Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Page 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN 1 SÍÐUMÚLA 12—14
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1983.
Kristín Halldórsdóttír
húsmóðir, Seltjarnarnesi.
Gunnar, Steingrímurog Svavar—á síðasta snúningi:
Ræða skyndisókn
gegn verðbóigunni
Kvennalistinn
á Reykjanesi
- Kristín Haildórsdóttir
ífyrstasæti
Pramboðslisti Kvennalistans í
Reykjaneskjördæmi var sam-
þykktur á félagsfundi í Víghólaskóla
í Képavogi í gærkvöldi.
I efsta sæti listans er Kristin Hall-
dórsdóttir húsmóöir, Seltjamarnesi,
2. Sigríöur Þorvaldsdóttir leikkona,
Mosfellssveit, 3. Sigríður H. Sveins-
dóttir fóstra, Kópavogi, 4. Þórunn
Friðriksdóttir kennari, Keflavík, 5.
Gyða Gunnarsdóttir þjóðfræðingur,
Hafnarfirði, 6. Sigrún Jónsdóttir
nemi, Kópavogi, 7. Ingibjörg Guð-|
mundsdóttir húsmóðir, Hafnarfirði, i
8. Guðrún S. Gísladóttir nemi,
Garðabæ, 9. Kristín Aðalsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Hafnarfirði og
10. Þórunn G. Þórarinsdóttir verka-
kona, Keflavík. -OEF.
Lögbannshótun
Verdlagsstjóra
á strætó:
ENN ENG-
IN BEIÐNI
KOMIN
Nær þrjár vikur eru nú liðnar síðan
Verðlagsstofnun fór fram á lögbann
á 25% fargjaldahækkun SVR og
hefur beiðni enn ekki borist um aö
þaö verði tekið fyrir hjá borgar-
fógeta.
Gísli Isleifsson, lögfræðingur
verðlagsstjóra, kvaðst í gær engu
geta svarað nema því að málið væri
ekki enn fariö frá Verðlagsráði, en
það yrði væntanlega sent þaðan til
borgarfógeta á næstu dögum.
Fundur er í Verðlagsráði á morgun,
að sögn Gisla, og sagði hann að fyrr
en að honum loknum væri ekki hægt
að segja neittákveðið. -PÁ.
LOKI
Nú heitir leiftursóknin
skyndisókn!
Að frumkvæði Gunnars Thorodd-
sen forsætisráðherra hafa hann,
Steingrímur Hermannsson og Svav-
ar Gestsson haldið fundi í gær og í
morgun um hugsanlega skyndisókn
gegn verðbólgunni. Niðurfærsla
verðlags og kaupgjalds og síöar tak-
markanir á verðbótum og fiskverðs-
hækkunum eru úrræðin, sem taiin
eru vænlegust til þess að slá með
skjótum hætti á verðbólguna.
Samkvæmt heimildum DV hefur
forsætisráðherra látið grannskoða
undanfarið ásand efnahagsmálanna
og færa sér hugmyndir að úrræðum,
sem gætu leitt til þess að stöðva
mætti verðbólguholskefluna og verð-
bólgan lækkaði eitthvað sem skjót-
ast. Það er því margt fleira en niður-
færslan á dagskrá ráðherranna.
Þessi sérstaka skoðun efnahagsmála
og úrræða nú mun tengjast vanga-
veltum forsætisráðherra um fram-
boð, sem hann hefur nú hætt við.
I framhaldi af fundi ráðherranna i
morgun var búist við aö skýrt yrði
frá viðræðum þeirra á ríkisstjómar-
fundi, semhófstklukkan 10.
Steingrímur Hermannsson sagði í
viðtali við Tímann í morgun að
„hann hefði lengi talið þessa leið
áhugaverða, en þó væri hún vandfar-
in.” Þar er hann að segja álit sitt á
niðurfærslunni. Hjörleifur Guttorms-
son ráðherra sagði í samtali við DV í
Slökkviliðið í Reykjavík var i gærkvöldi kvatt til hjálpar að Laugavegi 72, en þar
höfðu losnað þakplötur. Tók skamman tima að koma þeim í samt lag aftur og er
ekki vitað um frekari skemmdir iborginniaf völdum veðurs. D V-mynd: S
morgun að alþýðubandalagsmenn
hefðu oft skoðað slíka leið, en hún
væri erfið vegna tregðu í verðlags-
þættinum og skort hefði vilja til þess
að taka upp það stranga eftirlit sem
þyrfti.
Niðurfærsla hefur ekki verið reynd
hér síðan á dögum Emilíu, minni-
hlutastjómar Alþýðuflokksins, sem
var undanfari Viðreisnar 1960.
HERB
Bflskýlin í
verkamannabiistöðum:
íbúðir hafa
forgang
segir f ramkvæmdast jóri
Húsnæðisstofnunar
„Það eru tvær ástæöur umfram
allt sem liggja að baki þessu fyrir-
komulagi,” sagði Sigurður E. Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins, að-
spurður um greiðslufyrirkomulag
bílskýlanna, sem DV hefur fjallað
um undanfama daga.
„I fyrsta lagi hefurHúsnæðismála-
stjóm, samkvæmt húsnæðislöggjöf-
inni, eingöngu heimild til að veita Ián
úr Byggingarsj óði verkamanna til að
reisa íbúðir. Bílskýli em ekki partur
af íbúðum.
I öðru lagi er þess að geta að
meðan engan veginn er hægt að
koma til móts við þá miklu þörf sem
er fyrir f jármagn til að reisa ibúðir í
verkamannabústöðum sýnist meira
en litið úr vegi að nota fjármagn til
aðbyggja bílskýli.
Það vantar semsé bæði lagaheim-
ild til að lána út á nokkuð annað en
hreinar íbúðabyggingar og í öllu falli
myndi síðan skorta fjármagn, miöaö
við þá óbreyttu stefnu, að byggja
fyrst íbúðir yfir mannfólkið,” sagði
Siguröur.
-PÁ.
Mezzoforte:
Komin í
17. sæti
Vinsældir Mezzoforte í Bretlandi
fara enn vaxandi. A iistanum yfir
mest seldu plötur þar í landi, sem
birtur var í morgun, var litla platan,
með lögunum Garden Party og Funk
Suite No. 1, komin í 17. sæti og hefur
færstuppuml2 sæti frá því í síðustu
viku. Stóra platan Surprise Surprise
var í morgun komin í 28. sæti á list-
anum yfir stórar plötur.
Búast má við að báðar plötumar
eigi eftir að komast enn hærra á
listunum, því söluáhrifa í kjölfar
þáttarins Top Of The Pops er ekki
fariðaðgætaaðfullu.
-SþS
t
t
i
t
t
t
t
t
t
i
i
t
t
I
í
I
í
í
t
t
t
t
t
t
t