Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Side 2
2 DV. FÖSTUDAGUR18. MARS1983 Það er jafnan mikil þátttaka i íþróttamótum fatlaðra hér á landi svo íslendingar hafa góðan möguleika á að sigra í norrænu trimmlandskeppninni í maí í annað skiptið í röð. DV gefur verðlaun í trimmlandskeppnina Norræn trimmlandskeppni fatlaðra fer fram hér á landi í maí nk. en í september á hinum Norðurlöndunum. Fyrirkomulag keppninnar í ár verður með líku sniði og fyrir tveim árum en þá sigruöu Islendingar glæsilega. í keppninni þá tóku þátt 1031 Islend- ingur en íþróttafélag fatlaðra hefur sett markiö hátt að þessu sinni. Er stefnt að því að þátttakendur verði ekkifærrien2000. Keppnisgreinar í þessari norrænu trimmlandskeppni eru sex. Eru það sund, kajakróður, hestamennska, ganga, hlaup og hjólastóiaakstur. Þátt- tökurétt hafa allir þeir sem af ein- hver jum ástæöum geta ekki tekið þátt í íþróttakeppni hinna ófötluðu. DV hefur ákveöið að vinna að fram- gangi þessarar keppni í samráöi við Iþróttafélag fatlaðra hér á landi. Gefur blaðið glæsilegt silfurskreytt hom sem nú verður keppt um. Mun það héraö sem flest stig hlýtur í trimmlands- keppninni,miðað við íbúafjölda, hljóta hornið til varðveislu í eitt ár. Auk þess mun DV sjá um prentun á þátttöku- kortum, auglýsingaplakötum, viður- kenningaskjölum og ýmsu öðru varð- andi þessa keppni. -klp- NÝR TJALDVAGN - NÝ AÐFERÐ Að reisa þennan nýja tjaidvagn, sem þið sjáið á myndinni, tekur aðeins 3 mínútur. Uppsettur er vagninn 17 ferm og tekur 6 manns í svefnpiáss. GÍSLI JÓNSSON & CO. HF. Sundaborg 41 — Sími 86644. Grafarvogssvæðið: UM900 LÓÐIR AUG- LÝSTARA NÆSTUNNI — auk lóða í Selási og Seljahverfi „Þær lóðir sem auglýstar verða á þessu ári eru í Seljahverfi, Selási og Grafarvogi. Verið er að vinna að skipulagi fyrir þessi svæði en lóöirn- ar verða ekki auglýstar alveg strax,” sagði Hjörleifur Kvaran, skrifstofustjóri borgarverkfræðings, í viðtali við DV í morgun. ,,Um 30 lóðir verða auglýstar í Seljahverfi og er þegar búið að ganga frá skilmálum og deiliskipu- lagi. Nokkuö margar lóðir verða í Seláshverfi, gengiö hefur veriö frá skipulagi þar en skilmálar verða til- búnir í næstu viku. Loks er það Graf- arvogssvæöið. Deiliskipulag fyrsta áfanga þess fer til samþykktar í borgarstjóm á morgun, þó eftir sé að vinna skipulag og skilmála til fulls. Ég vil leyfa mér að ætla að þetta klárist í næsta mánuði. I Grafarvogi verða auglýstar 750 einbýlishúsalóðir, 90 raðhúsalóðir og 50 íbúðir í fjölbýlishúsum. Hvað varðar einbýlishúsalóðimar, þá er hér til úthlutunar verulegur hluti þeirra, en alls verða þær á bilinu 900—950. Aöeins 250 af þeim verða gerðar byggingarhæfar á árinu, eða um þriðjungur. Afgangurinn verður síðan kláraður á næstu tveimur ár- um. Hins vegar verður gengið f rá öll- um raðhúsa- og fjölbýlishúsalóöum í ár. Þeir sem fá úthlutað lóðum sem verða byggingarhæfar á næstu tveimur ámm, munu fá lóð á ákveðnu svæði fyrst í stað. Nánari staðsetning innan svæðisins kemur þá síðar,” sagðiHjörleifurKvaran. -PÁ Starfslaunum rit- höfunda úthlutað — 293 mánaðarlaunum skipt á milli 93 höfunda Lokið er úthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöfunda fyrir árið 1983. I lögum og reglugerð sjóðsins segir að árstekjum hans skuli varið til að greiöa íslenskum rithöfundum starfslaun samkvæmt byrjunarlaun- um menntaskólakennara. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og höfundar fræðirita. Þá er og heimilt að greiða úr sjóðn- um fyrir þýðingar á íslensku. Fjárveiting til sjóðsins árið 1983 er 3,6 milljónir króna og samsvarar þaö um 293 mánaðarlaunum. Alls bárust aö þessu sinni umsóknir frá 159 höfundum og sóttu þeir um nálega 900mánaöarlaun. Stjórn Launasjóðsins úthlutaði að þessu sinni starfslaunum til 93 rit- höfunda. 12 fengu laun í sex mánuði, 59 fengu laun í þrjá mánuði og 22 höfundar fengu starfslaun í tvo mán- uöi. Eftirtaldir hlutu sex mánaða starfslaun: Anton Helgi Jónsson, Birgir Sigurðsson, Einar Kárason, Guðbergur Bergsson, Hannes Pét- ursson, Heiðrekur Guðmundsson, Ingimar Erlendur Sigurösson, Olga Guðrún Ámadóttir, Svava Jakobs- dóttir, Thor Vilhjálmsson, Vésteinn Lúðvíksson og Þorsteinn frá Hamri. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.