Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Side 6
6, DV.FÖSTUDAGUR 18. MARS1983 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Nokkrir forsvarsmenn Neytendasamtakanna. Talið frá vinstri á myndinni eru Jóhannes Gunnarsson, Reynir Ármannsson, Guðsteinn V. Guðmunds- son, Erna Hauksdóttir og Jón Magnússon. DV-mynd G VA. Alþjóðadagur neytenda „HUGTAKIÐ NEYTANDI Á VK> OKKUR ÖLL” „Hugtakiö neytandi á við okkur öll. ” Með þessum orðum hófst ávarp er John F. Kennedy, forseti Bandaríki- anna, flutti á þingi þann 15. mars 1962. Af þessu tilefni lagði Anwar Fazal, for- seti Alþjóðasamtaka neytenda, til að frá 15. mars 1983 gerðu neytendafélög um allan heim þennan dag aö degi neytendaréttar. „I þessu merka ávarpi, sem John F. Kennedy flutti á bandaríska þinginu fyrir tuttugu og einu ári síöan, ræddi hann um ákveðin grundvallaratriði varöandi réttindi neytenda,” sagði Jón Magnússon, formaður Neytendasam- takanna, á blaðamannafundi er boðað var til þennan fyrsta alþjóðadag neytenda. „Þessi grundvallaratriöi setti forsetinn fram í f jórum greinum. I fyrsta lagi var það réttur til öryggis í sambandi við framleiðslu. Réttur til upplýsinga í ööru lagi, það eru meðal annars innihaldsupplýsingar á fram- leiðsluvörum. 1 þriðja lagi réttur til valfrelsis, það er rétturinn til að geta valið á milli hinna ýmsu vörutegunda, og í f jórða lagi rétturinn til áheymar. Það er réttur neytenda til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og á þauséhlýtt”. Kom fram í máli formanns NS aö síðar hafi menn bætt við þremur grein- um sem hlotið hafa almenna viður- kenningu. Það eru greinar um rétt til bóta, til heilbrigðs umhverfis og til neytendafræðslu. Vék formaður aðeins að síðasta atriðinu, neytendafræðslunni, og taldi hann að einungis einn skóli hér á landi hefði tekið upp vísi að neytenda- f ræðslu, svo að brýn þörf væri á f rekari fræðslu. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis, hafði orð á því á fundinum að ábótavant væri eftirliti við vöru- merkingu á innfluttum matvörum, sem væri mál, er varðaði neytendur. Þrjátíuár frá stofnun NS. Áriö 1962 þegar John F. Kennedy flutti sitt merka ávarp vakti hann athygli á því að neytendur væru eini mikilvægi hópur viðskiptalífsins sem ekki hefði öflug hagsmunasamtök og því væri oft ekki hlustað á sjónarmið þeirra. Síðan þá hefur margt breyst til batnaðar en enn eru mörg brýn verk- efni óleyst. Neytendasamtökin hér á landi hafa að sjálfsögðu lagt hönd á plóginn og unnið jafnt og þétt að hags- munamálum neytenda. í þessum mánuði, eða þann 23. þessa mánaðar, verða Neytendasam- tökin 30 ára. I dag eru rúmlega 4 þúsund félagar í NS á landinu öllu. Til þess aö auka þátttöku almenn- ings í samtökunum gangast samtökin fyrir útbreiðsluherferð um þessar mundir. Tilgangurinn er auðvitað að gera samtök neytenda öflugri og virk- ari þannig að þau geti betur sinnt þeim fjölmörgu málum á sviði neytenda, sem bíða úrlausnar. Á næstunni fara fram kannanir á vegum aðildarfélaga NS á landinu á því hvort settum ákvæðum um síðasta söludag matvæla sé fylgt. Einnig verð- ur kannað framboðið á grænmeti. Fræðslustarfsemin verður aukin og áætlað að koma á framfæri hentugu upplýsingaefni fyrir iieytendur. Stofn- un neytendafélaga víða á landinu þar sem deildir eru ekki stafandi er líka á dagskrá. Neytendafélag Reykjavíkur ogná- grennis er með ýmislegt í bígerð, svo sem kynningarstarfsemi í verslunum, könnun á vilja neytenda varðandi opnunartíma verslana og könnun á gæðum nautahakks. Hugtakiö neytandi á við okkur öll, sagði John F. Kennedy fyrir rúmum tveimur tugum ára, þau orð vöktu athygli þá og eru enn í fullu gildi. Kannski hefur aldrei verið brýnna en núaðstyrkja vitundneytenda. -þg Uppskrift og ísaumur H.F.H. skrifar okkur skemmtilegt bréf með seölinum sínum. í því er meðal annars að finna uppskrift. Fleiri lesendur mættu lauma svona einni og Raddir neytenda einni uppskrift að okkur og öðrum les- endum um leiö. En bréf H.F.H. fer hér áeftir: Mig langar að koma á framfæri upp- skrift að grunndeigi fyrir nokkrar f ormkökur. Hún er þannig: 100 g smjörlíki 100 g sykur legg 200 g hveiti 2 tsk. Iyftiduft 11/2 dl mjólk 1/4 tsk. vanilludropar ef þetta á að vera sódakaka, 2 msk. rúsínur ef þetta á að vera jólakaka, 2 msk. kakó ef hafa á marmaraköku. Rifiö hýði af 1 appels- ínu eða sítrónu ef þetta á að vera sand- kaka með viðkomandi bragði. Einnig hef ég prófað að brytja súkkulaði og þá notað ca 1 plötu. Það skal tekið fram að þetta er lítil uppskrift (er í 1 form) en einfalt er að stækka hana að vild. Mér finnst þetta ódýr lausn á formköku- vandamáli sem sumir virðast geta bakaðsér. Njótiö vel. Svo iangar mig til að spyrja hvar hægt er að fá saumaöa stafi eða nöfn á handklæði og (eða) sængurver og koddaver. Ég þarf að fá slíkt gert fyrir mig en veit ekki hvert ég á að snúa mér. Þess vegna sný ég mér til ykkar á neytendasíðunni. Aö lokum er ég með húsráð, sem mér var bent á og finnst alveg bráðsniðugt. Það er að setja álpappír utan um egg, sem er sprungið, ef maður þarf að sjóða þaö. Fleira hef ég nú ekki að segja í bili en ég sný mér kannski til ykkar aftur, þar sem ég er nýbyrjuð að búa og á sjálf- sagt eftir að læra margt. Fyrirfram þökkfyrirmig. SVAR: H.F.H. Þakka þér kærlega fyrir bréfiö og ekki síst uppskriftina. Mér hefur tekist að finna tvo aðila sem sauma í sængur- ver og handklæði fyrir fólk. Eflaust eru þeir þó fleiri. Saumastofan Mura í Bás- enda gerir mikið af slíku. Þar kostar 70 krónur að láta sauma í sængurver og koddaver. Eru þá saumaöir tveir stafir í hvort ver. í handklæði er tekiö 18 króna gjald fyrir hvem staf. Opið er frá 9—6 alla daga, en lokað í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum til klukkan tvö. Vissara er aö vera held- ur fyrr en seinna á f erð meö hlutina því að mikið er að gera. Verið á Njálsgöt- unni saumar líka í handklæði og sængurver. Þar er hægt að fá nokkrar geröir af stöfum og kostar hver þeirra frá 22 og upp í 32 krónur. Opið er alla daga á verslunartíma. Ísaumur tekur vikutiltíudagaaðöliumjafnaði. TIL SÖLU Á HVAMMSTANGA ibúöarhúsið Lækjargata 8 á Hvammstanga er til sölu. Tilboöum skal skila til ingólfs Guðnasonar, Hvammstanga, fyrir 27. mars og gefur hann nánari upplýsingar í símum 95- 1395 og 95-1310. Raddir neytenda ogtrassa- skapur stráksins Eg þarf að skrifa skýringarmiða með þessum upplýsingaseðli mínum. Ég hef ekki haldið heimilisbókhald fyrr en nú, fyrsta vika ársins fór í þaö að hugsa um það hvort maður ætti að nenna þessu. Dálkurinn „annað” er allhár og verður þaö næstu mánuði, því við erum að borga af íbúð. Svo er dýrt að kynda hús úti á landi, rafmagns- reikningarnir eru alltaf yfir 5 þúsund krónur. Svo er aöeins ein búð hér á staönum og ekki hægt að gera neinn verðsamanburö á milli verslana. Maður verður bara að kaupa það sem til er í þessari einu búð, hvað sem það kostar, ellegar ekki neitt (sem væri auðvitað besta lausnin). Ég er búinn að vera áskrifandi að DV í eitt ár og hvemig sem á því stendur fæ ég alltaf heimatilbúna kvittun. Ef ég röfla segir umboðs- maðurinn að tölvan vilji ekki nafnið mitt. Kannski tölvuskömminni þyki nafnið mitteitthvað sérstaklega ljótt. Annars hef ég þá skoðun að við dreif- býlisfólk eigum ekkert að vera aö kaupa dagblöðin, þau eru alltaf eld- gömul þegar viö fáum þau. Eg held að Reyk víkingar yrðu ekki hrifnir yfir því að fá mánudagsblað á miövikudegi og oft 3-4 blöð í einu. Það gæti aö vísu veriö einhver trassaskapur í stráknum sem ber út hér, alla vega þegar vitað er að blöðin koma hingað um hádegi og hann ber þau ekki út fyrr en á kvöldin. Eg er ekki ánægð meö þá þjónustu en ekki hef ég enn tímt að hætta að kaupa DV. Kveðja. Kona á Norðurlandi. Svar: Ég er nú fegin að letin varð ekki iðjuseminni yfirsterkari í ársbyrjun, Þegar verkið er hafiö verður eftir- leikurinn léttari, fyrsti upplýsingaseö- ill þinn er kominn í okkar safn með öðrum ísbrjótum. Það er tekið heilshugar undir það að dýrtíðin er mikil — og því þarf mikiö hugrekki til að ráðast í að koma sér upp húsaskjóli. Þú nefnir kyndingar- kostnaöinn, það er margur sem stynur undan þeirri byrði. Kona ein sem býr í Reykjavík hafði samband við okkur hér nýlega, reyndar ein af fjöl- mörgum. Nokkuð hefur verið skrifað um orkukostnað hér á neytendasíðunni aö undanfömu og ýmislegt fleira höfum viö heyrt. Konan fyrmefnda, sem býr í raðhúsi í Reykjavík, 170 fer- metra stóru húsi, sagöist hafa greitt tæpar 5 þúsund krónur fyrir hita og rafmagn fyrir 60 daga tímabil, sam- kvæmt síðustu reikningum. Svo ástand mála virðist líkt sunnan heiða og norðan. En við búum betur hér hvaö verðsamanburö á miili verslana snertir og blaðaútburðinn — reyndar emm við sum borgarbörnin svo of- dekmð að við viljum helst fá pressuna glóðvolga og engarrefjar. Viöerum ánægð með að þú skulir hafa haldið út „trassaskapinn í stráknum” þama á staðnum — við skulum bara vona að honum hlaupi kapp í kinn þegar hann les þetta. En varðandi tölvuskömmina, þá haföi ég beint samband við hana. Hún hefur alls ekkert á móti nafninu þínu, segist frekar hafa haft augastað á nafni af þessu tagi, og skilgreinir það á þann hátt að þaö sé formfagurt, stutt alþjóðlegt en þó rammíslenskt. Skömmin lofar bót og betrun. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.