Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Page 26
DV. FÖSTUDAGUR24. JtJNl 1983.
34
Andlát
Þóröur Þorsteinsson á Sæbóli er látinn.
Hann var fæddur 29. mars 1902 í Vigur
við Djúp. Foreldrar hans voru Jensína
Guömundsdóttir og Þorsteinn Olafs-
son. Þórður lauk fiskimannsprófi frá'
Stýrimannaskólanum eftir eins vetrar
skólagöngu og stundaöi sjóinn um
skeiö. Eftirlifandi eiginkona Þóröar er
Helga Sveinsdóttir. Þeim varð fjög-
urra bama auöið. Árið 1936 stofnuðu
þau hjónin nýbýlið Sæból. Þar komu1
þau upp gróðurhúsum og stofnuðu
síðan blómaverslun þar. Þórður var
hreppstjóri í Kópavogi árin 1948—55,
og i hreppsnefndinni sat hann um ára-
bii fyrir Alþýðuflokkinn. Otför hans
verður gerð frá Kópavogskirkju í dag
kl. 13.30.
Anna Johannessen er látin. Hún
fæddist á Seyðisfirði 2. nóvember árið
1900. Foreldrar hennar voru hjónin
Jósefina Lárusdóttir Blöndal og
Jóhannes Jóhannesson. Anna giftist
Haraldi Johannessen, en hann lést árið
1970. Þeim hjónunum varð þriggja
barna auðið. Anna var ein af sto&i-
endum félags austfirska kvenna í
Reykjavík og var hún varaformaður
frá 1942—1966 og formaður frá 1966—
1978. Hún var kjörin heiöursfélagi í
félaginu á 75 ára afmælisdegi sínum 2.
nóvember 1975. Otför hennar var gerð
frá dómkirkjunni í morgun kl. 10.30.
Valgeir Bjömsson lést 16. júní sl.
Hann fæddist að Dvergasteini við
Seyöisfjörð 9. september 1894. For-
eldrar hans voru séra Björn Þorláks-
son og Björg Einarsdóttir. Valgeir
varð stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1913 og byggingarverkfræð-
ingur frá Polyteknisk Læreanstalt
1921. Árið 1924 varð Valgeir bæjarverk-
fræðingur og lóöaskrárritari hjá
Reykjavíkurborg og hélt því embætti
til ársins 1944 er hann tók við starfi
hafnarstjóra, en þvi starfi gegndi hann
uns hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir í febrúar 1965. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Eva Thomasardóttir.
Þeim varð f jögurra barna auðið. Otför
Valgeirs verður gerð frá Dómkirkj-
unni i dag kl. 13.30.
Eiríkur Jónsson er látinn. Hann
fæddist í Prestbakkakoti 8. september
1891. Foreldrar hans voru hjónin Hall-
dóra Eiríksdóttir og Jón Einarsson.
Eiríkur kvæntist Elínu Einarsdóttir.
Voru þau fyrst í húsmennsku í Hruna
en síðar byggöu þau sér þar bæ. Þau
eignuðust eina dóttur. Arið 1947 flutt-
ust þau hjónin til N jarðvíkur. Elín and-
aðist 14. febrúar 1969. Seinustu miss-
erin dvaldi Eirikur á Sólvangi. Otför
hans verður gerð frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag kl. 15.00.
Gústaf Loftsson lést 13. júni sl. Hann
var fæddur 9. október 1891 í Kolabæ í
Fljótshlíð, sonur Lofts Loftssonar og
Sigríðar Bárðardóttur. Gústaf kvænt-
ist Svanhvíti Sigurrós Samúelsdóttur,
en hún lést árið 1961. Þeim fæddist ein
dóttir en ólu upp þrjú fósturböm. Arið
1940 fluttustu þau hjónin að Kjóastöð-
um til dóttur sinnar og tengdasonar.
Síðastliöið ár dvaldi Gústaf hjá dóttur-
syni sínum í Hveragerði. Otför hans
verður gerð frá Haukadalskirkju í dag.
Björgvin Bjamason útgerðarmaður,
Flókagötu 69, Reykjavík, lést í sjúkra-
húsi í Danmörku 6. júní sl. Otför hans
hefur farið fram í kyrrþey að eigin ósk.
Eiríkur Ingimundarson, Tunguvegi 12
Njarðvík, lést af slysförum 20. júní sl.
Jarðarförin fer fram frá Innri-Njarð-
víkurkirkju föstudaginn 24. júní kl. 15.
Guðrún Jóhannsdóttir frá Frambæ,
Eyrarbakka, Hófgerði 18 Kópavogi, er
lést 14. júní, verður jarðsungin frá
Eyrarbakkakirkju laugardaginn 25.
júníkl. 14.
Ágústa Kristin Sigurbjömsdóttir frá
Höfn Homafirði, til heimilis að Hjarð-
arslóö 3D Dalvík, verður jarðsungin
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25.
júní.
Tilkynningar
Orlofsdvöl húsmæöra
í Garðabæ
verður á Laugarvatni vikuna 11.—17. júlí.
Nánari upplýsingar gefur Kolbrún Lorange í
sima 42526 eftir kl. 19.30 á kvöldin.
Kvenfélagið Seltjörn
minnir á ferð með eldri bæjarbúum austur
í Fljótshlið 25. júní. Lagt af stað kl. 11 frá fé-
lagsheimilinu á Seltjamamesi.
Útivistarferðir
Símsvari: 14606.
Sumarleyfisferð nr. 1.
Við Djúp og Drangajökul. Jónsmessuferð
23.-26. júní. Fuglaparadísin Æðey. Kaldalón
og Möngufoss. Drangajökulsganga ef vill.
Góðgisting.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför litlu
dóttur okkar
ALDÍSAR ÓSKAR,
Garðavegi 6, Keflavík.
Berglind Ósk Sigurðardóttir,
Guðmundur Hilmarsson.
í gærkvöldi í gærkvöldi
SMEKKLAUST LEIKRIT
Eg held að enginn ætti að geta
kvartaö yfir því að dagskrá útvarps-
ins í gærkvöldi hafi ekki verið fjöl-
breytt. Þar var sannarlega eitthvað
fyrir alla, sígild tónlist og létt, leik-
rit, gamanþáttur og ljóö með ævi-
sögubroti. Hvað vilja menn fleira?
Eg verð þó að játa það á mig að
eftir kvöldfréttirnar, sem ég hlustaði
vandlega á, steinsofnaði ég út frá
allri þessari fjölbreytni. Undanfam-
ar „haust”rigningar hafa þau áhrif á
mig að ég gæti sofið allan sólarhring-
inn. Eg missti því af þætti þeirra
Auðar og Valdísar. Fyrri þættir
þeirra stallnanna hafa verið nokkuð
misjafnir. Oft hef ég hlegið svo að ég
var komin með í magann. En
stundum varla brosað. Þeir sem
hafa verið það sem af er þessu sumri
hafa því miður fallið í síðari flokk-
inn. Ánnað hvort er ég farin að tapa
kímnigáfunni eða þeim farið að
förlast.
Eg vaknaði nógu snemma til að
heyra leikrit um tvo kokkálaöa eigin-
menn sem ætluðu að fremja sjálfs-
morð. Sérlega smekklaust útvarps-
efni, fannst mér. Leikritiö var lfka'
allt hiö undarlegasta.
Elisabet Erlingsdóttir söng að því
loknu. Enn vil ég ítreka þá kvörtun
mína að söngvarar og hljóðfæraleik-
arar em ekki kynntir áður en þeir
byrja að miðla list sinni. Kannski má
segja að Elísabetu þurfi ekki aö
kynna. En þetta ætti að vera föst
regla því sífellt er nýtt fólk að byrja
að hlusta og mér finnst það almenn
kurteisi af útvarpinu að kynna þá
sem það hleypir inn á hvert heimili.
Jafnvel þó ætla megi að gestgjafar
þekki eitthvað til gestanna.
Elísabetu fylgdi tónlist af léttara
taginu og síðan fréttir. Engar nýjar
fréttir heyrði ég frá því úr 7 fréttun-
um. Kannski ekkert hafi gerst í
heiminum á þeim tíma.
Hjálmar Olafsson var í lokin með
dagskrá um Stein Steinar . Ljúf og
f alleg dagskrá í tónum og tali.
Eg má til með að fara ögn út fyrir
efnið og að hinum ríkisf jölmiðlinum.
Mig langar að lofa tvennt og lasta
eitt. Lofið hljóta þeir Halldór og Ari
Trausti fyrir öldungis alveg frábæra
jarðfræöiþætti. Mér finnst að þegar
þeim er öllum lokið ætti sjónvarpið
aö leggja undir þá heilan laugardag
og sýna alla saman fyrir þá sem
misst hafa þátt og þátt úr. Þeir eru
sannarlega þess virði. Hitt lofsverða
atriðið eru auglýsingar um bætta
umferð. Meira af slíku.
Lastið hljóta allir þeir sem syngja
á okkar ylhýra máli um kattamat,
málningu, pakkamat og kartöflur.
Þetta er hreint að segja ömurlegt.
-DS.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir 24.-26. júní:
1. Hagavatn—Jarlhettur—Geysir. Gist í
sæluhúsi við Hagavatn. Gönguferðir með far-
arstjóra, Tryggva Halldórssyni.
2. Þórsmörk. Gist í sæluhúsi. Gönguferðir
með fararstjóra. ATH.: Miðvikudaginn 29.
júní verður fyrsta ferðin fyrir þá, sem óska að
dvelja milli ferða í Þórsmörk. Leitið upplýs-
inga á skrifstofunni og kaupið farmiða í ferð-
irnar.
Sumarleyflsferðir í júní og byrjun júlí:
23.-26. júní (4 dagar): Þingvellir—Hlöðu-
vellir—Geysir. Gönguferð með viðleguútbún-
að. Gist í húsum/tjöldum. 1.—10. júlí (10 dag-
ar): Hvítámes—Þverbrekknamúli—Þjófa-
dalir. Gönguferð. Gist í húsum. 1 þessari ferð
verður farið í Karlsdrátt, gengið á Hrútfell,
Fjallkirkjuna og víðar.
Homstrandir:
2.-9. júlí (Bdagar): Homvík—Homstrand-
ir. Gist í tjöldum. Gönguferðir frá tjaldstað
með fararstjóra, Gísla Hjartarsyni.
2.-9. júlí (8 dagar); Aðalvík—Homvík.
Gönguferð m/viðleguútbúnað. Fararstjóri:
Hjalti Kristgeirsson.
2.-9. júli (8 dagar): Aðalvík—Hesteyri.
Gist í tjöldum og famar dagsferðir um ná-
grennið.
2.-9. júli (8 dagar); Borgarfjörður eystri
— Loðmundarfjörður. Flogið til Egilsstaða,
þaðan með bíl tU Borgarf jarðar. Gist í húsum.
Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. Leitið upp-
lýsinga um nánari tilhögun ferðanna á skrif-
stofunni, öldugötu 3. Ferðafélag Islands.
Dagbúðir skáta
vifl Lækjarbotna
verða ekki
I sumar stóð til að starfrækja dagbúðir uppi í
Lækjarbotnum. En af þeim verður ekki (í
sumar). Er það vegna mikilla krafna sem við
gátum ekki orðið við fyrir tiltekinn tíma.
Haldið verður áfram i sumar að koma skála
og umhverfi í fullkomið ástand fyrir næsta
sumar. Og verður þá stefht að því að opna
búðimar í júní næsta sumar.
Dregifl í Lands-
happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins
Síðastliðinn laugardag var dregið í Lands-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins hjá borgar-
fógetanum í Reykjavík. Dregið var um 26
ferðavinninga til ýmissa landa og komu upp
eftirtalin vinningsnúmer:
1. Nr. 86841 14. Nr. 85628
2. Nr. '71092 15. Nr. 25696
3. Nr. 66889 16- Nr-59431
4. Nr. 84846 17. Nr. 2230 '
5. Nr. 91244 18. Nr. 78557
6. Nr. 34161 19. Nr. 60323
7. Nr. 80605 20. Nr. 5416
8. Nr. 70127 21. Nr. 60753
9. Nr. 18193 22. Nr. 72452
10. Nr. 60715 23. Nr. 69610
11. Nr. 41583 24. Nr. 7240
12. Nr. 86887 25. Nr. 64974
13. Nr. 81522 26. Nr. 12236
Handhafar ofangreindra vinningsmiða
framvísi þeim í skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins, Valhöll, Háaleitisbraut 1.
50 ára er í dag, 24. júní, Bragi Þórðar-
son bókaútgefandi, Dalbraut 17 á
Akranesi.
Ibúi iKambaseH:
Nýju trjáplönturnar
hans étnar niður í nótt
Helstu verkefni
Arnarflugs árifl 1982
— Helstu verkefni flugfélagsins Arnarflugs
á árinu 1982 voru þessi:
— Áætlunar- og leiguflug innanlands. Fluttir
voru rúmlega 28 þúsund farþegar og um 180
tonn af vörum.
— Áætlunarflug til Amsterdam, Diisseldorf
og Ziirich. Fluttir voru rúmlega níu þúsund
farþegar og rúm 60 tonn af vörum.
— Leiguflug milli Isiands og annarra landa.
Fluttir voru um 23 þúsund farþegar og um 40
tonn af vörum.
— Leiguflug fyrir Britannia Airways í Bret-
landi. Fluttir voru um 32 þúsund farþegar,
aðallega milli Bretlands og sólarlanda.
— Leiguflug fyrir Libyan Arab Airlines í
Libýu frá Irlandi, Belgíu og víðar úr Evrópu.
Flutt voru rúmlega 15 þúsund tonn af vörum,
einkum matvælum.
Þá flaug Amarflug einnig einstakar ferðir
eða í stuttan tíma fyrir önnur flugfélög,
þ.á m. Flugleiðir, Braathens í Noregi, Air
France, Redcoat Air Cargo og Air Gabon.
Yfir háannatímann hafði félagið tíu flug-
vélar í rekstri: Tvær Boeing 707 vöruflutn-
ingaþotur, eina Boeing 720 farþegaþotu, eina
Boeing 737 fárþegaþotu, eina Lockhead
Electra vöruflutningavél og til innanlands-
flugs voru notaðar tvær Twin Otter flugvélar,
ein Piper Cheyenne flugvél, ein Piper
Chieftain flugvél, sem síðan var skipt fyrir
nýja Cessna 402 flugvél, og ein Cessna
Conquest skrúf uþota sem leigð var inn um há-
annatímann.
Starfsmenn félagsins voru í árslok 1982 90
talsins en höfðu verið nokkuð á annað
hundrað um sumarið. Heiidarlaunagreiðslur
námu um 23 milljónum króna.
„Veiðþjófar”
á ferð við
Elliðaár
Nokkrir piltar voru gómaöir við
veiðar án leyfis í Elliðaánum um
klukkan hálfníu í gærkvöldi.
Piltarnir voru meö fremur frum-
stæðan útbúnaö við veiðar sínar, sem
voru undir Höfðabakkabrúnni. Ekki
höfðu þeir gert sér nægilega grein fyrir
að veiðar þeirra voru bannaðar.
Veiðarfærin voru ekki gerð upptæk
ogaflivar enginnsvovitaðsé. -JGH.
Hross og kindur gera íbúum í Árbæn-
um og Seljahverfi í Breiðholti lífið leitt
vegna átroðnings og skemmdarverka í
görðum þeirra.
Nú síðast í morgun þegar einn íbúi í
Kambaselinu vaknaði höfðu kindur
Eftir tiltölulega fáa árekstra að
undanfömu í Reykjavík fór árekstra-
talan nokkuð upp á viö í gær en þá urðu
alls 27 árekstrar. 1 einum þeirra var
um meiðsl á fólki að ræða. Það var í
árekstri, sem varð á gatnamótum
Borgartúns og Kringlumýrarbrautar,
I gær fór aftur að þykkna í lofti í Bela
Crkva eftir nokkurra daga heiðrík ju og
skipti engum togum að baráttuandinn
efldist að nýju við skákborðin og jafn-
teflumfækkaði.
Islensku strákarnir áttu geysigóðan
dag. Jón L. Arnason hafði svart gegn
Insam frá Austurríki og tefldi Ben-Oni
vörn. Austurríkismanninum varð smá-
vegis fótaskortur í byrjunarfræðunum
og neyddist til þess aö láta skiptamun
til að létta á stööunni en þá varð Jóni
hægur eftirleikurinn og sigraði örugg-
lega.
étið niður tré sem hann hafði nýlega
plantaö. ,
Eins og DV hefur skýrt frá háfa
hross og kindur valdið verulegu tjóni í
görðumþessarahverfaívor. -JGH.
rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Þar
rákust á tveir bílar og voru farþegi og
ökumaður í öörum þeirra fluttir á,
slysadeild Borgarspítalans.
DV er ekki kunnugt um hve meiðsli
þeirra eru mikil. Annar bílanna er
mikið skemmdur. -JGH.
Margeir Pétursson vann griska
alþjóðlega meistarann Skembris án
mikillar fyrirhafnar, Karl Þorsteins og
Elvar Guðmundsson unnu sínar skákir
og Jóhann Hjartarson lækkaði rostann
í efsta manni mótsins, júgóslavneska
stórmeistaranum Rakic. Hafði Jóhann
hvítt og náði betra tafli en tókst þó ekki
að knýja fram vinning og sömdu kepp-
endur þá um jafntefli.
Eftir sex umferðir eru Rakic og
Martinovic efstir meö 5,5 v. en fast á
hæla þeim koma Jón L., Margeir og
Jóhann meö 5 v. -BH.
Árekstrum fjölgar:
Næstum þrjátíu árekstrar í gær
Skákmótið íBela Crkva:
JÓHANN LÆKKAÐI
ROSTANN í RAKIC