Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Síða 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS1983.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS1983.
DÚNÚLPUR S-M-L-XL
Varð áflur kr. 1.898,-
Verðnú kr. 1.328,-
TORINO kr. 698,-
Nr. 38-48
KÖLN kr. 449,- - 490,-
Nr. 29-39
EVROPASTAR kr. 624,-
Nr. 38-42
ALLT MEÐ
30%
AFSLÆTTI
Jtretch skiðabuxur
Skiðagleraugu
ikíðaúlpur
Eyrnaskjól
Skiðalúffur
ikíflahanskar
)únvatthúfur
Vloon Boots (lítil nr.)
Skíðahúfur
Sarnaskíðagallar
nr. 116-176).
SCHOKO HATTRICK kr. 483,-
Nr. 30-48
TRX TRAINING kr.723,-
Nr. 36-49
SCHULSPORT
Nr. 33-47
kr.549,- TRXJUNIOR
Nr. 25-33.
kr. 417,-
GÖLFSSTRÆTI8,
ÍM112024.
— kastaði spjótinu 85,12 m, sem er 3,90 m lengra en gamla metið hans
Einar Vilhjálmsson — spjótkastar-
inn stórefnilegi frá Borgarfirði, setti
gUesilegt íslandsmet í spjótkasti á
frjálsíþróttamóti í Los Angeles á
laugardaginn. Að sjálfsögðu bar hann
sigur úr býtum í mótinu. Einar kastaði
spjótinu 85,12 m, sem er hvorki meira
né minna en 3,90 m lengra en gamla
metið hans var — 81,22 m, sem hann
setti á Laugardalsvellinum 5. ágúst
1981. Þessi árangur Einars er sá besti
sem náðst hefur í Bandaríkjunum í ár
Sverrir í Fylki
Sverrir Brynjólfsson, sem verið
hefur einn besti leikmaður Þróttar i
knattspyrnunni mörg undanfarin ár,
tilkynnti um helgina félagaskipti í
Fylki og mun leika með Árbæjarliðinu
í 2. deild i sumar.
Fylkir lék tvo æfingaleiki um helgina. Gerði
jafntefli 3—3 við KR á laugardag en sigraði
ísfirðinga 4—1 á sunnudag.
-hsím.
HilmartilVals
Hilmar Harðarson hefur ákveðið að
gerast leikmaður með 1. deildarliði
Vals i knattspyrnu að nýju. Hilmar,
sem er mjög leikinn sóknarleikmaður,
lék með Val 1981, en sl. sumar iék hann
með Iluginn á Seyðisf irði.
-SOS.
og er Einar nú kominn í hóp fremstu
spjótkastara Norðurlanda.
Það er óhætt að segja að þetta sé að-
eins fórsmekkurinn af þvi sem koma
• Þórdís Gísladóttir.
skal hjá Einari, því aö keppnistíma-
bilið utanhúss í Bandaríkjunum er rétt
að byrja. Einar er mjög ánægður með
þennan árangur og segist vera bjart-
sýnn á sumarið. — Það er ýmislegt
sém ég þarf að lagfæra og mun ég gera
það á næstunni, sagöi Einar.
Óskar Jakobsson úr ÍR tók þátt í
mótinu og keppti hann í kúluvarpi —
varð annar, meö því að kasta 19,38 m.
Það er greinilegt að Oskar er ekki
búinn að ná sér góðum af þeim
meiðslum sem hann hefur átt við að
stríða. Oskar varð sigurvegari í
kringlukasti í Los Angeles — kastaði
59,73 m ogvarðannaríkúluvarpinu.
Oddur Sigurðsson úr KR keppti í 400
m hlaupi og varð fjórði — hljóp vega-
lengdina á 47,37 sek., sem er langt frá
hans besta. -SOS.
Einar Vilhjálmsson.
Þórdís setti íslandsmet í Alabama: ■ ' ■
( )g vai rvel o lyfi ir 1 o íæð
Ni irður land lam let sins!
felldi naumlega. Vésteinn og Siguröur Einarsson sigruöu í Florída
Litlu munaði að Þórdis Gísladóttir,
ÍR, setti nýtt Norðurlandamet í há-
stökki kvenna á móti í Tuscaloosa í
Alabama um helgina. Hún reyndi við
1,92 m og var vel yfir hæðinni en felldi
naumlega á niðurleið. Áður hafði
Þórdís sett nýtt íslandsmet utanhúss á
mótinu, stökk 1,87 m og bætti eigið met
um einn sentímetra. Nýlega stökk hún
innanhúss 1,88 m.
Vésteinn Hafsteinsson, Selfossi,
sigraöi i kringlukasti á miklu frjáls-
íþróttamóti í Florida um helgina.
Kastaöi 59,16, sem er nálægt hans
besta. Hann varð fimmti í kúluvarpi
með 17,05 m og það er í fyrsta skipti
sem Vésteinn varpar kúlu yfir sautján
metra. Átti best áður 16,99 m.
Keppendur á mótinu voru um 1500 og
Sigurður Einarsson, Ármanni, sigraði
í spjótkasti með 68,92 m. Pétur
Guðmundsson varpaði þar kúlu 16,06
m og Iris Grönfeldt kastaði spjóti 44,68
m. -hsím.
/5?i
fermingargjöf
íþró ttamannsins
i Spörtu
8 > a m afsíáttur AF ÖLLUM
<|| U/a skíðafatnaði og
WW / " skíðaskóm út mars Mwi
adidas ^ fótboltaskór - adidas ^iþróttaskór
STEFAN SKfÐASKÚR
Verð áflur kr. 870,- — 1.286,-
Verð nú kr. 469,- — 899,-
SUPER CUP
Nr. 38-46.
kr. 1.343,-
AVUS
Nr. 38-44
kr. 782,-
UNIVERSAL
Nr. 36-49
kr.769,-
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
Valur íslandsmeistari í körfuknattleik:
„Sönnuðum það að
við erum bestir”
Sagt eftir leikinn:
„Frábær leikur”
- sagði Jim Dooley landsliðsþjálfari
„Eg vil bara nota tækifærið og óska Valsmönnum til
hamingju með frábæran sigur,” sagði Jim Dooley, lands-
liðsþjálfari í körfuknattleik, eftir leikinn í gærkvöldi.
„Valsmenn unnu í þessum leik en Keflvíkingar sigruðu
á áhorfendapöllunum. Þetta var frábær leikur og
stemmningin meö ólíkindum.
Hvað varðar úrslitaleikinn í bikarkeppninni á fimmtu-
daginn þá munum við iR-ingar mæta hér. Og viö skulum
bíða og sjá hvað gerist. Viö munum ekki gefa þumlung
eftir og Valsmenn veröa að leika eins og sannir meistarar
eigi þeir aö vinna okkur á fimmtudaginn,” sagði Jim
Dooley.
-SK.
„Erum á toppnum”
— sagði Leifur Gústafsson
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég verð islandsmeistari
með meistaraflokki og það þarf ekki að hafa mörg orð um
það hversu ánægður ég er,” sagði hinn ungi og efnilegi
Valsmaður, Leifur Gústaf sson, eftir leikinn.
„Eg hef f jórum sinnum leikiö til úrslita á Islandsmóti í
körfuknattleik meö yngri flokkunum og alltaf tapaö.
Þetta var því mjög kærkominn sigur. ’ ’
Hvað með úrslitaleikinn i bikarnum á fimmtudag?
„Mér líst mjög vel á hann. Valsliðið er á toppnum í dag
og þetta hefur allt smollið saman hjá okkur nú síðustu
vikur. Við stefnum að tvöföldum sigri,” sagði Leifur.
-SK.
„Hræktu á okkur”
— sagði Torfi Magnússon
„Ég hef aldrei á minum ferli fengið aðrar eins móttök-
ur við verðlaunaafhendingu. Áhangendur Keflavikurliðs-
ins hræktu á okkur og voru meðputta á Iofti,”sagði Torfi
Magnússon, fyrirliði Vals, eftir að hann hafði tekið við
Islandsmeistarabikarnum í gærkvöldi.
„Annars vorum við betri í þessum leik og höfum verið
það i vetur. Viö erum með mestu breiddina af öllum lið-
unum og það ér gífurleg barátta um sæti í liöinu. ”
-SK.
„Góð liðsheild”
— sagðiTim Dwyer
„Keflvíkingar léku vel hér í kvöld og ég verð að segja
eins og er að ég er ánægður, með að þurfa ekki að leika
oftar gegn þeim,” sagði Tim Dwyer eftir leikinn.
„Við lékum sem ein heild og unnum leikinn allir tíu. Þó
voru þeir Kristján Torfi og Ríkharður sérstaklega góðir í
þessum leik. Það var gaman að leika fyrir framan svo
marga áhorfendur.”
-SK.
Leikurinn
í tölum
Helstu tölur úr leiknum í gærkvöldi:
• Tim Dwyer var með skotnýtinguna 7/17 eða 41,2%.
Torfi Magnússon 6/17 eða 35,2%, Ríkharður Hrafnkels-
son 10/21 eða 47,7%, Krlstján Ágústsson 9/14 eða
64,3%. Tim tók 12 fráköst og þeir Torfi og Kristján 7
hvor.
• Brad Miley hafði nýtinguna 8/12 eða 66,6%, Jón Kr.
10/20 eða 50,0%, Áxel Nikulásson 11/20 eða 55,0% og
Þorsteinn Bjarnason 5/13 eða 38,5%. Miley tók 19 frá-
köst, Jón Kr. 6 og þeir Axel og Þorsteinn 5 hvor.
• Heildarskotnýting hjá Val var 35/79 eða 44,3%, en hjá
ÍBK 38/71 eða 53,5%. Heildarvítanýting hjá Val var
18/23 eða 78,3% og hjá ÍBK11/20 eða 55,0%.
• Valsmenn töpuðu knettinum átta sinnum í leiknum en
Keflvíkingar tuttugu sinnum.
—Þ.S./SK.
— sagði Tim Dwyer, þjálfari Valsmanna, sem unnu
Keflvíkinga 88-87 í spennandi leik
„Við erum bestir í dag. Það sönn-
uðum við með þessum sigri,” sagði
Tim Dwyer, þjálfari og leikmaður Vals
í körfunni, eftir að Valsmenn höföu í
gærkvöldi tryggt sér íslandsmeistara-
titilinn með því að sigra Keflvíkinga í
hreinum úrslitaleik í Laugardalshöll.
Lokatölur urðu 88—87, eftir að staðan í
leikhléi hafði verið 45—43 Val í vil.
Leikurinn var stórkostlegur í alla staði
og þeir 1600 áhorfendur sem mættu á
áhorfendapallana fengu mikiö fyrir
aurinn sinn.
Valsmenn höföu forystu, 88—80,
egar ein mínúta og fjörutíu sekúndur
vorú til leiksloka, en þá kom góður
afli hjá Keflavík og þeir skoruðu síð-
stu sjö stigin í leiknum. Þegar 16
sekúndur voru til leiksloka var staðan
88—87 Val í vil og Valsmenn með knött-
nn, sem þeir misstu örstuttu síðar til
Ceflvíkinga. Brad Miley komst í skot-
jfæri. Brotið var á honum en í stað þess
að dæma villu á Valsmenn dæmdu
dómarar leiksins þrjár sekúndur á
Ceflvíkinga og þar með var titillinn
/alsmanna. Vægast sagt furðulegur
dómur en við þá gráklæddu verður
|ekki deilt.
Fyrri hálfleikurinn var hreint út sagt
frábær hjá báðum liðum. Gífurleg
hittni leikmanna beggja liða og þá sér-
taklega Valsmanna og Kristjáns
gústssonar, sem hreinlega fór á
kostum í þessum leik. Hann skoraði
fyrstu sex stigin fyrir lið sitt í leiknum
og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður
var staðan 26—20 Val í vil og þá hafði
Kristján gert 14 af stigumVals.
Snæfell fær
þjálfara
Snæfell, Stykkishólmi, sem leikur í 3.
eildinni í knattspyrnu, hefur ráðiö til
in nýjan þjálfara. Það er Einar Árna-
on, sem tvö síðustu árin hefur þjálfað
K í Kópavogi.
-hsím.
United fær
Cunningham
lánaðan
Forráðamenn Real Madrid hafa orðið við
leiðni Ron Atkinson, framkvæmdastjóra
lanchester United, að lána enska iandsliðs-
nanninn Laurie Cunningham tii United í tvo
nánuöi. Þetta var ákveðið cftir að Atkinson
;ekk á fund stjórnar Real Madrid í gær.
t staðinn fyrir að fá Cunnlngham mun
tanchester United leika vináttuleik gegn
teal Madrid í Madrid. Cunningham sagði að
ann yrði á Wembley á laugardaginn, þegar
Jnited leikur gegn Liverpool í úrslitaieik
nsku blkarkeppninnar og hann mætir á sina
yrstu æfingu á Old Trafford þriöjudaginn á
iftir. -SOS.
Ólafurtil
Stuttgart
Ölafur Sigurvinsson, fymim fyrirliði
andsliðsins í knattspymu, er á fömm
lil V-Þýskalands, þar sem hann mun
fylgjast með æfingum og leikjum Stutt-
gartsliðsins í tólf daga. Ólafur er
þjálfari og leikmaður hjá 3. deildar-
íiðinu Huginn frá Seyðisfirði. -SOS.,
Keflvíkingar sóttu sig heldur fyrir
lok fyrri hálfleiks og í leikhléi var
munurinn tvö stig 45—43 Val í vil.
Valsmenn byrjuðu síðari hálfleikinn
af miklum krafti og komust í 59—49 og
síðar í 65—53 og var það mesti munur á
liðunum í leiknum. I kjölfarið fylgdi
góður kafli hjá Keflvíkingum og þegar
sex mínútur voru eftir var staðan orðin
74—72 Val í vil og allt orðið vitlaust í
Höllinni. En Keflvíkingar héldu ekki
haus á lokamínútum þessa þýðingar-
mikla leiks og því fór sem fór. Þeir
sendu knöttinn illa frá sér og oft á
mjög klaufalegan hátt á lokamínút-
unum.
Valsmenn voru betri aöilinn í þess-
um leik, á því leikur enginn vafi. Þeir
hittu betur og lengst af voru þeir
ákveðnari. Og það sem ef til vill skipti
sköpum í þessum leik var að Valsmenn
áttu alls átta feilsendingar í leiknum
en Keflvíkingar tuttugu. Þá hittu Vals-
menn mun betur úr vítaskotunum.
Kristján Ágústsson, Ríkharður
Hrafnkelsson og Torfi Magnússon voru
bestu leikmenn Vals 1 þessum úrslita-
leik, ásamt Tim Dwyer. Kristján frá-
bær í fyrri hálfleik og Ríkharður fór á
kostum í þeim síðari. Torfi var hins
vegar jafnari allan leikinn. Annars
stóðu allir leikmenn Vals sig vel í
þessum leik, sem tóku þátt í honum, og
þeir sem sátu á bekknum áttu líka sinn
þáttísigrinum.
Kristján Ágústsson skoraði mest
fyrir Val eða 26 stig, þar af 18 í fyrri
hálfleik. Ríkharður skoraði 20 stig og
þar af 16 í síðari hálfleik. Torfi skoraði
16,6 í fyrri hálfleik og Tim var með 16
stig einnig.
Frábær leikur hjá Valsmönnum og
verður vart annað sagt en að þeir eigi
þennan titil skilinn.
Keflvíkingar börðust vel í þessum
leik en ýmislegt fór úrskeiðis hjá
liðinu. Vitaskotin fóru mörg forgörðum
og knettinum oft glatað á klaufalegan
hátt, sérstaklega í síðari hálfleik. Þeir
Axel Nikulásson og Jón Kr. Gíslason
voru bestir Keflvíkinga en einnig léku
þeir vel Brad Miley, sem hirti aragrúa
af fráköstum, og Þorsteinn Bjarnason,
sem gerði marga góða hluti. Axel var
stigahæstur með 24 stig en Jón Kr.
skoraöi 23. Miley skoraði 17 stig og
Þorsteinn 10.
Þennan erfiða leik dæmdu þeir Sig-
urður Valur Halldórsson og Jón Otti
Olafsson, tveir bestu dómarar okkar í
dag og í heildina dæmdu þeir skinandi
vel. En örfá atvik í lokin komu í veg
fyrir að dómgæsla þeirra væri
óaðfinnanleg.
-SK.
íslandsmeistarablkar.
DV-mynd Friðþjófur.
Ríkharður fer
til Snæfells
Það er vist óhætt að segja að sigur
Vals gegn ÍBK í gærkvöldi hafi verið
sérstaklega ánægjulegur fyrir Ríkharð
Hrafnkelsson í Val. Hann hefur
ákveðið að flytjast til Stykkishóims og
leika þar með Snæfelli í 2. deildinni
næsta vetur.
„Það er enginn kominn til með að
segja að ég eigi ekki eftir að leika aftur
í úrvalsdeildinni,” sagði kappinn,
þegar við króuðum hann af eftir
leikinngegnlBK.
„Eg er ekki nema 25 ára gamall og
gæti allt eins spriklað í þessu i 10 ár til
viðbótar.”
Ohætt er að segja að Ríkharður hafi
átt mikinn þátt í þessum sigri Vals.
Hann hitti stórkostlega i síðari hálfleik
og lék þá við hvern sinn fingur. Verður
sannarlega sjónarsviptir að þessum
snjalla leikmanni næsta vetur úr
úrvalsdeildinni. -SK.
sögðu leikmenn Keflavíkur við blaðamenn DV
_ Það er svo sannarlega hægt að segja
I að körfukna ttieiksmenn Keflavikur
I hafi komið á óvart í vetur fyrir mjög
Igóða frammistöðu. Þeir komu enn einu
sinni á óvart í gærkvöldi, þegar þeir
Ineituðu að ræöa viö blaðamenn DV
Jeftir leikinn, þar sem þeir sögðu að við
(hefðum ekki sagt rétt frá þegar sagt
var frá skrilslátum áhangenda Kefla-
Ivikurliðsins eftir bikarleik Vals og
Keflavikur á dögunum, en nokkrir
Iþeirra gengu þá í skrokk á áhang-
■endum Vals.
I Keflvíkingar sögðu: — „Við teljum
-það lágmark að blaöamenn kynni sér
málsatvik áður en þeir dæma aðra.”
DV hefur haft góð samskipti viö
Keflvíkinga fram að þessu og við
Ivonum aö það verði áframhald þar á,
þótt leikmenn Keflvíkinga hafi hlaupiö
á sig með því að neita að ræða við
okkur. DV sagði satt og rétt frá þegar
sagt var frá atvikinu á dögunum.
Keflvíkingar geta ekki fegrað fram-
komu stórs hóps óhangenda þeirra,
sem hafa oft látið orð falla, sem eru
ekki birtingarhæf. Framkoma þeirra í
garð Valsmanna, þegar þeir tóku við
Islandsbikamum í gærkvöldi, var ekki
til fýrirmyndar. Það var ekki nóg með'
að sumir áhangendur Keflavíkurliðs-.
ins væru með skítkast á Valsmenn — |
og héldu puttum ó lofti, heldur létu þeir |
munnvatn vaða framan í leflanennj
Vals. Við DV-menn þurfum ekki að'
kynna okkur mólsatvik í þessu sam-1
bandi heldur skrifum við um það sem |
við urðum vitni að. Það er skyldaj
okkar að skrifa um það sem við sjáum I
jog upplifum. Við gerum það i þeirri trú I
að það verði íþróttum til framdráttar ■
og i þessu sambandi mönnum ti) I
varnaðar, að láta ekki sömu söguna :
endurtaka sig. I
•SOS/-SKj
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt