Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Page 20
20
(þróttir
(þróttir
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
íþróttir
íþrótt
íþrótti
íþróttir íþrótti
• Pétur Guðmundsson var snjall með ÍR gegn Keflavík — hér sést hann „blokkera” sk<
í leiknum og þá hirti hann aUs 20 fráköst í leiknum.
Varnarleikur íl
hreint stórkos
— þegar þeir tryggðu sér sigur gegn Keflavík 72-66
sagði Pétur Guðmundsson eftir l<
„Það var virkilega ánægjulegt að
sigra í þessum leik. Við höfum nokkrum
sinnum tapað naumt fyrir ÍBK en
kvöldið í kvöld var okkar.” „Pétur lék
alveg stórkostlega og allt liðið barðist
sem ein heUd,” sagði Jim Dooley,
þjálfari ÍR í körfuknattleik, eftir að ÍR-
ingar höfðu sigrað Keflvíkinga í úrvals-
deUdinni í gærkvöldi með 72 stigum gegn
66. Nokkuð óvænt úrslit en sigur ÍR mjög
sanngjarn. Varnarleikur ÍR-inga,
sérstaklega í fyrri hálfleik, var hreint út
sagt stórkostlegur. Keflvíkingar náðu
aðeins að skora eina körfu fyrstu átta
mínútur leiksins. ÍR-ingar höfðu ávaUt
frumkvæðið. Þegar fimm mínútur voru
tU Ieiksloka var staðan 25—15 ÍR í vU og
staðan í leikhléi ÍR 34, ÍBK 25.
Keflvíkingar hófu síðari hálfleikinn af
miklum krafti og höfðu náö þriggja stiga
forskoti 52—49 þegar síöari hálfleikurinn
var hálfnaður. Staðan í leiknum hafði
tekið miklum breytingum og ekki laust
við að maður væri farinn að bóka sigur
hjá ÍBK. En IR-ingar léku vel loka-
kaflann og sigur þeirra var aldrei í veru-
legri hættu.
„Það er eitthvaö að þessu húsi. Það
gengur aldrei neitt upp hjá okkur hér i
Hagaskólanum,” sagði landsliðs-
maðurinn Jón Kr. Gíslason eftir leikinn.
Svíaránægðir
Leikmenn Karlskrona eru í sjöunda
himni yfir drættinum í undanúrslitum
IHF-bikarkeppninnar í handknattleik.
Þeir drógust gegn Karis frá Finnlandi og
telja þeir sig nær örugga í úrslit.
Saporosje, sem sló FH-inga út úr
keppninni, leikur gegn v-þýska liðinu
Berlin í undanúrslitum.
GAJ/-SOS
„En sigur ÍR-inga var verðskuldaður.
Viö vissum að Dooley, þjálfarinn
þeirra, mundi koma með eitthvað nýtt í
þessum leik og aö þessu sinni var það
öflug svæðisvörn sem viö réðum ekkert
við,” sagði Jón og virtist nokkuö hress
þrátt fyrir tapið.
Varnarleikur ÍR-inga í þessum leik, og
þá sérstaklega í fyrri hálfleik er einn sá
besti sem sést hefur hér á landi um
langan tíma. Barátta liösmanna einstök
samfara miklu hungri í að vinna leik.
Pétur var alveg óstöðvandi í fyrri hálf-
leik, skoraði 20 stig og hirti 15 fráköst.
„Ég fann mig vel eins og fleiri í liðinu.
Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var mjög
góður. Við föllum ekki. Þaö kcmur ekki
til greina. Við getum unnið hvaða lið sem
er,” sagði Pétur, sem var stigahæstur,
skoraði 26 stig og náði í allt 20 fráköst-
um, sem er frábær árangur. Næstur
honum kom Gylfi Þorkelsson meö 18 stig
og sinn besta leik í langan tíma. Gífurleg
barátta i pilti.
. „Ég er alveg hissa, þegar það er haft í
huga að maður kemur svo að segja
óþjálfaður úr jólafríinu. Það var virki-
lega gaman að þessum leik og þetta var
sigur liðsheildarinnar,” sagði Gylfi eftir
leikinn. Fleiri voru góðir hjá IR.
Kristinn Jörundsson var alveg eins og
táningur í þessum leik, sérstaklega
síðustu mínútur hans. Hreinn var góður í
lokin svo og allt liðiö.JimþjálfariDooley
átti einnig frábæran leik. Stjórnaði
sínum mönnum óaðfinnanlega en
hávaðasamur var hann og heyröist oft
mun hærra í honum en áhorfendum, sem
þó voru f jölmargir.
Keflvíkingar léku ekki illa að þessu
sinni í vörninni en aðrir þættir leiksins
brugðust að þessu sinni. Þar má nefna
vítaskotin, þeir hittu úr 15 skotum af 29.
„Við töpuðum þessum leik á vítalinunni.
Enski deildabikarinn:
Sprenejan sprakk á
White Hart Lane
— þar sem Burnley lagði bikarmeistara Tottenham að velli í gærkvöldi
Bikarmeistarar Tottenham urðu
heldur betur fyrir áfalli á White Hart
Lane í N-London í gærkvöldi þar sem
leikmenn Bumley, með' gömlu
kempuna Martin Dobson sem aðal-
mann, komu sáu og sigruðu 4—1. Þar
með var Burnley búið að tryggja sér
rétt til að leika í undanúrslitum deilda-
bikarkeppninnar ásamt Arsenal,
Manchester United og Liverpool.
Tottenham, sem flaggaöi öllum
sinum bestu leikmönnum, nema hvað
Terry Gibson tók stöðu Garth Crooks,
hafði yfirburöi í fyrri hálfleiknum —
þeir fengu átta marktækifæri á móti
einu hjá Burnley en náðu ekki að koma
knettinum fram hjá Alan Stevenson,
markverðinum gamalkunna. Lund-
únaliöið komst síöan yfir 1—0 eftir 45
sek. í seinni hálfleik. Þaö var Gibson
sem skoraði markið eftir góðan undir-
búning Glenn Hoddle og Osvaldo
Ardiles og eftir markið héldu leikmenn
Tottenham áfram aö sækja.
Það var svo á 68. mín. að Burnley
fékk hornspymu og knötturinn var
sendur fyrir mark Tottenham.
Graham Roberts stökk upp og skallaði
og honum til skelfingar hafnaði knött-
urinn í hans eigin marki.
Mikiö fjör færðist í leikinn og hinn
30.771 áhorfandi sem sá leikinn
ætlaöi vart að trua eigin augum á 75.
mín. þegar Billy ilamilton, landsliðs-
maður N-Irlands, skoraði af stuttu
færi. Clemence, markvörður Totten-
Þórður Marelsson
meiddurínára
Þóröur Marelsson hjá Islandsmeist-
uram Víkings í knattspyrnu á við
meiðsli í nára að stríða og þaö getur
farið svo að það þurfi að skera hann
upp nú næstu daga. Þá er Ögmundur
Kristinsson, markvöröur Víkings,
meiddur á öxl. -SOS
• Martin Dobson — fyrirliði Burnley,
átti snilldarleik.
ham, handlék knöttinn fyrir utan víta-
teig. Brian Flynn tók aukaspyrnuna og
sendi knöttinn til Hamilton. Eftir það
fóru leikmenn Bumley í vöm og beittu
skyndisóknum sem heppnuðust full-
komlega. Á 86. mín. komst Steve
Taylor einn inn fyrir vörn Tottenham
og skoraöi 3—1 með því að vippa knett-
inum yfir Roberts og þaö var svo
Hamilton sem gulltryggði sigur 2.
deildarliðsins á 89. mín. meö
þrumufleyg frá vítateig sem Ray
Clemence átti ekki möguleika á aö
verja.
Sprengjan var sprungin —
áhorfendur stóðu þrumulostnir en
leikmenn Burnley stigu trilltan stnðs-
dans á vellinum. Gömlu kempurnar
Martin Dobson, fyrrum leikmaður
Everton, sem hafði ekki getað leikið
síöustu fjóra leiki Burnley, Billy
Hamilton og Alan Stevenson voru
hetjur 2. deildarliðsins — voru hreint
frábærir.
-hsím/-SOS.
Míle áfram
með Njarð-
víkingana
Júgóslavinn Kresta Stanojev, sem er
þó betur þekktur undir nafninu Mile,
hefur verið endurráðinn þjálfari
Njarðvíkinga í knattspyrnu.
Mile tók við Njarðvíkingum í 3. deild-
inni fyrir tveim árum og kom þeim þá
þegar upp í 2. deild. Þar léku þeir í
fyrra undir hans stjórn og gekk vel.
Hafa þeir því endurráðið hann sem
þjálfara og verður hann með svo til
óbreyttan mannskap í 2. deildinni í
sumar frá því í fyrra. -klp-
ísland mætir
A-Þýskalandi
og Möltu
Þar sem Belgíumenn hættu við
keppni í Helvetia Cup í badminton í
Basel i Sviss hefur verið ákveðið að Is-
lendingar taki sæti þeirra i 4. riðli og
leiki þar með A-Þýskalandi og Möltu.
Islenska landsliðið hefur aldrei leikið
gegn A-Þýskalandi en einu sinni gegn
Möltu og þá unnu Islendingar öraggan
stórsigur. -SOS
„Dóp í spönsku
knattspyrnunni”
— segir Juanito hjá Real Madrid
Spánski knattspyrnumaðurinn Juan
Gomez, eða „Juanito” eins og hann er
kallaður meðal aðdáenda sinna hjá
Real Madrid og viðar, befur nú sleppt
enn einni sprengjunni í spönsku knatt-
spyrnunni.
Ennþá er fnykurinn ekki farinn af
þeirri sem hann sleppti á dögunum
þegar honum og forseta Barcelona
lenti saman. Þá sökuöu þeir hvor ann-
an opinberlega um ýmislegt sem litið
átti skylt við íþrótt þeirra — þar á með-
al þjófnað, þrælahald og barneignir
um allan Spán og fleira í þeim dúr.
Nýja sprengjan sprakk þegar
Juanito sagði í sjónvarpinu að örvandi
lyf þekktust vel í spönsku knattspym-
unni. „Þegar ég lék með Burgos var ég
oft látinn taka inn amfetamín eða önn-
ur „stímúlerandi” meðul,” sagði hann.
Hann bætti því við að hjá Real
Madrid þekktist þetta ekki. „Við eram
það góðir að við þurfum ekki á svona
löguðu að halda þar. Það er hjá litlu og
fátækari félögunum sem þetta þekk-
is.”
Juanito er fæddur og uppalinn í bæn-
um Fungirola á Costa del Sol og er þar
nánast í guðatölu. Hann þótti strax
mjög góður knattspyrnumaður og var
seldur til Burgos. Þar varð ekkert úr
honum og var hann kominn aö því að
gefast upp þegar einn þjálfari Real
Madrid stakk upp á því að hann yröi
keyptur þangað fyrir smáaura og gefið
tækifæri til að æfa. Þar gerðu þeir hjá
Real góð kaup. Juanito byrjaði aö
blómstra þar á svipstundu og nú síðari
ár hefur hann óumdeilanlega verið í
hópi bestu knattspymumanna á Spáni
og Evrópu.
-klp
Áhorfendum
fækkar í
V-Þýskalandi
Það er ljóst að áhorfendafjöldinn
hefur minnkað mikið í V-Þýskalandi
eftir að V-Þjóðverjar náðu ekki að
tryggja sér heimsmeistaratitilinn á
Spáni. Þegar búlð er að leika fyrri um-
feröina i Bundesligunni — 153 leiki,
hafa 3,4 milljónir áhorfenda komið til
að sjá leikina eða að meðaltali 21,598 á
leik. Þetta er minnsti áhorfendafjöld-
inn síðan 1974 í V-Þýskalandi eða eftir
að V-Þjóðverjar urðu heimsmeistarar
i MSncben 1974. -SOS
Juan „Juanito'’ Gomez tekur um höfuð
Spáni. En nú eru það aðrir sem taka um
undanfömu.
sér í leik með Real Madrid gegn Valencia á
höfuðið á sér þar — vegna yfirlýsinga hans að
(þróttir
íþróttir
Iþróttir