Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Page 10
10
Útlönd
Útlönd
Útlönd
DV. MÁNUDAGUR2. MAl 1983.
Útlönd
KREPPUR DEYJA AÐ
LOKUM ÚR EUI
—viðtal við dr. Charles H. Bradford
Fyrír nokkrum dögum var hér á ferð dr. Charíes H. Bradford, bandarískur hagfræðingur, sem gegnir
starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Sameiginlegrar efnahagsmáianefndar (Joint Economic Comm-
ittee) bandariska þingsins. Bradford hefur meðal annars starfað áður sem aðstoðarframkvæmdastjóri
bandariska bankasambandsins og var ráðgjafi Reagan-stjórnarinnar við stjórnarskiptin 1980. Hann
hefur einnig kennt við háskóla og haldið fjölda fyrirlestra um efnahagsmál við háskóla, fyrir hags-
munasam tök og f/eiri. Hann veitti D V viðtal þegar hann var hér og birtist það allnokkuð stytt hér á eft-
ir. Hann var fyrst spurður að þvi hvert væri hlutverk Sameiginlegu efnahagsnefndarinnar.
Dr. Charles H.
Bradford.
:
— Starf Samoiginlegu efnahags-
málanefndarinnar er aö leggja fram
almennar tillögur um stefnu í efna-
hagsmálum. Viö leggjum fram til-
lögur um stefnu í skattamálum, pen-
ingamálum og þvílíku. Þaö er síöan
þingmanna aö ákveöa hvort þeir
nýta sér tillögur okkar.
Við áttum nokkurn hlut aö efna-
hagsstefnu Reagan-stjómarinnar. Á
seinni hluta áttunda áratugarins
voru margar skýrslur gefnar út á
vegum nefndarinnar, þar sem mælt
var meö nýrri stefnu í bandarískum
i,fnahagsmálum. I staö hinnar
ki vnesísku stefnu, meö áherslu á
eílingu eftirspumar, sem hefur veriö
rikjandi í marga áratugi í Bandaríkj-
unum, mæltum viö meö því aö tekin
yröi upp stefna sem legði áherslu á
eflingu framboös. Forsetinn og sam-
starfsmenn hans notuöu þessar
skýrslur okkar þar sem þeir fengu
margar hugmynda sinna. Eg vann
sjálfur aö hluta til aö þessu, því ég
var í starfshópi á vegum Reagans,
sem vann aö undirbúningi stjórnar-
skiptanna í fjármálaráöuneytinu.
Þessi nýja stefna byggist fyrst og
fremst á niðurskurði á útgjöldum
ríkisins, lækkun á sköttum til ríkis-
ins, afnámi ríkissettra reglugerða og
stöðugleikastefnu til þess aö koma
okkur út úr þeim efnahagsvanda-
málum sem hrjá okkur, veröbólgu,
atvinnuleysi og lítilli f ramleiðni.
A tvinnuleysi eða
verðbólga
— Núhefuratvinnuleysifariövax-
andi í hinum vestræna heimi, á sama
tíma og ríkisstjórnir grípa til aö-
geröa gegn verðbólgu. Fyrir flestum
viröast valkostimir vera tveir, ann-
aðhvort verðbólga eöa atvinnuleysi.
Eru þetta einu kostirnir?
— Þetta er hugmynd sem hefur
veriö mjög vinsæl innan hagfræöinn-
ar í mörg ár. Hagfræöiprófessor aö
nafni Phillips sýndi í línuriti fram á
samhengiö miUi veröbólgu og at-1
vinnuleysis og hélt því fram aö menn |
gætu haft annaðhvort en ekki hvort I
tveggja. En í Bandaríkjunum, miUi!
1965 og 1980, höföum viö bæöi verö-
bólgu og atvinnuleysi. Síðan 1981 hef-
ur þróunin oröiö samkvæmt línuriti
Phillips og atvinnuleysi hefur aukist
um leið og verðbólga hefur minnkaö.
En þessi reynsla okkar sýnir aö
kenning PhiUips er ekki algUd, aö
minnsta kosti ekki hvaö Bandaríkin
varðar.
— Hverjar eru þá atvinnuhorfur í
Bandaríkjunum nú?
— Atvinnuleysi fór hæst í 10,8% en
hefur nú minnkaö í 10,1% meöan
veröbólgan er nú engin. Þaö hefur
engin verðbólga veriö í Bandaríkjun-
um síðustu fimm mánuöi. En hiö
eðlilega atvinnuleysishlutfall í
Bandaríkjunum er nú um 6,5 til 7%
og atvinnuleysi hjá okkur fer ekki
niður fyrir þaö hlutfaU, nema aö
verðbólga aukist. Þetta hlutfall hef-
ur fariö hækkandi jafnt og þétt, á
sjötta áratugnum var þaö 4% til
dæmis. Meira aö segja í stríðinu var
atvinnuleysið í Bandaríkjunum 2%.
Þetta eðUlega atvinnuleysi kemur
tU af tvennu. I fyrsta lagi er um aö
ræöa fólk sem skiptir ört um vinnu.
Þegar könnun á atvinnuleysi fer
fram kann einhver aö vera atvinnu-
laus, en hefur fengið atvinnu daginn
eftir. Þó telst hann atvinnulaus þann
mánuöinn. Þetta atvinnuleysi vegna
atvinnuskipta veldur um 3% af þessu
eöUlega atvinnuleysishlutfalU.
Hin 3 til 4 prósentustigin koma til
vegna innbyggðs atvinnuleysis, sem
kemur til af tvennu. Fyrst og fremst
er það vegna þess aö ekki fara sam-
an framboö á verkkunnáttu og eftir-
spurn. Nú er atvinnuleysi í þungaiön-
aöi í Bandaríkjunum, bílafram-
leiðslu og stálframleiöslu, en margir
þeirra sem áöur störfuöu þar, og eru
nú atvinnulausir, munu ekki fá þar
störf að nýju. Þeir þurfa hins vegar
endurmenntunar viö áöur en þeir
geta fengiö störf í rafeindaiðnaði og
öörum tækniiönaöi, þar sem eftir-
spurn veröur eftir vinnuafli.
Innbyggt atvinnuleysi stafar einn-
ig aö hluta af því aö hluti atvinnu-
lausra þarf ekki aö flýta sér til þess
að finna nýja atvinnu. Annaðhvort
vegna þess aö þeir hafa áöur haft
vellaunuð störf og vilja ekki taka
störfum, sem eru síður launuð, en
geta beðið vegna atvinnuleysis-
styrkja eftir sambærilegu starfi og
þeir höföu áöur. Svo fjölgar þeim
heimilum sífellt þar sem fyrirvinnur
eru tvær, og ef önnur fyrirvinnan
missir atvinnuna liggur ekki eins
mikið á aö finna nýtt starf.
Það er vegna þessa sem atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum mun aldrei
fara niður fyrir 6 til 7%. Vegna fé-
lagslegra breytinga og breytinga á
framleiösluháttum.
Afhverju ekki
verðbólgu?
— Nú ert þú staddur í Reykjavík,
borg sem aö miklum hluta er byggö
fyrir verðbólgugróöa og það er staö-
reynd að f jöldinn allur af fólki hefur
hagnast vel á veröbólgunni hér.
Hvaö er þaö sem er svo hræðilegt viö
verðbólgu?
— Ef menn aðlagast henni jafnóð-
um með vísitölubindingu, hvaö er þá
svo slæmt viö hana? Það er góð
spuming. Eg reikna meö að hér sé
einhver hópur fólks, sem lifir á nokk-
uö fastbundnum tekjum, sem ekki
aðlagast veröbólgunni meö fullum
hraða. En það er félagslegt vanda-
mál. Efnahagslega vandamáliö er
þaö aö veröbólga skekkir ákvaröanir
í fjárfestingarmálum. Þegar menn
fjárfesta í verksmiðju afskrifa þeir
hana á tíu ámm. En veröbólgan
hækkar stööugt kostnaðinn við þaö
aö endurnýja verksmiöjuna og krón-
an sem þú afskrifar nú veröur orðin
miklu rýrari eftir tíu ár þegar kemur
að endurnýjuninni. Þaö er mjög flók-
iö mál aö aðlaga afskriftir aö verö-
bólgu. Veröbólga hefur því tilhneig-
ingu til að draga úr fjárf estingu.
Svo em það áhrif verðbólgunnar ó
samkeppnishæfni á erlendum mörk-
uöum. Vömr veröa mjög dýrar undir
þessum kringumstæöum, nema þá
gengisbreytingar séu geröar sam-
stundis. Eg held það sé ekki gert hér
og þaö hefur mjög slæm áhrif á út-
flutningsmarkaöi.
— Svo viö snúum okkur aftur aö
Bandaríkjunum. Það er mikiö talaö
um „Reaganomics”. Hvemig skil-
greinir þú „Reaganomics” s'em sér-
lega stefnu í efnahagsmálum?
— Þetta er kallaö „Reaganomics”
vegna þess að Reagan tók viö völdum
og tók upp stefnu, sem byggöist á
hugmyndum um eflingu framboös-
hliöarinnar í efnahagsjöfnunni.
Þaö er lykilatriöi í keynesískri efna-
hagsstefnu aö eina leiöin út úr
kreppu sé sú aö kaupa sig út úr
henni. Ef einkageirinn vill ekki eyöa
peningum veröur ríkisvaldið að gera
þaö, því þeir peningar sem einn mað-
ur eyðir eru tekjur annars. Þetta
leiðir til hagvaxtar og því ber aö
hvetja fólk til aö eyöa. Því verður
sparsemi ekki dyggö heldur synd.
Miklar sveiflur
Þessi aðferð var reynd og gafst vel
um tíma bæöi í Bretlandi og Banda-
ríkjunum. En hún leiddi af sér, frá
upphafi sjöunda áratugarins, miklar
sveiflur í atvinnuleysi og veröbólgu,
ásamt minnkandi framleiöni. Reag-
an kom til valda sannfæröur um þaö
að menn yröu aö líta á hina hliðina á
málunum, framboö á vöru og þjón-
ustu, fjárfestinguna, sem leiddi af
sér þessar vörur og þjónustu. Hann
vill lækka verðlag meö því aö auka
framleiöni og gera Bandaríkin sam-
keppnishæfari á heimsmörkuöum.
Til aö svo verði verður aö hvetja fólk
til aö spara frekar en eyöa, hvetja
þaö til fjárfestingar frekar en
neyslu.
Hlutverk ríkisstjórnarinnar er þaö
að hvetja einkageirann til fjárfest-
ingar meö því aö draga úr ríkisút-
gjöldum og keppa ekki viö einkageir-
ann um fjármagn og mannafla. Auk
þess lækkar ríkisstjórnin skatta.
Það er munur á skattalækkun
ríkisstjóma sem hallast aö keynes-
ískum hagfræöikenningum og þeirra
sem hallast aö hugmyndum um efl-
ingu framboös. I fyrra tilfellinu er
tilgangurinn sá aö koma meira fé í
hendur f ólks svo þaö geti eytt þeim. I
seinna tilfellinu er þaö ekki fjár-
streymið inn og út úr kerfinu sem
skiptir máli heldur sú hvatning sem
felst í skattalækkuninni. Lækkun
kostnaðar skiptir höfuömáli. Þaö er
hvatning til fólks til þess aö vinna og
fjárfesta. Þaö hvetur til aukinnar
framleiöslu, sparnaðar og fjárfest-
ingar. Þaö er grundvöllurinn að
efnahagsstefnu Reagans.
Sú efnahagsstefna er ekki mjög
vinsæl nú því viö erum stödd í
kreppu. Vextir eru háir en eftirspurn
lítil og menn fjárfesta ekki þegar
vextir eru 20%. En efnahagsstefna
Reagans skapaði ekki kreppuna.
Þegar Reagan tók viö völdum voru
forvextir 21,5% og vextir af ríkis-
skuldabréfum rúmlega 15%, sem er
mjög hátt. Kreppan hófst í júlí 1981
og heföi hafist fyrr heföi peninga-
magn í umferö ekki verið aukiö stór-
kostlega síöustu mánuöina á undan.
En í júlí 1981 haföi Reagan áætlunin
ekki veriö lögfest, hvaö þá aö hún
hefði veriö farin aö hafa nokkur
áhrif. En nú er kreppunni lokið í
Bandaríkjunum og Reagan-áætlunin
mun sanna gildi sitt veröi ekki vikið
frá henni.
Kreppunni lokið
— Nú er atvinnuástand í Banda-
ríkjunum eftir sem áöur erfitt. Burt-
séð frá hergagnaiðnaði er atvinnu-
leysi í þungaiönaði, og þá er spurn-
ingin hverjar framtíöarhorfurnar
séu?
— Þaö er rétt að atvinna í fram-
leiöslu tengdri vamarmólum eykst
nokkuö jafnt og fyrirtæki í slíkri
framleiöslu koma vel út á verðbréfa-
mörkuöum. En hvaö varöar þunga-
iönaö, svo sem bílaframleiöslu, uröu
bandarískir framleiöendur langt á
eftir þeim japönsku aö gera sér grein
fyrir breyttum aöstæöum. Bæði
framleiddu Japanir spameytnari
bíla og ódýrari. Þeir eru ódýrari af
tveim ástæöum. Japanskir hafa
lægri laun og umfram allt er fram-
leiöni þeirra tvisvar eöa þrisvar
sinnum meiri en bandarískra bíla-
framleiöenda. Þaöhefurmargtveriö
gert til aö leiörétta þetta, og veröur
gert enn meira, sérlega varöandi
sjálfvirkni í framleiöslu. En engu aö
síður mun þungaiðnaði í Bandaríkj-
unum hnigna. Það sem koma mun í
staöinn er rafeindaiðnaöur og annar
háþróaður tækniiönaöur, þar sem við
reiknum meö aö vöxturinn veröi
gífurlegur á næstu árum. Þaö er
stefna bandarísku stjórnarinnar aö
hverfa frá hugmyndum um styrki til
eldri iöngreina en gera allt sem
mögulegt er til þess aö efla hinar
nýju.
Efnahagsástand í Bandaríkjunum
er gott nú, kreppan er búin, þjóöar-
framleiöslan eykst og veröbólgan
orðin aö engu. Viö búumst við aö
fjárfesting aukist strax á næsta ári.
Kreppur deyja aö lokum úr elli. Og
næstu ár veröa góö í Bandaríkjun-
um.
r