Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Blaðsíða 32
TÚNÞÖKUR FYRIR ALLA. Áratuga reynsla tryggir gæðin. LANDVINNSLAN S/F. Pöntunarsímar: 78155 17216(99)5127. Matthías Bjarnason, heQbrigðis-, trygginga- og satngönguráðherra. „Ætla að sjá til hvort ég klára þetta ekki sjálfur” — segir Matthías Bjamason, sem hefur ekkiíhyggjuað ráða sér aðstoðarráðherra „Eg hef ekki í hyggju að ráða mér aðstoðarmann. Ég ætla að sjá fyrst til hvort ég klára þetta ekki sjálfur,” sagði Matthías Bjarnason, heilbrigð- is-, trygginga- og samgönguráð- herra, er DV spuröi hann um aöstoðarráðherra. „Þetta eru að vísu stór ráðuneyti og fleiri en eitt. Þetta gæti orðið erfitt,” sagði Matthías. -KMU. Einkunnamál flug- umf erðarst jóranema: TALINN SAKLAUS Ríkissaksóknari mun ekki ákæra í einkunnamáli flugumferöarstjóra- nemans. „Það var ekki talin sönnun fundin fyrir því að refsivert athæfi hefði verið framið,” sagði Þórður Bjömsson rikissaksóknari. Mál þetta snerist um meinta fölsun stúdentsprófseinkunna ungs pilts sem sótti um að komast i nám í flug- umferðarstjóm. Pilturinn hefur þeg- ar lokið hluta af námi sínu. Flugum- ferðarstjórar neituðu hins vegar að taka hann i verklegt nám meöan niðurstaða væri ekki fengin úr eink- unnamálinu. Af þessum sökum hefur piltinum i heilt ár verið haldið frá námi. Hann hefur á meðan veriö á iaunum sem nemi. -KMU. LOKI Hvað skyldi þaö taka < Sverrí mörg hjörí að semja? 27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR — AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1983. — Fyrsta mál sinnar tegundar hérlendis: Ók á þrjár kindur — krefst skadabóta Bóndi nokkur í ölfusi hefur nýveriö fengið skaðabótakröfur vegna skemmda sem urðu á bifreið sem ók á þrjár kindur bóndans í fyrrahaust. Tvær kindanna drápust í slysinu. Þetta mál er nokkuö óvenjulegt fyrir þær sakir að vanalega eru það öku- mennirnir sem hafa þurft að borga skaðann, bæði á kindum og bifreið. ökumaöur bifreiðarinnar segir í samtali viö DV að hann höfði þetta mál vegna þess að hann telji að kindumar hafi verið reknar í veg fyrir bif reiðina, svo og telur hann tíma til kominn að ökumenn á vegum iandsins leiti réttar síns gagnvart eigendum þeirra kinda sem séu að þvælast á þjóðvegum í tíma og ótíma. Málsatvik vora þau að bóndinn var að reka níu til tíu kindur í gegnum hlið sem er við býli hans við þjóðveginn milli Hveragerðis og Selfoss. Farið var að skyggja er þetta var. Skyndilega stukku þrjár kindur út úr hópnum og upp á veginn. Þar bar þá að nokkra bíla og lenti sá þeirra er f remstur fór á kindunum. Tvær kindanna drápust, eins og fyrr sagði, en ein slapp lifandi. Talsverðar skemmdir urðu á bif reiðinni. Þar sem ökumaöur bifreiðarinnar telur að óheimilt sé með öllu aö reka fé við þjóðvegi eftir að farið er aö skyggja, án eftirlits lögreglu, ákvað hann að höfða mál á hendur bóndan- um. Málið, sem verður tekið fyrir um næstu mánaðarnót, er eftir því sem næst verður komist, fyrsta mál sinnar tegundar hérlendis og því prófmál varöandi rétt ökumanna gagnvart roll- umá þjóðvegum landsins. -SþS. Bæjarfógetinn íEyjum: VEITIR EKKI LEYFITIL JONSMESSU- GLEÐI „Eg synjaði íþróttafélaginu Þór um leyfl til aö halda útiskemmtun á Jónsmessu,” sagöi Kristján Torfa- son, bæjarf ógetí í V estmannaey jum í samtaliviðDV. „Mér finnst vel séð fyrir skemmt- anahaldi hér og tel að ein stór útihá- tíð á ári sé fullnægjandi. Það fylgir viss hætta slíkum útihátiöum og það eru hamrar nærri svæðinu. Einnig hefur borið við aö unglingar hafi ver- ið með vín á þessum útiskemmtun- um. Það er rétt aö fulltrúi minn gaf vilyrði fyrir leyfi en hann þekkti ekki það sem á undan er gengið. Vissu- lega hafa þessar hátíðir Þórs verið haldnar hér síðustu 5 ár en þaö má segja aö betra er seint en aldrei. ” „Þetta kom flatt upp á okkur,” sagði Gunnar Ingi Einarsson hjá Iþróttafélaginu Þór. „Jónsmessu- hátíðir okkar hafá alltaf gengiö mjög vel fyrir sig. Mér skilst að fógeti telji þetta fylleríssamkomur og að ungl- ingar undir lögaldri séu með vín. En þaö vita allir aö það þarf ekki úti- skemmtanir til. Við erum mjög von- sviknir út af þessu enda fer mikil undirbúningsvinna í súginn. Það er grátlegt að á sama tíma og yfirvöld predika um nauðsyn æskulýðs- og íþróttastarfs fá íþróttafélögin ekkert fjármagn og fjármögnunarstarf okkar er stöðvað með þessum hætti.” -ás. Styttir upp á sunnudag Loks sér Veðurstofan fyrir endann á rigningunni sem skapraunað hefur höfuðborgarbúum og fleirum að und- anfömu. A sunnudag geta íbúar á vestanverðu landinu vænst þess að sjá til sólar á ný eftir margra daga bið. -KMU. Brúðkaup á Jónsmessunótt Laust eftir miðnætti í nótt, Jónsmessunótt, gaf séra Ámi Pálsson þau Normu Magnúsdóttur Norðdahl og Bjaraa Sigurð Bjarnason saman í heilagt hjónaband. Athöfnin fór fram í Kópavogskirkju. „Það var engin sérstök ástæða. Þetta var hugdetta,” sagði brúðguminn er DV spurði hann hvers vegna þessi óvenjulegi timi væri valinn til athafnarinnar. Ur kirkju héldu brúðkaupsgestir til veislu til að samfagna brúðhjónunum. „Ég ætla að bjóða fólkiuu að velta sér upp úr dögginni í nótt, ef það vill,” sagði Bjarai og hló. „Himininn hefur séð til þess að nóg er vætan.” -KMU/DV-myndir: EinarÖIason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.