Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
5
Framkvæmdastjóri Utflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, Ulfur Sigurmundsson, ásamt Jean Moriarty, framkvæmda-
stjóra Fashion Service, og Lars Nilsson frá Norðurlandadeild ullarráðsins í Gautaborg. Ullarmerki Alþjóða ullar-
ráðsins sést á spjöldunum en þar eru teikningar af tiskufatnaði ásamt efuistillögum sem unninn er allt að 24
mánuðum fram í tímann.
DV-myndBj.Bj.
Samdráttur í útf lutningi ullarvara:
Þurfum að fylgja
tískunni eftir
— og hafa faldsaum betri, segir tískuhönnuður f rá London
Utflutningsmiðstöð iðnaðarins
hefur boðið hingað til lands Jean
Moriarty sem er framkvæmdastjóri
„Fashion Service” hjá Alþjóða ullar-
ráðinu og Lars Nilsson frá Noröur-
landadeild ullarráðsins í Gautaborg.
Frú Moriarty hefur verið beðin að
kynna sér útflutningsvörur þriggja
stærstu ullarvöruútflytjenda hér og
halda síðan erindi um hönnunar-
þróun þessara vara. Gefur hún jafn-
framt ábendingar um sterkar og
veikar hliðar okkar vara á hinum
ýmsu mörkuðum. Lars Nilsson
kemur hingað annars vegar til aö
kynnast íslenska ullariönaöinum og
hins vegar til aö kynna starfsemi
N orðurlandaskrifstofunnar.
Jean Moriarty hefur síðastliðin tvö
ár veriö stjórnandi tískuþjónust-
unnar International Wool Secre-
tariat sem er deild innan aðalstöövar
stofnunarinnar í London. Fyrirtækið
var stofnað til að þjóna þeim sem
spinna, prjóna og vefa um allan
heim úr hreinni ull og ullarblöndum
fyrir tískuframleiðendur. Jean
Moriarty er framkvæmdastjóri
tískusérfræðinga sem eru einkum á
þeirri línu sem snýr aö litum og lita-
samsetningum, garni og efnum. Hún
starfar í hugmyndabanka tískufatn-
aðar fýrir karlmenn og kvenfólk,
einkum í sambandi við prjónaflíkur.
Samdráttur í útfíutningi
á prjónaðri ullarvöru
Alþjóða ullarráöiö lét gera ullar-
merki til að vernda neytendur og
hefur nú 27 ullarfyrirtækjum á
Islandi verið gefið leyfi til að nota
merkið. Skilyröin til þess eru þau að
fyrirtæki skili framleiðslutölum
tvisvar á ári. Jafnframt því verða
þau að játast undir að vörur sem
bera ullarmerkið séu framleiddar úr
ull og að þaö hafi veriö athugað af
hálfu ullarráösins.
Tilgangurinn meö heimsókn þeirra
Moriarty og Nilsson er að gefa
Islendingum innsýn í hvernig unnt er
aö fá ullarsöluna til að ganga betur.
Samdráttur í heildarútflutningi
uUarvara fyrstu ellefu mánuði ársins
1982 nemur um 50 tonnum. 1.360 tonn
voru flutt út en árið áður 1.410 tonn,
mestur ef samdráttur í prjónavöru
úr ull. Utflutningur ullarteppa jókst
hins vegar, þá einkum flutningur til
Sovétríkjanna.
„Breyting þarf aö verða á uUar-
fatnaði ár frá ári. Þaö er hægt aö
selja viðskiptavinum sams konar
vörur í tvö til þrjú skipti en þá er
nauðsynlegt að breyta útlitinu á ein-
hvern hátt,” sagði Lars Nilsson. í
samtali viö DV.
„Síöastliðin 3—4 ár höfum við sett
upp okkar hugmyndir á mjög
aögengilegan hátt og hafa framleiö-
endur kunnaö vel að meta það,”
sagði Jean Moriarty. Hafði hún með-
ferðis spjöld með teikningum af
tískufatnaði sem unninn er aUt að 24
mánuðum fram í tímann. Við teikn-
ingarnar voru litatiUögur og voru
þar mildir Utir aUsráðandi.
íslendingar nota ódýra
hnappa á dýrar fííkur
„Fólk viU almennt klæöast þægi-
legum flíkum og hafa úr einhverjum
nýjungum að velja. Framleiðsla á
rúllukragapeysum hefur mrnnkað,
skyrtuframlag aukist, svo og eftú--
spurn eftir víöum peysum,” sagði
JeanMoriarty.
Grófar prjónaflíkur eru það sem
koma skal og eru flestar þeirra í
ljósum og mildum Utum. Bók með
lausum blöðum, gerð af módelfram-
leiðendum, gefur ótal hugmyndú- og
hafði Jean ema sUka til sýnis á
blaðamannafundi. Þar gaf að Uta
ótrúlegustu Utasamsetningar og nú
eru það Utir á dauðum uUarhárum
sem eru eftirsóknarverðastir. Þá eru
það einnig frostlitU-, ljósblátt og ljós-
grænt. Gult og ljóslillaö verða einnig
gegnumgangandi Utir næsta vetur,
svo og bleikU- og drapplitaðir tónar.
Af dekkri Utum voru þar meöal
annars saman grænn og rauður,
einnig vínrautt og mosagrænt.
„Islenskar flíkur eiga að halda fast
við séreinkenni sín en hms vegar
þarf að laga þær betur að tískunni
hverjusinni,” sagðifrú Moriarty. Þá
benti hún auk þess á að íslenskir
fataframleiðendur eru gjamir á að
spara smámuni erns og hnappa og
fóður á dýrar fUkur. Kvað hún
nauðsynlegt aö gott samræmi yrði
haft þar á miUi. Vandaöir smáhlutU-
styðja og strika undir hátt verð á
flíkinni. Þá er þaö og faldsaumurinn
á okkar íslensku uUarflíkum sem
ekki er nægUega vandaöur að hennar
mati.
Frú Jean Moriarty hélt fyrU-lestur
á Hótel Loftleiðum um þessi mál.
Fengu framleiðendur hms íslenska
uUarfatnaðar þar ýmsar ábendmgar
og var gerður góður rómur að
hennar máli.
-RR.
Sahir..
leigöur út til funda og
skemmtanahalds. Heitt eöa
kalt borö, kökur, snittur og
kaffi.
loðTn~boÖts~
Póstsendum
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ -
SÍMI 82922
PRÓFKJÖR
SJÁ LFS TÆÐISMA NNA
í NORD URLA NDSKJÖRDÆMi EYSTRA
Lárus Jónsson
alþingismaður
Tryggjum honum efsta sœti á framboðs-
lista Sjálfstœðisflokksins og þar með
áframhaldandi forystu í málefnum Norð-
lendinga.
STUÐNiNGSMENN:
Mikil verðlækkun.
Skóhöllin
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði.
Sími 54420.
T