Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Side 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
í gærkvöldi í gærkvöldi
lllviljinn og ríkisvaldið
Hafandi snætt kvöldverð kom ég
mér fyrir með kaffibolla í hendi og
kveikti á sjónvarpinu. Eg get ekki
sagt, að fréttirnar hafi verið róandi,
gefið hraustlegt og gott
útlit, eöa bætt meltinguna.
Gromyko tekur ekki í mál að leggja
niður vígbúnaðarkapphlaupiö og
eflaust hefur Reagan létt við þaö.
Davíð lætur að því liggja að ekki
skuli gráta lögbannsúrskurð, heldur
tilkynna nýja hækkun á strætis-
vagnafargjöldum og búast til
orrustu við illviljað ríkisvald. Nánar
um ríkisvaldiö síðar en snúum okkur
aö illviljanum.
I hvert skipti sem ég horfi á þann
ágæta þátt Dallas finnst mér sem
allar „persónur” í þættinum ættu að
rísa upp með fjör, snúa sér að J.R.,
hinum hræðilega skúrk, og segja við
hann: „Vík frá mér,Satan.” Þaö er
ekki ónýtt fyrir þá sem stunda
uppfræðslu ungdómsins í
kristindómi að hafa svo nærtækt og
alþekkt dæmi um hið illa. Svei mér
þá ef J.R. er ekki kominn með hnýfla
á ennið. (Hann mun víst eiga skilið
aö hafa hom og það þó hann væri
uppfullur af náungakærleik).
Svo kom að stjómarskrármálinu
og víkjum við þar með frá hinu illa
og aö ríkisvaldinu. Það gladdi mig að
heyra aö nú ætti loks, í eitt skipti
fyrir öU, aö lýsa Island lýöveldi og
veita þegnum þess ákveðin réttindi.
Eg er viss um aö þjóðinni allri leið
snöggtum betur eftir að hafa heyrt
þau gleðilegu tíðindi. I stjómar-
skránni fyrirhuguðu er að finna á-
kvæði að bannað sé aö hlera síma.
Það er eins gott að þeir sem síma-
málum stjóma fari að haska sér við
að koma öllum landsmönnum inn á
sjálfvirka símakerfið, ellegar er
hætta á að víöa til sveita verði á-
kærur um stjórnarskrárbrot daglegt
brauö. Að öðru leyti er ekki margt
um þessa umræðu að segja annað en
það, kannski, að mér fannst þaö með
ólíkindum hvað allir stjómarskrár-
smiöirnir vom í raun ósáttir viö af-
rakstur starfs síns. Mér fannst þaö
einnig skrýtið aö meðan sú þróun
verður æ meira áberandi að lög séu
almennt og ónákvæmt orðuö virðist
þaö tilhneiging að gera stjómar-
skrána nákvæmari. Merkilegt, ef
rétt er!
Ólafur B. Guðnason.
Andlát
Friðrik Þorvaldsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Akraborgar,
andaöist á Landspítalanum 18. þ.m.
Hann fæddist aö Álftatungukoti á
Mýrum 10. desember 1896. Lengst af
bjó hann í Borgarnesi og starfaöi m.a.
mikiö aö félagsmálum þar. Hann var
mikill áhugamaður um blóma- og trjá-
rækt. Á síöari árum hefur hann skrifað
mikið um samgöngumál og fiskirækt.
Hann aflaði sér mikillar þekkingar á
brúargerð um víða veröld og sýndi
fram á aö brúargerð yfir Hvalfjörð
væri tii mikilla hagsbóta í samgöngu-
málum. Eftirlifandi eiginkona hans er
Helga Olafsdóttir og eignuðust þau 6
böm, sem öll em á lífi.
Guðrún Sigurveig Pétursdóttir, lést
15. janúar. Hún fæddist á ísafiröi hinn
6. mars 1911, dóttir hjónanna
Guðbjargar Jensdóttur og Guðmundar
Finnbogasonar. Guðrún missti fööur
sinn ung og tóku þá hjónin Helga Árna-
dóttir og Pétur Jóhannesson hana aö
sér og ættleiddu. Guðrún lauk námi frá
húsmæðraskólanum á Laugum. Eftir-
lifandi eiginmaöur hennar er
Sveinbjöm Tímóteusson. Þau hjón
eignuöust tvö böm. Utför Guðrúnar
veröur gerð frá Háteigskirkju í dag kl.
15.00.
Margrét Sigurðardóttir, Fagradal
Mýrdal, veröur jarðsungin frá Víkur-
kirkju laugardaginn 22. janúar kl. 14.
Ferð verður frá Umferöarmiðstöðinni
kl. 14áföstudag.
Guðmundur Jóhannesson frá Fremri-
Fitjum veröur jarðsunginn frá
Hvammstangakirkju föstudaginn 21.
þ.m. kl. 14. Bílferð verður frá
Umferðai miðstöðinnikl.8samadag.
Jórunn Siguröardóttir, Ysta-Skála,
veröur jarösungin frá Ásólfsskála-
kirkju laugardaginn 22. jan. kl. 14.
Bílferö verðurfráUmferöarmiðstöðinni
kl. 10.
Guðmundur Vigfússon, fyrrv. borgar-
fulltrúi, Heiðargerði 6, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn
21. janúarkl. 15.
Agnar Líndal Hannesson verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.30.
Jaröað verður í Guf uneskirk jugarði.
Kristin Jónsdóttir, Dúfnahólum 2, lést
17. janúar.
Ásgeir Ragnar Sigurðsson andaðist 16.
janúar.
Hulda Björnsdóttir lést hinn 18.
janúar. Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 26. janúar
kl. 15.
Snorra Benediktsdóttir lést 8. janúar.
Hún fæddist 12. júlí 1892. Dóttir
hjónanna Guðrúnar Bjömsdóttur og
Benedikts Jónssonar. Lengst af
starfaöi hún hjá bróður sínum, H.
Benediktsson & co. Útför hennar
verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl.
14.
Sigurlina Margrét Ásbergsdóttir,
Brúarási 8 Reykjavík, sem andaðist í
Landspítalanum 13. janúar sl., verður
jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
víkföstudaginn 21. janúarkl. 13.30.
Helga Gestsdóttir, Mel Þykkvabæ,
verður jarðsungin frá Hábæjarkirkju
laugardaginn22. janúarkl. 14.
Torfi Magnússon, Hvammi Hvítársíöu,
veröur jarösunginn frá Gilsbakka-
kirkju laugardaginn 22. janúar kl. 14.
Bílferö verður frá Bifreiðastöö Islands
kl.9.30sama dag.
Tilkynningar
Frá Utanríkisráðuneytinu
Tómas Á. Tómasson sendiherra afhenti 11.
þ.m. Aristides Maria Pereira, forseta Græn-
höföaeyja, trúnaðarbréf sem sendiherra
Islands á Grænhöfðaeyjum með aðsetur í
París.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 14. janúar 1983.
Aðalfundur
knattspyrnudeildar
Víkings
verður haldinn í félagsheimilinu fimmtu-
daginn 27. janúar kl. 20.
Stjórnin.
Digranesprestakall
Kirkjufélagið heldur fund í safnaðarheimilinu
við Bjarnhólastíg fimmtudaginn 20. janúar kl.
20.30. Spiluð verður félagsvist. Kaffiveiting-
ar.
Kynningarfundur hjá
félaginu Samhygð
Fundurinn verður haldinn miðvikudagskvöld-
ið 19. jan. kl. 20.30 aö Ármúla 36 (gengið inn
frá Selmúla).
OA, samtök fólks
sem á við offitu-
vandamál að stríða
OA-samtökin á íslandi voru stofnuð 3. febrúar
1982 og eru því eins árs gömul um þetta leyti.
Þau eru angi af alþjóðafélagsskapnum Over-
eaters Anonymus. Inntöku- eða félagsgjöld
eru engin og eru samtökin öllum opin sem
telja sig eiga við offitu eða matarvandamál
að etja. Fundir eru haldnir að Ingólfsstræti
la, 3. hæö gegnt Gamla bíói á miðvikudögum
kl. 20.30, og laugardögum kl. 14. Upplýsingarí
sima 71437 eftirkl. 17.
Samstilling
Félag áhugamanna um söng og skemmtun
kemur saman á fimmtudagskvöldum kl. 20.30
í kaffiteríu Hótel Heklu. Félagiö hefur þaö
markmið aö fólk komi saman til aö syngja og
skemmta sér á óþvingaðan hátt. Öllum heimil
þátttaka. Láttu sjá þig.
Hjálpræðisherinn —
alþjóðleg bænavika 1983
í kvöld kl. 20.30, samkoma. Erling B. Snorra-
son, forstöðumaður 7. dags aðventista, talar.
Þrjár stúlkur syngja, fleiri taka þátt. Allir
hjartanlega velkomnir.
Upplestur í bókasafni
Kópavogs
Matthías Siguröur Magnússon mun lesa úr
ljóðum sinum í kvöld, fimmtudagskvöldið 20.
janúar, kl. 20—21 í bókasafrii Kópavogs.
Frá Ferðafélagi íslands
Dagsferðir sunnudaginn 23. janúar:
1. kl. 13. Skíðagönguferö á Hellisheiði. Skíða-
kennsla fyrir þá sem þess óska. Fararstjóri:
Hjálmar Guðmundsson. Verð kr. 100,-.
2. kl. 13. Gönguferð á Þorbjamarfell (243 m)
v/Grindavíkurveg. Fararstjóri: Asgeir Páls-
son. Verð kr. 150,-.
Fariö frá Umferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd
fulloröinna.
Ferðafélag Islands.
Firmakepnni í
körfuknattleik
Körfuknattleiksdeild Vals gengst fyrir firma-
keppni í körfuknattleik dagana 29. og 30. janú-
ar og verður leikiö í íþróttahýsi Vals við
Hlíðarenda. Allar upplýsingar varðandi
keppnina eru veittar í símum 71489 og 23112,
einnig í íþróttahúsi Vals.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
efnir til kvöldfagnaðar í Oddfellow húsinu á
sunnudaginn 23. þ.m. kl. 19. Kvenfélagskonur
verða með þorramat, þá verða skemmtiatriði
og dans á eftir. Miðar eru seldir í Versl.
'Brynju í dag, fimmtudag.
Afmæli
90 ára er í dag, 20. janúar, frú
Guðmunda Þórunn Gísladóttir, Lind-
argötu 13. Eiginmaður hennar var
Engilbert Magnússon skipstjóri er lést
1955. Guðmunda er nú vistkona aö
Hrafnistu hér í Reykjavík.
70 ára er í dag, 20. janúar, Kjartan
Friðriksson, starfsmaður hjá
Olíufélaginu. Afmælisbarniö ætlar aö
taka á móti gestum á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar á Noröurbrún
30 hér í bænum, á laugardaginn
kemur, 22. janúar, eftirkl. 16.
Bílamálun
Látið ryöverja bílinn aö utan. Málum allar gerðir bifreiða.
Heilsprautun, blettanir, litablöndun á staðnum. Unnið af
reyndum fagmönnum.
BÍLAMÁLUN SF.
Hamarshöfða 10, sími81802.
TIL KL. 8
OPIÐ IKVÖLD
JIB
Jón Loftsson hf.
ee zinu'iJT, psx
...uuuijj, jm
Hringbraut 121 Sími 10600
„Sigurvegaramótið” í Wijk aan Zee:
Sigurskák Friðriks
við Scheeren
— Friðrik teflir í dag við Andersson,
sem er efstur á mót inu
Friðrik Olafsson lagði Hollending-
inn Scheeren að velli í aðeins 22
leikjum í 5. umf. stórmótsins í Wijk
aan Zee í Hollandi, sem tefld var í
gær. Friðrik hefur þá hlotiö 3 1/2 v.
og er í 2. sæti, en efstur er Svíinn Ulf
Andersson meö 4 v. Þeir tefla einmitt
saman í dag og hefur Friðrik hvítt.
Skák Friðriks viö Scheeren var
stutt gaman en skemmtilegt.
Byrjunina tefldi Friörik frumlega og
náði snemma þægilegri stöðu. I 22.
leik varð Scheeren illilega á í mess-
unni og varð að gefast upp eftir svar-
leik Friðriks. Mannstap óumflýjan-
legt. Um önnur úrslit í 5. umferð
vísast tilfréttará baksíöu.
Skák
Jón L Árnason
Hvítt. Scheeren (Hollandi)
Svart: Friðrik Ólafsson
Katalónsk byrjun.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. g3 dxc4
5. Bg2Bh4-H?
Sjaldséður leikur, vel til þess fall-
inn að slá ryki í augu andstæðings-
ins.
6. Bd2a5 7.Dc2b6!?
Tajmanov og Smyslov hafa dálæti
á leikjaröðinni 7.-Rc6 8. Dxc4 Dd5, en
leikur Friðriks er mun beittari. Nú
má svara 8. Dxc4 með 8. -Ba6. Hins
vegar opnast homalínan niður á
hrókinn á a8 og það reynir hvítur að
notfærasér.
8. Re5 Ha7 9. Bxb4 axb4 10. Dxc4 Dd6
11. Db5+ Rfd7 12. Rd3 c5! 13. dxc5
bxc5
Friðrik hefur náö frumkvæðinu,
þótt staöa svörtu mannanna virðist
losaraleg.
14. Rd2 Ba6 15. Da4 0—0 16. 0—0 Hc7
17. Hfdl Db6 18. Hacl Bb5 19. Dc2
Rc6 20. Rc4 Bxc4 21. Dxc4 Rd4
22. Rxb4??
Hvítur varö að reyna 22. Bfl.
22.-Re5!
Scheeren gafst upp. Eini reitur
drottningarinnar er á a6, en þá
kemur auðvitaö 23. -Db4 og vinnur
mann.