Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞREÐJUDAGUR22. MARS1983. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Ragnar f *r nýjan bB. Á þessum síðustu og erfiðustu Þa5 vekur athyglí aö á sama tíma og sagt er upp mannskap í Álverinu í Straumsvík og boriö viö erfiðri fjárhagsstöðu og á meðan spöruð eru útgjöld við hreinsun í vinnusal, kaupir fyrirtækið nýjan bU handa forstjóranum. Það er heldur ekki nein drusla! Það er BMW af fínustu gerð og kost- ar vist 840 þúsund krónur. Hvað ætli það séu mörg árs- laun verkamanns? Fjarskalegur Það var maður sem aug- lýsti gamla bUinn sinn tU sölu um daginn og sagði hann vera „fjarskaiega faUegan”. Þegar seljandinn var spurður, hvað hann meinti með þessu orðalagi, saraði hann: „Jú, bUlinn er faUegur, séður úrfjarska.” Seðla austur Sjónvarpið hefur nú fengiö verðugt svar við innheimtu- auglýsingunni. Sandkorni hefur borist tU eyrna að inn um dyrnar hjá „innheimt- unni” hafi úndið sér Sæmund- ur Óskarsson stórkaupmaður og spurt í fyrstu hvort maöur væri ekki velkominn hér. Því mun hafa verið svarað ját- andi. Hann framvísaði þá reikningnum og fékk greiðslustimpU. Að því loknu seUdist hann í vasann og tók upp seðlavöndul mikinn af tiköllum einvörðungu. Og áður en starfsfólk gat áttað sig hóf hann að ausa seðlunum upp í loftið og yfir fólkið. Inn um dyrnar stóð trekkur nokkur svo úr varð aUmikið seðlasvif. Sæmundur hvarf síðan af vettvangi en nærstaddir heyrðu hann mæla: „Nú er það ekki svona sem þið vUjið hafa það?” Færi vel á að landsmenn tækju upp þennan greiðslu- máta afnotagjaldanna... Auglýsinga- raunir Nú hafa auglýsingastofur sagt að samanburðaraug- iýsingar Flugleiða séu ósiðlegar. En það eru fleiri, sem gætu lent í klandri. Þannig eru nú auglýst Nóa- páskaegg undir því slagorði að nú fari Nói í hörkusam- keppni við hænurnar. En ein- hverjir samkeppnisaöUar í súkkulaðieggjabransanum munu vera óánægðir mcð þessa auglýsingu. Manni finnst þaö nú dálítið skrýtið, það væri eðlilegra ef eggja- bændur færu í fýlu. Hvort kom á undan... ? Hvar er vara- dekkið? Tveir menn hittust á bUa- sýningu og tóku tal saman, um bíla auðvitað. Annar var að hugsa um að fá sér bU og hafði augastað á tveggja ára gömlum Benz, sem var á einni bUasölunni. Hinn vUdi meina að það væri betra að fá sér Chevrolet, hann hefði verið á sínum í átta ár. „Já, en Bcuzinn er svo vel farinn, það hefur aidrei verið hreyft á honum varadekkið!” sagðí þá hinn. „Varadekkið! Ég veit ekki einu sinni hvar varadekkið er á Chevrolettin- um mínum.góði!” Umsjón: Öiafur B. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir Regnboginn—Týnda gullnáman ÁGÆT SPENNUSTUND Regnboginn, salur A, Týnda gullnáman (Mother Lode) Stjórn: Charlton Heston. Handrit: Fraser Heston. Kvikmyndun: Richard Leitermann. Tónlist: Ken Wannberg. Aðalhlutverk: Charlton Heston, Mick Mancuso, Kim Basinger. Framleiðandi: Fraser Heston. Gullleit er umfjöllunarefni gönúu kempunnar Charlton Hestons í nýrri kvikmynd sem hann leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í. Það er sonur hans, Fraser, sern gerir handrit þessarar myndar, auk þess aö vera framleiðandi þessa ævintýris föður síns. I skemmstu máli sagt er Týnda gullnáman ágæt afþreyingarmynd þar sem saman fer nokkur spenna, sæmilega hröö atburðarás, nokkuð dularfuU og mögnuð á köflum og skemmtileg sviðsetning, víðlendar óbyggðir, illkleif fjöU og fjallavötn og draugaleg jarögöng. Allt birtist þetta út frá áhugaverðu sjónarhorni kvikmyndavélarinnar. Myndin segir okkur frá leit tveggja ungmenna að jarðeðhs- fræðingi sem ekki hefur komiö til byggða eftir rannsóknir sínar á týndri gullæð í óbyggöum Kanada. Þau ákveða aö fljúga tU þess staðar þar sem fræðingurinn er talinn hafa haldið tU. Þau lenda á fjallavatni mitt á miUi hárra fjaUa og hUðar- vindur veldur því aö flugvélin .„krassar” á vatninu og sekkur. Ung- mennin komast þó Ufs af. Þau fara fljótt aö kanna þetta umhverfi sem þau hafa hafnað í, skjótt komast þau að því að þau eru ekki einsömul á svæöinu. Þau hitta fyrir bandarískan guUleitarmann sem leitað hefur týndu guUæðarinnar í þrjátíu ár. Hann hefur gert mikil göng inn í nær- liggjandi fjall og í tristri þrá eftir gullinu leitar hann dag og nótt þess- arar dulúögu æöar sem fengið hafa fleiri en hann tU að sprengja sér leið inn í hættulegt bergiö. Eftir því sem þau kynnast þessum manni betur komast þau að því aö fleiri en hann eiga leiö um námurnar. Þau ákveða að komast að því hver er þar á ferð — ogferþáýmislegtaðgerast. .. Charlton Heston, sem leikur 'bandaríska gulUeitarmanninn, kemst vel frá hlutverki sínu sem hinn kaldrifjaöi og ógnvekjandi gull- leitarmaður óbyggðarinnar. Hann bítur á jaxlinn sem fyrr í átaka- senunum og dularfuUa augnaráöið er tUstaðarþess ámUU.MickMancuso og Kim Basinger, sem leUia ung- mennin, komast einnig klakkiaust frá sínum hlutverkum. Það er ævintýrablær yfir þessari mynd og verður að taka henni sem slíkri. Söguþráðurinn er víðast hvar ótrúverðugur og yfirskilvitlegt er hvernig helstu persónunum tekst að sigla fram hjá mestu hættunum er að þeim steðja. En ef því er sleppt er hægt að hafa gaman af atburða- rásinni. Kvikmyndatakan er á tíðum fögur og hjálpar annars litlum söguþræði oft mikiö. Þá hentar tónUst mynd- arinnar efniviðnum vel. Að öðru leyti skal ekki f jölyrt um þessa kvik- mynd þeirra feðga Charltons og Frasers Heston. Hún er dæmigerð afþreyingarmynd sem skUur lítið sem ekkert eftir, nema ágæta spennustundíbíó. -Sigmundur Emir Rúnarsson. Gamla kempan Charlton Heston leikstýrir og leikur sjálfur aðaihlut- verk í myndinni sem hér er tU umf jöUuuar. Kvikmyndir Kvikmyndir KVENNALISTANN Í REYKJANESKJÖRDÆMI vantar húsnæði fyrir kosningastarfsemi strax. Upplýsingar í síma 54915eftir kl. 18. Kvennalistinn í Reykjaneskjördæmi Háskólafyrirlestur Fimmtudaginn 24. mars flytja tveir hagfræðingar frá Stokk- hólmsháskóla fyrirlestur í boði viðskiptadeildar Háskóla íslands. Fyrirlesararnir eru íslendingurinn Birgir Björn Sigurjónsson og Svíinn Dag Lindskog og nefnist erindi þeirra, sem flutt verður á ensku: Hækkun olíuverðs og efnahagsþró- un: Samanburður á Norðurlöndunum fimm. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi og hefst kl. 17.15. Öllum er heimill aðgangur. (Frétt frá Háskóla íslands) ^ Hafnarfj örður — kj örskrá Kjörskrá fyrir Hafnarfjörð vegna alþingiskosninga, sem fram eiga að fara 23. apríl 1983, liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni, Strandgötu 6 Hafnarfirði, alla virka daga nema laugardaga frá 22. mars til 8. apríl nk. kl. 9.30—15.30. Kærur vegna kjörskrár skulu hafa borist skrifstofu minni fyrir 8. apríl nk. Hafnarfirði, 18. mars 1983. BÆJARSTJÓRI. AÐALFUNDUR Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn 22. mars 1983 kl. 20.30 að HóteL Esju, 2. hæð. DAGSKRÁ SAMKVÆMT FÉLAGSLÖGUM. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.