Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Side 3
DV.F0STUDAGUR18. MARS1983
3
^HIæjumaö þessaril
auglýsingu þeirra'*
■ segir Einar Hermannsson, framkvæmdastióri
Farskips, um hina umtöluðu
viðmiðunarauglýsingu Flugleiða
... . „Þarna er ckki um neina nyja I
auglýsingatækni að ræða," sagöi l
Marinó Einarsson auglýsingastjóri 1
Flugleiöa er við spurðum hann um
þetta. „Við notum ýmsa tækni við
auglýsingar okkar. t'að er þessi núna
og eitthvaö annað næst
Heilsiöuauglýsing Flugleiða
blöðum aö unilanförnu. þar sem gcrður
er samanburður a veröi i þotustól um
borð i Ms. Eddu td Bremerhaven og
haUandi þotustól meö Flugleiðum tU
I.uxeinborgar og heim aftur, hefur
vakið nokkurt umtal og athygli.
Vissir þú
aö 4ra manna
fjölskylda
getur flogió
til Luxemborgar
og ferðast
ðtakmarkaó um Evrópu
í bílaleigubíl
i tvær vikur
fyrir aóeins
24.604 krónur?
Það sem við erum að gera mcð þess-
ari auglýsingu er að við erum aö I
upplýsa neytendur um það hvaö það |
kostar að fcrðast til útlanda. Þaðhcfur
enginn gert athugasemd við þessa
auglýsingu eða texta hennar og viö
erumánægð meðhana,” sagði Marinó.
„Við hlæjum nú að þessari auglýs- I
ingu þeirra og vonum aö aörar deildir I
hjá Flugleiðum séu betur reknar en sú I
sem scr um auglýsingarnar," sagði
Einar Herntannsson framkvæmda-
stjóri Farskips er við spurðum hann ,
um þessa auglýsingu. Þeir kunna ekki
cinu sinni að leggja rétt -saman. ]
Tölurnar þrjár sem þeir taka hjá
okkur eru réttar en þær cru ckki lagðar
rétt saman. Þaö munar 800 krónum á
að útkoman s<
Þessi auglýsing þeirra fellur ekki
alfarið inn i þær siðareglur sem hcfur
veriö unnið eftir í viðskiptum hér á
landi til þessa. En örvæntingin drifur
menn út i ýmislegt og þctta staöfesUr I
velgengni okkar og að þeir hja Flug-
leiðum cru dauðhræddir viö sam-
keppnina scm við veitum þeim."
-Up- J
Frétt DV um auglýsingu Flugleiða sem
nú hefur verið bönnuð.
Flugleiða-
auglýsingin
— brýturíbága við
siðareglur Alþjóða-
verslunarráðsins
Siðanefnd Sambands íslenskra aug-
lýsingastofa telur að hin umtalaða
auglýsing Flugleiða, þar sem gerður
var samanburður á verði á ferðum
með Flugleiðum og ms. Eddu, brjóti í
bága við siðareglur Alþjóöaverslunar-
ráðsins.
Auglýsingastofan Gylmir kæröi
þessa auglýsingu fyrir hönd eigenda
ms. Eddu, Farskips hf., á þeim for-
sendum að hún samræmdist ekki siða-
reglum verslunarráðsins. Auglýsingin
var unnin af auglýsingastofunni Olafur
Stephensen, auglýsingar—al-
menningstengsl.
I framhaldi af ályktun sinni óskaði
siðanefndin eftir því við Farskip og
Flugleiðir að félögin virtu gildandi
siðareglur í auglýsingum sínum í
framtíðinni og var þaö samþykkt af
beggjahálfu. -klp-
Þörf á reglum
um veitingar
dómara-
embætta
„Dómarafélag Islands er ekki um-
sagnaraðili um veitingu embætta,”
segir Ármann Snævarr hæstaréttar-
dómari, formaður Dómarafélags Is-
lands, er hann er spuröur um álit fé-
lagsins á veitingu í embætti sýslu-
manns og bæjarfógeta á Isafirði.
Stöðuveiting þessi hefur, sem kunnugt
er, mælst misjafnlega fyrir.
„Hins vegar hefur það verið ákaf-
lega mikið rætt innan félagsins að
setja nánari reglur um veitingu
embættanna. Dómarafélagið hefur
reyndar lýst því yfir aö þaö telji aö þaö
sé þörf á að setja reglur um veitingu
dómaraembætta. Slíkar reglur þyrfti
að lögfesta,” segir Ármann Snævarr.
-SþS
Albína kaupir
aðra þyrlu
Langlánanefnd hefur heimilaö
Albínu Thordarson arkitekt töku er-
lends láns vegna kaupa á nýrri þyrlu.
„Ég ætla að kaupa Hughes 500D þyrlu,
sem er eins og minni þyrla Landhelgis-
gæslunnar,” sagði Albína í samtali við
DV. Þessi þyrla Albínu kemur í stað
þyrlunnar sem hlekktist á við sjón-
varpshúsið. Sú var minni en nýja þyrl-
an, Hughes 300C.
Samkvæmt gögnum langlánanefnd-
ar er áætlað kaupverð nýju þyrlunnar
350 þúsund dollarar eða 6,1 miiljón
króna á áætluöu meðalgengi krónunn-
ar í ár. Af því má Albína taka að láni
erlendis 5,5 milljónir.
„Þetta verður vinnutæki, eins og
gamla þyrlan,” sagöi Albina, „sér-
staklega við mælingar og rannsóknir
hérogþarálandinu.” HERB
Heilsuhæli í Krísuvíkurskóla
Stofnun heilsuhælis með nýju sniði
er nú í undirbúningi og hefur verið
sótt um leigu á Krísuvíkurskóla til
þeirra nota.
Skólinn hefursem kunnugterverið
ónotaður um margra ára skeið. Að
sögn Hilmars Helgasonar, sem vinn-
ur að undirbúningi málsins, býður
staðurinn upp á mikla möguleika til
útivistar og notkunar á jaröhita sem
þar er að finna. Sótt var um leigu á
skólanum í janúar síðastliðnum til
nefndar á vegum Samtaka sveitarfé-
laga í Reykjanesumdæmi en svar
hefur ekki borist enn.
Hilmar Helgason sagði aö hug-
myndin væri að koma upp alhliöa
heilsuhæh, þar sem jafnt væri sinnt
andlegum sem líkamlegum þörfum
fólks. Þar ætti að vera hægt að að-
stoða fólk sem þjáðist af offitu eða
þyrfti að endurhæfa sig eftir slysfar-
ir, við heilsurækt, likamlega endur-
hæfingu, ráðleggja því um mataræði
og við að endurskoða lífsstíl sinn.
Einnig á að aöstoða fólk sem á við
andlega erfiðleika að stríða viö að
taka á vandamálum sínum.
Söngvakeppni sjónvarpsins:
Búist við 20-30 keppendum
„Það hafa 15 eða 16 umsóknir bor-
ist. En margir hafa haft samband og
beðið um frest á að skiia inn umsókn
af því aö þeir vissu ekki hvort þeir
kæmust til að taka þátt í lokakeppn-
inni 30. apríl ef þeir yrðu valdir í
hana,” sagði Tage Ammendrup dag-
skrárgerðarmaöur hjá sjónvarpinu.
Tage hefur umsjón meö söngva-
keppni sjónvarpsins. Frestur til að
skila inn umsóknumrann út á þriðju-
daginn var. Undanúrslit fara fram
núna í næstu viku. Verða þá valdir 6
úr hópnum sem taka munu þátt í
sjálfum úrslitunum. Sú keppni fer
fram í beinni sjónvarpsútsendingu
þann 30. apríl. Fimm manna dóm-
nefnd velur þá hinn endanlega sigur-
vegara sem keppa mun fyrir islands
hönd í söngvakeppni í Cardiff í
Wales.
„Þaö verður ekkert sýnt af undan-
úrslitunum. Okkur þótti það ekki rétt
vegna þess að búast má við því að
þeir sem ekki komast áfram séu við-
kvæmir fyrir slíku. En þeir sex sem
komast áfram ættu ekki að þurfa að
skammast sín fyrir aö sjást í sjón-
varpi,”sagði Tage.
Hver keppandi leggur fram tvær
dagskrár meö þrem verkum hvora.
Önnur dagskráin er fyrir undanúr-
slitin en hin fyrir úrslitakeppnina.
Flestir hafa einnig sótt um að fá með
sér sérstakan píanóleikara í undan-
úrshtum. Sinfóníuhljómsveit islands
leikur hins vegar undir í úrslita-
keppninni.
Sett hafa verið þau skiiy rði að þátt-
takendur í keppninni séu á aldrinum
18—35 ára. Ég spurði Tage að því
hvort einhver skilyröi hefðu veriö
sett um það að ekki mættu atvinnu-
söngvarar taka þátt í keppninni.
„Nei, enda er erfitt að setja þau skil-
yrði að menn megi ekki vera of góðir.
En hins vegar hefur verið hugaö að
því að biðja menn sem eru meö fast-
an samning við óperuhús aö taka
ekki þátt. Um fólk með lausan samn-
ing gildir ööru máli. Líka þarf að
huga að því að við þurfum að hafa
sterkan mann til að keppa fyrir okk-
urúti,”sagðiTage.
DS
Eagle 4x4 er bíll fyrir þá sem vi/ja komast
allra sinna ferða í ófærð, hvort heldur i snjó
og hálku eða uppi á heiðum landsins í
veiðiferðum eða ferðalögum.
Eagle 4x4 er með afturdrifi, en með einu
handtæki er bíllinn fjórhjóladrifinn torfærubíll.
Eagle er með styrktum undirvagni.
Eagie ermeð 6 strokka vól258"cc, vökva- og
veltistýri, 3 þrepa sjálfskiptingu, aflhemlum
og Delux innréttingu. Eagle með útlit og
þægindi fólksbíls en torfæru-eiginleika jeppans.
ALLT Á SAMA STAÐ
FIAT EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
OA m S/GURÐSSON hf
SMIÐJUVEGI 4, KÓPAVOGI, SÍMI 77202
Opið laugardag
kl. 10—16
sunnudagkl. 13-
16 \
SIMAR 77202 - 77200 - 77720.
EGILL VILHJÁLMSS0N
SMIÐJUVEGI 4 KÓP. SÍMAR 77200-77720.
YHrburðabíll
ótrúlegu verðí
riAMC RWD Eagle