Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
9
(Jtlönd
Útlönd
Útlönd
Júgóslavía í skulda-
súpu eins og Mexíkó
og Brasilía
Júgóslavar eiga í erfiðleikum með að
standa í skilum á afborgunum af 1,8
milljarða dollara skuldum sínum viö
útlönd en með þessu láni mundu skuld-
irnar fara upp fyrir 3 milljarða.
Þarna er um að ræða sams konar
fyrirgreiöslu og Mexíkó ög Brazilíu
hefur verið veitt, þar sem alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn, seðlabankar
ýmissa ríkja og ríkissjóðir taka
höndum saman til þess aö halda efna-
hag stórskuldugs lands á floti til þess
að afstýra meiriháttar bankakreppu
vegna vanskila skuldunautarins.
Embættismenn fimmtán vestrænna
ríkisstjórna ákváöu á fundi í Berne í
gær að mæla meö því að Júgóslavíu
yrði veitt 1,3 milljarða dollara lán til
meðallangstíma.
Ef þetta veröur tekið til greina á
lániö að verða aðalþátturinn í
sameiginlegu átaki fjölda banka,
alþjóðlegra stofnana og ríkisstjóma til
þess að reyna að koma fótunum undir
efnahag Júgóslavíu, sem á í miklum
greiðsluerfiöleikum.
Fundurinn stóö í tvo daga og urðu
menn ásáttir um að mæla með láninu
með því skilyrði aö Júgóslavía hefði
fulla samvinnu við lánadrottna sína,
ýmsa banka, alþjóöa gjaldeyrissjóöinn
o.fl.
Guðmundur Pétursson
og
Jóhanna Þráinsdóttir
Hnefa-
leikar
hættu-
legir
Bandarísku læknasamtökin hafa nú
hvatt til þess aö hnefaleikar veröi
bannaöir sem íþróttagrein þar sem
nýjar rannsóknir hafa leitt i ljós að
margir þeirra er þessa íþrótt stunda
hafa hlotiö varanlegar heUaskemmdir.
Talsmaöur læknasamtakanna bætir
því þó viö að ef þeir verði þrátt fyrir
allt ekki bannaöir veröi a.m.k. að gera
frekari varúðarráöstafanir, eins og
t.d. þá að dómari megi stöðva leik
hvenær sem henta þykir. Slíkar reglur
eruþegar ígUdi íEvrópu.
í Ohio fór fram rannsókn á 38 hnefa-
leikaköppum og sýndi hún aö rúmur
helmingur þeirra var meö heUa-
skemmdir. Það sama kom út úr rann-
sókn sem nýlega var gerð í Finnlandi
og töldu læknar þar aö höfuöhögg ætti
a.m.k. aö banna í þessari hættulegu
íþróttagrein.
Kóreanski hnefaleikarinn Duk Koo
Kim lést í nóvember sl. af völdum
höfuðhöggs og rannsóknir sýna að
heilaskemmdir eru algengar á meðal
hnefaleikara. Þess vegna vUja læknar
láta banna þessa hættulegu íþrótta-
grein.
Edward of
slakurfyrir
Cambridge
Breska konungsfjölskyldan hefur
tUkynnt að Edward prins, yngsti
sonur Elísabetar drottningar, muni
hefja nám við Cambridge háskóla í
októbernk. Veröa námsgreinar hans
fomleifafræði, mannfræði og saga.
Sem stendur kennir prinsinn, semnú
er 18 ára, við skóla á Nýja-Sjálandi.
Cambridge er næstelstur allra há-
skóla í Bretlandi og afar vandur aö
vaU hvaö nemendur snertir. Hafa
stúdentar viö háskólann mótmælt
komu Edwards á þeim forsendum að
einkunnir hans séu svo lélegar að
hann heföi aldrei komist inn í
skólann án tignar sinnar.
Elsti bróöir Edwards, krónprins-
inn Karl, stundaöi nám við Cam-
bridge fyrir 15 árum.
Edward stundar nú kennslu á Nýja-
Sjálandi en á leið sinni þangað kom
hann við á Tahiti þar sem fagrar
meyjar lögðu blómakrans um háls
honum.
VIDEO
DÝPTARMÆLIR
OG FISKSJÁ
Botninn teiknast á skjá.
5 dýptarskalar, 0-100 metrar.
3 hraðar á teiknun og myndstöðvun.
Stillanleg viðvörun fyrir grynningar
og fyrirfram ákveðið dýpi.
Sýnir einstakan fisk og torfur og
gefur hljóðmerki ef óskað er.
Sýnishorn á staðnum
Verðídag kr. 6.300,00.
6qt*co
BÁTA- OG VÉLAVERZLUN, LYNGÁSt 6, GARÐABÆ,
53322
FINNSKIR
VÉLSLEÐA GALLAR
Andlitsgrímur
Hlífðargleraugu - móðufrí
PÓS TSENDUM
Leðurlúffur
Kapp-fatnaður
UTILIF