Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Qupperneq 28
28 DV/TVTÁNUÐAmra tl SÉPlfeMSÉRTsíB3>: 1 íþróttir íþróttir Iþróttir íþróttir Sigurganga West Ham heldur áfram — David Swindlehurst með þrennu þegar „Hammers” vann Coventry 5:2 West Ham er nú eina liöiö í 1. deild meö fullt hús stiga eftir fimm um- ferðir, hefur sigrað alla andstæðinga sína til þessa, sem er glæsileg byrjun hjá Lundúnaliðinu. West Ham hefur reyndar oft byrjað vel áður en oft hefur sigiö á ógæfuhliðina hjá þessu léttleikandi liði er lfða tekur á vetrar- mánuðina og vellir fara að þyngjast. Það var frábær ieikur sem áhorfendur fengu að sjá á Upton Park, einkum af hálfu West Ham er Coventry kom í heimsókn. Strax á 7. min. fékk West Ham víta- spymu en hinn ungi markvörður Coventry, Perry Suckling, varði spyrnuna frá Ray Stewart. Aðeins tveim mínútum síðar náði Coventry forystunni er miövörðurinn Trevor Peake skoraöi með skalla sitt fyrsta mark fyrir lið sitt, en hann var nýlega keyptur frá Lincoln City. Nick Platnauer bætti síðan öðru marki við fyrir Coventry á 15. mínútu og útlitið allt annaö en gott hjá West Ham. En þá tóku „Hammers” loks við sér svo um munaði og meö tveggja mínútna millibili um miðjan fyrri hálfleikinn skoruðu þeir tvö mörk og jöfnuðu metin. Fyrst skoraöi David Swindlehurst með hörkuskalla eftir fyrirgjöf frá Brooking og Steve Whitt- on sá um jöfnunarmaridð. Swindlehurst náði síðan forystunni fyrir West Ham fyrir leikhlé. Whitton skoraöi síöan sitt annað og fjórða mark West Ham í byrjun seinni hálfleiks með þrumuskoti af 20 metra færi. Fimmta marmo URSLIT tirslit urðu þessi í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á iaugardaginn: 1. DEILD: Arsenal—Liverpool 0—2, Aston Villa-Norwich 1-0 Everton-WBA 0-0 Ipswich-Stoke 5-0 Leicester-Tottenham 0—3 Man. Utd.-Luton 2-0 Nott.For.-QPR 3-0 Sunderiand-Southampton 0-2 Watford-NottsC. 3-1 West Ham-Coventry 5-2 Wolves-Btrmingham 1—1 2. DEILD: Barnsley-Middlesb. 0-2 Blackburn-Derby 5-1 Carlisle-Shrewsbury 1-0 Charlton-Sheff. Wed. 1-1 Chelsea-Cambridge 2-1 Grimsby-N ewcastle 1—1 Leeds-Cardllf 1-0 Oldham-Huddersfield 0-3 Portsmouth-Man. City 1-2 Swansea-Brighton 1-3 Sunnudagur: C.Palace-Fulham 1—1 3. DEILD: Bolton-Waisall 5-1 Bournemouth-Wigan 0-1 Brentford-Lincoln 3-0 Exeter-Rotherham 0-1 Hnli-MillwaU 5-0 Newport-Bradford 4-3 Oxford-Burnley 2-2 Plymouth-Gfllingham 1—1 Port Vale-Bristol R. 2-0 Sheff. Utd.-Preston 1—1 Southend-Wimbledon 1—1 Föstudagur: Orient-Scunthorpe 1-4 4. DEILD: Aldershot-Buryt 1-2 Blackpool-Northampton 2-4 Bristol C.-Hertlepool 2-4 Chester-Crewe 0-1 Chesterffeld-York 2-1 Darilngton-Swlndon 1-0 Petersbrough-Torquay S-4 Rochdale-Readlng 4-1 Tranmere-Wrexham 2-1 Föstudagur: Hallfax-Mansfield 0-0 Stockport-Colchester 0-0 Sunnudagur: Doncaster-Hereford 0-0 David Swindlehurst — hetja West Ham. skoraði hetja West Ham í þessum leik, David Swindlehurst, og fullkomnaöi þarþrennusína. Ipswich byrjar vel Leikmenn Ipswich hafa byrjað keppnistímabilið mjög vel og eru nú í öðru sæti eftir stórsigur á Stoke City á Portman Road, 5—0. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark George Berry, varnarmanns Stoke; hann renndi bolt- anum í eigið mark eftir aö bakvörður Ipswich, George Burley, sendi fyrir markið. Eric Gates bætti ööru mark- inu við fyrir Ipswich um miðjan fyrri hálfleikinn og John Wark skoraöi þaö þriðja á síðustu mínútu hálfleiksins. Fyrirliöi Ipswich, Paul Mariner, skoraði síðan f jórða markið með miklu þrumuskoti af löngu færi og Wark Swindlehurst skorar mest David Swindiehurst hjá West Ham er ná markahæstur i 1. deildarkeppnlnni — hefur skorað sex mörk. Paul Mariner bjá Ipswich hefur skorað flmm og þelr Steve Whitton hjá West Ham og Amold Miihren hjá Manchester United eru með fjögur mörk. skoraði sitt annað og fimmta mark Ipswich úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Leikmenn Ipswich léku þenn- an leik mjög vel og bestur þeirra var þó útherjinn snjalli, Kevin O’Callag- han, sem átti þátt í t veimur markanna. Elliot „svarti sauður" Luton Luton var betri aðilinn í fyrri hálf- leik gegn Manchester United á Old Trafford og var Brian Stein mikill klaufi að skora ekki fyrir liö sitt í hálf- leiknum en þá brenndi hann af í al- gjöru dauðafæri. En dæmið snerist við í síðari hálfleiknum; þá náöu leikmenn United öllum tökum á leiknum, en þrátt fyrir þaö þurftu leikmenn liðsins vitaspymur til að skora mörk sín í leiknum. Þaö var Paul Elliot sem var „svarti sauður” Luton í þessum leik, hann braut fyrst af sér mjög klaufa- lega inni í vítateig sínum og úr víta- spyrnunni skoraði hollenski landsliðs- maðurinn Amold Múhren af öryggi fyrra mark United. Skömmu síðar braut hann aftur af sér með því að handleika knöttinn innan vítateigs. Aftur tók Miihren vitið en Les Sealey, markvörður Luton, varði skot hans en hélt ekki boltanum og Arthur Albiston, sem fylgdi vel á eftir, náði að skora. Eftir þetta áttu leikmenn Manchester United tvívegis skot í stangir Luton marksins. Fyrsti sigur Tottenham Tottenham vann sinn fyrsta sigur á leiktímabilinu en það sigraöi hina lán- lausu nýliöa Leicester City, 3—0 á Filbert Street. Það var Garth Crooks, sem skoraði fyrsta markið fyrir Spurs á 26. mínútu og Gary Mabbutt bætti við öðru marki með síðustu spymu fyrri hálfleiksins. Gary Stevens skoraði þriðja markið i síðari hálfleiknum og sitt fyrsta fyrir félagið síðan hann var keyptur frá Brighton sl. sumar. Tottenham hafði algera yfirburði í leiknum og lék sinn besta leik þaö sem af er. Mark Grew, markvörður Leicester, tókst að halda markatölunni niöri með snilldarmarkvörslu í leikn- um. Leicester er því enn á botni 1. deildar; hefur ekkert stig hlotið að loknum fimm umferðum. Markaleikur á City Ground Þaö var fjörugur leikur á City Ground þegar Nottingham Forest fékk Q.P.R. í heimsókn. Gestirnir tóku fomstuna snenoma í leiknum með marki ungs nýliða, Ian Dawes að nafni, en Stapheri Hodge jafnaði skömmu síðar fýrir Forest og undir lok fyrri hálfleiks skoraði Peter Daven- port annað mark Forest og þeir leiddu því 2—1 í hálfleik en Simon Stainrod jafnaði fljótlega metin fyrir Q.P.R. í síöari hálfleik. En undir lok leiksins varð Bob Hazell, miðvörður Q.P.R. fyrir því óhappi að senda boltann í eigið mark og færði Nottingham Forest sigurinn á silfurfati. Létt yfir Elton John Stjómarformaður Watford, Elton John, hefur ömgglega andað léttar er lið hans vann sinn fyrsta sigur á leik- tímabilinu gegn Notts County. Það blés ekki byrlega í fyrstu því Rachid Harkouk skoraöi fyrir Notts County strax á fyrstu mínútum leiksins en þeir George Reilly og Charies Palmer skoruðu tvívegis og færðu Watford forystu í hálfleik, 2—1. Það var svo enski landsliðsmaðurinn John Bames sem bætti þriðja markinu við í síðari hálfleik og tryggði Watford ömggan sigur. • Southampton vann góðan sigur á Roker Park í Sunderland er það tók sér ferð á hendur yfir endilangt England. Það var Steve Moran sem skoraði bæði mörk suðurstrandarliðsins, eitt í hvorum hálfleik. Erfitt hjá Úlfunum Það ætlar að ganga erf iðlega hjá Ulf- unum eftir að þeim tókst aö endurheimta sæti sitt í fyrstu deildinni eftir eins árs vem í þeirri annarri. Þeim hefur enn ekki tekist að sigra í leik til þessa og urðu þeir að sætta sig við jafntefli á heimavelli sínum gegn Birmingham. Þetta var slakur leikur tveggja slakra liða. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik; Mel Eves náði foryst- unni fyrir Ulfana, en fyrrum mið- vörður Everton, Billy Wright, jafnaði metin fyrir Birmingham úr víta- spyrnu. • Gamla kempan Dennis Mortimer skoraöi eina mark leiksins fyrir Aston Villa er liöið sigraöi Norwich City á Villa Park. Áhorfendum f ækkar stööugt hjá Everton Aðeins 15000 áhorfendur mættu á Goodison Park, heimavöll Everton, er það fékk W.B.A. í heimsókn og er þetta minnsti áhorfendafjöldi hjá liðinu um alllangt skeið. Var þetta þriðji heima- leikur liðsins á þessu leiktimabili og hefur áhorfendum fækkað verulega frá y Rai jjj ij li eri m n” ki om líl m n i ísl ki rið vann öruggan sigur (2:0) yfir Arsenal á Highbury Eaglandsmeistarar Liverpool sýadu það á Highbury I Lundúnum svo ekki varð nm viHst að þeir koma til með að verða í slagnum um Englands- meistaratitilina enn eitt árið. Þrátt fyrk hrakspár margra um að lið þeirra væri á niðurleið eg að ýmsir leikmenn þess væru orðnir nokkuð eins eg t.d. Kenuy Ðalglish og Kennedy. Ea það veru einmitt þek tveir sem áttu fráhæran leik i stér- á aaáti Arsemd og voru bestu i Liverpool. Arsenal byrjaði betur i leiknum og strax á upphafsmínútunum átti Tony Woodcock þrumuskat í þversiá Liver- pool-marksins. Það var síðan gegn gangi leiksins að Liverpool náði forust- unni á 17. mínútu, þá átti Kenny Dal- glish frábæra sendingu á Craig John- ! ston sem skoraði örugglega fram hjá Pat Jennings í Arsenal markinu. Eftir þetta óvænta áfall fór leikur Arsenal að smáriðlast eg Liverpool-vélin náði æ betri tökum á leiknum og undir lok fyrri hálfleiksins þurfti Jennings að taka á honum stóra sínum til að ver ja þrumuskot frá Ian Rush. Arsenal hyrjaði seinni hálfleikinn eins og þann fyrri með sóknarleik og þurfti Bruce Grobbelaar tvívegis að taka fram sparihanskana til að verja, í bæði skiptin frá Charlie Nicholas. Liverpool gerði síðan endanlega út ' um leikinn er gamla kempan Kenny Dalglish skoraði með lúmsku skoti frá vítateigshorni á 70. mbiútu. Eftir þetta 'mark var aöeins eitt lið á vellinum, Liverpool. Þurfti Pat Jennings að sýna snilldartakta til að verja frá Rush og Sounessílokin. Frank MacLintock, fyrrum Arsenal leikmaður, er var meðal fréttamanna BBC á leiknum sagði aö enn vantaði töluverða yfirvegun i lið Arsenal og Charlie Nicholas þyrfti tlma til að að- lagast leik liðsins. En með Liverpool væri engin spurning, enn eitt árið i toppbaráttunni. Llðin sem léfcu é Highbury voru þannig skipuð: ARSENAL: Jennings, Sansom, Robson, Peter Nicholas, O’Leary, Rix, Sunderland, Woodcock, Charlle Nicholas, Davis, Hill. LIVERPOOL: Grobbelaar, Neal, Kennedy, Hansen, Lawrenson, Souness, Lee, Johnston, Dalgllsh, Rush og Robinson. Moran — skoraði bæði mörk Dýrlinganna. hverjum leik. Veldur þetta forráða- mönnum Everton miklum áhyggjum sem von er því árangur liðsins und- anfarið er ekki til þess líklegur að draga til sín fleiri áhorfendur. Leikur Everton gegn W.B.A. þótti mjög daufur. Everton sótti mun meira án þess þó að skapa sér nokkur mark- tækifæri. En eina marktækifæri leiksins átti síðan holienski landsliðs- maðurinn hjá Albion, Romeo Zonder- van, undir lok leiksins en skaut gróf- lega framhjá úr góðu færi. En það hefði verið meira en lítið ósanngjamt ef honum heföi tekist aö skora og stela öUum stigunum þrem. Fimm mörk Garners Mesta einstaklingsframtak dagsins var í 2. deUd. Það var miðframherji Blackbum Rovers, Simon Garner, sem gerði það. Hann skoraði ÖU mörkin í 5—1 sigri liðs síns gegn Derby County. Manchester City vann góðan sigur á Portsmouth, 2—1 á suðurströndinni. Nicky Morgan skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Portsmouth en Ian 1 Tolmie og Derek Parlane svöruöu með tveim mörkum fyrir City. McCluskey skoraði sigurmark Leeds (1—0) gegn Cardiff. Eddy Gray, framkvæmda- stjóri Leeds, tók fram skóna að nýju og valdi sjálfan sig í Uðið og átti stórieik. Mick Speight skoraði fyrir Grimsby en Kevin Keegan sá um aö bjarga stigi fyrir Newcastle. Bumstead og Walker skomðu mörk Chelsea í 2—1 sigrinum gegnCambridge. STAÐAN rx DEILD West Ham 5 5 0 0 15—3 15 Ipswich 5 4 10 15-3 13 Man.Utd. 5 4 0 1 10-5 12 Liverpool 53 2 0 6—2 11 Southampton 5 3 2 0 5-1 11 Aston Vflla 5 3 11 9-7 10 Coventry 5 2 2 1 9-10 8 Luton 5 2 12 10-7 7 Nott. Forest 5 2 1 2 7-7 7 Blrmingham 5 2 1 2 5-7 7 Notts County 5 2 0 3 8-8 6 Arsenal 5 2 0 3 6-8 6 Norwich 5 1 2 2 6-5 5 Watford 5 1 2 2 8—9 6 Tottenham 5 1 2 2 6-7 5 QPR 5 1 2 2 6-8 5 WBA 5 1 2 2 6-8 5 Everton 5 1 2 2 2-5 5 Sunderiand 5 113 5-10 4 Stoke 5 1 0 4 3—9 3 Wolverhampton 5 0 2 3 5—10 2 Leicester 5 0 0 5 1—14 0 2. DEILD Sheff. Wed. 5 3 2 0 6—2 M*. 11 Chelsea 4 3 1 0 9-2 10 Mlddlesb. 4 3 1 0 8-4 10 Man. City 5 3 118-5 10 Hnddersfield 4 2 2 0 7—3 8 Biackburn 5 2 2 1 8-5 8 Charlton 4 2 2 0 4-1 8 Shrewsbury 5 2 2 1 4-3 8 Newcastie 5 2 1 2 7—5 7 Leeds 5 2 1 2 6-7 7 Portsmouth 4 2 0 2 5—4 6 Brighton 5 2 0 3 7—7 6 Cardiff 5 2 0 3 5—6 6 Grimsby 4 12 15-5 5 Camhridge 4 112 3—3 4 . Carlisle 5 113 1—4 4 Oldham 4 112 1-4 4 Ðerby 5 113 4—13 4 Barnsley 4 1 0 3 6-7 > | C. Palace 4 0 2 2 3-6 2 Fulham 4 6 2 2 1-4 2 Swansea 4 0 1 3 2-4 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.