Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 14
14 DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Hiisið - ný íslensk kvikmyinl frumsýnd í næsta mánuði Skrýtið hvað sumar sennrnar vorn allt i einn orðnar stuttar — segja Lilja Þðrisdðttir og Jðhann Sigurðarson sem fara með aðalhlutverk myndarinnar Húsið nefnist ný íslensk kvik- mynd sem frumsýnd veröur í næsta mánuði. Þar er á ferðinni mynd sem fjallar um dulræna at- burði, en íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á slíkum málefnum. Höfundar myndar- innar eru þrír, þeir Egill Eðvarðs- son, sem jafnframt leikstýrði myndinni, Björn Björnsson og Snorri Þórisson. Framkvæmda- stjóri myndarinnar er Jón Þór Hannesson. Egill og Björn reka saman fyrirtækið Hugmynd en Snorri og Jón Þór reka Saga film. Stór hópur leikara fer með aðalhlutverkin og má þar nefna Helga Skúlason, Bríeti Héðins- dóttur, Þóru Borg, Baldvin Halldórsson, Árna Tryggvason, Róbert Arnfinnsson og Borgar Garðarsson. Aðalhlutverk myndarinnar eru í höndum tveggja ungra og efnilegra leikara, þeirra Lilju Þórisdóttur og JóhannsSigurðarsonar.Lilja er líklega þekktust sem Hildur í dönskuþáttunum sem sjónvarpið sýnir um þessar mundir. Jóhann hefur hins vegar getið sér gott orð á fjölum Leikfélags Reykjavíkur sem Jói i samnefndu leikriti Kjartans Ragnarssonar. Hvernig vildi það til að þau urðu fyrir valinu sem aðalleikarar í þessari nýju mynd? Og hvemig fannst þeim sú reynsla að leika í kvikmynd? Við ákváðum aö hitta þau að máli og rabba um þessa hluti og um þau sjálf einn eftir- miðdag. Ákveðið var að hittast heima hjá Jóhanni á Lynghagan- um og samtalið hófst yfir rjúk- andi piparmyntutei í stofunni hjá honum. Leist vel á handrrtið „Egill Eðvarðsson hafði samband við mig og hafði raunar haft samband viö fleiri leikkonur. Við röbbuðum saman nokkrum sinnum, eitt skiptið sem við hittumst lét hann video ganga meðan við töluðum saman. Ætli við höfum ekki talað saman þrisvar áður en þetta var ákveöið,” segir Lilja. ,,Þá var ekki búið að finna mótleikara. Hann spurði mig reyndar aö því hvort ég gæti hugsað mér að leika á móti þessum þama,” segir Lilja skellihlæj- andi um leið og hún bendir á Jóa. „Nú,” svarar hann og brosir,... en Lilja bætir við að hann hafi nú bara spurt svona hvort hún gæti hugsað sér... „Ég las drög að handritinu og Egill sagði mér frá hver ju ég ætti von á og mér leist strax vel á hlutverkið,” heldur hún áfram. Stærðin vandamál — EnJói? „Það var líka Egill sem hafði sam- band við mig. Hann hafði séð mig leika á sviði. Mér leist líka mjög vel á þetta hlutverk. Það var þó eitt vandamál sem kom upp... þaö var stæröar- munurinn á okkur,” segir Jói og Lilja erfijótað bæta við: „Það vareiginlega stærsta vandamálið. Við vorum fengin til að koma saman til aö þeir gætu séð okkur standa hlið viö hlið og svo hlógu þeir heilmikiö að öllu saman,” segir Liija sem s jálf hlær dátt að þessu. „Þetta var gert út af ballansinum í myndinni,” heldur Jói áfram, en hann er maður hávaxinn. „f myndinni þurf- um við nefnilega oft að standa saman.” „Það hefði nú ekki veriö nógu sniðugt ef myndavélin hefði bara náð hálfumhausnum á Jóa,” segir Lilja og leikur með höndunum hvemig það hefði litið út. Verður vör við dui- ræn fyrirbrigði — Lilja, hver er þessi kona sem þú leikur? „Hún heitir Björg og kennir heymar- lausum börnum. Myndin hefst í raun- inni á því að hún og maður hennar, Pétur, eru aö leita sér að leiguhúsnæöi. Þau fá leigt hús, stórt hús. Þegar þau em flutt inn finnur Björg að ekki er allt með felldu í húsinu. Hún fer að verða vör við ýmislegt dulrænt. Hana dreymir drauma á nóttunni í sambandi við húsið og myndin gengur út á það hvernig Björg reynir að komast til botns í þessum dularfullu atburðum. — Hvemig er þá Pétur, Jói? „Hann er bölvaður egóisti sem heldur að lífið snúist eingöngu í kring- um sig. (Jói var allan tímann að sann- færa mig um að hann væri sko ekki líkur þessum Pétri, skýtur Lilja inn í) Já, mér fannst hann oft ekki beint skemmtilegur,” segir Jói. „Pétur er tónskáld, hann er að semja mikið tón- verk og er mjög upptekinii af því sem hann er að gera. Fer til Vínarborgar og skilur konu sína eftir heima en hann vill ekki trúa því sem hún segir honum um hið dulræna. Pétur skiptir sér ekki af venjulegum heimilismálum heldur lifir í sínum eigin heimi. Hitt lendir allt á Björgu. Þannig lifa þau eiginlega sitt í hvorum lífstílnum.” Gráttá tveimur hliðum Hús það sem Björg og Pétur fá á leigu stendur við Ásvallagötuna í Reykjavík. Var þaö fengið að láni til að nota í útitökum. „Þetta var mjög fallegt hvítt hús en þeir máluðu tvær hliðar þess gráar til aö láta það líta gamaldags út,” segir Lilja. „Eg veit ekki hvað fólkið í götunni hefur haldið þegar það hefur allt í einu séð tvær hliðar hússins orðnar gráar. En þetta var nú allt saman lagað aftur. Innivið í húsinu var hins vegar allt tekið upp í stúdiói, þar sem mestöll upptaka fór fram.” Nokkuð af myndinni fer fram úti á landsbyggðinni og í Vínarborg en upptökur stóðu yfir síðastliðið sumar. Biðin stundum þreytandi „Það var mjög mikil vinna sem fór í þetta. Við byrjuöum að vinna kl. sjö á morgnana og vorum að fram á nótt. Kvikmyndaleikur er frábrugðinn sviðsleik að því leyti að miklu meira er um nákvæmnisvinnu. Tökur á smáatriðum gátu tekið langan tíma. Við fengum eiginlega ekkert frí nema yfir blánóttina. Sum atriöin þurfti að taka nokkrum sinnum og það þarf vissa þolinmæði. Þetta var erfitt en um leið skemmtilegt. Þessir menn (Egill, Pótur er bölvaður egóisti og dáiítið snúinn... „Hiidur var allt öðruvísi hlutverk... Jú, það kemur fyrir að fólk taki feii á mór og henni." Bjöm og Snorri) vissu nákvæmlega hvað þeir voru aö gera og hvað þeir vildu aö kæmi sérstaklega fram. Þetta eru vanir gaurar og það var sérstak- lega skemmtilegt að vinna með þeim. Enda hafa þeir mikla þekkingu og hafa unniö mikið saman áður. Eitt viö upptökumar var svolítið þreytandi en það var biðin. Það koma hlé á milli þegar þarf að stilla upp, lýsa eða þess háttar og þá varð maöur að finna sér eitthvað að gera á meðan. Maður mátti bara ekki hugsa neitt út í þessa biðtíma, varð bara að stilla sig inn á að svona gengi þetta. Annars bjargaði það oft hvað mórallinn var góður í þessum hópi.” Falleg sena — Voru þetta erfið hlutverk? „Já,” segir Jói og lítur á Lilju sem kinkar kolli til samþykkis. „Pétur var svolítiö snúinn,” segir Jói og Lilja segir að svo hafi einnig verið um Björgu. „Hún var kannski ekki erfið. En það eru margs konar tilfinningar sem ég varð að sýna. Eg varð að gefa töluvert af sjálfri mér. Eg býst þó við að þetta hlutverk hefði verið erfiðara ef leikstjórinn hefði veriö einhver annar.” — Nú komið þiö fram í ástarsenum í myndinni. Voru það erfiðar upptökur? (Löng þögn) Ja, segja þau og líta hvort á annað., JVÍér fannst það nú ekki beinlínis erfitt,” segir Jói og stuttu síðar segir Lilja. „Þetta er bara falleg sena sem kemur inn í myndinni. Hún skiptir ekki miklu máli.” — Höfðuð þið ieikið saman áður? „Nei,” segja þau. „Við þekktumst ekki. Ja, sögðum bara halló þegar við hittumst en ekkert meira,” segir Lilja en Jói segist muna eftir henni úr skóla. „Áttir þú ekki heima í Miðtúninu,” segir hann og hún jánkar. ,,Ég átti heima á Laugateignum og var í bekk með bróður þínum.” Efni fyrir tíu, ellefu tíma „Við þurftum að æfa í þrjár vikur áður en upptökurnar hófust. Það var ýmislegt tilfinningalegt sem við þurft- munurinn um að æfa. Textinn var í sjálfu sér ekki allt málið því myndin er látin tala að mikluleyti.” — Eru eingöngu leikarar sem koma framímyndinni? ,Stærðar- var eiginlega mesta vandamáiið... Myndir Einar Ólason dæmis, í einu. Við áttum að leggja glasið frá okkur niður á borð alveg ótrúlega hægt en samt kom það eðli- lega á myndinni. Allt atriðið var tekið svona upp. Þetta var algjör nákvæmnisvinna sem var sérlega skemmtilegt, en því miður ekki notað.” — Nú fer að líða að frumsýningu. Eruð þið kvíðin eða spennt? „Eiginlega höfum við voðalega lítiö hugsað út í þetta. Sjálfsagt færmyndin „Já, að mestu leyti. Og það teljum viö góða þróun,” svarar Jói. „Ekki kannski af því að aðrir geti ekki leikið heldur vegna þess að leikarar eiga auöveldara með að setja sig inn í það sem er að gerast og vinnan verður auðveldari.” — Nú eruð þið búin að sjá myndina. Eruð þið ánægð með árangurinn? „Við erum búin að sjá vinnukópíu af henni. Það er kannski ekki alveg að marka því talið var lélegt og einnig lýsingin. Þetta voru svona grófir drættir myndarinnar. Þeir tóku upp efni sem nær yfir tíu, ellefu klukku- stundir en myndin verður svo ekki nema hundraö mínútur. Þetta var gert til að ná sem bestum samsetningum í klippingu enda kom það okkur mjög á óvart að s já hvað sumar senumar vom orðnar stuttar og höfðu breyst mikið. Viö vorum stundum að því komin að spyrja hvort ekki vantaði eitthvað á milli. Sum atriði vorum við búin að leggja margra daga vinnu í sem koma svo hvergi fram. En auðvitað er þaö besta tekið úr og þannig næst sem best atburðarás.” J> Viss kvíði „Eitt atriði var alveg einstaklega gaman að vinna. Við sátum við borð og notuð var þröng linsa á okkur sem sýndi bara einn hluta andlits, til

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.