Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Síða 36
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
BOÐA YFIRVINNU-
BANN í ÁLVERINU
„nauðvöm” vegna vinnuálags og óþrifa
Yfirvinnubann mun ganga í gildi í
Álverinu í Staumsvík á sunnudaginn,
samkvæmt samhljóða samþykkt á
félagsfundi starfsmanna. Með þessu
vilja starfsmenn mótmæla þrifum í
kerskála álversins og óeðlilega
miklu vinnuálagi.
„Þetta er okkar nauðvöm. For-
ráðamenn álversins hafa beinlínis
kallað á þessi viðbrögð,” sagði
Sigurður T. Sigurðsson, varafor-
maður verkamannafélagsins Hlífar,
í samtali við DV. „Yfirvinna hefur
oft farið yfir leyfilegt hámark, sem
eru fimm vaktir á tveggja vikna
tímabili, en á sama tíma er verið að
segja upp starfsfólki. Þetta þýðir
aukið álag á þá starfsmenn sem fyrir
eru. Það hefur einnig verið básúnað
hvaö hér séu góðar mengunarvarnir
en samt eru ker látin standa opin,
sem er algjörlega bannað, og auk
þess er ekki nógu vel staðið að
þrifum. Þar að auki hafa samskipti
miUi ráðamanna og verkafólks ekki
verið góö — ég vil ekki orða það
stífar en svo,” sagði Sigurður en
benti á að yfirmenn fengju væntan-
lega sínar fyrirskipanir að utan.
öm Friðriksson, trúnaðarmaður í
álverínu, segir að vinnuaðstæður þar
séu nú þær verstu sem menn muni
eftir. Fyrir utan aö ker séu látin
standa opin þá sé sjaldan þrifið rykið
af gólfunum og þá helst þegar gestir
koma til að skoða verksmiðjuna.
„Einu svörin sem við fáum em þau
að menn geri það stundum heima hjá
sér að taka til og gera fínt þegar
gestir koma í heimsókn. En þetta
þyrfti aö gerast á hverjum degi,”
sagöi öm.
Ekki náðist samband við Hagnar
Halldórsson, forstjóra Isals, í
morgun til að inna hann álits á þessu
máli.
ÖEF
Prófkjör
krata fyrir
vestan kært
Alþýðuflokksfélag Patreksfjarðar
hefur kært prófkjör flokksins í kjör-
dæminu 6. mars síöastliðinn. Félagið
telur að framkvæmd prófkjörsins hafi
ekki verið í samræmi við reglur.
Kæran verður tekin fyrir á
kjördæmisþingi flokksins á Isafirði
næstkomandi sunnudag. Kæran mun
einnig fara fyrir aðrar stofnanir
flokksins.
Formaður Alþýðuflokksfélags
Patreksfjarðar, Gunnar R. Pétursson,
vildi í morgun ekkert ræða við DV um
mál þetta. Samkvæmt öðrum
heimildum kæra Patreksfirðingar
meðal annars vegna þess að kjörgögn
bámst ekki meö verulegum hluta at-
kvæða. -KMU.
Láglaunabætumar:
Færrífá
ávísun núna
Liðlega 25 þúsund einstaklingar sem
litlar eöa engar láglaunabætur fengu í
desemberúthlutuninni fá ávísun frá
: ' .. m . . ♦
LOKI
Það er ekki í samræmi
við reglur að fella Sig-
hvat.
fjármálaráðuneytinu nú öðru hvoru
meginviðhelgina.
Þá fer í póst önnur úthlutun lág-
launabóta sem ákveðið var að greiða
vegna vísitöiuskerðingu bráöabirgða-
laganna. Voru þá greiddar út liðlega 50
milljónir króna og var notast við
skattaframtöl frá 1982 — þ.a.e.s.
tekjur á árinu 1981 til að finna út
hverjir ættu að fá bætur.
Stór hluti þeirra sem fengu láglauna-
bætur í desember fá ekki núna. Þeir
þrír meginhópar sem bætast við eru
tekjutryggingaþegar, námsfólk með
hærri námsfrádrátt en 5.438 kr, nema
það hafi börn á framfæri sínu, svo og
einstaklingar með mjög lágar tekjur.
Þannig getur verið að eiginmaður sem
fékk sendar bætur í desember en hafði
þó góðar tekjur árið 1981 fái ekkert
núna en eiginkona hans, sem litlar
tekjur hafði þá, fái ávísunina í staöinn.
Sú upphæð sem greidd verður út í
dag nemur 22,8 milljónum króna og fer
hún til 25.400 einstaklinga en 38 þúsund
einstaklingar fengu senda greiðslu í
desember. -kip.
íslenski fáninn dreginn að húniifyrsta skiptióhínu ný/a skipi.
OV-mynd GVA
NYTT
HAFSKIP:
RANGÁ
Hafskip eignaðist í gær þetta skip. Það hefur hlotið nafnið Rangá og á ai
sigla á Norðursjávaráætlun á móti Selánni. Skipið er keypt af norska fyrirtæk
inu Fred Olsen á rúmlega 3 miiljónir dollara. Það er systurskip Selárinnar og
Skaftárinnar, sem reynst hafa Hafskipi vel. ÖU eru skipin svonefnd fjölhæfn
isskip.
DS
Dæmdurfyrir
ofhátt verð
á ýsuflaki
Jón Sigurðsson, kaupmaður í
versluninni Straumnesi í Breiöholti,
var síðastliðinn þriðjudag dæmdur i
Sakadómi Reykjavíkur til að greiða
sekt, fimm þúsund krónur, fyrir að
hafa þann 19. apríl í fyrra selt ýsuflak
á verði sem var tólf af hundraði hærra
en leyfilegt var. Dómnum hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Kaupmaðurinn var talinn hafa brot-
ið gegn verðlagslögum og ákvöröun
Verðlagsstofnunar með því að selja
ýsuflak á verði sem svarar 27 krónum,
hvert kíló, meðan leyfilegt verð var
rúmar24krónur.
Dóminn kvað upp Haraldur Henrýs-
son sakadómari. Verjandi kaupmanns-
ins var Sveinn Snorrason hæstaréttar-
lögmaður. -KMU.
Unnar kjöt-
vörurhækka
í verði
Unnar kjötvörur, svo sem pylsur,
kjötfars og fleira þess háttar, hækka í
verði í dag. Verðhækkunin er á bilinu
20,6—23,9%. Er þetta vegna þeirrar
verðhækkunar sem varð á kjöti i upp-
hafi mánaöarins. Kjötfarskilóið fer nú
úr 55,50 krónum í 67,70 krónur. Kíló af
pylsum hækkar úr 86,90 krónum í
104,80 krónur. " DS
Nærfjörutíu
árekstrará
fimm tímum
Um f jörutíu árekstrar urðu í Reykja-
vík á tímabilinu frá klukkan 16.30 fram
til kl. 22 í gær. Nær allir árekstrarnir
voru minni háttar og orsakavaldurinn
var í flestum tilvikum gríðarieg hálka,
sem myndaðist í höfuðborginni seinni
partinnígær.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
urðu alls 45 árekstrar í gærdag. A
meðan árekstrarbylgjan stóð yfir fóru
lögreglumenn nánast beint úr einum
árekstriyfiríannan. -JGH
Vinnuslys í Glit:
Klemmdist
áfingrum
Vinnuslys varð í leirbrennslunni Glit
við Höfðabakka 9 á níunda tímanum í
gærkvöldi.
Atvik voru þau að ungur starfs-
maður fyrirtækisins var að mylja leir
og vildi þá svo óheppilega til að hann
klemmdist á fingrum er hann lenti með
finguma á milli tveggja valsa, sem eru
við mulningsvél.
Að sögn eins starfsmanns fyrirtækis-
ins í morgun er maðurinn ekki eins
mikið meiddur og leit út fyrir í gær-
kvöldi en hann var samt enn á Borgar-
spítalanum í morgun. -JGH
Áreksturá
Höfðabakka
Harður árekstur varð rétt viö Höfða-
bakkabrúna laust eftir hádegið í gær.
Lentu þar tveir bílar, Toyota og Ford
Escort, saman með þeim afleiðingum
að kona úr Toyotunni var flutt á slysa-
deild. DV er ekki kunnugt um hve
meiðsli hennar eru mikil. JGH