Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Qupperneq 18
18
DV. MANUDAGUR2. MAl 1983.
A f kvöldvorrósarolíu
Þaö tilheyrir á eylandi umluktu
reginhafi aö lögmál eru þar meö
dálítið öörum hætti en á meginlandi
þar sem gegnumstreymi er örara og
samfelldara og þróun því öll jafnari.
Sú var tíö aö Island og Færeyjar
voru eyjar svo einangraðar aö t.d.
mislingar bárust ekki þangað
áratugum saman svo aö nær allir
sem höföu haft mótefnið í blóðinu
voru dánir úr elli þegar næsta skriöa
kom.
Við slíkar aöstæöur eru skilyröi
fyrir sjúkdóminn best. Allir eru
móttækilegir. Eins og eldur í sinu
berst sjúkdómurinn út uns þorri
eyjarskeggja hefur.fengið hann og
þar meö ævilangt mótefni.
Nú eru samskipti viö umheiminn
orðin slík aö sjaldan liöur langt á
milli faraldranna. Aöeins börn eru
þá mótefnislaus og því móttækileg.
Faraldurinn verður ekki eins afger-
andi og áberandi.
A mörgum sviðum menningar-
mála eru skilyröin hins vegar svipuö
því sem var á heilsusviðinu fyrir
meira en hundrað árum. Ný della
skýtur upp kolli og breiöist út á
' ind raskömmum tíma.
Hjá fámennri þjóö eru fáir menn á
hverju sviöi sem geta hreyft and-
mælum þegar ný della hefur innreiö
sína og oft er efnið svo sérhæft aö
bókstaflega enginn kann nægileg skil
áþví.
Kvöldvorrósarolían er skólabókar-
dæmi um faraldur af þessu tagi þar
sem aðeins örfáir menn hafa þá
þekkingu til að bera, þaö mótefni, aö
dugi til aö fyrirbyggja hann, hefta
útbreiösluhans.
Gerír hún gagn?
Ekki eru þó allir faraldrar af þessu
tagi af hinu illa. Ef kvöldvorrósarolí-
an gerir gagn á hún rétt á sér
hvemig sem aö kynningu og auglýs-
ingu á henni er staöi ö ?
Svariö viö þessari spurningu er
stutt. Já, hún gerir án efa gagn. En
þaö em til betri leiðir aö sama
marki. Leiöir sem kosta minna fé og
eru líklega árangursríkari.
Þeir sem vilja njóta ávaxtanna af
jákvæöum áhrifum kvöldvorrósar-
olíunnar gætu líklega oröiö fyrir
meiri áhrifum fyrir minni tilkostnaö
meö því einu aö boröa góða og gamla
íslenska afurö...lýsi.
Til þess aö skýra þetta sjónarmið
ætla ég aö fjalla um allflókið mál á
eins einfaldan hátt og mér er unnt og
á þá á hættu að einfalda um of og þar
meö aö fá skömm í hattinn . . . . frá
kollegummínum.
Fituneysla
ísiendinga
íslendingar boröa ekkert meiri fitu
en gerist og gengur meöal grann-
þjóðanna. En að einu leyti er fitu-
neysla okkar frábmgöin fituneyslu
nær allra annarra þjóöa.
Munurinn er sá aö viö borðum
sérlega mikiö af mettaöri eða haröri
fitu og sérstaklega lítiö af fjölómett-
aöri eöa fljótandi fitu. Er þessi
munur í sumum tilvikum verulegur.
Þetta þýöir aö fitan sem viö
borðum er haröari en gerist og
gengur. Er þetta mælt með svo köll-
JónÓttarRagnarsson
uöu fitumýktarhlutfalli eöa F/M-
hlutfalli sem er sérlega lágt í fæöi
íslendinga.
Fyrir 25 árum var F/M-hlutfallið í
fæðinu um þaö bil 0,10—0,15, en
hækkaöi síðan smám saman í um þaö
bil 0,2. Samkvæmt norrænum ráö-
leggingum er vonast til að þetta hlut-
fall hækki í 0,5.
Harðfeitineysla Islendinga er
mikiö áhyggjuefni fyrir þá sök aö
haröfeiti stuölar aö hækkaöri blóö-
fitu sem aftur eykur verulega lík-
umar á kransæöastíflu og ööram
blóðrásarsjúkdómum.
Þrátt fyrir mikla haröfeitineyslu
hér á landi er tíöni kransæðastíflu
ekki eins há og hún er í sumum
löndum þar sem neysla harðfeiti er
talsvert minni. Hvernig má skýra
þaö?
Ýmislegt bendir til þess aö neysla
Islendinga á fiskolíum (lýsi) hafi
vemdað þá að nokkru leyti gegn
þessum sjúkdómum og af þeim
sökum hafi tíönin ekki verið eins
mikil og ella.
Þessi vemdun hefur þó veriö til-
tölulega takmörkuð vegna þess aö
Islendingar hafa fyrst og fremst
borðaö magran (fitusnauöan) fisk,
þótt þetta sé smám saman aö breyt-
ast.
Til þess aö skýra hin mismunandi
áhrif mismunandi olíutegunda verð
ég í stuttu máli aö fjalla um efna-
fræöi fitu til þess aö almenningur
skilji um hvaö máliö snýst og deilan
stendur.
Fita og heiisa
ÖIl fita er aö mestu gerö úr fitu-
sýrum. Em þær margs konar. Sér-
staklega hollar em svokallaöar fjöl-
ómettaðar fitusýrur eða FÓFS sem
mikið er af í allri mjúkri og fljótandi
fitu.
FOFS skiptist í tvo flokka eöa
ættir og er önnur kölluö n-3 en hin n-»
6. Hafa fitusýrur úr þessum tveim
flokkum dálítiö mismunandi áhrif á
líkamsstarfsemina.
FOFS, bæði n-3 og n-6 fitusýrur,
em kallaöar lifsnauösynlegar fitu-
sýrur vegna þess að líkami okkar
getur ekki án þeirra veriö og verður
því aö fá þær úr fæði eins og önnur
bætiefni, td. vítamín.
Rannsóknir hafa sýnt aö FOFS
mynda í líkamanum afar mikilvæg
efni sem einu nafni verða kölluö
prostaglandín. Hafa þessi efni marg-
vísleg áhrif í líkama okkar.
Sum prostaglandín eru „jákvæö”
aö því leyti aö þau hægja á blóö-
storknum, draga úr hættu á blóö-
tappamyndun og víkka æðamar.
önnur prostaglandín em „neikvæö”
og hafa gagnstæö áhrif.
Allar FOFS viröast geta myndaö
bæöi hin „jákvæöu” og hin
„neikvæðu” prostaglandín, en hlut-
fallið þama á milli viröist hins vegar
vera hagstæöara þegar n-3 fitusýrur
eiga í hlut.
En hvaöan fáum viö þá n-3 fitu-
sýmr? Fyrst og fremst úr fiskolíum
og fitu annarra sjávardýra. I jurta-
olíum, t.d. kvöldvorrósarolíu, eru
nær eingöngu n-6 fitusýmr.
Öfugt viö harðfeiti stuöla FÖFS aö
því að blóöfitan lækkar og hættan á
kransæðastíflu minnkar. En n-3
FOFS lækka blóðfituna hins vegar
ennþá meira en n-6 fitusýmr.
Rannsóknir sýna, nánar tiltekið,
aö n-3 fitusýrur lækka blóöfituna 2—5
sinnum meira en n-6 fitusýrur,
gramm fyrir gramm. Fiskolíur eru
því áhrifameiri en jurtaolíur.
Til þess aö draga úr hættu á krans-
æðastíflu skiptir því mestu aö
minnka neyslu á fitu yfirleitt, sér-
staklega haröri fitu. En jafnframt
ættum við aö auka lítillega neyslu á
FOFS.
Vegna þess hve mikilvægt er aö
heildarneyslan á fitu lækki er gagn-
legra aö auka neyslu á fiskolíum en
jurtaolíum vegna þess aö þá þarf
yfirleitt minna magn af olíu.
Hvað með aðra
blóðrásarsjúkdóma?
Fram aö þessu hefur eingöngu
verið rætt um sjúkdóma í
kransæöum (hjartasjúkdóma). Hvað
um sjúkdóma í heilaæðum (heila-
blóöfall)?
Meö því aö auka neyslu á FOFS og
lækka þannig blóöfituna minnkum
viö líka hættuna á heilablóöfalli.
Hins vegar er hár blóðþrýstingur
mikilvægari áhættuþáttur hér en há
blóðfita.
Svo ótrúlega vill til aö rannsóknir
hafa nú sýnt aö aukin neysla á FOFS
hefur einnig lækkandi áhrif á blóö-
þrýsting. Fiskolíur og jurtaolíur
koma þá einnig við sögu hér.
Enn era rannsóknir á þessum þætti
ekki komnar á þaö stig að unnt sé að
gera greinarmun á fiskolíum og
jurtaolíum. Við skulum því telja þær
jafngildar uns annaö kemur í ljós.
Hvað um krabbamein?
Nýlegar rannsóknir benda
sterklega til að samband sé á milli
tíöni krabbameins annars vegar og
fituneyslu hins vegar. Enn koma því
olíurnar (sem og önnur fita) viö
sögu.
Þaö sem mestu máli viröist
skipta hér er heildameysla fitunnar,
þ.e. aö dregið sé úr fituneyslu
almennt. Gæti slíkt lækkaö tíöni á
t.d. krabbameini í brjóstum og ristli.
Ekki er taliö aö neysla á FÖFS sem
slík hafi nein jákvæð áhrif á
krabbamein. Þvert á móti er taliö
heppilegast aö draga úr neyslu á
öllum tegundum fitu, einnig FOFS.
Þetta styöur enn frekar þá skoöun
aö auka neysluna frekar á fiskolíum
þar sem minna magn þarf til þess aö
gefa aukna vemd gegn blóðrásar-
sjúkdómum og þarf þá minna magn
til.
Lokaorð
Á árunum frá 1965 til 1980 jókst
F/M-hlutfall í fæöi íslendinga úr um
0,13 í um 0,20. Kom nær öll þessi
aukning til vegna aukinnar neyslu á
jurtaolíum, einkum sojaolíu.
Margt bendir til þess aö F/M-
hlutfalliö mætti aukast enn nokkuö
því að enn er þetta hlutfall hér á
landi meö allra lægsta móti og kann
því aö vera afbrigðilega lágt.
Þaö er þó ekki magniö af olíunum
sem virðist skipta mestu máli,
heldur og ekki síður gerð þeirra.
Bendir nú margt til að íslendingar
ættu aö auka nokkuð neyslu á fisk-
olíum.
Margt bendir til þess aö neysla á
a.m.k. 4—8 grömmum af n-3 FOFS
úr fiskolíum af einhverju tagi á dag
gæti veitt umtalsverða vörn gegn
kransæöasjúkdómum án þess aö
fituneysla aukist aö ráöi.
Hitt má þó aldrei gleymast aö þaö
sem mestu máli skiptir er aö borða
minni fitu almennt og sérstaklega að
borða minna af harðfeiti, sérstak-
lega vítamínsnauöri haröfeiti.
Um kvöldvorrósarolíuna er því
þaö að segja aö hím er gagnleg, en of
dýr til þess aö veröa fastur þáttur í
fæðinu. Auk þess eru fiskolíurnar
líklega heppilegri, eins og áöur var
nefnt.
Jón Öttar Ragnarsson.
A „Hitt má þó aldrei gleymast að það sem
^ mestu máli skiptir er að borða minni fitu
almennt og sérstaklega að borða minna af
harðfeiti, sérstaklega vítamínsnauðri harð-
feiti.”
ÁLVERKPALLAR
Eigum til sölu og leigu afar hentuga álverkpalla í 4 gerðum til notkunar
úti sem inni.
Alu-Quick 80.
Vinnuhæð allt að 4 m.
Lengd 1,80 m.
Breidd 0,60 m.
Alu-Quick 200.
Vinnuhæð allt að 3,75 m.
Lengd 1,80 m.
Breidd 1,80 m.
Höfum einnig
til sölu og leigu:
stálverkpalla,
loftastoðir
og álstiga.
Alu-Star 80.
Vinnuhæð frá 4,50 — 17,50 m.
Lengd 2,60 m.
Breidd 0,60 m.
jjy
íU- ^
Alu-Star 140.
Vinnuhæð frá 4,50—17,50 m.
Lengd 2,60 m.
Breidd 1,20 m.
r'Y f ■: ' I ! '•
.rr <r ’ fá i’■
é
t:í -l i
Pallar hf.
Vesturvör 7 Kópavogi.
Sími 42322.