Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Síða 8
8 DV. MANUDAGUR2. MAI1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd — Mótmæli í 20 borgum og bæjum og víða uppþot 1. maí Skæruliða- foringi drepinn Lögreglan beitti táragasi og vatnsbyssum til þess að tvístra öllum kröiugöngum Einingar og kom sums staðar til uppþota þegar ungir göngumenn svöruðu með grjótkasti. Til götuuppþota kom í tuttugu pólskum borgum og bæjum í gær á 1. maí, hátíðisdegi verkalýösins, þegar lögreglan beitti vatnskanónum og táragasi til þess aö hleypa upp úti- fundum og dreifa kröfugöngum, sem til haföi verið efnt til stuðnings Einingu, hinni óháöu verkalýðs- hreyfingu Póllands. Þetta eru útbreiddustu mótmæli, sem höfö hafa veriö uppi opinberlega í Póllandi í átta mánuði og segja Lech Walesa og fleiri leiðtogar Einingar aö þátttakan hafi veriö langt umfram það sem þeir höföu þoraö aö vona. Pólska sjónvarpið segir að um 40 þúsund manns hafi tekið þátt í kröfu- göngum stjómarandstæðinga á meðan 6,5 milljónir manna hafi tekiö þátt í 1. maíhátíðarhöldum þess opinbera. Víða lögðu kröfugöngurnar leið sína samhliða skrúðgöngunum sem famar vom á vegum flokksins og þess opin- bera. ,Auðvitað dreifði lögreglan öllum mannsafnaöi en þetta voru mikilfeng- leg mótmæli og þátttakan langt fram úr vonum okkar,” sagöi Iæch Walesa við blaöamenn á heimili sínu í Gdansk. Nokkur hundruö stuðningsmanna hans söfnuðust saman fyrir utan Zaspa- íbúðarblokkina þar sem Walesa býr, en mættu þá fjölmennu hjálmvörðu lögregluliði sem tvístraði þeim með kylfum. I pólska sjónvarpinu mátti sjá unga kröfugöngumenn á Nowa Huta og Wroclaw mæta lögreglunni með grjót- kasti, en engar fréttir hafa borist af meiðslumeða handtökum. Flestar þessar mótmælaaðgerðir hófust aö loknum guðþjónustum. I Var- sjá hafði fólk verið hvatt til þess aö safnast saman utan við dómkirkjuna, áöur en gengiö skyldi til útifundar. Veifa Solidarinocs hékk á predikunar- stólnum. Prestar og kirkjunnar leiðtogar hafa til þessa stutt Einingu mjög og einkanlega eftir innleiðingu herlag- anna. Prestar fara sér orðið hægar, enda eiga leiötogar kirkjunnar í samningaviðræðum við Varsjárstjórn- ina vegna fyrirhugaðrar heimsóknar páfans í júlí. Páfi hefur skorað á pólsku stjómina að vera búin að sleppa öllum pólitískum föngum áður en hann stígur f æti aftur á f ósturjörð sína. Við guösþjónustu um helgina lauk Jozef Glemp kardínáli, erkibiskup Pól- lands, lofsorði á stefnumið Einingar og stofnskrá samtakanna, sem gerð var í ágúst 1980. — „Hugsjónir þessa ágústmánaðar geta aldrei máðst út. Hugsjón er ekki unnt að nema úr gildi með útgáfu einhverrar opinberrar tilskipunar,” sagði hann. Lögreglunni sigað á kröfu- göngur Einingar í Póllandi Reagan hækkar íáliti Stjarna Reagans Bandaríkjaforseta virðist heldur hafa hækkað í augum landa hans, eftir því sem fram kemur í skoðanakönnun Gallup-stofnunarinnar á vegum tímaritsins Newsweek. Könnun var gerð í apríllok og gefa niðurstöður hennar til kynna að 47% þeirra sem spurðir voru töldu forset- ann spjara sig vel í embætti. Það er 5% fleiri en þannig svöruðu í svipaðri skoðanakönnun ífebrúar 1982. 40% létu í ljós vanþóknun á störfum Reagans en þaö höfðu 49% gert í könn- uninni 1982. Newsweek segir að 44% þeirra sem vissu hvaöa aðila Bandaríkjastjórn styður í E1 Salvador hafi stutt stefnu Reaganstjórnarinnar gagnvart E1 Salvador en þaö gerðu ekki nema 33% í fyrrikönnunum. Þetta er fyrsta könnunin sem gerð er eftir að Reagan ávarpaði Bandaríkja- þing og reyndi að sannfæra landa sína um þörf fyrir aukna aðstoð við stjórn- ina í E1 Salvador. Norðmenn gera harða hríð að kafbátnum, sem leitað er í Harðangursfirði Argentínski herinn greindi frá því í gær að Raul Clemente Yaguer, einn helsti foringi Mononeros-skæruliða, hefði verið veginn í fyrradag í borginni Cordoba. Nánar var ekki greint frá at- vikum en sagt að hjá skæruliðaforingj- anum hefðu fundist bæði vopn og ýmis skjöl skæruliðahreyfingarinnar. Montoneros er ein af þrem helstu skæruliðafylkingum vinstrimanna í Argentínu. Hún tók fyrst að láta að sér kveða fyrir tíu árum, áöur en herinn hóf aðgerðir sínar gegn skæruliöa- starfsemi í landinu á síðari helming síðasta áratugs. Yaguer, sem yfirgaf landið 1977, sneri aftur til Argentínu 1981 og var sagður foringi herráðs Montoneros. Bandarískri flugvél rænt Bandarískri farþegaþotu var rænt í innanlandsflugi í Bandaríkjunum í gær og áhöfn hennar neydd til þess að fljúga hennitil Kúbu. I vélinni voru 204 farþegar og 10 manna áhöfn og komu þau öll heil á húfi til Havana í gær en flugræninginn, sem var einn að verki, var handtekinn af kúbönskum yfirvöldum. Flugvélin, sem er af gerðinni DC-8, var á leiðinni frá Puerto Rico til Miami. Skömmu eftir flugtak læsti flugræninginn sig inni á salerninu en rétti einum flugþjóninum fyrirmæli sín skrifuð á miða. Var ræninginn vopnaður skammbyssu og sagöist enn- fremur hafa inni hjá sér sprengju. Yfirvöldin í Havana sögðu að flug- vélin yrði strax send meö farþegana til Miami um leið og búið væri að bæta eldsneyti á geyma hennar og veita far- þegunum hressingu. Norskir flotasérfræðingar rannsaka í dag sýni sem tekin voru úr olíubrák á Harðangursfirði í gær, eftir að freigát- ur og flugvélar skutu tólf eldflaugum að kafbáti sem talinn er leynast í mynni fjarðarins. Tveim djúpsprengj- um var einnig varpað á svæðiö. Olíubrákin er talin hugsanlega frá kafbátnum komin en gæti þó veriö úr I flestum höfuðborgum heims efndi verkalýöur til friðsamlegra hátíðar- halda í tilefni 1. maí í gær, á meðan til uppþota kom í ýmsum borgum og bæjumPóllands. En herforingjastjómin í Chile hafði bannað kröfugöngur og kom til átaka í höfuðborginni þegar verkalýösöfl virtu það bann að vettugi. Vitað er um að minnsta kosti tíu menn sem meiddust í ryskingum í miðborg Santíago og haldið er að yfir 100 manns hafi verið handteknir. Borgaralega klæddir menn vopnaöir sokknum olíugeymi sem byrjað hefði að leka við sprengingamar. Skeytunum var beint að þeim stað þar sem hljóðmerki höfðu bent til þess að kafbátur kynni að leynast eftir fimm daga leit að honum. Alls hefur 20 skeytum og 4 djúpsprengjum verið beint að honum en flotinn hefur fyrir- mæli um að sökkva kafbátnum ef hann kylfum réðust á göngufólk á meðan lögregla og öryggisverðir horföu álengdar á án þess að hafast aö. Samtök starfsmanna í koparvinnsl- um þess opinbera hafa boðaö til sólar- hringsverkfalls þann 11. maí og hafa reyni að komast undan, nema unnt verði að fá kafbátaforingjann til þess að gefast upp með öðmm hætti. Flotasérfræðingar telja olíubrákina ekki óbrigöult merki þess aö kafbátur- inn hafi orðið fyrir skeyti. I fyrsta lagi er óvíst hvort olían sé frá honum kom- in og í ööru lagi gætu kafbátamenn hafa sleppt olíunni í sjóinn af ráðnum ýmis verkalýðsfélög lýst stuðningi viö verkfallið. I Uruguay söfnuðust um 100 þúsund manns til útifundar í Montevideo en þaö er fyrsti slíki fundurinn sem haldinn hefur verið þar í landi 1. maí síðan 1973, þegar herinn tók völdin. hug til þess að gabba hina, sem ofan- sjávar eru. I síðustu mælingum í gær töldu Norð- menn sig verða vara við að kafbátur- inn hefði fært sig 7 km frá þeim stað sem þeim mældist hann vera í fyrra- dag. Þingrof á Ítalíu Búist er viö, að Sandro Pertini ítaliu- forseti rjúfi þing í dag en ríkisstjórnin sagði af sér á föstudaginn. Líklegast þykir að boöað verði til þingkosninga í júní. Forsetinn mun að líkindum slá botn- inn í dag í tilraunir sínar til þess að fá leiðtoga flokkanna til þess að reyna nýja stjórnarmyndun. Enginn hefur trú á því að slíkt megi blessast. Samsteypustjóm kristilegra demó- krata og sósíalista entist að þessu sinni ekki nema fimm mánuði. Umsjón: r Olafur B. Guðnason Guðmundur Pétursson Róshir 1. maí í Chile

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.