Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 8
8 DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Guatemala: Systurforseta rænt Systur forseta Guatemala var rænt á laugardag þar sem hún var aö koma frá vinnu sinni á spítala í höfuðborg- inni Guatemala City. Talsmenn stjóm- valda segja aö bróðir hennar, Osear Humberto Mojia Victores forseti sem nýlega steypti Rios Montt af stóli, muni ekki semja við mannræningjana. Vopnaðir menn neyddu systur for- setans, Celesta Aida Mejia Victores til að stíga upp í bifreiö þegar hún var á heimleið frá vinnu og höfðu samferðar- menn hennar ekki tíma til þess að stöðva ræningjana. Engar kröfur hafa verið lagðar fram í nafni mannræn- ingjanna. Vegatálmar voru settir upp víðsvegar umhverfis höfuðborgina og leituðu hermenn í bifreiðum. í júní rændu vopnaðir menn systur fyrrum forseta Guatemala, Efraín Rios Montt, en hann neitaði einnig að semja viöþá. Snúningur Alexand er Kielland gengur að óskum Frá Pétri Ástvaidssyni í Noregi. Fleiri þúsund áhorfendur hafa und- anfama daga fylgst með snúningi olíu- borpallsins Alexander Kielland við Stafangur en verkið hefur gengið aö óskum hingaö til og án allra óhappa. Kostnaðurinn er nú orðinn 193 milljón- ir norskra króna og eykst um milljón með hverjum deginum. Hallinn á pall- inum er nú 90 gráður en mesta hættan mun vera liðin hjá er hann hefur náð 140 gráðum. Senn sígur á seinni hluta þessa umdeilda verks en þann 15. september á því að vera endanlega ALLRA SÍÐASTA SÝNING! Vegna gífurlegrar aðsóknar og fjölda áskorana mun dávaldur- inn GAIL G0RD0N halda aukasýningu í Háskóla- bíói í kvöld kl. 9.00 Sjáið og veríð vitni að stórkostlegum dáleiðsluhæfileikum Gai/ Gordon. Kynnist dáleiðslu afeigin raun. Miðasala frá kl. 4. Ath. Uppse/t í gærkvö/di. Tryggið ykkur miða tímanlega. Vonir standa nú til að vopnahló verði gart I Líbanon eftir harða bardaga milli drúsa og falangista og stjóm- arhersins. Hér sjást tveir liðsmenn kristínna hœgrimanna standa vörð i götuvigi i Beirút. Líbanon: Miðar í átt til vopnahlés Heldur dró úr bardögum í f jöllunum sauðaustur af Beirút í nótt, eftir að samningamenn í Damaskus náði sam- komulagi um uppkast að vopnahlés- samningi sem leggja skal fyrir stjórn Líbanons. Sendiráðsmenn Saudi-araba í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, sögðu í gærkveldi að Bandar Bin Sultan, prins og sérlegur sendimaður ríkisstjórnar Saudi Arabiu í Líbanons- deilunni, hefði flogið til Kýpur til þess að sýna háttsettum embættismanni Líbanonsstjómar samningsdrögin. Sósíalíski framfaraflokkurinn, sem samanstendur að mestu leyti af drús- um og er undir stjórn Walid Jumblatt, hefur sett þær kröfur fyrir vopnahléi aö stjómarher Líbanon og hersveitir kristinna hægrimanna haldi á brott úr Shouffjöilum. Þar unnu drúsar nokk- urt land af kristnum falganistum í kjölfar brottflutnings ísraelsku her- sveitanna í síðustu viku. Embættis- menn í Beirút sögðu einnig fyrr í vik- berjast útlendingar meðdrúsum? unni að Sýriendingar, sem sjá drúsum fyrir vopnum og skotfærum, hefðu sett fram róttækar kröfur sem Líbanon- stjórn gæti ekki gengið að. Líbanskir heimildarmenn, ásamt vestrænum friðargæslumönnum, héldu því fram í gær að útlendingar, þ.e. Sýrlendingar, Palestínuarabar og Iranir, hefðu nú tekið upp vopn og berðust með drúsum. Talsmenn drúsa hafa visað þessu frá. Chile: Pinochet varar við ógnun marxismans —á tíu ára af mæli byltingar sinnar Augusto Pinochet, forseti Chile, sagði í gær að mótmæli gegn stjóm sinni og efnahagslegir örðugleikar væru tímabundin vandamál og hann varaði Chilebúa við því sem hann kall- aöi ógnun marxismans. f ræöu sinni ítrekaði Pinochet einnig að stjóm hans myndi áfram fylgja fyrri stefnu sinni, sem hún hefði fylgt í tíu ár, en ræða Pinoches, sem hann hélt í höfuðborg- inni Santiago, var einmitt liður í hátíðarhöldum sem haldin voru til þess aö minnast tíu ára afmælis byltingar- innar gegn stjórn Salvádor Allende. Aijdstaða gegn stjóm Pinochets hef- ur fariö vaxandi upp á síökastið, sér- lega eftir að efnahagsstefna ríkis- stjómar hans leiddi landið út í ógöng- ur. Síðustu þrjá daga hefur komið til átaka milli lögreglu og stjórnarand- stæðinga og hafa átta manns látist í þeim. Mannréttindahópar telja að allt að 35 þúsund manns hafi verið drepnir á tíu ára valdatíma Pinochet-stjómar- innar, flestir þeirra skömmu eftir valdarán Pinochets. „Eg skora nú á alla Chilebúa aö halda vöku sinni og verja frelsi okkar en afneita öllum alræðistilhneiging- um,” sagði Pinochet í ræðu sinni. Hann vék ítrekað í ræðunni aö stjómar- skránni sem samþykkt var 1980 en samkvæmt henni hefur hann rétt til að stjórna landinu fram til 1989. Þó sagði hann stjóm sína fúsa að íhuga þjóðar- atkvæöagreiðslu um breytingar á stjómarskránni til þess að flýta kosn- ingu þjóðþings sem annars kæmi ekki saman fyrr en 1990. Augusto Pinochet, forsetí Chile, virtíst ekki óttast stjórnarandstöðu- öflin þar í landi og boðaði ekki tíl- slakanir í ræðu sem hann hólt um helgina i tílefni tiu ára afmælis bylt- ingarinnar sem kom honum til valda. S-Kórea: Skaðabætur heimtaðar af Sovétríkjunum Stjómvöld í S-Kóreu munu fara þess formlega á leit við Sovétmenn aö þeir greiði fullar skaðabætur fyrir kóresku- farþegaþotuna sem skotin var niður fyrir tólf dögum yfir sovésku hafsvæði. Segir í yfirlýsingu kóreskra stjórn- valda að kröfu þessari verði komið á framfæri við Sovétmenn meö milli- göngu Bandaríkjamanna en S-Kóreu- menn hafa engin samskipti við Sovét- ríkin. Ekki hefur enn verið ákveðið hversu miklar skaðabætur verður far- ið framá. Talsmenn s-kóreska utanríkisráðu- neytisins sögðu einnig aö þau þrettán ríki, hverra þegnar voru um borð í far- þegaþotunni þegar hún var skotin niður, myndu hvert fyrir sig leggja fram skaðabótakröfur við sóvésk stjórnvöld. S-Kóreumenn hafa lagt til að ríkin þrettán myndi með sér við- ræðuhóp þar sem rædd yrðu sameigin- leg skref sem taka mætti til þess aö fá skaðabætur greiddar. Sovétmenn hafa viðurkennt að hafa skotið flugvélina niður en þeir halda því fram að hún hafi verið á njósna- flugi fyrir bandaríska herinn. Tals- menn Sovétríkjanna hafa þvertekiö fyrir allar hugmyndir um að Sovétrík- in greiddu skaðabætur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.