Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Side 23
23
DV. MÁNUDAGUR 2. MAl 1983.
Allt um
íþróttir
helgar-
innar
Frjálst, óháÖ dagblað
EKKINIÐURSTAÐA ENN
Nefnd Handknattleikssam-
bands íslands átti í gær fund meö
Bogdan Kowalczyk. Eins og
skýrt hefur verið frá hér í blaðinu
hefur Bogdan verið boðiö að
þjálfa íslenska landsliðið i hand-
knattleik. Engin niðurstaða varð
á fundinum í gær en málinu hald-
ið áfram.
Stjórn Handknattleikssam-
bands íslands kemur að venju
saman til stjórnarfundar á
mánudegi. Eflaust verður f jallað
um landsliðsþjálfarastöðuna á
fundi hennar í dag. -hsím.
Teitur Þórðarson á förum frá Lens?
..Það er allt upp í loft
milli mín og biálfarans”
—Tilbúinn f Evrópuleikina við Spán og Möltu
Teitur Þórðarson.
„Það getur alveg eins farið svo að ég
hætti hjá Lens eftir þetta leiktímabil
þó svo ég eigi eitt ár eftir af samningi
mínum við félagið. Þaö er allt upp í loft
milli mín og þjálfara liðsins, Gerard
Houiller, og ég er mikið að velta því
fyrir mér að reyna að skipta um félag.
Það er ákvæði í samningi mínum við
Lens að ég geti fariö eftir eitt ár af
samningstímanum og það er einmitt
um þessar mundir. Þetta er svona
svipað ástand og var milli þjálfara
Bayern Miinchen og Ásgeirs Sigurvins-
sonar,” sagði Teitur Þórðarson þegar
DV ræddi við hann á laugardag.
„Ég hef alveg náð mér af meiðsl-
unum sem háðu mér mjög í vetur.
Komst aftur í aðalliðið fyrir nokkrum
vikum. Lék þó ekki nema einn heilan
leik og byrjaði á öðrum. Var svo oft 12.
maður en að undanförnu hef ég leikiö
með varaliðinu. Gengið nokkuð vel þó
maður hafi svo sem engan áhuga á að
leika með því. Keppnistímabilinu í
Frakklandi lýkur í byrjun júní.
Fimm umferðir eftir,” sagði Teitur.
Evrópuleikirnir
Gætirðu komið í Evrópuleikina við
Spán 29. maí og við Möltu fyrst í júní?
„Eins og málin standá núna sé ég
ekkert því til fyrirstööu, verði ég
valinn. Eg hef fengið bréf frá íslensku
landsliðsnefndinni og Jóhannes
Atlason, landsliðsþjálfari, hefur haft
samband við mig í síma. Það eina sem
gæti breytt stöðunni hjá mér núna er
að ég stæöi í einhverjum flutningum
með fjölskylduna vegna félagaskipta.
En á þessu stigi er allt óráðið með
þaö,” sagði Teitur Þórðarson.
Heil umferð var í 1. deildinni í
Frakklandi á föstudag. Lítil breytingá
stöðunni eftir þá og Nantes þarf nú
aöeins fjögur stig úr þeim fimm
umferðum, sem eftir eru, til að tryggja
sér meistaratitilinn..
Urslit í leikjunum uröu þessi.
Viðar f ékk
reisu-
passann
— f blómaleik FH
Viðar Halldórsson, fyrirliði FH í
knattspyrnu, var rekinn út af í blóma-
leik sinum gegn Keflavík í Litlu-bikar-
keppninni. Viðar, sem lék sinn 3ð0.1eik
fyrir FH, var rekinn af leikvelli fyrir
aö mótmæla dómi þegar dómarinn
dæmdi skref á markvörð FH-inga —
eftir nýju skrefareglunni.
Keflvíkingar tryggðu sér sigur í
Litlu-bikarkeppninni með því að leggja
FH að velli, 3—1, á Kaplakrikavell-
inum. Skúli Rósantsson, Einar Ásbjörn
Ólafsson og Björgvin Björgvinsson
skoruðu fyrir Keflavík, en Jón Erling
Ragnarsson skoraði fyrir FH.
Staðan er nú þessi í keppninni:
Keflavik 4 4 0 0 13—2 8
Akranes 3 2 0 1 6—2 4
Breiðablik 3 1 0 2 7-6 2
FH 3 1 0 2 4—8 2
Haukar 3 0 0 0 2—13 0
-SOS.
Valurvanná
sjálfsmarki
Valsmenn unnu sigur, 1—0, yfir KR-
ingum í Reykjavikurmótinu í knatt-
spyrnu á Melavellinum á laugar-
daginn. Markið, sem Valsmenn skor-
uðu, var sjálfsmark KR-inga.
Staðan er nú þessi í mótinu:
Fram 4 3 1 0 8—1 9
Víkingur 4 4 0 0 8—1 9
Valur 4 2 0 2 6-3 5
KR 4 112 3-63
Þróttur 4 112 3-63
Fylkir 4 1 0 3 3-7 2
Ármann 4 0 13 1—8 1
Víkingur leikur gegn Þrótti í kvöld
kl. 19.
Gummersbach
EM-meistari
Gummersbach varö sigurvegari í
Evrópukeppni meistaraliöa, þótt
félagið hafi tapað 13—14 fyrir ZSKA
Moskva í Dortmund í gær. Gummers-
bach vann í Moskvu, 19—15, á dög-
unum
„Ákveðinn að vera
með í 1. deildar-
slagnum”
- segir Atli Hilmarsson, sem er að koma heim
fráV-Þýskalandi
Atli Hilmarsson, fyrrum landsliðs-
maður í handknattleik, sem leikur með
3. deildarliðinu Hamlen í V-Þýska-
landi, hefur ákveðið að koma aftur
heim til íslands og leika hér hand-
knattleik. — Ég er ákveðinn að koma
heim og ætla að leika með 1. deildar-
félagi, sagði Atli, sem er fyrrum leik-
maður með Fram. Atli sagðist ekki
vera búinn að gera það upp við sig með
hvaða félagi hann mundi leika. — Það
hafa flest 1. deildarfélögin haft sam-
band við mig, en eins og málin standa
nú hef ég ekki tekið ákvörðun um til
hvaða félags ég fer, sagði Atli, sem
hefur verið sterklega orðaður við
íslandsmeistara Vikings.
Atli átti stórleik með Hamlen gegn
Hamborg á laugardaginn þegar
félagið tryggði sér sigur í 3. deildar-
Guðmundur
og Broddi
úrleik
Guðmundur Adolfsson lagði Perú-
manuinn Federico Valdez að velli 15—
9, 17—18 og 15—11 í undankepþni
heimsmeistaramótsins í badminton.
Guömundur varð síðan úr leik í einliða-
leikskeppninni er hann tapaði, 10—15
og 8—15 fyrir V-Þjóðverjanum Rolf
Riissler.
Broddi Kristjánsson lék ekki gegn
Norðmanninum Geir Dahl Morgen þar
sem Norðmaöurinn mætti ekki til leiks.
I annarri umferð undankeppninnar
tapaöi hann svo fyrir Nígeríumann-
inum Samson Egbeyemi, 15—18 og 10—
15. -SOS
keppninni. Hann skoraði 9 mörk með
langskotum þegar Hamlen vann
öruggan sigur, 26—20. Atli hefur
skorað 113 mörk á keppnistímabilinu.
Við leikum okkar síðasta leik á
keppnistímabilinu gegn Swabing í 16-
liða úrslitum bikarkeppninnar og
verður það erfiður leikur þar sem
leikið er í Miinchen, sagði Atli.
Atli hefur fengiö nokkur tilboð frá
félögum í V-Þýskalandi og eitt þeirra
er frá 2. deildarliðinu Altenholz. —
Hann hafnaöi því þar sem hann ætlar
að koma heim og er hann væntanlegur
í lok maí eða í byrjun júní. -SOS.
Tveir Haukar
reknir út af
Tveir leikmenn Hauka voru reknir af leik-
vclli þegar Brei&ablik vann Rauka, 5—2, í
Litiu-bikarkeppninni á laugardaginn. Þa& var
Kópavogsbúinn Ólafur Hákonarsson sem rak
þá Loft Eyjólfsson og Ómar Strange af velli
mcð minútu millibili. Loftur og Hennig Henn-
ingsson skoruðu mörk Hauka en þeir Vignir
Baldursson, Sævar Gunnleifsson (2) og Ing-
valdur Gústafsson (2) skoruðu mörk Breiða-
bliks. -SOS.
Axel skorinn
upp á hné
Axel Axelsson, fyrrum landsliðs-
maður í handknattleik, hefur verið
skorinn upp við liðmús í hné og mun
hann því ekki leika meira meö Dauker-
sen í V-Þýskalandi. Eins og menn
muna meiddist Axel á hásin fyrr í
vetur og hefur þvi ekkert getað leikið
með Dankersen. Axel kemur alkominn
heim í júní. -SOS.
Atli Hilmarsson.
Nantes—Tours 2—1
Bordeaux—Sochaux 3—1
Paris SG-Lille 4—1
Monaco—Auxerre 1—1
Lenz—St. Étienne 4—2
Lyon —Laval 2—0
Nancy—Rouen 2—0
Brest—Toulouse 2—2
Mulhouse—Metz 3—4
Bastia—Strasbourg 1—1
STAÐAN
Nantes 33 21 8 4 64—21 50
Bordeaux 33 19 6 8 61—40 44
Paris SG 33 17 7 9 55—41 41
Monaco 33 12 14 7 46—27 38
Lens 33 16 6 11 55—49 38
Laval 33 12 12 9 35-37 36
Nancy 33 14 7 13 63—51 35
Brest 33 10 14 9 50—51 34
Auxerre 33 10 12 11 46—40 32
Metz 33 11 10 12 55—58 32
Toulouse 33 13 6 14 44—57 32
Sochaux 33 7 16 10 44—45 30
Lille 33 12 6 15 32—39 30
St. Etienne 33 10 10 13 33—42 30
Strasbourg 33 9 11 13 33-46 29
Tours 33 10 7 16 53—62 27
Rouen 33 10 7 16 42—51 27
Bastia 33 7 12 14 37-49 26
Mulhouse 33 9 7 17 43—71 25
Lyon 33 9 6 18 49-66 24 -hsim.
Örn í gifsi
Örn Óskarsson, landsliösbakvörður i
knattspyrnu, mun ekki geta leikið með
Þrótti fyrstu leiki liðsins í 1. deild, þar
sem hann er nú í gifsi og þarf að vera í
því í tvær vikur. Örn hefur átt við
meiðsliihásinaðstriða. -SOS.
„Ekki ákveðið hvort ég
ferafturíÞrótt”
— segir Sigurður Sveinsson, stórskyttan'
íhandknattleik
Sigurður Sveinsson, landsliðs-
maður i handknattleik, mun ekki
leika áfram með Nettelstedt eftir
þetta keppnistimabil. — Ég muu
koma heim i byrjun júní, sagði Sig-
urður í stuttu spjalli við DV í gær.
Sigurður sagðist ekki vera búinn aö
ákveða hvort hann gengi aftur til
liðs við Þrótt eða gerðist Icikmaöur
með ööru 1. deildarfélagi. — Það á
eftir að koma í ljós, sagði Sigurður.
Siguröur sagði að hann reiknaði
með því að Bjarni Guðmundsson
yrði áfram í V-Þýskalandi en hann
væri með nokkur tilboð frá félögum
í „Bundesligunni” og 2. deild upp á
vasann.
Það er því ljóst að Bjarni verður
eini íslenski handknattleiksmaður-
inn sem verður áfram i V-Þýska-
landi. Sigurður, Axel Axelsson og
Atli Hilmarsson eru allir á leiðinni
heim.