Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Page 2
2
DV. FÖSTUDAGUR24. JUNI1983.
HUNDRAÐ ÍSLENDINCr
AR í PÍLAGRÍMAFLUG
—Flugleiðir verða með eina Júmbóþotu ogþrjáráttur
Beðiö er eftir staðfestingu stjóm-
valda í Alsír á stórum samningi um
pílagrímaflug sem Flugleiðir hafa gert
við Air Algérie. Samningurinn hljóðar
upp á um tíu milljónir Bandaríkjadala.
Samningurinn nú er að stærð svipað-
ur þeim í fyrra, sem var sá allra
stærsti pílagrímasamningur sem Flug-
leiðir höfðu þá gert. Gert er ráð fyrir
að 35 þúsund pílagrímar verði fluttir
frá Alsír til Jedda og til baka á tímabil-
inu frá 23. ágúst og fram í miðjan
október.
Flugleiðir munu þurfa aö taka á
leigu tvær þotur frá SAS meö áhöfnum,
Boeing 747 og DC-8. Félagið hyggst auk
þess nota tvær af eigin DC-8 þotum til
flugsins. Er búist við að um eitt
hundraö Islendingar muni starfa við
þetta verkefni.
Flugleiðir hafa tekið að sér flug með
pílagríma á hverju ári frá 1975. Félag-
ið hefur tekið að sér stærra verkefni
með hverju árinu. Er nú svo komið að
þetta flug er orðið verulegur hluti af
heildarstarfseminni.
-KMU.
Upprennandi knapi i jafnvægisæfingum.
Reiðnámskeið
og iþróttamót
— adSigmundastööumHálsasveit
Reiðnámskeið fyrir alla aldurs-
hópa hafa staðið yfir í júní að Sig-
mundastöðum i Hálsasveit.
Krakkar, 8—12 ára, æföu jafn-
vægisæfingar, fengu tilsögn í gerði
við stjómun og ásetu, stunduöu út-
reiðarauk íþrótta og leikja.
Almennt námskeiö Reynis Aðal-
steinssonar til undirbúnings Iþrótta-
móts Faxa sóttu 30 Borgfirðingar.
Dagana 17.—18. júní var haldið
iþróttamót aö Sigmundastööum í 3ja
sinn. Þar var boöiö upp á léttari
keppnisgreinar, 4 gangtegundir og
tölt fyrir lítt þjálfaða hesta og knapa.
Ný keppnisgrein var á mótinu sem
talin er henta öllum aldurshópum og
flestum hestum. Riðin er ákveðin
vegalengd og menn leysa þrautir á
leiðinni sem koma fyrir i útreiðum og
daglegri umgengni við hestinn.
Einungis er dæmt hvort þrautin er
leyst eða ekki.
Kvöldskemmtanir hafa verið
haldnar í tengslum við þessi mót.
Þeir sem vilja hafa farið ríðandi frá
mótsstað á dansleik. Að Sigmunda-
stööum verða tjaldstæði og matur á
boðstólum ef óskað er.
-ÞR, Amheiðarstöðum.
Boemg 474 þotan sem Flugleiðir tóku á leigu í fyrra vegna pilagrimaflugsins.
Þotan er við hina glæsilegu flugstöð i Jedda, sem byggð er fyrir olíugróða Saudi-
Arabíu. Myndin er úr tímaritinu Flug. Hana tók Ólafur Bragason.
Tfu ár frá goslokum íEyjum:
Flotaforíngjamessa
frumflutt i Eyjum
Frá Friðblrni Ó. Valtýssyni, frétta-
ritara DV í Vestmannaeyjum:
Kór Landakirkju í Vestmannaeyjum
ásamt einsöngvurum og hljóðfæra-
leikurum úr Sinfóníuhljómsveit Is-
lands frumflytur Nelson-messu eftir
þýska tónskáldið Joseph Haydn 3. júli
næstkomandi, en þá eru liðin tíu ár frá
því gosinu lauk hér í Heimaey.
Landakirkjukórinn er skipaöur 40
söngvurum. Einsöngvarar verða þau
Sigríður Gröndal, Anna Júlíana
Sveinsdóttir, Siguröur Björnsson og
Geir Jón Þórisson. Stjórnandi verksins
erGuðmundur H. Guðjónsson.
Að söen Kristínar Georgsdóttur, eins
forsvarsmanns kórsins, hefur undir-
búningur staðið yfir frá því í
september síðastliönum. Æft hefur
verið af krafti. Og nú í lokin á hverju
kvöldi fram að flutningi verksins. Már
Magnússon söngkennari hefur Að-
stoðað við raddþjálfun.
Nelson-messan er tileinkuð hinum
fræga enska flotaforingja, Horatio
Nelson, sem uppi var á síðari hluta
átjándualdar.
„Eg tel að flutningur þessa tónverks
verði hápunkturinn á hátíðahöldum
okkar eyjaskeggja, er við minnumst
þess, að tíu ár eru liðin frá goslokum,”
sagðiKristínGeorgsdóttir. -JGH
Kór Landakirkju. Undirbúningur messunar hefur staðið frá því síðastliðið
haust.
TÓLFDAGA USTAVAKA íSTRANDASÝSLU
— leikhús, upplestrar tónlist, myndlist o.fí.
Tólf daga listavaka stendur nú yfir í
Strandasýslu. Hófst hún 19. júní, þegar
Hjördís Hákonardóttir sýslumaður
opnaði myndlistarsýningu 11 kvenna á
Hólmavík. Flutti sýslumaður ávarp,
en Kristín Bjamadóttir leikkona las
frumort Ijóð.
Konumar sýna vefnað, grafik og
leirlist. Hildur Hákonardóttir vefari
valdi verkin og setti sýninguna upp.
Flesta daga er eitthvað á boðstólum
einhvers staðar í sýslunni. Þær Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari og Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari hafa
haldiö tónleika i Trékyllisvík og aö
Sævangi við Steingrímsfjörð.
I kvöld verður efnt til Jónsmessu-
brennu á Hóimavík og leikhús frá
Reykjavík, Svart og sykurlaust,
skemmtir við bálið. A morgun fara
leikararnir í Arneshrepp og skemmta
þar. A sunnudag veröa þeir á Laugar-'
hóli í Bjarnarfirði. Sama kvöld koma
þeir aftur til Hólmavíkur og verða með
fullorðinsefni á skemmtun í félags-
heimilinu. Meginkjami þeirrar
skemmtunar verður þó flutningur
Bergþóru Ámadóttur visnasöngkonu á
frumsömdu efni. Leikhúsið Svart og
sykurlaust lýkur hringferð sinni um
Strandasýslu með viðkomu á Borðeyri
kl. 16ámánudaginnkemur,27 júní.
Það sama kvöld verður bókmennta-
dagskráin. Ragnhildur fær að fljóta
með frumflutt í samkomuhúsinu Ar-'
nesi í Trékyllisvík. Efniö er einvörð-
ungu ljóð og sögukaflar eftir konur
sem ungt listafólk búsett í sýslunni
hefur valið og flytur. Listafólkið er frá
bæjunum Svanshóli og Bakka í
Bjarnarfirði og höfundarnafnið er
„Svansbakkablandiðafhjúpar....”
„Ragnhildar-dagskráin verður
endurtekin á Borðeyri þriðjudags-
kvöldið 28. júní og flutt í þriðja og síð-
asta sinn við slit listavökunnar á
Hólmavík fimmtudaginn 30. júní.
I tengslum við vökuna verða ís-
lensku kvikmyndimar A hjara
veraldar og Með allt á hreinu, enn-
fremur norska bamamyndin Pabbi,
mamma, böm og bíll, sýndar öðru
hvom á Hólmavík.
-IHH
A listavöku Strandamanna er margt gert fyrir yngstu kynslóðina. Þessi mynd var tekin í hittifyrra, þegar börn
frá Drangsnesi fögnuðu Vigdisi Finnbogadóttur forseta, en hún opnaði lisiavöku Strandamanna 1981.
DV-mynd: Gunnar öra.