar þeir segjast
vera að fara aö fara að gera.
Valddrerfing
Skoðanamegin hafa menn tekist á
um þetta lykilhugtak, valddreifingu.
Þiö þekkið frumvarp sem viö höfum
flutt um aö færa samningsvaldið inn á
gólfið, ef launafólkiö svo kýs. Hug-
myndir af þessu tagi voru ár eftir ár
slegnarniður.
Eg nefni kjördæmamáUð og menn
veröa aö skilja um hvaö þaö snýst. Ai
hverju hefur gamla flokkakerfið verið
í vandræöum með þaö á fimmta ár?
Þaö vefst varla fyrir mönnum hvort
þingmenn eru 61 eöa 66. Þaö er ekki
máliö. Á þessari spýtu hangir alveg'
gífurleg hagsmunavarsla. Þingmenn
þessara sömu flokka, eða menn
nátengdir þeim, taka sæti í lykil-
stofnunum stjómkerfisins. Og vitan-
lega eru þeir aö fást þar við útdeilingu
fjármagns. Ekki eftir hinum opnu
leiðum, gegnum fjárlög, heldur eftir
hinum lokuðu leiöum. Eg nefni ríkis-
bankana, Framkvæmdastofnun,
menningarmálin, útvarpsráö, flug-
málastefnuna, flugráð, aöeins nokkur
dæmi.
Þegar lykilákvaröanir eru teknar í
þessum stofnunum þýðir þetta aö
gegnumsneitt eru þær í höndunum á
nokkrum flokksræöismönnum.
Um þetta hafa átökin m.a. snúist.
Eg vildi ekki og vil ekki taka þátt í
þessu. Og það er okkar sjónarmið, sem
viö erum mörg um.
„Hefði augljóslega
orðið undir"
Spurningunni get ég svo svaraö beint
þannig, aö ég hefði sjálfsagt getaö
veriö þarna einhvers staðar í framboöi
en hefði augljóslega orðið undir þegar
aö kosningum loknum.
Undir þaö síöasta var aö renna upp
fyrir mér, og mínum nánustu vinum í
þessum leik, að svo heföi getaö fariö aö
unnist heföi persónulegur sigur en um
leiö að viö heföum beðiö málefnalegan
ósigur og þá jafnvel að fullu og öllu og
viö orðiö fangar í kerfinu. Það var