Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 24. JUN! 1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Bretland:
Var fall Lak-
ersöðrum
flugfélögum
að kenna?
Bandarikjaþing hefur brotið stjórnarskrárlög á forsetanum að mati hæstaréttar.
Þingiö hefur brot-
/ð lög á forsetum
Tímamótaúrskurður hjá hæstarétti Bandaríkjanna
Búist er viö að bresk stjórnvöld muni
banna tveim breskum flugfélögum að
taka þátt í rannsókn bandarískra
stjómvalda á tildrögum gjaldþrots
Lakers flugfélagsins. Rannsóknin í
Bandaríkjunum beinist aö því hvort
flugfélög hafi bundist samtökum um
undirboð á flugfargjöldum til þess að
koma flugfélagi Sir Freddie Lakers á
hausinn.
Ekki er búist við öðru en bresku
flugfélögin tvö, F.ritish Airways og
British Caledonian, bregðist vel við
banni breskra stjórnvalda en umsjón-
armenn með þrotabúi Laker flugfé-
lagsins hafa ásakað þessi tvö flugfélög
um sama glæp. Umsjónarmenn þrota-
búsins hafa höfðað mál á hendur flug-
félögunum tveim og fjórum öðmm
vegna þessa máls og fara fram á 900
milljón doUaraskaðabætur.
Bann breskra stjórnvalda byggist á
lögum um verndun verslunarhags-
muna sem sett voru 1980, eftir að
bandarískir dómstólar fóm aö sekta
erlend fyrirtæki samkvæmt bandarísk-
um lögum um auðhringamyndanir.
Bandarískum þingmönnum brá
heldur í brún í gær þegar hæstiréttur
úrskurðaði aö um 50 ára bil hefðu þeir
brotið stjómarskrárlögin með því að
beita neitunarvaldi gegn forseta-
ákvörðunum þegar skoðanir rákust á.
V arö uppi fótur og f it meöal þingliðsins
til þess að undirbúa breytingar á lög-
unum.
Þessi hæstaréttardómur þykir hinn
mikilvægasti og í ljósi hans getur
þingið til dæmis ekki kallað Banda-
ríkjaher heim frá átökum erlendis ef
forsetinn hefur teflt hemum fram þótt
Bandaríkin séu ekki opinberlega í
styrjöld.
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu, að það stangaðist á við stjómar-
skrána aö þingið samþykkti lög sem
legðu forseta og stjórnarstofnunum í
hendur völd sem þingið síðan aftur
skerti með neitunarvaldi.
Þessi úrskurður þykir geta snert yfir
2001agagreinar.
7 hæstaréttardómarar greiddu
þessari túlkun atkvæði en 2 skiluðusér-
atkvæði.
Warren Burger, forseti hæstaréttar,
skrif aði í greinargerð með dómnum að
þingið yrði sjálft að lúta því valdi sem
það hefði útdeilt öðmm.
Fiðlarinn
á þakinu
í næstu viku verður endurvakinn
á sviði í London söngleikurinn
„Fiðlarinn á þakinu” og leikur þar
aðalhlutverkið ísraelski leikarinn
Topol sem einmitt sló í gegn í hlut-
verki Tveyeh fyrir 16 árum. Topol,
sem nú er 47 ára gamall, sagðist
vera hreykinn af því að hafa leikið
þetta hlutverk.
Sýningin sem er byggð á upphaf-
legu uppfærslunni verður í London
í tólf vikur. Topol lék í fyrstu upp-
færslunni 1967 og lék einnig aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni sem
gerð var eftir söngleiknum, 1971.
Sovétríkin:
Vantraust á
bandamönnum
Kremlverjar efast svo stórlega um
áreiðanleika pólska hersins, komi til
stríðs í Evrópu, að ákveðið hefur verið
að breyta áætlunum um liðsflutninga
vestur á bóginn frá Sovétrík junum, svo
þær liggi ekki um Pólland. Þessu held-
ur Henry Jackson, öldungardeildar-
þingmaður í Bandaríkjunum, fram en
hann er meðlimur í þeirri nefnd þings-
ins sem hefur með eftirlit með leyni-
þjónustunni aö gera.
Jackson sagði í viðtali nýlega að
samkvæmt áliti Bandaríkjamanna
yrðu 45% herafla Sovétmanna á landi
samsettur af sveitum frá öðrum ríkj-
um Varsjárbandalagsins. En í ljósi
þeirra átaka sem orðið hefðu í Pól-
landi, segir Jackson, geta Sovétmenn
ekki búist við sliku nú.
Pólland hefur yfirleitt verið álitið
hliðið sem herir austurblokkarinnar
myndu fara gegnum, komi til stríðs, en
samkvæmt frásögn Jacksons, sem
ekki vildi nefna heimildir sínar en
sagði þær áreiðanlegar, munu nú áætl-
anasmiðir Sovétmanna vinna að breyt-
ingum á fyrirhuguðum herflutninga-
leiðum, svo nú sé reiknaö með stórum
krók suður á bóginn, um Tékkóslóva-
kíu. Jackson sagði einnig að lykil-
ástæða fyrir því að Sovétmenn vildu nú
bæta samband sitt viö Kína væri sú að
með því mætti flytja herafla frá landa-
mærunum þar vestur til Varsjár-
bandalagsríkjanna og með því treysta
böndin sem binda þau við Sovétríkin.
Þessar yfirlýsingar Jacksons koma í
kjölfar umræðu í Bandaríkjunum um
sundrungu innan Varsjárbandalags-
ins.
Einn læknanna í hungurverkfaliinu í ísrael hneig niður við skurðarboröið og sést
hér kominn sjálfur í s júkrarúmið.
Sjúkrahús
fyllast af
læknunum
sjálfum
Nokkrir ísraelskir Iæknar eru nú
hafðir í gjörgæslu en sjúkrahúsin eru
knúin til þess að vísa frá flestum sjúkl-
ingum vegna læknaverkfallsins. Sumir
læknamir eru búnir að vera 11 daga í
hungurverkfalli.
Samningaviðræöur við lækna stóðu
langt fram á nótt, en heilbrigðisráð-
herrann íhugar að kveða til herlaskn-
ana til starfa á hinum almennu s júkra-
húsum.
Nær helmingur þeirra 7 þúsund
lækna sem starfa á vegum þess opin-
bera (utan hersins þó), er kominn í
hungurverkfall til þess að fylgja eftir
kröfum um 100% hækkun á byrjunar-
launum (sem eru lægri en meðal-
mánaðarlaun í Israel). Deilan hefur
staðiö í f jóra mánuði.
Einn læknanna, sem liggur í gjör-
gæslu, fékk hjartakvilla upp úr föst-
unni.
Veröa heríögin numin
iir gildi í Póllandi?
Við brottförina frá Póllandi i gær
skoraði Jóhannes Páll páfi á yfirvöld
að leyfa verkamönnum að njóta sjálfs-
virðingar og sagði að þá fyrst mundu
þeir leggja sig fram við sín störf.
Páfinn flaug beint til Páfagarðs frá
Krakow þar sem hann lauk heimsókn
sinni með einkafundi pieð Lech
Walesa. Um þeirra viðræður hefur
ekkert verið látið uppi en Walesa hefur
boðað að hann muni í dag eða á
morgun hitta blaðamenn að máli og
skýra frá samræðum hans og páf ans.
I Krakow hafði páfi einnig hitt öðru
sinni Jaruzelski hershöfðingja, æðsta
valdamann Póllands en fyrir því hafði
ekki verið gert ráð.
Jerzy Urban, aðaltalsmaður pólsku
stjórnarinnar, lét eftir sér hafa að
margt jákvætt hefði veriö við heim-
sókn páfans en í sumu hefði þó ríkt
skoðanamunur hjá páfa og pólsku
stjóminni.
Einn nánasti ráðgjafi Jaruzelski,
Wieslaw Gornicki majór, sagði að
stjórninni gremdist stuðningsyfirlýs-
ingar páfans við Einingu og réttindi
verkalýðsins. En hann sagði að heim-
sókn páfans gæti greitt götu þess að
herlög yrðu að fullu numin úr gildi.
Nefndi hann í því sambandi, að slikt
gæti komið til greina 22. júlí næstkom-
andi sem er þjóðhátíðardagur Pól-
lands.