Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Page 11
DV. LAUGARDAGUR 21. MAl 1983.
11
Flest af því er af hinu góöa
og mun því leiða gott eitt af
sér.
Júní: Fyrstu dagamir
fara hægt af stað, en svo
gerist ýmislegt sem á eftir
að hafa áhrif á framtíð þína
og það góð áhrif! Og þótt þú
sért í sumarskapi og látir
hverjum degi nægja sína
þjáningu er ekki verra að
þú hugir aðeins að framtíð-
inni með þetta í huga.
Júlí: AUt gengur þér í
haginn. Þú nýtur þessara
daga og hvUir þig frá
amstri daglega stritsins.
Nú er líka tími fyrir róman-
tíkina og eins og aUt annað
lofar hún góðu! En einhver
vandræði kunna þó að
stinga upp koUinum, senni-
lega vegna þriðju persónu
semkemurí spUið.
Ágúst: Þú þarft að leysa
vandamálin. Þessi em af
þeim toga að þau þurfa að
leysast fljótt og vel. Þú
nærð tökum á þeim og ró
ræður á ný. Þegar þú lítur
tU baka tU sumarsins minn-
ist þú skemmtilegs sumars
í góðum hópi fjölskyldu,
vina og kunningja.
Sérstaklega ánægjulegur
tími fer í hönd hjá þeim
sem fæddir eru undir merki
drekans. Þú átt sérstak-
lega auðvelt með að um-
gangast fólk nema aðra
dreka og hrúta! Framtíðin
virðist björt.
Júní: Loksins tekst þér
að losna undan oki hvers-
dagsleikans og þér opnast
nýr heimur. Þú kynnist
mörgu skemmtilegu fólki
sem sumt hvert á eftir að
hafa áhrif á þig í náinni
framtíð. En gættu að
hverja þú umgengst, það
eru ekki aUir sem þeir sýn-
ast!
Júlí: Það gætir einhvers
óöryggis hjá þér. Þú neyð-
ist tU að breyta áður
ákveðnum áformum. Eng-
in ástæða er þó tU að láta
hugfallast því þú kynnist
persónu sem þú annars
hefðir ekki kynnst. Gættu
heUsunnar vel.
Ágúst: Þegar líður á
mánuðinn verður þú sífellt
ánægðari með lífið og tU-
veruna. Þú átt góöa vini
sem hvetja þig tU dáða. Og
þú horfir bjartsýnn fram til
vetrarins sem í hönd fer.
Allt útUt er fyrir að
pyngjan þyngist aUveru-
lega! ^
Sem fæstar breytingar
virðist kjörorð þeirra, sem
fæddir eru undir merki
bogmannsins, fyrir sumar-
ið. Þetta er ekki likt bog-
manninum en nú er hann
orðinn leiður á öllu tUstandi
og þráir rólegheit.
Júní: Þessa daga er til-
breytingaleysið allsráð-
andi og þér finnst það á-
gætt, enda nýtur þú sólar
og sumars eins og best
verður á kosið. Síðustu
daga mánaðarins verður
þú þó að taka ákvörðun í
mikUvægu máU. Og öUu
skiptir að vera samstarfs-
fús.
JúU: Þú ert ekki einn í
heiminum og nauðsynlegt
er að hafa einhver tengsl
við fóUc. Þegar aUt kemur
tU alls ertu heldur ekkert á
móti því. Þetta fólk hjálpar
þér að taka réttu ákvörðun-
ina.
Ágúst: Einhver ljón
verða á vegi þínum. Eitt-
hvað, sem þú hefur fast-
lega reiknað með bregst.
En ekki eru ÖU sund lokuð.
Þú færð í staðinn eitthvað
annað sem þú ert miklu
ánægðari með! Aftur
kemst ró yfir tUveruna og
allt feUur í ljúfa löð. Gættu
þó heilsunnar og f járhags-
ins vel. 4SL.
Anægjuríkt sumar stend-
ur fyrir dyrum hjá fólki
sem er fætt undir merki
steingeitarinnar. Þú þráir
hvUd frá amstri dagsins og
það tekst þér svo sannar-
lega.
Júní: Þessa daga verður
að veruleika áform sem þú
og þínir hafa lengi talað
um. Skemmtilegur tími fer
í hönd og þú skalt ekki
hugsa um neitt nema sjálf-
an þig og þína nánustu! Þú
átt þaðskUið!
Júlí: Selskapsljónið í þér
fær útrás þessa daga!
Varaðu þig nú samt á því
að taka skemmtanalífið of
geyst! Ánægjulegir dagar
fara í hönd og engin vara-
söm ský virðast á himni!
Ágúst: Þú skalt fara
gætUega og forðastu að tala
óvarlega í návist ó-
kunnugra. Maður veit
aldrei hvað það gæti leitt af
sér. Ástin blómstrar og
fjárhagurinn vænkast.
Vatnsberar ættu að taka
lífinu með ró þetta sumar-
ið. Einhver óróleiki mun
gera vart við sig en koma
mun í ljós að óþarft er að
gera úlfalda úr mýflugu.
Júní: Þessi mánuður fer
hægt af stað. En er á líður
kemst rót á tUfinningalífið
sem getur haf t mikU áhrif á
framtíðina. Láttu ekki til-
finningasemi ná tökum á
þér, vertu yfirvegaður og
þannig nærðu mestum
árangri í lífinu.
Júlí: Öldur tUfinninga-
lífsins hefur enn ekki lægt.
En náinn vinur kemur þér
til hjálpar og þú kemst að
niðurstöðu og friður og ró
færist yfir á ný. Ferðalag
er á næsta leiti sem verður
eftirminnUegt.
Ágúst: Þér býðst tæki-
færi sem þig hefur lengi
dreymt um. Nú getur þú
hrint í framkvæmd áform-
um sem þú lengi hefur haft
í huga. Þú kynnist persónu
sem á eftir að skipta sköp-
um í lífi þínu. Gættu heUs-
unnar og f járhagsins.
Fyrir þá, sem fæddir eru
undir merki fiskanna, gæti
sumarið orðið eitthvert það
besta er þeir hafa lifað. En
gættu þín þó ef þú stofnar
tU nýs kunningsskapar.
Það getur heppnast en líka
orðið mistök ef ekki er rétt
að verki staðið.
Júní: Þér býðst tækifæri
sem þú hefur lengi vonast
eftir. En ekki skaltu samt
gera þér of miklar vonir og
þú skalt hugsa þig tvisvar
um áður en þú tekur á-
kvörðun. Láttu þetta ekki
koma niður á f jölskyldunni.
Fjölskyldan ætti að eyða
sumarleyfinu saman. Það
gæti orðið skemmtilegt!
Júlí: Nú kemur í ljós
hver er vinur í raun! Það
eru skemmtUegir dagar
framundan, selskapslífið
og rómantíkin blómstra.
Þér gengur aUt í haginn.
Ágúst: Einhverjir erfið-
leikar virðast vera á næsta
leiti. En ef að líkum lætur
og rétt er á málum haldið
rætist úr og betur fer en á
horfðist. Láttu ekki skapið
hlaupa með þig í gönur.
Það leiðir aldrei gott af sér.
Mundu að metnaður er góð-
ur og blessaður, svo
framarlega sem hann er
ekki á kostnað fjölskyld-
unnar.
BRIDGESTONE
Lítið dýrari en
sóluð dekk, en
miklu endingar-
betri...
og gleymum heldur
ekki örygginu!
Nú fást bæöi Bridgestone radial og diag-
onal hjólbarðar hjá hjólbarðasölum um
land allt.
<bs)
bridge STONE á íslandi
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23, sími 812 99