Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1983, Page 1
FÆR EKKILEYFI
TILINNFLUTNINGS
— segir sjávarútvegsráöherra — íslenskt tilboð meira en
30 milljónum hærra en það erlenda
„Viö yröum óhressir hér ef stjórn-
in myndi fyrst og fremst ráðast á
okkar flota,” sagði Gísli Konráðsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa hf., er DV ræddi við
hann.
Útgerðarfélaginu hafa nú borist
tilboð í smíðí skips sem kemur í stað
Sólbaks. Alls bárust 19 tilboð. Hið
lægsta var frá Japan upp á liðlega
126 milljónir króna. Síðan komu til-
boð frá Spáni, Noregi og Þýskalandi.
Slippstöðin var með 9. lægsta tilboðiö
upp á 162 milljónir króna og Stálvík
hf. meö tilboð upp á 167 milljónir.
Sagði Gisli aö stjóm útgeröarfé-
lagsins myndi sækja um leyfi til
ríkisstjómarinnar til að fá að flytja
innskip.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði, er máliö var borið
undir hann, að stjómin héfði sam-
þykkt í fyrrasumar að ekki yrði veitt
heimild til að flytja inn skip næstu
tvö árin. Við þá samþykkt hefði verið
staöíð, „og ég mun ekki leggja til að
þessari stefnu verði breytt,” sagði
ráðherra.
„Við höfum lagt Sólbak, einu skipi
af fimm,” sagði Gísli. „Ef þessari
stefnu yrði haldið til streitu yrðum
við fyrsta útgerðarfélagið í landinu
sem yrði að fækka í sínum skipa-
flota. Það er hugsanlega hægt að
standa undir skipi sem kostar 126
milljónir, þótt það gangi ekki með
skip sem kostar 162 milljónir. Það
munar um 30—40 milljónir.
-JSS.
Þorvaldur í
Síld og físki
langhæstur
— íslenskir aðalverktakar hæstir
fyrirtækja með tvöfalt hærrí gjöld
en SÍ8—sjá einnig bls. 2
Þorvaldur Guðmundsson í Síld og tæpar 2,2 milljónir króna. Þriðji varð
fiski varð enn einu sinni skattakóngur Guðmundur Kristinsson múrara-
Reykjavíkur. I ár hefur hann vemlega meistari með rétt innan við 2 milljónir
yfirburði yfir aðra, greiðir alls um 4,5 . króna.
milljónir króna. Næstur honum kemur Næstir í röðinni eru Ingólfur Guö-
Gunnar B. Jensson húsasmlður með brandsson, forstjóri Útsýnar, Skúli
Þorvaldsson, hótelstjóri á Holti (sonur
Þorvaldar í Síld og f iski), Ivar Daníels-
son lyfsali, Borgarapóteki, og Gunnar
Snorrason kaupmaður, Hólagarði.
Samband íslenskra samvinnufélaga
er langhæst lögaöila í Reykjavík með
30,7 milljónir í heildargjöld. I öðru sæti
er Reykjavíkurborg með 18,3 milljónir
króna. I.B.M. er i þriðja sæti en síðan.
koma Eimskip, Flugleiðir, Tónlistarfé-
lagið, Hagkaup, Olíufélagið hf., Skelj-
ungur hf. og Samvinnutryggingar.
I.B.M. greiðir hæstan tekjuskatt, um
15 milljónir króna. Næsthæsti tekju-
skattsgreiðandi er Hilda hf. með 5,8
milljónir króna. Skeljungur er í þriðja
sæti og Sjóvá í f jórða.
Heildarálagning í Reykjavík 1983
nemur rétt rúmlega þremur milljörð-
um króna. Þar af greiöa einstaklingar
2,2 milljarða.
Það vekur athygli að SlS greiðir ekki
mest fyrirtækja á landinu heldur Is-
lenskir aðalverktakar á Keflavíkur-
flugvelli. Aöalverktakar greiða tvöfalt
meira en SÍS. Sjá bls. 2. -KMU.
Skattakóngur Rcykjavfkur 1883. Hann
er nú metra ea tvöfalt harrl en næsti
maður.
Svona skiptast á skin og skúrir í veöurfarinu á landinu og horfur eru á j)ví sama.
Veðurstofan spáir því að besta veðrið um verslunarmannahelgina verði á Suður-
landi, það er víst að koma norðanátt sem byrjar að hafa áhrif á laugardaginn.
Norðlendingar mega þá búast við sudda og fremur köldu. Á sunnudag er gert ráð
fyrir lægð á Grænlandshafinu og fer þá líklega allt í sömu grámygluna á suð-
vesturhorninu. Eina svarið er að leita uppi ljósu rendurnar og halda sig þar.
DV-mynd: HJH/JBH.