Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Blaðsíða 6
6 ' DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Bragðprófuná páskaeggjum:
Öll fengu
eggin góða
dóma
Hin árlega bragöprófun á páska-:
eggjum fór fram á ritstjórn DV núna
fyrir helgina. Blaöamenn glöddust eins
og börn þegar komið var meö eitt egg
frá hverjum framleiðendanna þriggja.
Eggin voru öll keypt í sömu verslun-
inni, Víði í Starmýri. Þau voru ámóta
stór en nokkuð misjafnlega þung.
Eggið frá Nóa var 410 grömm. Það
kostaði 151 krónu. 1 því var poki af
hrískúlum, málsháttur, 3 kúlur, 4
brjóstsykurmolar, 5 konfektmolar og 3
karamellur. Utaná var ungi.
Eggið frá Mónu var 320 grömm. Það
kostaði 128 krónur. I því voru 10 kúlur,
11 konfektmolar og málsháttur. Utan á
var sykurkarl og ungi.
Eggið frá Crystal var 500 grömm og
kostaði 198 krónur. I því voru 10
konfektmolar og málsháttur. Utan á
varsúkkulaðimoli í bréfi og ungi.
öll fengueggingóðadóma.Umegg-
ið frá Nóa var sagt að það væri: best,
mjög gott, í miöjunni af gæðum eggj-
anna, í því væri ekta rjómasúkkulaöi,
eins og svissneskt súkkulaði, mjög gott
fyrir börnin, því mikið væri innan í því,
of sætt, of þunnt í því súkkulaöið, væm-
ið og mjög líkt og eggið frá Mónu.
Eggið frá Mónu fékk eftirfarandi
dóma: best, mjög gott, passlega sætt,
úr dekkra súkkulaði en Nóa eggið,
skárra en hin eggin, meira fyrir eldra
fólkið en það yngra, bestu kaupin, of
sætt og sætara en Nóa eggið.
Eggiö frá Crystal fékk þessa dóma:
best, mjög frambærilegt, gott, þykkast
í því súkkulaðiö, vantarmeiri fyllingu,
of lítiö innan í því, of mikiö dropabragð
af súkkulaðinu, frískast, áberandi best
og verst.
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu eru dómar manna misjafnir. Það
sem einum þykir gott finnst öðrum af-
leitt og öfugt. En í heild fengu eggin
eins og fyrr sagði góða dóma. Menn
voru sammála um að öll væru þau þess
virði að kaupa þau, ef menn á annað
borð vildu eyöa fjármunum sínum í
svona hiuti. Hvort það er skynsamlegt
skal hins vegar ekki lagöur á dómur.
DS
Myndbönd
vanmerkt
— upplýsingar á íslensku vantar
— Einsogframhefurkomiðífjöl-
iölum undanfarið eru mikil brögð að
’í að myndbönd sem leigð eru út á al-
ennum markaði séu vanmerkt. —
eð þessum orðum hefst ályktun frá
jórn Neytendafélags Reykjavíkur og,
igrennis. Stjómin vill vekja athygli
úrra sem starfa við sölu, útleigu eða
ra dreifingu á myndböndum á með-'
annars vanmerkingum.
t ályktun stjómarinnar segir enn-
smur: Oft er erfitt fyrir neytandann
i átta sig á því hvaða myndefni er á
boðstólum. Sérstaklega hefur verið
bent á það hvemig skeytingarleysi af
þessu tagi bitnar á bömum, því að oft
vill brenna við að myndir, sem ekki eru
við hæfi barna, séu ekki auðkenndar
eðavið þeimvarað.
Slíkt er í senn vanræksla gagnvart
neytendum og brot gegn lögum um
vernd bama og unglinga.
Stjómin vill jafnframt benda á það
aðmerking á myndböndum almennter
ófullnægjandi. Þannig verður val neyt-
enda á myndefni meira og minna
tilviljunum háð og oft „leigja þeir kött-
Fái ungbörnin
ekki nógað
borða verða þau
greindarskert
Fái börn ekki næga næringu í
fmmbernsku leiöir það til þess að
heilinn stækkar ekki eölilega, sem
veldur aftur greindarskorti. Þetta
kom fram í erindi dr. Myron Winick,
forstöðumanns Næiingarstofnunar
Columbiaháskólans í New York, á
aðalfundi Manneldisfélagsins, sem
haldinn vará dögunum.
Með rannsóknum hafa menn kom-
istaðþvíaðíupphafi bemskufjölgar
öllum frumum mjög hratt. Síðan
kemur tími þar sem f rumunum f jölg-
ar hægar en þær stækka. Loks kemur
tími þar sem frumum hættir aö
fjölga en þær sem fyrir em stækka.
Fmmum í heila manna fjölgar mest
fyrir fæðingu og fyrsta æviárið. 1
löndum þriðja heimsins, þar sem
vannæring bama er mikil, hefur
komið í ljós að hún kann að valda um
30% greindarskerðingu, fyrir nú ut-
an allan þann mikla ungbamadauöa
semfylgir þessum vágesti.
I Bandaríkjunum hafa börn sem
ættleidd voru frá Kóreu verið rann-
sökuð. 1 ljós kom að ef börnin voru
ættleidd mjög ung náðu þau sér vel á
strik og greindþeirra náðivelmeðal-
lagi. En ef bömin vom orðin þriggja
til fimm ára þegar þau voru ættleidd
varð námsárangur þeirra verri og
greindarvísitalan lægri en hjá hinum
hópnum. En greind þeirra varð samt
umtalsvert meiri en þeirra bama
sem kyrr vom heima í næringarleys-
inuíKóreu. DS
Bömin í þriöja heiminum sem
þjást af næringarskortí varða iík-
lega greindarskert vegna þess að
þau fengu ekki nóg að borða i
frumbernsku.
Eggin þrjú. Þau voru númeruð og reynt að koma i vag fyrir það eins og
unnt var að mann vissu hvað var frá hverjum framlelðanda.
Blaðamenn glöddust eins og böm aðfáað bragða á páskaeggjunum.
DV-myndir Bj.Bj.
Neytendafóiag Reykjavikur og nágrennis bendir á að lélegar merkingar á myndsegulböndum bitni sér-
staklega iiia á börnum.
DV-mynd S.
inn í sekknum”. Skorað er á þá aðila
sem annast þessa þjónustu aö bæta hið
bráðasta úr merkingum á myndbönd-
um.
Greinargóðar upplýsingar á íslensku
ættu aö fylgja hverri mynd, þar sem
fram kæmu allar helstu upplýsingar
sem að haldi mættu koma fyrir neyt-
endur. -ÞG