Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Side 16
16 DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Spurningin Finnst þór að gullskipsmenn œttu að hœtta leit eða halda áfram? (Spurt i Reykjavik). Stefán Eyþórsson skiifstofumaður: Mér finnst þeir ættu að halda áfram. Því ekki aö komast að því hvort skipið er þarna eðaekki? Gisli G. Isleifsson, deildarlögfræðing- j ur hjá Verðlagsst.: Eg er ekki alveg viss um það því eftir þeim upplýsing- um sem fram hafa komiö þá held ég að I skipiö finnist ekki. Kristján Oskarsson sktpsqon: , Auövitaö eiga þeir að hætta, þetta er ^ sóun á peningum. Það ætti frekar að; láta þá í Stálvík byggja einn nýjan. Gunnar Tryggvason vélstjóri: Já, ég held að þeir ættu að hætta því aö ég held aö þeir finni skipið aldrei. Bjarney Sigurðardóttir hósmóðir: Mér finnst þeir eiga að halda áfram þvi þeir eru búnir að leita það mikið. Hfldur Elín Vignir nemi: Ef þeir trúa á að þeir finni skipiö þá finnst mér að þeir ættu hiklaust aö halda áfram. 4319— 7258 biður ökumenn að gmta sín þegar komið er að gangbrautum. Bílstjórar: Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Farið ekki fram úr við gangbrautir 4319—7258 hringdi: Eg vil taka undir það sem hrædd móðir sagöi í lesendabréfi DV 8. september sl. Þetta sem hún segir í bréfinu er engin móðursýki, það eru flestar mæður hræddar um bömin sín í umferðinni um þessar mundir. I fram- haldi af því vildi ég segja frá reynslu sem ég varð fyrir i umferðinni morguninn 8. september og hef orðið fyrir oft áður. Eg var að keyra í áttina til Reykja- vikurflugvallar og kem ég að gang- braut sem þar er. Við hana beið ung stúlka sem ætlaði að fara yfir götuna. Eg stoppaöi bílinn á hægri akrein, rétt hjá gangbrautinni, og stúlkan var mér á hægri hönd. Á vinstri akreininni kom bíli á 60—70 kílómetra hraða og stoppaði ekki við gángbrautina heldur hélt beint áfram. Þetta vakti mjög mikla gremju hjá mér og því miður náði ég ekki númeri bílsins því annars hefði ég kært hann. Þetta hefur oft skeð áður, bæði hef ég séð þetta og lent íþessusjálf. Eg vil skora á bílstjóra aö gæta sín á því að fara ekki fram úr við gang- brautir. Eg er sjálf orðin það hvekkt á þessu aö ég þori varla lengur að stoppa við gangbraut. Eg myndi kenna sjálfri mér um ef slys yrði þegar ég stoppaði við gangbraut. Lesandi vill fá meira fjör i morgunútvarpið. LÉTTARILÖG í MORGUNÚTVARPIÐ Lesandi hringdi: Ég vildi einungis koma því á fram- færi við ráðamenn Ríkisútvarpsins hvort ekki væri möguleiki á því að hafa lög þau sem spiluð eru í morgunút- varpinu aðeins fjörugri. Þegar menn eru að reyna að rífa sig upp til vinnu á morgnana þá hjálpar ekkert betur við að ,,kvikka” menn upp en létt tónlist. Sú tónlist sem spiluö hefur verið að undanförnu þætti mér betur við hæfi að fá að heyra á kvöldin, um það bil sem ég er aö sofna, en að hún sé spiluð á morgnana er alveg ótækt. Einsöngslög og kóra og klassísk tónlist er ekki sú tegund tónlistar sem spila skal á morgnana. Það er skylda Ríkisútvarpsins að halda að mönnum menningarlegu efni og er allt gott um það að segja en hvaða tilgangi þjónar þaö að vera að spila áðurnefnda tegund tónlistar sem frekar svæfir menn en vekur? Hvort sem það eru svo morgun- þulirnir eöa tónlistardeildarmenn sem velja þá tónlist sem spiluö er í morgun- útvarpinu þá vildi ég segja það að það er hvorki greiöi viö menninguna né hlustendur aö spila tónlist sem ekki á heima í morgunútvarpinu. Reyniö að taka til greina þær ábendingar sem komu frá hlustendum í hlustendakönn- uninni sem gerð var fyrir skörnmu, því þar kom skýrt fram að menn vilja fá að hlýða á létta tónlist, og þá sér- staklega á þeim tíma þegar menn þurfa mest á henni að halda, þ.e. þegar þeir eru grútsyfjaðir á morgnana. INDIANAMOLD KOMIN í LEITIRNAR Indiánmr voru fróöir um nétturiog Imknlstyf- Nú or oltt Mf IðBknlstyfjum imfl- éno oröió vinsœft af konum som fogrunormoöol. HVAR FÆ ÉG INDÍÁNAMOLD? 2259—4540 hringdi: boriöámeðkvasta. Getur nokkur frætt mig ó því hvar ég Mér er sagt aö þetta e&ii sé komið 2259—4540 spurði i DV. 8. sept. hvar hœgt vmri að kaupa indiána- mold. Anna Heiða Pálsdóttir hringdi: I DV 8. september sl. var lesandi með fyrirspum um hvar hægt væri að fá indíánamold. Ég vil benda á að hægt er aö fá hana í versluninni Lady Rose á Laugavegi 28. Það eru margir sem halda aö indiánamold sé bara einn hlutur en hér er um þrjá liti að ræða í meiki og þrjá í kinnalit. Meikið kostar 180 krónur en kinna- liturinn 98 krónur. Þetta eru sömu efni og Egyptar notuðu forðum og heitir ALOE. Þetta efni er einnig hægt aö fá í versluninni Disella, Miðvangi 41, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.