Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Blaðsíða 14
14’ DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS1983. MEÐ BJÓRNUM? AFNÁM TEKJUSKATTS? Spumingar og svörá beinni línu til Geirs Hallgrímssonar Menn spurdu ólíkustu spurninga á Beinni línu á DV til Geirs Hall- ingar sem varpad var fram en svörin og spurningarnar sem hér fara á grímssonar, formanns Sjálfstædisflokksins, í gœrkvöldi. Hringt var eftir eru unnin af bladamönnunum Jóni Baldvin Halldórssyni, Sigurði hadanœva af landinu svo síminn þagnaði ekki augnablik þá einu og Pór Salvarssyni, Ólafi E. Friðrikssyni, Kristjáni Má Unnarssyni og hálfu klukkustund sem Beina línan stóð yfir. Eins og skýrt var frá þegar Jóni G. Haukssyni. boðað var til þessa verður ekki unnt að birta allar þœr fjölmörgu spurn- -óm Yfirlýsing Gunnars— léttir? Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði, spurði hvort sú yfirlýsing Gunnars Thoroddsen að fara ekki í framboð hefði verið léttir fyrir formann Sjálf- stæðisflokksins? Geir: „Þaö er vitaskuld fagnaöar- efni að Gunnar Thoroddsen lýsti því yfir aö hann færi ekki í framboð gegn Sjálfstæöisflokknum. Ég var nú reynd- ar búinn aö lýsa því yfir á flokksráðs- fundi um mánaöamótin nóvember- desember aö ég tryöi því ekki aö til þess myndi koma. Eg tel einsýnt aö viö sjálfstæðismenn munum ganga sam-| einaöir til kosninga og þaö er áuðvitaö sérstakt ánægjuefni. ” Ægir spuröi einnig um hvort sjálf-: stæðismenn myndu fella bráöabirgöa- lögin sem hugsanlega kæmu um kíló- gjald á bifreiðir? Geir: „Viö vorum á móti þessu lagafrumvarpi og við munum auövitaö reyna að hrinda slíkum lögum ef mögulegt er. Viö teljum aö ríkisstjórnin hafi tekiö tekj- ur af umferöinni of mikiö í almennar þarfir í staðinn fyrir að verja þeim til vegagerðar.” JBH Samningarvið Alusuisse? Steingrímur Haraldsson, Reykjavík, spurði hvað Sjálfstæöisflokkurinn kæmi til meö aö gera til aö fá Alusuisse til samninga um hækkaö rafmagns- verð ef hann kæmist í stjórn: „Eg held að því sé svarað meö flutn- ingi þingsályktunartillögu í álmálinu, sem samkomulag varö um meö Sjálf- stæðisflokknum, Alþýöuflokknum og Framsóknarflokknum, að fá fram í byrjun nokkra hækkun á raforkuverö- inu, síöan leggja deilumálin í gerö og fara svo að semja um verulega hækkun í framhaldi af því,” svaraði Geir. Steingrímur spuröi einnig hvort raf- magn til allrar stóriöju á Islandi ætti að vera á sama veröinu: „Mér fyndist þaö eðlilegt aö bæði Járnblendiö og Áburðarverksmiðjan, sem eru á líkum samningum, fylgdu meö.” -KMU. Alagning hækkar Siguröur Sóphusson, Garöabæ, nefndi það aö álagningarprósentan er að hækka og spuröi hvort þaö væri vor- gjöf frá ríkisstjórninni eöa verðlags- stjóra? Geir: „Ég held aö þaö sé hvort tveggja.” Hann taldi einnig aö langt- um betra væri aö afnema allar álagn- ingarreglur, örva samkeppni og láta kaupmenn berjast um hylli kaupenda. -JBH Fjölskyldan Trausti Jónasson í Hafnarfirði spurði hver væri stefna Sjálfstæöis- flokksins í f jölskyldumálum. Geir: „Stefna okkar sjálfstæðis- manna hefur frá upphafi veriö sú aö f jölskyldan sé hornsteinn þjóöfélagsins og við viljum búa henni sem best skil- yröi. Viö núverandi atvinnuhætti felst þaö í aö foreldrum veröi gert kleift að skipta með sér uppeldi ungu kyn- slóðarinnar og í því augnamiöi viljum við koma á samfelldum skóladegi og sveigjanlegum vinnutíma. ’ ’ Trausti spuröi þá hvort núverandi skattalög, sérsköttun hjóna, væru ekki ósvífni gagnvart fjölskyldunni og hvort Sjálfstæðisflokkurinn vildi breyta þessu. „I fyrsta lagi viljum viö afnema tekjuskatt á almennar launatekjur og í ööru lagi viljum viö skipta ■ tekjum hjóna á milh þeirra fyrir álagningu skatts,”sagðiGeir. Enginn möguleiki útilokaður Bjarni Helgason í Reykjavik spurði hvort Sjálfstæöisflokkurinn myndi aft- ur gefa Alþýðubandalaginu siðferðis- vottorö með því aö standa aö ríkis- stjórn ásamt því eins og ráöherrar Sjálfstæöisflokksins í núverandi ríkis- stjórnheföugert. „Viö viljum ekki gefa neinar yfirlýs- ingar um það fyrir kosningar aö hvaöa ríkisstjórnarsamstarfi æskilegt væri að stefna,” sagöi Geir. „Við ætlum ekki að láta Framsóknarflokknum þaö eftir aö hlaupa á milli flokka og við viljum ekki hlaupa á milli. En viö viljum miöa okkar stjórnarþátttöku viö stefnu og aö hvaö miklu leyti við náum okkar stefnu fram. Þar veröur auövitað efst á dagskrá, fyrir utan sjálfstæðismál þjóðarinnar, veröbólg- an og efnahagsmálin, sem segja má aö séu einnig sjálfstæöismál eins og nú er komið. Þaö væri óeðlilegt aö ætlast til þess aö ég færi aö útiloka einhvern eöa segja til um aö hvaða ríkisstjórn væri stefnt, en viö stefnum auövitaö aö því að ná meirihluta.” Get vel myndað st jóm Guðmundur Bjarnason, Garðabæ, spurði hvort Geir teldi það styrk fyrir Sjálfstæöisflokkinn aö formaður hans gæti ekki myndað stjórn. Formaðurinn heföi reynt stjórnarmyndun tvisvar en ánárangurs. „Nei, ég tel þaö nú ekki styrk, enda tel ég að formaður hans geti vel mynd- að stjórn ef út í það verður farið,” svaraöi Geir. „Þú átt við stjórnarmyndunina ’79 til ’80. Þá var enginn vandi að mynda stjórn. Eg hefði getað myndaö stjórn eins og skot heföi ég viljaö sætta mig viö að ekki voru komnir samningar á milli stjórnaraðila um aðgerðir í bar- áttunni gegn verðbólgunni. Þú sérö hver reynslan er af núverandi ríkis- stjórn. Þaö var enginn vandi aö mynda hana út af fyrir sig. Vandinn er að koma sér saman um raunhæfar að- gerðir og á því veltur. Eg kæri mig ekki um aö mynda stjórn ef hún gerir ekkigagn.” Móðgunað bjóða upp á Pálma? Hinrik Stefánsson, Vestur-Húna- vatnssýslu, sagði að sjálfstæðismönn- um í kjördæminu væri boöiö aö kjósa Pálma Jónsson. „Finnst þér þaö ekki vera móðgun viö okkur sjálfstæðis- menn hér aö bjóða okkur upp á þetta?” „Eins og þú veist, þá fór fram próf- kjör og þó aö viö getum kannski haft mismunandi skoðanir um þá sem tóku þátt í því prófkjöri þá voru þeir sem tóku þátt í því skuldbundnir til aö hlíta úrslitum þess. Þaö hafa gengið yfirlýs- ingar um það aö menn stefndu ekki að sams konar stjórnarmynstri eftir kosningar eins og verið hefur viö lýði síöustu þrjú árin. Eg tel því aö fram- bjóöendur Sjálfstæðisflokksins í Noröurlandskjördæmi vestra gangi sameinaðir til kosninga eins og annars staöar í landinu,” sagði Geir. Hinrik spurði einnig hvort einhver tfygging væri fyrir því aö sama stjórn- armynstur yröi ekki aftur: „Já, ég held að þaö liggi alveg ljóst fyrir. Það eru allir aöilar búnir að lýsa því yfir í raun og veru, ” svaraöi Geir. -KMU. Úthlaup í álmálinu Kristinn Hermannsson, Selfossi, spuröi Geir hvort hann teldi aö skrif Morgunblaösins í álmálinu og úthlaup Guömundar Þórarinssonar væru til þess fallin aö auka samstöðu Islend- inga: „Já. Eg tel þaö. Eg tel að stefna sú, sem þrír flokkar á Alþingi, Alþýðu- flokkur, Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur, komu sér saman um sé líkleg til þess aö rjúfa þessa sjálfheldu sem álmáliö er komið í vegna aögeröa Hjörleifs Guttormssonar. Okkur skipt- ir miklu máli aö fá hækkaö raforku- verð og sömuleiðis aö útkljá eldri deilumál. En málið var algerlega stöövaö í höndum iönaöarráöherra og það þurfti eitthvað aö gera í málinu,” svaraöi Geir. Húsnæðismál Björgvin Kristjánsson, Reykjavík, spurði um afstööu Sjálfstæöisflokks- ins, undir stjórn Geirs Hallgrímsson- ar, til húsnæðismála? Geir: „Við munum setja húsnæðis- máhn á oddinn í komandi kosningabar- áttu, haldandi í heiöri þeirri stefnu aö allir sem vilji geti eignast þak yfir höfuðið. Við munum stefna aö því aö þeir sem byggja í fyrsta skipti fái lán allt að 80% af byggingarkostnaöi og meö hagkvæmum kjörum.” JBH Framkvæmda- stofnun? Jón Trausti Markússon, Búöardal, spuröi hver stefna Sjálfstæðisflokksins væri gagnvart Framkvæmdastofnun ríkisins: „Við viljum endurskoöa starfsemi hennar ásamt meö ýmsum öðrum stofnunum, eins og til dæmis öörum sjóðum, lánastofnunum, Húsnæöis- stofnuninni, fjárfestingalánasjóöum almennt og ríkisbönkum. Þó vil ég taka fram aö viö erum ekki meö því aö gera þaö aö tillögu okkar aö leggja Byggöasjóð niöur. Hann var stofnaður í stjórnartíð okkar í Viðreisnarstjórn- inni, þá undir nafninu, minnir mig, At- vinnujöfnunarsjóöur,” svaraði Geir. -KMU. Trygging at- vinnuöryggis? Agnar Breiöfjörð Kristjánsson, Reykjavík, spyr: Hvaö er á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins varðandi aldraða ogöryrkja? Geir: Við munum í fyrsta lagi tryggja tekjur þessara þjóöfélagshópa í gegnum Tryggingastofnun ríkisins. I öðru lagi munum við beita okkur fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.