Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR 2. MAl 1983.
3
Bjarni Þórarínsson er litið hrifinn af fiskifræðingunum. D V-m yndir S
„Lélegasta vertíð
sem ég man eftir”
— segir Bjami Þórarinsson á vigtinni f Grindavík
„Eg man ekki eftir svona lélegri
vertíö hér í Grindavík og þessi apríl-
mánuöur er sá allra lélegasti sem ég
og aðrir hér muna,” sagöi Bjarni
Þórarinsson, vigtarmaöur í Grindavík,
er viö spjölluöum viö hann í gær um
aflabrögðin í vetur. Bjarni þekkir
manna best til þeirra mála í Grinda-
vík. Sá fiskur sem kemur þar aö landi
fer á vigtina hjá honum og í Grindavík
hefur hann róiö og starfaö við höfnina
síöan 1953.
„Þegar aflinn var tekinn saman hér
skömmu fyrir mánaöamótin var hann
um 11.500 lestum minni en á sama tíma
í fyrra. Þaö hefur veriö ördeyða í allan
vetur en aprílmánuðurinn, sem oftast
hefur veriö skástur, brást nú alveg.
Af þeim 60 bátum sem héöan róa
komu til dæmis ekki nema þrír bátar
með meira en 10 tonn að landi í gær.
Fjöldinn allur var meö þetta 2 til 3 tonn
og þaö var allt tveggja nátta fiskur.
Þaö tekur því engan veginn að fara út
upp á þetta, enda er fjöldinn allur af
bátum að hætta og taka upp netin.
Eini neistinn sem bátarnir hafa
fengiö núna er út undir Frimerkinu þar
sem fiskifræöingar segja aö aldrei hafi
fengist þorskur. Þeir hafa stjórnaö
þessu og þaö er alfarið þeim og þeirra
stefnu aö kenna hvernig nú er komiö,”
sagöi Bjarni.
Þaö er samkvæmt þeirri ósk að friö-
uöu hólfin eru opnuö. Þeir telja sig
síðan geta stjórnaö þessu meö skyndi-
lokunum sem eru svo framkvæmdar
þegar fiskiríiö er búiö. Þaö er þaö
ákjósanlegasta fyrir togarana aö þess-
um svæöum sé lokað í vikutíma. Þeir
koma að því loknu inn á þau aftur og
mokfiska.
Ef allt á ekki aö fara hér í kaldakol
er eina lausnin aö loka öllum þessum
hefðbundnu svæðum. Þaö er eins og að
eiga inni á bankabók aö gera þaö.
Fiskur svarar örugglega sínu kalli til
hrygningar þegar aö því kemur. Þaö
er reynsla okkar sjómannanna þótt svo
aö fræöingarnir haldi eitthvað annaö.”
-klp-
Á vigtinni i Grindavik hefur verið vigtaður nær 12 þúsund lestum minni afli
nú rótt fyrir mánaðamótin en á sama tima i fyrra.
FÁLKINN
Suöurlandsbraut 8,
sími 84670.
HOOVER ER
HEIMILISHJÁLP
■ Stiglaus kraftstillir
■ Snúruinndrag
■ Fjöldi fylgihluta
■ 1000 watta mótor
Hljóðlát
Sogmælir, sýnir þegar poki
er fullur
Greiðsluskilmálar
Electronica 1000
1000 WATTA RYKSUGA
MEÐ ÖLLU Á
AÐEINS KR. 3.260,-
EN SATT
TILKYNNING
FRÁ TCM
1) Eigum díesellyftara til
afgreiðslu strax.
Lyftigeta 3 tonn, snúningsgafall, viösýnismast-
ur, hreinsibúnaöur fyrir útblástur, vökvastýri,
tvöföld dekk að framan, öryggisgrind, Ijósa-
búnaöur, ofl.
2) Rafmagnslyftarar til
afgreiðslu strax.
Rafmagnslyftarar sérpantaðir fyrir fiskvinnslu-
stöövar og vörugeymslur með 935 amper-
stunda rafgeymum, auk þess sem bremsuafl er
nýtt og skilað inná geymana.
TCM liprir í snúningum,
með mikinn lyftikraft.
TÖGGURHR
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530
3) Handlyftarar,
lyftigeta 2 tonn.
TCM löng reynsla við
erfiðar aðstæður.