Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 2. MAl 1983.
5
Samkeppni um hönnun tískufatnaðar í USA:
„ALVEG OFBODS-
LEGA ÁNÆGÐUR”
Ungur Islendingur, Runólfur
Stefnisson aö nafni, hreppti í síöustu
viku 1. sæti í samkeppni um hönnun
tískufata sem haldin var í Banda-
ríkjunum. Fyrstu verðlaun, sem
komu í hlut Runólfs, námu 4.700
dollurum eöa tæplega 100 þúsundum
króna.
,,Ég er alveg ofboðslega ánægð-
ur,” sagöi Runólfur er DV náöi tali af
honum í Chicago. Þar hefur hann
lagt stund á nám í hönnun tískufata í
„Art Institute” sl.4 ár. Samkeppnin
var þáttur í lokaverkefni sem nem-
endur viö skólann vinna og voru þátt-
takendur í henni alls 13.
„Samkeppnin var alveg einstak-
lega hörö,” sagöi Runólfur. ,,Ég er
búinn að vinna aö þessu verkefni
samfleytt í þrjá mánuði, jafnt daga
sem nætur. Ég saumaöi öll fötin sem
ég hannaði sjálfur. Aö visu hef ég
aldrei lært aö sauma en notaöist að-
eins viö þá litlu reynslu sem ég hafði
fengið hjá móöur minni.”
Runólfur hefur áöur tekið þátt í
svipaöri samkeppni og varö þá í ööru
’sæti. Aö þessu sinni hannaöi hann
ýmiss konar haustfatnaö. Hann
lýkur námi í vor og kvaöst myndu
koma heim um rnitt sumar en halda
síöan til New York til aö afla sér auk-
innar reynslu. -JSS
Samband íslenskra kaup-
skipaútgerða stof nað
Stofnað hefúr verið Samband ís-
lenskra kaupskipaútgeröa, SlK. Sam-
bandið hefur þaö á stefnuskrá sinni aö
vinna aö ýmsum sameiginlegum hags-
munamálum aöildarfélaga og einnig
aö stuöla aö bættum og öruggari sigl-
ingum í þágu landsmanna.
Snorri Pétursson viöskiptafræöingur
héfur verið ráöinn framkvæmdastjóri
SlK. Hann mun hefja störf þann 1. júlí
næstkomandi.
-JSS
------------►
Snorri Pétursson, nýráðinn
framkvæmdastjóri SÍK.
AKUREYRI
Blaðbera vantar í innbæ og suðurbrekku. Uppl. á
afgreiðslu DV, sími 25013. Opið kl. 13—19.
MALLORCA
Paradís á jörð
Ódýrar fjölskylduferðir
ll.og27.maí
50% afsláttur fyrir börn.
SANTA PONSA: Einn allra vinsælasti
fjölskyldustaður á Mallorca.
JARDIN DEL SOL. Nýtt og glæsilegt
íbúðahótel alveg við sjóinn.
Fáið nánari upplýsingar um
hagstætt verð og kjör.
FERÐASKRIFSTOFAN
LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633
3fiHbærar
MmfmrMir
20 dagar fyrir aðeins kr. 11.800
Innifalið: Flug, gisting, rútuíerðir, hálít íœði í rútuferóum
og íslensk íararstjórn.
I samvinnu við Alþýðuorloí og Dansk Folke-Ferie efnir Sam-
vinnuferðir-Landsýn til þriggja einkar hagstœðra skemmti-
ferða til Danmerkur i sumar. Með góðum samningum, m.a.
um skipti á orlofshúsum. hefur tekist að halda verði í algjöru
lágmarki þannig að einsdoemi hlýtur að teljast.
í þessum sérlega ódýru Danmerkurferðum, sem einkum eru
skipulagðar með aðildarfélaga i huga, sameinum við kosti
goðrar rútuferðar og ánœgjulegrar dvalar í sumarhúsi.
Við dveljumst alls í 9 daga í notalegum sumarhúsum þar
sem aðstaóa öll er eins og best verður á kosið. Þar skipu-
leggjum við leiki, kvöldvökur og skemmtanir, bregðum okkur
í stuttar gönguferðir eða heimsœkjum nálœga merkisstaði
og njótum lífsins rikulega í gullfallegu umhverfi.
I 11 daga rutuferðum kynnumst við síðan nánar danskri
nattúru og einlœgri gestrisni, komum víða við á Jótlandi og
Sjalandi og gerum ogleymanlega úttekt á danskri matar-
gerðarlist.
íslenskur leiósögumaður verður ferðalöngum að sjálfsögðu
til trausts og halds í öllum íerðunum.
Bokanir fara íram á skriístoíu Samvinnuferða-Landsýnar
Reykjavik og hja umboðsmönnum um allt land.
, uoíkann á aðildaríélags afslœtti |
fvið tramlengjum mogn\eþa ,
l.iuni
| aSKSSKKSSSSSS"
ílugíar innanlands. ---—
Barnaafsláttur kr. 1.500
fyrir börn 2-11 ára.
1. ferð 11. júní-30. júní
2. ferð 1. júlí-20. júlí
3. ferð 22. júlí-11. ágúst
Sjáumst í góðri
Danmerkurferð
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899